Morgunblaðið - 24.08.1991, Blaðsíða 25
lUÖAaflAO’JA,
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1991
a 8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. AGUST 1991
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Hrun sovézka
kommúnistaflokksins
Nú þegar er ljóst, að hið
misheppnaða valdarán í
Moskvu mun hafa víðtækari
afleiðingar og leiða til meiri
breytinga í Sovétríkjunum en
nokkum óraði fyrir, að orðið
gæti. Eitt af því, sem við blas-
ir eftir atburði gærdagsins í
rússneska þinginu, er hrun
sovézka kommúnistaflokks-
ins. Rússland er langstærsta
og fjölmennasta lýðveldi Sov-
étríkjanna. Það er kjarni ríkja-
sambandsins. í augsýn alþjóð-
ar og fólks um víða veröld og
frammi fyrir aðalritara
sovézka kommúnistaflokks-
ins, undirritaði Jeltsín, þjóð-
kjörinn forseti Rússlands, til-
skipun um tímabundið bann
við starfsemi kommúnista-
flokksins innan lögsögu
rússneska lýðveldisins. í kjölf-
ar þessarar tilskipunar hefur
skrifstofum kommúnista-
flokksins víðs vegar um landið
verið lokað.
í ljósi sögu Sovétríkjanna
og kommúnistaflokksins eru
þessir atburðir svo ótrúlegir,
að menn standa agndofa.
Kommúnistaflokkurinn hefur
verið þungamiðjan í stjórn-
kerfí kommúnista í Sovétríkj-
unum. Allar aðrar stofnanir,
herinn, KGB og embættis-
mannakerfið, hafa lotið valdi
kommúnistaflokksins. Fram á
síðustu ár hefur starf aðalrit-
ara kommúnistaflokksins ver-
ið valdamesta embættið í Sov-
étríkjunum. Kommúnista-
flokkurinn hefur stjórnað öllu
og þeir, sem ekki voru félagar
í kommúnistaflokknum, gátu
ekki búizt við nokkrum starfs-
frama. Nú hefur starfsemi
þessa flokks verið stöðvuð
nánast í einu vetfangi og leið-
togar hans, jafnvel forseti
Sovétríkjanna, geta ekki að
gert!
Augljóst er, að veikasti
hlekkurinn í málflutningi
Gorbatsjovs á blaðamanna-
fundinum í fyrradag var vörn
hans fyrir kommúnistaflokk-
inn. Hún var ekki sannfær-
andi og jafnframt gaf hún til
kynna, að sovézki forsetinn
væri ekki í tengslum við raun-
veruleikann í kringum sig,
hann gerði sér einfaldlega
ekki grein fyrir þeirri grund-
vallarbreytingu, sem orðið
hefur í sovézku þjóðfélagi á
örfáum dögum. Haldi þessi
þróun áfram verður ekkert
eftir af sósíalismanum í Sov-
étríkjunum eftir nokkur miss-
eri og kommúnistaflokkurinn
verður jafn lítill og áhrifalaus
og bræðraflokkar hans eru í
Austur-Evrópuríkjunum.
Að vísu er ástæða til að
ganga hægt um gleðinnar
dyr. Ekki má gleyma því, að
þótt hrun kommúnistaflokks-
ins blasi við er herinn enn
sterkt afl í Sovétríkjunum.
Þótt herinn hafi ekki staðið
sameinaður að baki valdaræn-
ingjunum er ekki þar með
sagt, að hann muni ekki hlýða
skipunum sovézka forsetans.
Þess vegna er of snemmt að
fagna sigri og líta svo á, að
lýðræðissinnar hafi haft fullan
sigur í Sovétríkjunum. En allt-
ént er augljóst, að kjarninn í
veldi kommúnista, flokkurinn
sjálfur, er lamaður.
Þegar hrun kommúnismans
hófst í Austur-Evrópuríkjun-
um gekk það ótrúlega fljótt
fyrir sig. Hrun kommúnista-
flokksins í Sovétríkjunum hef-
ur orðið með ógnar hraða. Að
sumu leyti má segja, að hann
hafi fallið eins og spilaborg.
Þessi flokkur hefur staðið
fyrir einhverri mestu kúgun,
sem mannkynið hefur kynnzt.
í Sovétríkjunum sjálfum voru
tugmilljónir manna drepnar
samkvæmt ákvörðunum for-
ystumanna kommúnista-
flokksins. Nálæg ríki voru
hernumin samkvæmt ákvörð-
unum þessa flokks. Sovézkir
skriðdrekar ruddust um og
fólk var myrt með köldu blóði
skv. skipunum þessa flokks.
Nú tala menn í Sovétríkjunum
um valdaræningjana sem
glæpamenn. Hver er munur-
inn á valdaræningjunum og
þeim, sem stjórnað hafa
kommúnistaflokki Sovétríkj-
anna frá því að byltingin var
gerð og fram eftir öldinni?
Margt bendir til þess, að
tími uppgjörsins við þessaa
fortíð sé að ganga í garð í
Sovétríkjunum. Það verður
sársaukafullt uppgjör en það
verður mikil hreinsun í
sovézku þjóðfélagi. Það er
traustvekjandi að fylgjast með
umræðum af því tagi, sem
fram fóru í rússneska þinginu
í gær. Sá magnaði fundur
bendir til þess, að lýðræðið
sé að byija að festa rætur
austur þar.
VALDARANIÐ I KREML MISTOKST
Stofufangelsisvist Gorbatsjovs:
Valdaræningj ar
tóku dulmálslykla
fyrir kjarnavopn
London. Reuter.
HARÐLÍNUMENNIRNIR, sem
gerðu tilraun til valdaráns í Sov-
étríkjunum, hafa líklega haft yfir-
stjórn sovésku kjarnorkuvopn-
Afstaða hersins:
Avallt and-
vígur vald-
aráninu
-segir aðstoðar-
varnarmálaráðherra
Moskvu. Reuter.
JÚRÍJ Jasín, hershöfðing-i og að-
stoðarvarnarmálaráðherra í Sov-
étríkjunum, sagði að yfirmenn
hersins hefðu ákveðið að óhlýðnast
skipunum hinnar sjálfskipuðu
neyðarnefndar á fundi sem haldinn
var kl. 9 á miðvikudagsmorgun.
Meðal þeirra sem sæti áttu í neyð-
arnefndinni, var Dmítríj Jazov,
þáverandi varnarmálaráðherra.
Jasín sagði fæsta yfirmenn hersins
hafa vitað nokkuð um valdaránið fyrr
en á mánudagsmorgun og að hersveit-
irnar hefðu unnið samkvæmt skipun-
um Jazovs. Herinn hreyfði engum
mótmælum við valdaráninu fyrr en á
miðvikudag, að þeim hermönnum und-
anskildum sem gengu tii liðs við Bor-
ís Jeltsín. Að sögn Jasíns var ákveðið
á fundinum á miðvikudag að skipa
öllum hersveitunum að fara frá
Moskvu, aflétta útgöngubanni, hætta
stuðningi við neyðarstjórnina og biðja
Jazov varnarmálaráðherra að gera
slíkt hið sama.
Auk Jasíns hafa yfirstjómir örygg-
islögreglunnar KGB, innanríkisráðu-
neytisins og kommúnistaflokksins
fírrt sig allri ábyrgð á valdaráninu.
anna á sinni hendi um hríð, að
sögpi breskra sérfræðinga í varn-
armálum. Bandaríska dagblaðið
Washington Post hefur eftir rúss-
neskum þingmánni, Vladímír Lys-
enkó, að samsærismennirnir hafi
tekið í sína vörslu skjalatösku
Míkhaíls Gorbatsjovs meðan þeir
héldu honum í stofufangelsi á
Krímskaga. í töskunni hafi verið
dulmálslyklar sem notaðir yrðu
ef gefin yrði skipun um notkun
kjarnorkuvopna.
„Líf heimsbyggðarinnar var í
höndum manna sem Gorbatsjov hef-
ur kallað ævintýramenn," segir blað-
ið. George Bush Bandaríkjaforseti
segir að hann hafí ekki fengið nein-
ar upplýsingar um breytingar á yfir-
stjórn kjarnorkuvopna Sovétríkj-
anna þá þijá daga sem ekki náðist
samband við Gorbatsjov og óvissa
ríkti vegna valdaránsins. Hann sagði
fréttamönnum að ekkert benti til
þess að hætta hafi verið á kjamorku-
vopnaátökum.
Gorbatsjov skýrði frá því á frétta-
mannafundi á fimmtudag að hann
hefði ekki haft neina möguleika á
að ná sambandi við umheiminn
meðan hann var í stofufangelsi í
sumarhúsi sínu. Ymsir sérfræðingar
í alþjóðamálum segjast furðu lostnir
yfir því að voldugasti maður risa-
veldis skuli ekki hafa traustari mög-
uleika á fjarskiptum en raun beri
vitni. „Mér finnst þetta harla viðvan-
ingslega að verki staðið," sagði Sir
John Hackett, breskur hershöfðingi
á eftirlaunum og höfundur skáld-
sögu um átök milli risaveldanna
tveggja. Sérfræðingur í varnarmál-
um sagði einkennilegt að ekki væri
tryggt að Sovétleiðtoginn geti not-
fært sér gervihnattasamband; hann
virðist hafa treyst á hefðbundnar
símalínur sem valdaræningjar hafi
að sjálfsögðu tekið úr sambandi.
■
í’.wlií
fcf t-
Moskva í sigurvímu
Reuter
Geysilegur manníjöldi, að líkindum hundruð þúsunda manna, söfnuðust saman á fimmtudag við hús rússneska
þingsins til að fagna afhroði harðlínuaflanna og hylla Borís Jeltsín, forseta Rússlands. Jeltsín sagði þjóðina
hafa unnið bug á afturhaldinu og mikil fagnaðarlæti brutust út þegar hann skýrði frá því-að hinn gamli fáni
Rússlands keisaranna væri á ný orðinn þjóðfáni landsins. Stjórnmálaskýrendur álíta að Jeltsín sé nú orðinn
áhrifamesti leiðtogi Sovétríkjanna þótt Míkhaíl Gorbatsjóv haldi enn sovéska forsetaembættinu.
Heimsblöðin um Sovétríkin:
Harðlínumemi hafa greitt
sjálfum sér náðarhöggið
London. Reuter.
VIÐBRÖGÐ heimsblaða við enda-
lokum valdaránsins í Moskvu ein-
kenndust af gleði yfir lyktum þess
og sigri lýðræðisafla. Almennt er
talið að Borís Jeltsín slandi með
pálmann í höndunum eftir atburð-
ina, og að harðlínumennirnir hafi
haft sjálfa sig og málstað sinn að
fífli. Mörg blöð hvöttu til aukinnar
efnahagsaðstoðar við Sovétríkin,
en vöruðu Míkhaíl Gorbatsjov, Bor-
ís Jeltsín og sovéska alþýðu við því
að enn væri mikið verk óunnið og
vandamálin mörg.
Bandaríska blaðið New York Times
sagði á þriðjudag, að sovésk alþýða
hefði snúið bökum saman gegn síð-
ustu örþrifaráðum gömlu afturhalds-
aflanna og að „hafi einhveijir efast
um að ferskir vindar léku um Sovét-
ríkin, hefur þessi stórkostlegi sigur
frelsisins sannfærí þá.“ Blöðin fögn-
uðu því hve fáir létust í valdaráninu,
hæddust að samsæri harðlínumann-
ana og kölluðu hálfvelgju.
S-afríska blaðið Business Day sagði
Pravda full siálfsásökunar
lUncl/im Pmdm'
Moskvu. Reuter.
PRAVDA, málgagn sovéska kommúnistaflokksins í áratugi, birti í dag
á forsíðu yfirlýsingu þar sem starfsmenn saka sig um að hafa ekki
sýnt hlutlægni í fréttaflutningi af valdaránstilrauninni. Starfsmannafé-
lag Prövdu heitir því að gera breytingar á starfsliði blaðsins og ýms-
ir verði látnir víkja. Þar segir ennfremur að hefði Pravda kunngert
afdráttarlaust um stöðu helstu málgagna kommúnistaflokksins viðvíkj-
andi hinni svonefndu neyðarnefnd hefði það getað breytt gangi mála.
Klykkt er út með að heita því að undirtitli blaðsins verði breytt. Hann
var í morgun „Almennt sljórnmáladagblað KOmmúnistaflokksins" í
stað „málgagn Kommúnistaflokksins“.
í yfirlýsingunni er sagt að ástæða
sé til að áfellast blaðið fyrir að mið-
stjórn og stjórnmálaráð flokksins
skuli ekki hafa gripið í taumana og
með þessu hafi umbótasinnuðum
kommúnistum verið gerður hinn
mesti óleikur. Þetta hafi orðið til að
ýta undir að bylgja kommúnista-
andúðar ríði yfir Sovétríkin.
Þá tilkynnti Izvestía, dagblað rík-
isstjórnarinnar, að Nikolaj Jefímov,
afturhaldssamur ritstjórí blaðsins,
hefði verið rekinn úr starfi. í stað
hans muni frjálslyndur umbótasinni
og aðstoðarritstjóri, Igor Golumbíov-
skíj, taka við. Jefímov var skipaður
í starfið af Anatólíj Lúkjanov, for-
seta Æðsta ráðsins, sem nú er sagð-
ur einn helsti skipuleggjandi valdar-
ánstilraunarinnar. Pravda og íz-
vestíja voru tvö af níu blöðum sem
birtu tilskipanir neyðarnefndarinnar
þar sem sovéska þjóðin var hvött til
að styðja aðgerðir hennar.
Sovéska sjónvarpið, sem birti
einnig allar tilskipanirnar, sýndi á
fimmtudag myndir frá átökunum í
grennd við rússneska þinghúsið í
Moskvu. Þar voru þrír menn drepn-
ir. Þá greindi Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti frá því að hann hefði
rekið úr starfi Leoníd Kravtsjenkó,
yfirmann TASS-fréttastofunnar.
Brottvikningin hefur ekki verið stað-
fest opinberlega. Míkhaíl Gorbatsjov
réð Kravtsjénkó og hefur opinber-
lega lögsögu yfir TASS. Sovéska
sjónvarpið sagði að Valentín Lasútk-
in, sem var næstæðsti stjórnandi á
TASS, hefði tekið við daglegum
rekstri fréttastofunnar.
Flaug Jazov til Krím
fyrir valdaránið?
Vona að Jeltsín verði
forseti Sovétríkjanna
- segir Natalía Viktorovna Demidova
„ÞETTA er ótrúlegur Iéttir. Það er erfitt að lýsa því með orðum
en ég get sagt að þriðjudagurinn og dagurinn í gær voru eins og
svart og hvítt. Fyrstu tvo dagana eftir að fregnin um vaidaránið
barst var ég gjörsamlega niðurbrotin manneskja,“ segir Natalía
Viktorovna Demidova sem kom hingað til Islands frá Leníngrad í
lok janúar.
„Ég var hrædd, mjög hrædd
við óvissuna, sár og reið út í
harðlínuklíkuna sem hafði svo
óvænt hrifsað völdin og hafði
gífurlegar áhyggjur af vinum
mínum og fjölskyldu sem ég hef
ekki haft spurnir af síðan þetta
dundi yfir.
Það var ekki fyrr en á mið-
vikudagsmorgun að mér varð
heldur rórra. Ekki af því að
ástandið væri neitt betra. Það
var ekki fyrr en um hádegisbil
að ljóst varð að valdarænin-
gjamir voru ,að láta í minni po-
kann. Við fyrstu fregnir af því
að dæmið væri að snúast við var
ég milli vonar og ótta, vissi ekki
hvort ég átti að hlæja eða gráta,
en nú er ég glöð og þakklát fyrir
að frelsi og lýðræði hafa sigrað
þá andstyggð sem kommúnismi og
einræði eru.“
Natalía hefur ekki getað náð
í ættingja sína og vini í Sovét-
ríkjunum enn: „Það sem mér er
kannski efst í huga núna er löng-
unin til að skreppa heim og sjá
það með mínum eigin eyrum og
heyra fólkið mitt segja að allt
sé í lagi.
Þrátt fyrir þennan ósegjanlega
létti er ég ekki mjög bjartsýn á
framhaldið. Ég vona að þeir sem
nú hafa sigrað standi við það að
sækja valdaræningjana til saka og
þá verður ekki hjá því komist að
rannsaka hlut Gorbatsjovs í þess-
um atburðum. Það þarf enginn að
segja mér að hann hafi ekki haft
veður af því sem var í aðsigi.
Hvernig forseti er það sem kemur
bara af fjöllum þegar svona ósköp
dynja yfir?
Sjálf er ég ekki ýkja hrifín af
Gorbatsjov. Ef hann á að hljóta
stuðning þjóðarinnar þarf hann að
sýna í verki að honum er alvara
með að bæta lífskjörin. Sovétmenn
hafa ekki þekkt annað en þrældóm
en þeir sætta sig ekki við slíkt leng-
ur. Það sýna síðustu atburðir svo
ekki verður um villst. Ég hef mæt-
ur á Jeltsín og ég vona innilega
að þetta verði til þess að hann
verði forseti Sovétríkjanna."
Natalía kom til íslands ásamt
íslenskum vini sínum frá Len-
íngrad þar sem hún vann við að
skipuleggja popptónleika. „Þeir
íslendingar sem ég hef kynnst
eru vinsamlegir og taka mér vel
en ég rek mig sífellt á það að þið
vitið ekkert um Sovétríkin, ekkert
Natalía Viktorovna Demidova
um það líf sem lifað er þar, þið
vitið ýmislegt um pólitíkina þar og
eruð vel að ykkur um hagi Gor-
batsjovs og Jeltsíns, en þar með
er það eiginlega upptalið. Hjá okk-
ur er mikið að gerast í lista- og
menningarlífi og þar er gróskan
mest utan hins opinbera kerfis,
ekki síst í poppinu sem er einskon-
ar neðanjarðarstarfsemi enn sem
komið er.“
Viðtal: ÁR
Washington. International Herald Tribune.
AÐ SÖGN bandarískra embættis-
manna flaug Dmítríj Jazov, mar-
skálkur og fyrrum varnarmálaráð-
herra Sovétríkjanna, til Krímskaga
við Svartahaf og ræddi við Míkhaíl
Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna,
aðeins nokkrum klukkustundum
áður en hann og aðrir háttsettir
sovéskir cmbættismenn gerðu til-
raun til að fremja valdarán aðfara-
nótt mánudags.
Bandarísku embættismennirnir
segja að ekki sé vitað hvað Gorbatsjov
og Jazov fór á milli, en ýmsar ályktan-
ir megi draga af för varnarmálaráð-
herrans. í fyrsta lagi gæti verið að
hann hafi flogið til Krímskaga, þar
sem Gorbatsjov var í sumarleyfi, til
þess að greina forsetanum frá því að
bola ætti honum frá völdum og hann
yrði settur í stofufangelsi.
Sé þetta rétt, sagði ónafngreindur
heimildarmaður, gæti marskálkurinn
einnig hafa viljað fullvissa sig um
trygglyndi varðmannanna, sem áttu
að gæta Gorbatsjovs.
Embættismennirnir sögðu að í öðru
lagi gæti verið að Jazov hafi viljað
reyna að semja um það á síðustu
stundu við Qorbatsjov að hann gengi
í lið með harðlínumönnum og skrifaði
ekki undir sambandssáttmálann, sem
draga átti úr valdi miðstjórnarinnar
og veita því til Sovétlýðveldanna.
„Ýmislegt bendir til þess að komið
hafi verið að máli við hann,“ sagði
starfsmaður bandaríska utanríkisráð-
uneytisins og átti við Gorbatsjov.
„Ekkert hefur komið fram til að úti-
loka þessar kenningar. En einnig
gæti verið að Jazov hafi einfaldlega
farið til Krímskaga til þess að vera
viss um að hann yrði handtekinn."
í frásögn Gorbatsjovs af fangavist-
inni á Krímskaga hefur hvergi komið
fram að neinn áttmenningana, sem
sæti áttu í sjálfskipuðu neyðarnefnd-
inni, hafi komið að máli við sig fyrir
handtökuna.
að forseti landsins, F.W. de Klerk, og
Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna,
þyrftu að kveða niður gjaldþrota hug-
myndafræði, og að löndin tvö þyrftu
bæði að fást við þijóta sem teldu sig
geta snúið hjóli tímans aftur á bak.
Dagbladet í Noregi sagði að lýðræð-
isöflin hefðu sýnt að þeim væri treyst-
andi, „nú verður að veita þeim gríðar-
lega efnahags- og tækniaðstoð.“
Fréttaskýrenduni bar saman um
að misheppnað valdaránið hefði í raun
veitt kommúnistaflokknum náðar-
höggið og belgíska dagblaðið Het
Nieuwsblad, sagði að á augabragði
hefði örvæntingarfullt valdaránið flýtt
fyrir þeirri þróun seni ætlunin var að
stöðva. Blaðamaður breska vikublaðs-
ins The Spectator hélt fram, að ekki
ætti að leyfa Gorbatsjov að bjarga
sovéska heimsveldinu, heldur nýta
tækifærið og taka upp lýðræðislegri
stjórnarhætti þar.
Spænska blaðið EI Pais vitnaði í
hetju Cervantes, Don Kíkóta, til að
sýna gleði sína vegna loka valdaráns-
ins: „Frelsi, Sansjó, er ein dýrmæt-
asta gjöf himinsins, enginn fjársjóður
á sjó eða landi jafnast á við það; fyr-
ir frelsið, eins og fyrir heiðurinn, get-
ur maður og verður að leggja lífið að
veði.“
Viðbrögð í Asíu við valdaráninu:
N-Kórea og Kína
þegja þirnnu hljóði
Tókíó, Peking, Seúl. Reuter.
RÁÐAMENN í Japan, S-Kóreu,
Mongólíu og Tævan lýstu yfir ein-
dregnum fögnuði yfir falli valda-
ræningjanna í Moskvu, og að Mík-
haíl Gorbatsjov væri aftur kominn
í forsetastól. Tævönsk stjórnvöld
sögðu að niðurstaða valdaránsins
sýndi, að staða harðlínukommún-
ista í Peking væri glötuð. í Kína
og N-Kóreu var andinn annar, í
opinberum fjölmiðlum var stutt-
lega sagt frá því að valdatakan
liefði farið út um þúfur, og að so-
véski forsetinn sæti aftur við völd,
en atburðirnir annars afgreiddir
sem innanrikismál.
Japan brást fljótt við falli valdaræn-
ingjanna, og linnti höftum á efnahags-
aðstoð til Sovétríkjanna, serh stjórnin
hafði sett degi áður í mótmælaskyni
við valdaránið. Forsætisráðherra Jap-
ans, Toshiki Kaifu, fagnaði endur-
komu Gorbatsjovs og boðaði um 100
milljóna dollara (sex milljarða ÍSK)
lán til Sovétríkjanna, er aðallega skal
nota til matvælakaupa, og tækniað-
stoð. Hann sagði þó að Japan mundi
ekki láta af kröfum sínum til Kúrileyj-
anna fjögurra sem Sovétmenn hert-
óku af Japönum í stríðslok.
Stjórnvöld í Mongólíu og S-Kóreu
fögnuðu einnig „gleðilegum lyktum"
valdaránsins. í Norður-Kóreu og Kína
kvað við annan tón, en í yfirlýsingu
frá kínverskum ráðamönnum sagði
þó, að þeir „virtu. val sovéskar alþýðu
um að andæfa hernaðarlegu valdar-
áni,“ og koma forseta Sovétríkjanna
til fyrri valda. *•
Fjármála-
markaðir í
fyrra horf
Londoii. Reuter.
Fjármálamarkaðir heimsins voru
á fimmtudag komnir í sama horf
og í síðustu viku áður en valdarán-
ið var reynt í Sovétríkjunum.
Þriggja daga óstöðugleika er lokið.
Verð á hlutabréfamörkuðum hækk-
aði og var komið í svipaða stöðu og
fyrir helgi. Á sama tíma lækkaði
Bandaríkjadollar aðeins í verði. OIíu-
verð, sem hækkaði um tvo dollara á
meðan á valdaráninu stóð, hefur einn-
ig endurheimt fyrri stöðugleika.
Felix fallinn í ónáð
Reuter
Styttan af Felix Dzershínskíj, pólskum aðalsmanni og bolsévikka, er kom á laggirnar öryggislögreglu Sovét-
ríkjanna skðmmu eftir byltinguna 1917, var rifin niður á fimmtudag í Moskvu. Styttan stóð fyrir utan aðal-
stöðvar hinnar illræmdu öiyggislögreglu kommúnistastjórnarinnar, KGB, í Lúbjanka-byggingunni við götu
sem kennd er við Dzershínskíj. Borgarstjóri Moskvu, umbótasinninn Gavríl Popov, mun hafa gefið leyfi til þess
að Járn-Felix, eins og frumkvöðullinn var gjarnan nefndur, yrði tekinn af stalli. Upphaflega hét lögreglan
Tséka, síðar NKVD og nú KGB.