Morgunblaðið - 18.08.1991, Qupperneq 30
30
t?r
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1991
nnnsnrnttc/mr*/; ----
TpTjnA
) r arrn a nvri/M’
1
HVOLSVOLLUR
Hvolsvöllur
- kennarar
Hvolsvöllur er fallegur, ört vaxandi staður í
100 km fjarlægð frá Reykjavík.
Okkur vantar þó enn kennara í eftirtaldar
greinar: íþróttir, smíði og almenna kennslu.
Þróunarverkefni í gangi í list- og verkgrein-
um, einsetnir skólar, áhugasamir kennarar
og frábærir nemendur. Húsnæði í boði.
Upplýsingar hjá skólastjórum í símum
98-78301 og 98-78384.
!3
Kennarar
íþróttakennari óskast strax í Kópavogsskóla.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 40475
og heima í síma 45656.
í Digranesskóla vantar kennara til almennrar
kennslu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 40290
og heima í síma 42438.
Hjallaskóli
Kennara vantar í kennslu yngri barna, 2h hlut-
ar stöðu, árdegis.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 42033.
Sjálfstæð
skrifstofustörf
Traust útflutningsfyrirtæki í miðbæ
Reykjavíkur óskar eftir að ráða:
1. Skrifstofumann til að annast birgðabók-
hald, útflutningsskjöl, símvörslu og út-
skrift reikninga.
2. Skrifstofumann til að sjá um framleiðslu-
bókhald og útflutningspappíra. Mikil
tölvuvinna.
í báðum tilvikum er skilyrði að umsækjendur
hafi reynslu af ofangreindu ásamt hæfileika
til að starfa sjálfstætt.
Æskilegur aldur 25-35 ár.
Umsóknarfrestur ertil og með 23. ágúst nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Liósauki hf
Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavlk - Simi 621355
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
BARÓIMSSTÍG 47
Heilsugæslan í Reykjavík
auglýsir eftir:
Hjúkrunarfræðingi í hluta- eða fullt starf við
Heilsugæslustöðina í Hlíðum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
622320.
Hjúkrunarfræðingi í hlutastarf við Heilsu-
gæslustöðina í Efra-Breiðholti.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
670200.
Hjúkrunarfræðingi í hlutastarf við Heilsu-
gæslustöðina í Fossvogi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
696780.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á af-
greiðslu Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
við Barónsstíg 47.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra
heilsugæslustöðva í Reykjavík, Barónsstíg 47.
Ritari á eiidur-
skoðunarskrifstofu
Óskum eftir að ráða ritara til starfa. Starfið
felst í ritvinnslu, símavörslu, bókhaldsstörf-
um og annarri almennri skrifstofuvinnu.
Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild
Mbl. merktar: „Endurskoðun - 11840“ fyrir
1. september nk.
Kennarar - kennarar
Vegna forfalla vantar kennara í hálfa til heila
stöðu við sjávarútvegsdeild V.M.A, Dalvík..
Meðal kennslugreina eru íslenska og tölvu-
fræðsla.
Upplýsingar gefur deildarstjóri í símum
96-61383 og 96-61085.
Ritstjóri
Staða ritstjóra við Lion - tímarit Lionshreyf-
ingarinnar á íslandi er laus til umsóknar.
Upplag tímaritsins er um þrjú þúsund eintök
og kemur það út sex sinnum á ári. Laun
skv. samkomulagi. Æskilegt er að umsækjandi
hafi reynslu á viðkomandi sviði, hafi vald á
enskri tungu og sé félagi í Lionshreyfingunni.
Umsóknarfrestur er til 1. september nk.
Umsóknir merktar „Ritstjóri" sendist til
Lionsheimilisins, Sigtúni 9, 105 Reykjavík.
Frekari upplýsingar veitir fjölumdæmisstjóri
Lions, Erlendur G. Eysteinsson, Stóru-Giljá,
541 Blönduósi, sími 95-24294.
Ríkisútvarpið
auglýsir laus störf
0
I útvarpinu
Starf dagskrárgerðarmanns á tónlistardeild
Útvarpsins.
Tónlistarmenntun eða reynsla á sviði klass-
ískrar og/eða léttrar tórílistar áskilin.
Tö?
SJONVARPIÐ
I sjónvarpinu
Starf Ijósameistara í upptökudeild við afleys-
ingar fram til 1. júlí 1992. Rafvirkjamenntun
og starfdreynsla er áskilin.
Starf leikmunavarðar í leikmunadeild.
Nánari upplýsingar gefur yfirsmiður í síma
693900.
Starf dagskárkynnis í sjónvarpi. Dagskrár-
kynnir skrifar texta sinn sjálfur, hann þarf
að hafa góða framsögn og framkomu og
vera vel að sér í íslensku og erlendum tungu-
málum.
Umsóknarfrestur um þessi störf er til 28.
ágúst nk. og ber að skila umsóknum til
Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, eða Sjónvarps-
ins, Laugavegi 176, á eyðublöðum sem fást
á báðum stöðum.
RÍK/SÚTVARP/Ð
Hárgreiðslunemi
óskast
Upplýsingar í síma 28068 á kvöldin.
monroe
Héngneiöslustofa Templanasundi 3 ® 626161
Blönduós
Leikskólastjóri
Laus er til umsóknar staða leikskólastjóra
við Barnabæ, Blönduósi. Um er að ræða fjöl-
breytt, vel launað starf. Húsnæði fylgir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskóla-
stjóri í síma 95-24530.
Bæjarstjóri.
Bygginga-
verkfræðingur
- tæknifræðingur
Fyrirtækið er virt verkfræðistofa í Reykjavík.
Starfssvið: Byggingaeftirlit, áætlanagerð,
kostnaðargát, samanburður kostnaðar og
áætlana o.fl.
Við leitum að verkfræðingi/tæknifræðingi,
æskileg sérhæfing og starfsreynsla á sviði
framkvæmdaeftirlits og stjórnunar. Reynsla
tölvuvinnslu nauðsynleg. Ahersla er lögð á
faglega þekkingu og góða samskiptahæfi-
leika.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson,
nk. þriðjudag og miðvikudag f.h.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hfM merktar:
„Verkfræðistofa 445“, fyrir 24. ágúst nk.
Hagva ngurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusfa Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
0
/J/ ÚTFLJJTNINGSRAÐ ÍSIANDS
Upplýsingafulltrúi
Óskum að ráða starfsmann í nýtt starf upp-
lýsingafulltrúa.
Meðal verkefna eru:
* Almenn upplýsingagjöf til viðskiptavina
Útflutningsráðs.
* Móttaka og svörun fyrirspurna erlendra
og innlendra aðila.
* Utgáfa fréttabréfs.
* Leit markaðsupplýsinga m.a. í uppflettirit-
um og gagnabönkum.
* Uppbygging og viðhald bókasafns.
* Undirbúningur og móttaka erlendra blaða-
manna og gesta.
Krafist er góðrar almennrar menntunar,
tungumálakunnáttu, auk þess sem æskilegt
er að viðkomandi þekki til íslensks viðskipta-
lífs og útflutnings. Viðkomandi þarf að geta
starfað sjálfstætt að fjölbreyttum verkefnum
og hafa góða framkomu.
Skriflegar umsóknir sendist Útflutningsráði
íslands, Lágmúla 5, PO box 8796, 128
Reykjavík, merktar: „Upplýsingafulltrúi".
Útflutningsráð íslands er sjálfstæð samtök útflytjenda. Markmið þess er
að kynna ísland og íslenskar vörur erlendis og vinna að vaxandi útflutn-
ingi landsmanna.