Morgunblaðið - 04.09.1991, Page 4
reei a
aaippjgp. & íiuoAauMivaiK gyi/JHMUoaoH ____
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1991
Byggingakostnaður við Perluna:
Svarið ófullnægjandi
- segir Sigrún Magnúsdóttir borgarfuiltrúi
Á FUNDI borgarráðs í gær, lagði Sigrún Magnúsdóttir Framsóknar-
flokki, fram fyrirspurn og bókun vegna kostnaðar við byggingu Perl-
unnar í Öskjuhlíð. Sigrún telur svar hitaveitustjóra vegna kostnaðar-
ins ófullnægjandi og velga upp margar spurningar og átelur harðlega
í sérstakri bókun það stjómleysi og sukk sem viðgengist hafi við bygg-
inguna.
I fyrirspurn Sigrúnar segir, að
borgarstjóri hafi falið hitaveitustjóra
að gera nákvæma grein fyrir öllum
einstökum útgjaldaliðum, sem farið
hafi fram úr áætlun. í svari hitaveit-
ustjóra komi ekki fram hver eða
hveijir tóku ákvörðun um það um-
framfé sem fór í Perluna. „Ef dæma
má eftir ummælum hitaveitustjóra í
fjölmiðlum virðist hafa ríkt aigjört
stjémleysi og .ringulreið við fram-
kvæmd verksins. Frá áætlun í upp-
hafi ársins 1990 hefur kostnaður við
Perluna hækkað um 600 milljónir."
Spurt er um hveijir tóku ákvarð-
anir um þær breytingar er ollu þess-
um hækkunum? Hver ákvað að setja
57,1 miiljón í tæki og áhöld fyrir
veitingarekstur, þrátt fyrir að leigu-
taka sé samkvæmt samningi einung-
is heimilt að stofna til 10 milljóna
VEÐUR
skuldar í því skyni? Þá er beðið um
sundurliðaða áætlun um rekstrar-
kostnað Perlunnar og hversu stóran
hluta af rekstrarkostnaði muni
greiðast af leigutekjum af veitinga-
aðstöðu? Óskað er eftir nákvæmum
sundurliðuðum upplýsingum um
hönnun hússins frá upphafi. Hvaða
greiðslur hafi runnið til arkitekts
hússins? Hvaða greiðslur hafi aðrir
einstakir hönnuðir fengið, sundurlið-
að eftir ámm. Hvaða verkfræðingar
og eða verkfræðistofur hafa t.d.
unnið fyrir 64,5 milljónir á þessu
ári? Og loks, hvemig var staðið að
vali á hönnuðum hússins?
í bókun með fyrirspurnunum
kemur fram, að hitaveitustjóri láti
hafa eftir sér að algert sambands-
leysi hafi ríkt milli framkvæmdaað-
ila. „Ekki verður hjá því komist að
draga fram í dagsljósið hverjir bera
ábyrgð á einstökum ákvörðunum í
sambandi við byggingu Perlunnar.
Þó er upplýst að yfirlætislegar
ákvarðanir borgarstjóra Davíðs
Oddssonar um verklok hafi aukið
kostnaðinn verulega. Jafnframt er
augljóst að fyrrverandi borgarstjóri
hefur allt frá síðasta hausti vanrækt
algjörlega það eftirlit, sem hann átti
að hafa með verkinu sem æðsti
embættismaður borgarinnar, þegar
honum mátti vera ljóst í hvílíkt óefni
stefndi."
í bókun Markúsar Amar Antons-
sonar borgarstjóra segir, að fyrrver-
andi borgarstjóri hafi eins og borgar-
fulltrúar og aðrir embættismenn
Reykjavíkurborgar, treyst áætlunum
Hitaveitunnar og sérfræðinga henn-
ar um kostnað vegna framkvæmd-
anna, sem vom endurskoðaðar í
apríl síðastliðnum. Það væri því fjarri
lagi að lýsa hann ábyrgan fyrir þeim
umtalsverðu frávikum frá kostnað-
aráætlun sem nú hafa komið í ijós
eða að kenna honum um slælegt
eftirlit með framvindu málsins.
ÍDAGkl. 12.00
Heimlld: Vedurstola Islands
(Byggt é veöurspá Kl. 16.151 gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 4. SEPTEMBER
YFIRLIT: Fyrir sunnan og suðaustan land er víðáttumikið háþrýsti-
svæði, sem hreyfist lítið í biii, en þokast síðan norðvestur. Um 600
km suður af Hvarfi er um 999 mb. lægð sem þokast norður og
siðar norðvestur.
SPÁ Norðvestan gola. Súld eða rigning um mestan hluta landsins
fram eftir degi, en styttir upp síðdegis. Austan og suðaustanlands
léttir svo til. Hiti verður á bilinu 10—15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæð verður yfir is-
landi og hafinu umhverfis. Fremur hæg breytileg átt. Þurrviðri og
bjart með köflum vlða um land, einkum inn til landsins. Hlýtt að
deginum, en svalt að næturlagi þar sem létt hefur til.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
a Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
'/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
1 o Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
CO Mistur
—Skafrenningur
fy Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
httl
Akureyri 11
Reykjayjk 10
veður
skýjað
alskýjað
Bergen 15
Helsinki 20
Kaupmannahöfn 23
Narssarssuaq 3
Nuuk 4
Osló 22
Stokkhólmur 23
Þórshöfn 14
hálfskýjað
skýjað
léttskýjað
skýjað
léttskýjað
skýjað
skýjað
skýjað
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlfn
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngetes
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
París
Madeira
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
27 skýjað
27 heiðskírt
25 skýjað
26 heiðskírt
23 rigning
26 léttskýjað
27 heiðskirt
18 mistur
26 heiðskfrt
24 mistur
18 þokumóða
vantar
30 skýjað
27 skúr
30 skýjað
15 léttskýjað
vantar
vantar
26 léttskýjað
26 hálfskýjað
29 hálfskýjað
25 léttskýjað
vantar
9 léttskýjað
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Hér heldur ungur Bílddælingur á einum krabbanum um borð
í rússneska rækjutogaranum Ura- Guba frá Murmansk.
Bíldudalur:
Risakrabbar úr
Barentshafi
BQdudal.
EFLAUST hafa ekki margir íslendingar handleikið „risa-
krabba“ eins og þá sem sjást á meðfylgjandi myndum. Krabbarn-
ir voru fengnir úr rússneskum rækjutogara frá Murmansk, sem
kom til Bíldudals til að landa 140 tonnum af rækju hjá Rækju-
veri hf.
Rússamir buðu heimamönnum
krabbana til sölu á 2.000 kr.
stykkið. Einhverjir fengu krabba
að gjöf og voru þeir engin smá-
smíði. Einn krabbinn vó 6,2 kíló
og mældist 1,45 m á lengd,
mælt frá löpp í löpp yfir skelina.
Skelin sjálf var 28 cm á breidd,
en framklærnar mældust 39 cm
hvor á lengdina.
Krabbamir komu upp í rækju-
vörpu togarans úr Barentshafí á
250-300 metra dýpi. Skipveijar
frystu krabbana og geymdu þá
í lestinni. Rússarnir hvöttu
heimamenn til að kaupa þennan
einstaka varning og sögðu þetta
vera mjög góðan mat. Ekki fylgdi
kröbbunum mataruppskrift, en
sumir segja að best sé að sjóða
þá og brjóta síðan með fíngerðum
hamri. En óvíst er hvort slíkur
hamar dugi á risakrabba eins og
þessa. R. Schmidt.
Kennsla hefst í Kenn-
araháskólanum í dag
KENNSLA hefst í Kennaraháskóla íslands í dag en áður var áformað
að hún hæfist í gær. Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, hefur
tekið ákvörðun um að fresta gildistöku nýrrar námskrár skólans að
minnsta kosti fram á næsta ár, en jafnframt sagt að það verði látið
óátalið að fy'rsta árs nemum verði kennt eftir henni til áramóta. Þórir
Ólafsson, rektor Kennaraháskólans, segir að sú leið hafi verið valin
þar sem ella hefði ekki verið hægt að hefja kennslu fyrr en í fyrsta
lagi eftir einn og hálfan til tvo mánuði og jafnvel ekki fyrr en um
áramótin.
Þórir Ólafsson segir að innan skól-
ans muni innan skamms hefjast
vinna við að endurskipuleggja nám
fyrsta árs nemanna miðað við að
þeirra nám standi í þijú ár. Breyting-
ar á námsfyrirkomulaginu hafí alls
ekki aðeins falið í sér lengingu náms-
ins úr þremur árum í fjögur heldur
hafí þarna verið skipulagt nýtt nám
frá grunni.
Hann segir að breytingarnar komi
fyrst og fremst fram á þremur svið-
um: í fyrsta lagi hafí átt að auka
æfíngakennslu kennaranemanna
þannig að þeir fengju meiri þjálfun
á vettvangi og að koma upp mið-
stöðvum fyrir æfíngakennslu á
landsbyggðinni. í öðru lagi hafí stað-
ið til að auka kennslu í valgreinum
þannig að í stað þess að geta valið
tvær fímmtán eininga valgreinar eða
eina þrjátíu eininga verklega grein
ættu nemamir þess kost að taka
þijátíu einingar í einni valgrein, bók-
legri eða verklegri, og fímmtán ein-
ingar í einni, tvejmur eða þremur
öðrum greinum. í þriðja lagi hafí
verið ætlunin að auka tengsl milli
kennslu í kennarafræðum og kennsl-
unnar í uppeldisgreinum og greinum
á kjörsviði.
Þórir segir að ljóst sé að það
muni kosta mikla vinnu að semja
nýja kennsluskrá fyrir fyrsta árs
nemanna og leiðrétta þann mismun,
sem komi fram vegna breytinganna
á þeirra námi um áramótin. Einnig
sé Ijóst að því muni fylgja töluverður
kostnaður.
Suðureyri:
Sjö tilboð bárust í
hlutafé Hlaðsvíkur
SJÖ tilboð voru opnuð í gær á Suðureyri í hlutabréf Hlaðsvíkur hf.
sem er útgerðarfélag togarans Elínar Þorbjarnardóttur á Suðureyri
Að sögn Helga Þórðarsonar,
stjómarformanns í Fiskiðjunni
Freyju á Suðureyri, bámst sjö tilboð
í hlutabréf Hlaðsvíkur, og em þau
með þeim hætti að ekki er unnt að
gera samanburð á þeim í fljótu
bragði. Tilboðin byggjast á mismun-
andi forsendum og greiðslumati.
„Það verður að vinna úr þeim áður
en hægt er að bera þau saman. Það
verður gert fljótlega," sagði Helgi.
Tilboðin em frá innlendum útgerð-
arfyrirtækjum og sagði Helgi að sum
þeirra hefðu óskað nafnleyndar og
yrði það látið yfír alla ganga. Ráð-
gert er að 75% af aflaheimildum tog-
arans fylgi með í kaupum, eða um
1.500 tonn. Þar með verða um 500
tonn af kvóta togarans eftir á Suður-
eyri.
Fiskiðjan Freyja á rúmlega 99% í
Hlaðsvík. Hlutafjársjóður Byggða-
stofnunar eignaðist meirihluta í Fisk-
iðjunni Freyju síðla árs 1989 og hóf
þá fjárhagslega endurskipulagningu
fyrirtækisins. Markmið með sölu
hlutabréfanna er að grynnka á skuld-
um fyrirtækisins sem námu 520
miiljónum kr. um síðustu áramót.