Morgunblaðið - 18.08.1991, Page 34
u
MORGjUNBjjAÐIÐ; ATVÍNIMA/RAÐ/SMÁ sunnuöagur 18. ÁGÚST 1991
ATVIN N U A UGL ÝSINGAR
Líffræðingur
Líffræðingur óskast til starfa við erfðatækni-
verkefni á tilraunastöð Háskóla íslands í
meinafræði að Keldum.
Upplýsingar í síma 674700.
„Au pair“
i'Danmörku
„Au pair“ óskast í eitt ár á 4ra manna heim-
ili rétt við Kolding á Jótlandi. Bílpróf nauðsyn-
legt. Þarf að geta byrjað sem fyrst.
Upplýsingar gefur Helga Björg í síma
9045-7557-2003.
Filmuskeytinga-
maður
Meistara í filmuskeytingu vantar.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í síma 622100 og á kvöldin í
síma 39892 (Sveinn).
Prentsmiðjan RÚN hf.
Blómaskreytingar
Blómabúðin Dögg óskar að ráða starfskraft
til blómaskreytinga frá 1. okt. ’91.
Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu í
blómaskreytingum og geta unnið sjálfstætt.
Upplýsingar á staðnum.
Blómabúðin Dögg,
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði.
Innheimtufólk
Vantar duglegt innheimtufólk: 190 Vogum -
310 Borgarnesi - 360 Hellissandi - 400
ísafirði - 410 Hnífsdal - 540 Blönduósi -
600 Akureyri - 603 Akureyri - 660 Reykjahlíð
- 710 Seyðisfirði - 740 Neskaupstað -
755 Stöðvarfirði.
Upplýsingar hjá Barnablaðinu Æskunni, sími
17336.
Akureyri
Hárgreiðslusveinn
eða meistari
óskast til starfa á hárgreiðslustofu á Akur-
eyri. Vinnutími eftir samkomulagi.
Hártískan sf.,
sími 96-26666.
Óskum eftir að ráða
starfsfólk í
eftirtaldar stöður:
Nema í framreiðslu.
Nema í matreiðslu.
Starfsfólk í uppvask.
Nánari upplýsingar eru veittar á staðnum,
ekki í síma.
Hársnyrtistofan Art
óskar eftir sveini í 60% starf, eða eftir sam-
komulagi. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
UpplýsingarveitirElín ívs. 39990 og hs. 35263.
Heimilisaðstoð
Okkur vantar í vetur aðstoð við heimilishald-
ið frá ca. kl. 15-19.
Nánari upplýsingar í síma 11024 f.h.
Reyklaust heimili.
Lögfræðingur
Ungur lögfræðingur óskar eftir starfi hjá lög-
mannsstofu, félagasamtökum, stofnun eða
fyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu til lengri eða
skemmri tíma.
Áhugasamir vinsamlega leggi inn upplýsing-
ar á auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. september
merktar: „Haust - 91 “.
Starfskraftur
í mötuneyti
Starfskraftur óskast í mötuneyti Bændasam-
takanna í Bændahöllinni við Hagatorg frá og
með 1. september nk.
Umsóknum skal skila til auglýsingadeildar
Mbl. merktar: „E- 9504“ fyrir 23. ágúst nk.
Aðstoðarfólk
Óskum að ráða aðstoðarfólk til framleiðslu-
starfa.
Upplýsingar á staðnum hjá verkstjóra.
Brauð hf.,
Skeifunnil 9.
Afgreiðslustörf
Sláturfélag Suðurlands óskar að ráða í nokk-
ur afgreiðslustörf í söludeild á Skúlagötu 20.
Áhersla er lögð á stundvísi og reglusemi.
Góður vinnutími og afkastabónus.
Gott möguneyti með ódýru fæði.
Upplýsingar í starfsmannahaldi, Frakkastíg 1.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Þroskaþjálfi
Störf meðferðarfulltrúa
Þroskaþjálfa vantar til starfa á sambýlum
fyrir fatlaða á Reykjavík. Ennfremur viljum
við ráða meðferðarfulltrúa.
Menntun, áhugi/reynsla í starfi, sem sérstak-
lega tekur til mannlegra samskipta, er æskileg.
Upplýsingar gefur forstöðumaður á sambýli
við Stuðlasel í síma 79978 og forstöðumaður
á sambýli við Grundarland í síma 678402.
Vélstjóri
óskast á Sölva Bjarnason BA-65.
Vélarstærð 2100 hestöfl.
Upplýsingar í símum 94-2110 og 94-2136.
Útgerðarféiag Bílddælinga hf.
Rafvirkjar
Raftækjavinnustofa á Suðurnesjum óskar að
ráða rafvirkja. Þarf að geta unnið sjálfstætt
og vera vel að sér í skiparafmagni.
Upplýsingar í síma 92-13693 á kvöldin
(Björn).
„Au pair“
- Þýskalandi
Þýskur prófessor óskar eftir „au pair“ til að
gæta þriggja drengja, 8, 7 og 5 ára, í eitt
ár eða lengur. Við erum staðsett í fallegumý
bæ við ána Rín, ca 60 km frá Frankfurt.'
Æskilegt er að viðkomandi tali þýsku.
Upplýsingar í síma 656388 (Kristján).
Starfsfólk
Rekstrarfélag Álafoss hf. óskar eftir að ráða
starfsfólk í banddeild og á lagertil tímabund-
inna starfa.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannahald í
síma 666300.
Rekstrarfélag Álafoss.
Múrarar
Múrarar og verkamenn vanir múrviðgerðum
óskast til starfa strax.
Upplýsingar í síma 686475.
Verkhf.,
Súðarvogi 28-30.
Vélstjóri/vélvirki
Ós húseiningar hf. óska eftir að ráða vél-
stjóra/vélvirkja til viðhaldsstarfa.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar
næstu daga í síma 651444 milli kl. 10.00 og
12.00 eða á staðnum í Suðurhrauni 2,
Garðabæ.
LANDMÆUNGAR
ÍSLANDS
rm
Setjari óskast
Óskað er eftir setjara í vinnu við kortagerð.
Reynsla í Macintoshtölvuumbroti nauðsynleg.
Umsóknir sendist fyrir 1. september nk. og
liggja umsóknareyðublöð frammi í afgreiðslu
Landmælinga íslands, Laugavegi 178, 2.
hæð. Upplýsingar gefur Svavar í síma
681611 milli kl. 9 og 11, dagana 26. og 27.
ágúst nk.