Morgunblaðið - 04.09.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.09.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1991 Er vegið að velferðinni? eftirEinarK. Guðfinnsson Þingflokkur Framsóknarflokks- ins hefur staðhæft að nú standi fyrir dyrum „aðför ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar að velferðarkerfi því sem íslendingar hafa búið við og sátt hefur verið um í þjóðfélag- inu“, eins og orðrétt segir í ályktun frá 22. ágúst sl. Svipuð viðhorf má fínna víðar. Það er því fyllsta ástæða til þess að ræða þessa full- yrðingu nánar. Það er auðvitað aldeilis fráleitt að núverandi ríkisstjórn hafi á pijónunum aðför að velferðarkerf- inu. Öðru nær. í stjórnarsáttmálan- um getur að líta ótvíræðan stuðn- ing við meginmarkmið velferðar- kerfisins, svo sem hugmyndina um jafnrétti til náms. Yfirlýsingar ráð- herra lúta og að hinu sama, eins og ótal dæmi sanna. Útgjaldavandi Það er kunnara en frá þurfi að segja að ríkisútgjöld hafa vaxið á síðustu árum. Þrátt fyrir að ríkis- stjórnir hafi verið frekari til ijárins með skattahækkunum, hefur ríkis- sjóður verið rekinn með viðvarandi halla. Nú er talið að hallinn á þessu ári verði eitthvað tvöfalt meiri en að var stefnt, þrátt fyrir verulegar aðhaldsaðgerðir núverandi • ríkis- stjórnar. Þetta er með öðrum orðum hluti þess arfs sem fyrrverandi rík- isstjórn skildi eftir sig. Ætlun núverandi ríkisstjórnar er að ná utan um þennan halla. Við stuðningsmenn hennar gerum MAMSKEIÐ Nskipti f oreldra og barna Nú eru að heQast námskeið þar sem foreldrum gefst kostur á að kynnast og tileinka sér ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum foreldra og barna. Þar verður m.a. Qallað um hvað foreldrar geta gert til að: • Aðstoða börn sín við þeirra vandamál. • Leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi. • Byggja upp jákvæð samskipti innan Qölskyldunnar. Námskeiðin byggja á hugmyndum dr. Thom- asar Gordons, sálfræðings, höfundar bókar- innar „Samskipti foreldra og barna“. Leiðbeinendur hafa hlotið þjálfun til að halda þessi námskeið á íslandi. Námskeiðin verða 3 klst. í einu í 8 skipti. Upplýsingar og skráning í símum 621132 og 626632. Hugo Þórisson, sálfræðingur. Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur. Nskipti FRÆÐSLA OG RÁÐGJÖF SF. Samskipti foreldra og barna. Samskipti unglinga. Samskipti á vinnustað. Samskipti við viðskiptavini. Samskipti kennara og nemenda. Samskipti stjórnenda og starfsmanna. Mannleg samskipti/ákveðnisþjálfun. okkur ljóst að takist það ekki, get- ur stefnt í hreint óefni. Skuldasöfn- un opinberra aðila á innlendum íjármagnsmörkuðum hefur þrýst upp vöxtum. Það er rétt sem Óg- mundur Jónasson formaður BSRB hefur ítrekað bent á; hinir háu vext- ir eru heimilum og atvinnulífínu óbæriiegir. Og á sama tíma og botnfiskafli landsmanna stefnir í samdrátt ijórða árið í röð og tekjur sjávarút- vegsins minnka er vitaskuld annað óverjandi en áð ríkið slaki á klónni; minnki hlutdeild sína, svo að svig- rúm verði fyrir hendi fyrir athafnir einstaklinga og fyrirtækja í efna- hagslífinu. Hver er orsökin? Það er borðliggjandi að vandi ríkissjóðs er útgjaldavandi. Fjárút- lát hins opinbera hafa vaxið ár frá ári, að mestu án tillits til þróunar annarra þátta efnahagslífsins. Þessi útgjaldaaukning stafar ekki af auknum framkvæmdum, eða ijárfestingum hins opinbera. Þar hafa seglin verið rifuð svo um munar. Vandamálin sem við okkur blasa í ríkisfjármálum, má rekja til þess að rekstur hins opinbera hefur vax- ið ár frá ári. Ekki síst síðustu árin, sem þó hefur verið tímabil stöðnun- ar og samdráttar í þjóðarfram- leiðslunni. Á Alþingi hefur verið samþykkt- ur mýgrútur laga, sem eru ekki annað en ávísun á stórfelld útgjöld, án þess að fyrir þeim hafi verið séð. Þessi mál þarf að endurskoða og stöðva tafarlaust sjálfvirka út- þenslu hins opinbera. 12 milljarða útgjaldaaukning Efnahags- og framfarastofnun Evrópu gaf út rit um ísland hinn 20. júní sl. þar sem margt fróðlegt getur að líta. Meðal annars það að útgjaldavanda ríkissjóðs megi rekja til þess að útgjöld til félagsmála (social expenditure) hafi aukist úr því að vera 14% af þjóðarfram- leiðslunni árið 1982 í það að vera 17,5% í fyrra. Áætlað er að verg þjóðarframleiðsla verði á þessu ári 350,7 milljarðar króna. Mælt á þann mælikvarða er ljóst að út- gjöld til félagsmála hafa aukist um 12,3 milljarða króna á þessu tíma- bili. Enginn raunverulegur teljandi ágreiningur er um grundvallar- markmið velferðarþjónustunnar í landinu. Núverandi ríkisstjórnar- flokkar hafa báðir átt mikinn (sum- ir segja mestan) þátt í skipulagi og uppbyggingu velferðarkerfísins. Hitt er alveg jafn ljóst að aukn- ingu útgjalda til þessa málaflokks eins og annarra eru takmörk sett. Við hljótum að spyija hvort ekki megi koma við hagræðingu og bættu skipulagi í málaflokkum sem heilbrigðis- og tryggingarmálum, eða menntamálum. Það gengur ein- faldlega ekki að ræða málin á grundvelli uppskrúfaðrar tilfinn- ingasemi og upphrópana. Slíkt er engum til góðs; síst þeim sem njóta eiga þjónustunnar á þessum svið- um. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að stöðva útgjaldaþenslu ríkisins þannig að þess sjáist merki í fjár- lögum næsta árs. Það hefur komið fram að útgjaldalækkun fjárlaga á næsta ári verður um 14,9 milljarð- ar króna, miðað við upphaflega áætlun ráðuneytanna. Það er óhjá- kvæmilegt að sú aðhaldssemi hafí Einar K. Guðfinnsson „Þrátt fyrir að mörgum finnist langt vera geng- ið af ríkisstjórninni í átt til aðhaldssemi og nið- urskurðar, þá er það engu að síður stað- reynd, að útgjöld til velferðarmálaflokka, eins og heilbrigðis- og tryggingarmála eða menntamála, verða síst lægri á næsta ári að raungildi en árið 1990.“ áhrif á svo útgjaldafreka mála- flokka sem velferðarmálin eru. Staðið vörð um velferðarmálin Þrátt fyrir að mörgum finnist langt vera gengið af ríkisstjórninni í átt til aðhaldssemi og niðurskurð- ar, þá er það engu að síður stað- reynd, að útgjöld til velferðarmála- flokka, eins og heilbrigðis- og tryggingarmála eða menntamála, verða síst lægri á næsta ári að raungildi en árið 1990. Þetta sýnir okkur svart á hvítu að þrátt fyrir upphrópanir stjórnarandstöðunnar og ýmissa þrýstihópa blasir það við að fullkomlega er staðið vörð um velferðarkerfíð í landinu. — Nema ef til vill að þeir hinir sömu álíti að hér hafi ekki verið fyrir hendi neitt velferðarkerfi, fyrr en nú í ár!! Af þessu leiðir að fráleitt er að halda uppi svo öfgasinnuðum mál- flutningi að nú sé ríkisstjórnin að efna í aðför að velferðarkerfinu. Þvert á móti er ríkisstjórnin að freista þess að treysta hinar efna- hagslegu stoðir, sem atvinnulífið hvílir á; atvinnulífið sem fyrst og síðast stendur undir velferðarríkinu íslenska. Efnahagsleg óstjórn und- anfarinna ára og skelfilegur sam- dráttur botnfískafla okkar ár eftir ár, gerir það að verkum, að undir- stöður atvinnulífsins hafa verið að fúna. Geta atvinnulífsins til þess að standa undir útgjöldum þjóðar- innar hefur verið að minnka. Raun- veruleg umhyggja fyrir velferðar- kerfinu ætti því að beinast að því að treysta rekstrargrundvöll at- vinnulífsins, svo að það geti um alla framtíð tryggt þá velferðar- þjónustu og samfélagshjálp, sem við öll viljum búa landsins börnum. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum. Morgunblaðið/SÁM Veiðistaðurinn „Rörið“ í Móru á Vestur Barðaströnd. Einar Harðarson þreytir 4 punda lax sem tók rauða Frances sem hann slakaði inn í mitt rör. Einhvern undarlegasta veiði- stað landsins er að finna í ánni Móru á Vestur Barðaströnd. Ekki er það þekkt laxveiðiá, en þó munu nokkrir slíkir fiskar vera dregnir þar á hveiju ári og ein- hver slatti af sjóbleikju að auki. Fyrr á árum fannst þarna stór sjóbirtingur, en slíkir fiskar eru næsta fátíðir nú á dögum. Tíðindamaður Morgunblaðsins var þarna á ferð fyrir nokkrum dögum og skoðaði ána hátt og lágt. Skýrslur fann hann engar yfir veiði og upplýsingar á sveitabæ einum voru af skornum skammti. En þar sem þjóðvegur- inn liggur yfír ána dró hins vegar til tíðinda. Áin rennur þar í gegn um stórt og mikið rör sem gijóti, sand og möl hefur síðan verið ekið yfir. Inni í rörinu hefur lax- inn fundið sér griðastað, því þar gat að líta torfu af físki. Og veiði- maður einn sem stóð fyrir ofan veginn og hafði slakað lítilli rauðri Frances inn í mitt rör hafði sett í lax. Það var 4 punda fiskur. Fleiri laxa fékk hann ekki, en nóg var af laxi í rörinu. gg Macintosh fyrir byrjendur Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á © 15 klst námskeiöi fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá. % Tölvu- og verkfræöíþjónustan Grensásvegi 16 - fimm ár f forystu Höföar til .fólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.