Morgunblaðið - 04.09.1991, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1991
14
Morgunblaðið/GTK
Sex háskólarektorar
Við upphaf nýs skólaárs í Háskóla íslands tekur Sveinbjörn Björns-
son við embætti háskólarektörs af Sigmundi Guðbjarnasyni. Af því
tilefni var efnt til hófs með fyrrverandi rektorum Háskólans síðastlið-
inn föstudag. Á myndinni eru þeir, frá vinstri talið eftir röð þeirri
sem þeir gegndu embættinu, Ármann Snævarr, Magnús Már Lárus-
son, Guðlaugur Þorvaldsson, Guðmundur Magnússon, Sigmundur
Guðbjarnason og Sveinbjörn Björnsson.
Innritun og upplýsingar daglega
frá kl. 13-19 í s. 686893 og 39600
Skírteini afhent í Skeifunni 11B
laugard. 7 sept. og sunnud. 8. sept.
kl. 13-18
Kennsla hefst mánud. 9. sept.
F.Í.D. - betri kennsla - betri árangur
hefur hingað til verið notað um
ríki utan hernaðarbandalaga, en
þau glíma nú mörg við tilvistar-
vanda eftir hrun kommúnismans.)
Orðið „samstaða“ er líklega sótt
til frelsisbaráttu Pólveija. Er meira
en hæpið að nota alþekkt nafn á
erlendum félagsskap á þennan
hátt, auk þess sem samstöðumenn
í Póllandi eru síður en svo á móti
evrópskri samvinnu eða aðild að
Evrópubandalaginu.
Markmið nýju samtakanna er
meðal annars þetta: „Um leið vilja
þau tryggja að íslendingar verði
hér eftir sem hingað til óháðir við-
skiptabandalögum og þjóðin haldi
óskertu fullveldi.“ Þessi setning
verður varla skilin á annan veg en
þann, að samtökin líti ekki á Frí-
verslunarbandalag Evrópu (EFTA)
og GATT sem viðskiptabandalög
og telji viðskiptasamning okkar við
Evrópubandalagið (EB) ekki gera
okkur háða því. Þá vilja samtökin,
að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram
um samning um aðild að evrópsku
efnahagssvæði eða Evrópubanda-
laginu. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hefur lýst þeirri skoðun sinni,
að ekki verði gengið til aðildar að
Evrópubandalaginu án þess að
ákvörðun um það verði sérstaklega
borin undir þjóðina. Samningur um
EES felur ekki í sér skyldur sem
eru sambærilegar við skuldbinding-
ar í tengslum við aðild að EB.
Þegar þetta er ritað hefur ekki
birst í blöðum listi með nöfnum
þeirra 15 einstaklinga, sem eru í
stjórn nýju samtakanna. Af þeim
fjórum nöfnum, sem birt hafa ver-
ið, má ráða, að hér er um pólitísk
samtök, jafnvel flokkspólitísk, að
ræða. Kristín Einarsdóttir, þing-
maður Kvennalistans, er formaður
þeirra og Auður Sveinsdóttir, vara-
þingmaður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík, er ritari stjórnar sam-
takanna. Þarf enginn að fara í graf-
götur um flokkspólitískar
skoðanir þeirra.
Hafi viðleitni í grein minni 11.
júlí síðastliðinn við að benda á
stjórnmálaskoðanir þeirra, sem
töluðu á undirbúningsfundinum
undir stofnun þessara samtaka,
sem kenna sig nú við óháð ísland,
verið tilraun til að „sverta“ samtök-
in, hlýtur Guðmundur Jónas Kristj-
ánsson að telja, að á þeim sé nú
svartur flokksstimpill, eftir að ko-
sið hefur verið í stjóm þeirra. Ann-
ars er furðulegt, ef þeir sem starfa
í nýju samtökunum, vilja vera í
feluleik með flokkspólitískar skoð-
anir sínar. Af hveiju eiga þær að
vera eittvert feimnis- eða vandræð-
amál? Líklega vegna þess að um-
ræður um þær opinbera klofning í
Framsóknarflokknum í afstöðunni
til evrópska efnahagssvæðisins.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
eftir Björn Bjarnason
Grein Guðmundar Jónasar Krist-
jánssonar, skrifstofumanns á Flat-
eyri og andstæðings við þátttöku
íslands í evrópska efnahagssvæð-
inu (EES), sem birtist í Morgun-
blaðinu 28. ágúst, ber með sér ótta
höfundar við breytingar og aukna
þátttöku íslendinga í alþjóðlegu
samstarfí. Skoðanir af þessu tagi
ber að sjálfsögðu að virða. Þær eru
eðlilegur þáttur í þeim umræðum,
sem hljóta að fara fram á opinber-
um vettvangi um stÖðu okkar ís-
lendinga í breyttum heimi.
Ástæðulaust er hins vegar fyrir
Guðmund Jónas að árétta þessa
hræðslu sína enn einu sinni með
því að snúa út úr grein, sem ég
ritaði hér í blaðið hinn 11. júlí. I
grein minni lýsti ég undrun yfir
að stofna ætti samtök gegn samn-
ingi, sem ekki hefði verið gerður.
Taldi ég, að fyrir þeim, sem þannig
störfuðu, vekti ekki að stuðla að
málefnalegum umræðum. Einmitt
þess vegna væri hætta á því, að
umræðurnar um þátttöku okkar í
samstarfi Evrópuþjóðanna færu í
sama farveg og umræður um varn-
armálin, þar sem andstæðingar
varnarstefnunnar hafa forðast að
ræða gildi hennar.
Guðmundur Jónas ætti að líta á
umræðurnar sem urðu um aðildina
að Atlantshafsbandalaginu annars
vegar og vamarsamninginn við
Bandaríkin hins vegar í blöðum og
á Alþingi vorin 1949 og 1951.
Hann ætti að kynna sér hrakspám-
ar og hræðsluáróðurinn, sem þá
var hafður uppi um framtíð þjóðar-
innar, landsöluna, ' fullveldis- og
sjálfstæðisafsalið, ef gengið yrði til
þeirra samninga. Hann ætti einnig
kynna sér óréttmætar árásir, sem
þeir stjómmálamenn, er stóðu að
þessum samningum, urðu fyrir. Nú
telur hann sér sæma að væna mig
og aðra andstæðinga sína um að
vilja fullveldi og sjálfstæði þjóðar-
innar feigt. Samhljómurinn í mál-
flutningi andstæðinga samning-
anna um EES og andstæðinga að-
ildar að NATO er augljós, dylgjurn-
ar em af sama toga og tilburðirnir
til að lýsa sig betri og sannari ís-
lendinga en aðra.
Vitjunartíminn
Síðustu stóratburðir í Sovétríkj-
unum sýna, hve mikilvægt er að
nýta tækifæri sem gefast og hafa
til þess hugrekki. Slíkt getur skipt
sköpum fyrir framtíð ríkja og þjóða.
Eystrasaltsríkin og fleiri lýðveldi
Sovétríkjanna hafa losað sig undan
miðstjómarvaldinu 1 Kreml. ís-
lenska ríkisstjómin sýndi snarræði
við ákvarðanir sínar um viðurkenn-
ingu á Eistlandi, Lettlandi og
Litháen.
Á árinu 1944 nýttu íslendingar
tækifærið, sem þeir höfðu til að
lýsa yfir sjálfstæði sínu. Vorið 1949
höfðu íslensk stjórnvöld þrek til að
nýta tækifæri, sem þá gafst til að
tengja þjóðina Atlantshafsbanda-
laginu, þrátt fyrir harða andstöðu
og árás á alþingishúsið undir for-
DANSSKÓLIAUÐAR HARALDS
Kennslustaðir: Skeifan 11B, Gerðuberg í Breiðholti,
KR-heimilið v/Frostaskjól
Björn Bjarnason
„Síðustu stóratburðir í
Sovétríkjunum sýna,
hve mikilvægt er að
nýta tækifæri sem gef-
ast og hafa til þess hug-
rekki. Slíkt getur skipt
sköpum fyrir framtíð
ríkja og þjóða.“
ystu kommúnista. Nú er tækifæri
til að tengjast efnahagssamstarfi
Evrópuríkja.
Nýju samtökin
í grein sinni segir Guðmundur
Jónas Kristjánsson, að verið sé að
stofna samtök gegn samningum
um EES og þar virðist vera um
þverpólitísk samtök að ræða, enda
hafi tilraun mín til að „sverta þau
pólitískum lit og gera þau tor-
tryggileg ... gjörsamlega mistek-
ist“.
Samtökin vom stofnuð fimmtu-
daginn 29. ágúst qg bera heitið
Samstaða um óháð ísland - nafnið
gæti alveg eins bent til þess að
starfa ætti að markmiðum Sam-
taka herstöðvaandstæðinga, sem
hafa viljað óháð ísland utan hern-
aðarbandalaga. (Hugtakið „óháð“
í umræðum um alþjóðastjórnmál
Erlendir gestakennarar:
Constansa Krauss
og Woody Krauss
frá Þýskalandi
Samkvæmisdansar
Gömlu dansarnir
Barnadansar yngst 3-5 ám
Rock’n’roll — tjútt — boogie
Funk og Hip hop
Barna-, unglinga- og hjónahópar
Einkatímar
Byrjendur — framhald
EES og samhengið í um-
ræðum um utanríkismál