Morgunblaðið - 18.08.1991, Side 27
MÖRGllNBLAÐÍb ATVINI\IA/RAÖ/SIUIÁsÍiÍÍM;d2Si:
m -
ATVIN NUAUGi YSINGAR
í§í
ÞJÓDLEIKHIÍSIÐ
auglýsir eftir fólki til eftirtalinna starfa frá
og með 1. sept. nk.:
Saumastofa
Forstöðukona óskast á saumastofu leikhúss-
ins. Starfið felur í sér saumaskap og yfirum-
sjón með öllum búningasaumi svo og umsjón
með búningasafni leikhússins. Kjólameist-
ara- eða klæðskeramenntun nauðsynleg.
Einnig vantar okkur saumakonu ífullt starf.
Hljóðdeild
Hljóðtæknimaður óskast til að veita forstöðu
hljóðdeild leikhússins. Starfið felur í sér
umsjón með upptöku á leikhljóðum og tón-
list í leiksýningar, flutning þeirra á sýningum,
svo og eftirlit með öllum hljómtækjabúnaði
hússins. Rafeindavirkjamenntun nauðsynleg.
Umsóknum um ofangreind störf sé skilað á
skrifstofu Þjóðleikhússins fyrir 25. ágúst nk.
Nánari upplýsingar í síma 1 12 04.
Þjóðleikhússtjóri.
Vantar strax
Okkur vantar gott sölufólk til starfa nú þeg-
ar. Reynsla er ekkert skilyrði. Boðið er upp
á sölunámskeið fyrir fólk sem hefur:
Vilja til að komast áfram.
Bíl og aðgang að síma.
Hreint sakavottorð.
Vinsamlegast hafðu samband við Örn Árna-
son, leiðbeinanda, og fáðu nánari upplýsing-
ar mánud. og þriðjud. milli kl. 13.00-17.00 í
síma 653016.
Fjármagnsmarkaður
„Deildarstjóri“
Fyrirtæki á fjármagnsmarkaðnum hefur falið
mér að leita að starfsmanni til starfa í stöðu
deildarstjóra.
Starfssvið: Yfirumsjón og dagleg rekstrar-
stjórnun skrifstofu, fjármálaumsýsla, ýmis
samskipti og ráðgjöf við viðskiptamenn,
þ.e.a.s. fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga,
áætlanagerð, uppbygging á tölvukerfi fyrir-
tækisins, ásamt ýmsum öðrum tilfallandi
verkefnum.
Leitað er að einstaklingi með viðskiptafræði-
menntun eða aðra sambærilega menntun,
aðila sem 'hefur gott vald á þekkingu á tölv-
um, reynslu af umsýslu fjármuna, velskipu-
lagður og umfram allt að hafa frumkvæði
og geta starfað sjálfstætt. Viðkomandi aðili
þarf að vera lipur í allri umgengi, nákvæmur
og tilbúinn að leggja mikið á sig þegar þörf
krefur.
í boði er krefjandi stjórnunar- og uppbygging-
arstarf hjá vel virtu og framsæknu fyrirtæki.
Góð laun fyrir réttan aðila og líflegt og gott
samstarfsumhverfi.
Umsóknareyðublöð, ásamtfrekari upplýsing-
um um starf þetta eru veittar á skrifstofu
minni í Hafnarstræti 20, 4. hæð.
STARFSMANNAÞJÓNUSTA hf.
HAFNARSTRÆTI20, VIÐ LÆKJARTORG, 101 REYKJAVÍK, SÍMI624550.
Bifvélavirkjar
Vegna mjög aukinna umsvifa á bílaverkstæði
okkar, óskum við eftir vönum bifvélavirkjum.
Verkstæði okkar þjónar Ford, Saab og Citro-
en bifreiðum. Þar sem framangreindar bif-
reiðategundir eru mjög tæknilega þróaðar
hafa starfsmenn okkar mikla möguleika á
að auka þekkingu sína á nýrri tækni bifreið-
anna og þjónustuverkfæra.
Skriflegum umsóknum skal skila á skrifstofu
okkar.
G/obus?
LÁGMÚLA 5. S. 681555.
Fjármagnsmarkaður
Þjónusta - Ráðgjöf - Sala
Fyrirtæki á sviði fjármálaþjónustu hefur falið
mér að útvega sér starfsmann til starfa í
stöðu fulltrúa.
Starfssvið: Þátttaka í sölu á veðbréfum, veita
upplýsingar, þjónustu og ráðgjöf til viðskipta-
manna, bæði fyrirtækja og einstaklinga.
Leitað er að viðskiptafræðingi eða aðila, sem
hefur þekkingu og reynslu af umsýslu fjár-
muna. Viðkomandi þarf að vera töluglögg/ur
hafa góða framkomu, vera einlæg/ur og hafa
gaman og gott vald á að umgangast fólk,
veita þjónustu og umfram allt að hafa frum-
kvæði og geta starfað sjálfstætt.
í boði eru góð laun fyrir réttan aðila, spenn-
andi og krefjandi starf, góð vinnuaðstaða í
líflegu og skemmtilegu umhverfi.
Umsóknareyðublöð, ásamtfrekari upplýsing-
um um starf þetta eru veittar á skrifstofu
minni í Hafnarstræti 20, 4. hæð.
STARFSMANNAÞJÓN USTA hf.
HAFNARSTRÆTI20, VIÐ LÆKJARTORG, 101 REYKIAVIK, SÍMI624550.
Snyrtifræðingur
Snyrtifræðingur óskast til starfa á snyrtistofu
okkar og verslun frá 1. septeber nk.
Hálfs- og/eða heilsdagsstarf.
Reyklaus vinnustaður.
Vinsamlega sendið skriflega umsókn er
greini aldur, menntun, fyrri störf o.s.frv. fyrir
21. ágúst nk.
SNYRTISTOFA
SNYRTIVÖRUVERSLUN
BANKASTRÆTI 14 • SÍMI 17762
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa nú þegar.
Hlutastörf. Góð starfsaðstaða.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
688500.
Kennarar
íþróttakennara vantar að Laugabakkaskóla
í Miðfirði, Vestur Húnavatnssýslu. Almennur
kennari kæmi einnig til greina. Góður skóli,
góð aðstaða, nýtt íþróttahús í smíðum. Þrjú
þróunarverkefni í gangi í skólanum.
Lág húsaleiga og hitaveita.
Upplýsingar veitir Jóhann Albertssson, skóla-
stjóri, í símum 95-12901 og 95-12985.
Tollstjórinn í
Reykjavík auglýsir
Lausar eru til umsóknar þrjár fulltrúastöður
á tollstjóraskrifstofunni í Reykjavík.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Frekari upplýsingar gefur starfsmannastjóri.
Umsóknum skal skila á eyðublöðum, sem
fást á skrifstofu embættisins í Tryggvagötu
19, Reykjavík, fyrir 1. september nk.
Reykjavík, 15. ágúst 1991.
Tollstjórinn íReykjavík.
Fjármálastjóri
Öflugt þjónustufyrirtæki, sem starfar bæði
hérlendis og erlendis, hefur falið mér að leita
að topp einstaklingi til að taka að sér stöðu
fjármálaráðherra.
Starfssvið: Umsjón með öllum fjárreiðum fyrir-
tækisins. bókhaldi, samningagerð, áætlana-
gerð, samskipti við ýmis fyrirtæki og stofnan-
ir, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Leitað er að aðila með viðskiptafræðimennt-
un eða aðra sambærilega menntun. Nauð-
synleg 3-5 ára reynsla af fjármálastjórnun
og góðri þekkingu á bókhaldsúrvinnslu og
áætlanagerð.
í boði er áhugavert stjórnunarstarf, fjöl-
breytt verkefni, skemmtilegt starfsumhverfi
og góð laun fyrir réttan aðila.
Umsóknareyðublöð, ásamt frekari upplýsing-
um um starf þetta, eru veittar á skrifstofu
minni í Hafnarstræti 20.
Teitur IArusson
STARFSMANNAÞJÓNUSTA hf.
HAFNARSTRÆTI20, VIÐ LÆKJARTORG, 101 REYKJAVÍK, SÍMI624550.
IWXJOFOt.RADNINCVVL
Handbók
Fyrir fólk í atvinnuleit
Handbókin „Ert þú í atvinnuleit" er tvímæla-
laust besta ráðgjöf sem sérhver einstakling-
ur í atvinnuleit getur aflað sér. Bókin er skrif-
uð af sérfræðingum Ábendis. M.a. er farið
í gegnum helstu þætti atvinnuumsókna,
hvernig best er að leita að starfi, hvernig á
að undirbúa sig undir viðtöl og hvernig á að
meta starfstilboð. Bókin fæst hjá okkur í
Ábendi og kostar 1.000 kr. Bók fyrir þá serm
vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum.
Ábendi, Laugavegi 178, s. 689099,
(á mótum Boihoits og Laugavegar).
Opiðp frá kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00.