Morgunblaðið - 18.08.1991, Page 44
Bögglapóstur ég 1 imMtiftltT ^i feiS ^i N Á M A N
um ollt land
PÓSTUR OG SÍMI Ot Landsbanki mk islands Banki allra landsmanna
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTIIÓLF 1555 / AKUREYRI: IIA FNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Slippstöðin átti
lægsta tilboðið
Smíði skipa fyrir Malaví:
SLIPPSTÖÐIN á Akureyri átti,
samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins, lægsta tilboð í smíði
rannsóknarskips og fiskiskips
fyrir Malaví en Þróunarsam-
vinnustofnun íslands kostar
smíði rannsóknarskipsins að
hálfu á móti Norræna þróunar-
Veiðimaður
diTikknar
í Soginu
Veiðimaður drukknaði í Sog-
inu í landi Bíidsfells í Grafnings-
hreppi í gærmorgun.
Tilkynning um að maðurinn,
sem er 57 ára, hefði horfið barst
lögreglunni á Selfossi um klukkan
; _hájf tíu um morguninn. Hálftíma
seinna fannst maðurinn látinn.
Hann hafði verið út í ánni að veiða.
Orsakir slyssins eru ókunnar.
A _ __
ASI og BSRB undirbúa kjarasamninga;
Ahersla lögð á auk-
inn kaupmátt launa
sjóðnum sem lánar hinn helming-
inn og lánar auk þess fé til smiða
fiskiskipsins.
Útboðið var einskorðað við
íslenskar skipasmíðastöðvar. Alls
gerðu 7 aðilar tilboð í verkið og
voru tilboðin opnuð í Malaví í gær
og þar er verið að fara yfir þau.
Tilboð Slippstöðvarinnar er rétt
rúmar 100 milljónir króna, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Áætlað er að hafist verði handa
við smíði annars skipsins í næsta
mánuði en hins þremur mánuðum
síðar, og mun verkið taka um hálft
ár. Verða skipin send út í pörtum
og sett saman á staðnum.
Malaví er lítið ríki í SA-Afríku á
bökkum hins geysistóra Malaví-
vatns. Þar veiða landsmenn um 80
þúsund tonn af fiski árlega, en
mikill skortur er á þekkingu um
lífríki vatnsins.
íslendingar munu leggja til skip-
stjóra og vélstjóra á rannsóknar-
skipið fyrstu mánuðina, en íslensk-
ur líffræðingur mun stjórna rann-
sóknum þar í tvö ár.
SAMNINGAR aðildarfélaga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja eru
lausir frá 1. september nk. og samningar aðildarfélaga Alþýðusam-
•Rnds íslands um miðjan september. Af hálfu beggja samtakanna og
einstakra félaga þeirra er nú unnið að undirbúningi nýrra kjarasamn-
inga. Ögmundur Jónasson formaður bandalagsins segir að grunntónn-
inn í kröfugerð félaganna í komandi samningum muni hljóða upp á
aukinn kaupmátt kauptaxta. Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusam-
bandsins telur líklegt að auk kaupmáttar þá muni kröfugerð ASÍ
snerta aðgerðir stjórnvalda, einkum þá þætti sem lúta að velferðar-
kerfinu og vaxtastefnu stjórnarinnar.
Ásmundur Stefánsson segist
reikna með því að í kröfugerðum
aðildarfélaga Alþýðusambandsins
verði lögð rík áhersla á kaupmáttar-
tryggingu. „Ég tel reynsluna af
núverandi kerfi hafa verið nokkuð
góða,“ segir Ásmundur, „en vissu-
lega má einnig hugsa sér annað
fyrirkomulag.“
á segir Asmundur að stefnumót-
un stjórnvalda muni setja svip sinn
á komandi samningaviðræður.
„Margir hafa áhyggjur af því að
velferðarkerfið verði eyðilagt," segir
Ásmundur. „Áhrif hárra raunvaxta
valda eihnig áhyggjum. Hávaxta-
stefna ógnar ekki einungis heimil-
unum í landinu heldur einnig fyrir-
tækjum og því er óhjákvæmilegt að
gera tilkall til þess að aðgerðir
stjómvalda beinist að því að lækka
vexti.“
Ákvarðanir þess efnis að kjara-
raílin yrðu rædd innan félaganna í
-'Shiar voru teknar í maí í vor af
báðum launþegasamtökunum. Að
sögn Ásmundar Stefánssonar, for-
seta ASÍ, vantaði þá töluvert á að
kröfugerð sambanda og félaga væri
fullmótuð og mikil óvissa var um
fiskkvóta og væntanlegar aðgerðir
stjórnvalda. Nú er stefnt að þvi að
undirbúningsnefnd kjarasamninga
““~í hittist í annarri viku september
og meti stöðuna varðandi þær samn-
ingaviðræður sem framundan eru.
Á mánudag verður haldin Banda-
lagsráðstefna BSRB þar sem full-
trúar félaganna koma saman og
ræða hvort einstök félög semji sér-
staklega við vinnuveitendur sína eða
haft verði samflot í samningunum.
Vatnsrennibraut vígð
Morgunblaðið/Bjami
Yngsta kynslóð Kópavogsbúa lét ekki segja sér tvisvar frá vatnsrennibraut sem tekin var í notkun í
Sundlaug Kópavogs á föstudag og fjölmennti í laugina.
Umfangsmiklar ósonmæl-
ingar framkvæmdar í vetur
í NÓVEMBER næstkomandi
munu hefjast umfangsmiklar
mælingar á ósonlaginu yfir
Norður-Atlantshafssvæðinu á
vegum fjölmargra Evrópuþjóða
og verður Island einn aðal mæl-
ingastaðurinn. Þetta átak er í
framhaldi af því að nýlegar
mælingar benda til þess að óson-
Iagið sé að þynnast yfir Evrópu
og óttast menn livað muni á
næstunni gerast yfir norður-
hveli. Munu mælingarnar, sem
standa fram í mars 1992, verða
gerðar frá jörðu, með loftbelgj-
um og úr flugvélum. Mumi
vísindamennirnir vinna í sam-
vinnu við Veðurstofu Islands í
Keflavík og í Reykjavík. Ér þetta
gert til þess að kanna þau efni
og efnaferli sem hafa áhrif á
óson, til þess að hægt sé að
leggja mat á hvort ósonlagið er
raunverulega að þynnast eða
ekki yfir svæðinu. Þetta kemur
fram í viðtali um ástand óson-
lagsins við Guðmund G. Bjarna-
son, eðlisfræðing, í blaðinu í dag.
Frá íslandi eru til tölulegar upp-
iýsingar um ósonmæiingar með
loftbelgjum á vegum Veðurstof-
unnar allt frá 1957, ómetanlégar
mælingar, að því er Guðmundur
segir. Og nú er ísienskur eðlisfræð-
ingur á förum til Boulder í Banda-
ríkjunum til þess að vinna frekar
úr þeim og bera saman við útreikn-
inga í tölvulíkani með öflugustu
tölvu sem völ er á. Eftir það og
mælingarnar yfir svæðinu í vetur
á vegum „The European Arctic
Stratospheric Ozone Experiment"
verða möguleikar á að meta hvað
er raunveruiega að gerast hér í
háloftunum. Að þessu standa flest-
ar Evrópuþjóðir, en hér munu það
einkum verða Spánveijar, Grikkir
og Belgíumenn, sem standa að
rannsóknunum, auk Islendinga.
Segir Guðmundur að á síðustu
þremur árum hafi komið í ljós á
norðurhveli að mikilvægustu stað-
irnir fyrir þessar rannsóknir séu
þeir sem liggja á mörkum ljóss og
myrkurs eins og ísland.
Sjá viðtal bls. 20-21.