Morgunblaðið - 04.09.1991, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ iÞROTTSR MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1991
KNATTSPYRNA
„Verðum að
hafa vilja
til að sigra“
sagði Arnór Guðjohnsen
ARNÓR Guðjohnsen, sem gerði fjögur mörk gegn Tyrkjum í
síðasta landsleik, er tilbúinn í slaginn í dag. Hann sagðist ekki
geta lofað því að skora fjögur mörk í dag, en var þó bjartsýnn
á hagstæð úrslit. „Ég reyni að sjálfsögðu að gera mitt besta
eins og alltaf. Ef við náum upp svipuðum leik og gegn Tyrkjum
getur allt gerst. Við verðum að hafa vilja til að sigra," sagði Arnór.
Hann sagðist ekki þekkja mikið
til danska liðsins en vissi að
lið þeirra væri sterkt. „Ég hef leik-
ið gegn tveimur Dönum sem leika
með Lille í Frakklandi og þeir eru
báðir mjög sterkir. Þó svo að það
vanti nokkra þekkta leikmenn þá
eru þeir með það sterkan hóp. Þetta
verður erfiður leikur," sagði Arnór.
„Það er mikilvægt að leika marga
æfingaleiki til að þreifa sig áfram
með nýja leikmenn. Það verður þó
að fara hægt í sakimar í þeim efn-
um. En við erum óhræddir við Dan-
ina og ætlum okkur að ná hagstæð-
um úrslitum," sagði Arnór.
Ólafur Gottskálksson í leik með íslenska landsliðinu.
Hörður Helgason velur
18 ára landsliðið
Hörður Helgason, þjálfari
landsliðsins skipað leik-
mönnum 18 ára og yngri, hefur
valið 16 leikmenn til að leika
gegn Wales 9. september og
Englandi 13. september. Leik-
imir eru liður í Evrópukeppni
landsliða.
Eftirtaldir leikmenn skipa lið-
ið: Friðrik Þorsteinsson, Fram,
Eggert Sigmundsson, KA,
Óskar Þorvaldsson, KR, Flóki
Halldórsson, KR, Auðunn
Helgason, FH, Kári Steinn
Reynisson, ÍA, Sturlaugur Har-
aldsson, ÍA, Rúnar Sigmunds-
son, Stjörnunni, Pálmi Haralds-
son, ÍA, Þórður Guðjónsson, ÍA,
Viðar Guðmundsson, Fram,
Helgi Sigurðsson, Víkingi, Kári
Sturluson, Fylki, Kristinn Lár-
usson, Stjörnunni, Rútur
Snorrason, ÍBV og Hákon
Sverrisson, UBK.
Stefni að því að
halda hreinu
- segirÓlafurGottskálksson, markvörður
ÓLAFUR Gottskálksson verður
líklega í markinu í dag og verð-
ur það þá fyrsti landsfeikur
hans á heimavelli. Hann hefur
leikið tvo landsleiki, gegn Eng-
landi og Möltu ytra. „Leikurinn
leggst vel í mig og ég hlakka
til. Það verður örugglega nóg
að gera í markinu," sagði Ólaf-
ur.
FOLK
■ KR-ingar ætla að fá Pál Ólafs-
son, varamarkvörð, til að koma frá
Bandaríkjunum til að leika með
þeim gegn Tórínó í Evrópukeppn-
inni.
■ GUÐMUNDUR Guðmunds-
son kemur frá Danmörku til að
leika með Blikunum gegn Vals-
mönnum á laugardaginn í 1. deild.
I ÁGÚST Gylfason og Gunnar
Már Másson leika ekki með Vals-
mönnum gegn Breiðablik. Þeir
eru farnir til náms í Bandaríkjun-
Morgunblaðið/Þorkell
Arnór Guðjohnsen og Eyjólfur Sverrisson hafa báðir skorað fjögur mörk í leik með íslensku landsliði. Hvað
gera þeir gegn Dönum?
Olafur sagði að það mætti bú-
ast við hörkuleik því Danir
væru með mjög sterkt lið. „Við
vorum að horfa á myndband með
leik Dana og ítala sem fram fór i
Svíþjóð fyrir skömmu. ítalir unnu
þann leik 2:0 í framlengingu. Danir
voru miklu betri og það er ljóst á
þeim leik að þeir eru með mjög
sterkt lið.“
„Þetta verður stærsti leikur minn
hingað til. Ég stefni að sjálfsögðu
að því að halda hreinu eins og allt-
af. Við höfum ekki æft mikið sam-
an, en vörnin hefur náð ágætlega
saman á æfingum. En þetta er allt-
af spurning um dagsformið,“ sagði
Ólafur.
Níuí
leikbann
Atta meistaraflokksmenn
voru úrskurðaðir í leikbann
hjá aganefnd KSÍ f gær. Jón
Sveinsson, Fram, Kristján Páls-
son, Gróttu, Valdimar Sigurðs-
son, Skallagrím, Vilbert Þor-
valdsson, Víði ogÞorsteinn Hall-
dórsson, KR, fengu eins leiks
bann vegna fjögurra gulra
spjalda. Þorvaldur Örlygsson,
Fram, fékk einn leik venga sex
gulra spjalda.
Sverrir Björgvinsson, Dalvík,
fékk tvegga leikja bann, þar sem
hann hefur tvisvar fengið að
sjæa rauða spjaldið. Guðmundur
Erlingsson, Þrótti, fékk eins
leiks bann vegna brottreksturs
af leikvelli og einnig Goran Micic
og Dragan Manojocvic, Þrótti,
sem voru reknir af leikvelli í 1.
flokksleik.
Þá voru fimmtán leikmenn
yngri flokka úrskurðaðir í leik-
bönn.
ENGLAND
Kenny Dalglish til
Blackbum Rovers?
Forföll hjá
Dönum
■ NOKKUR forföll hafa verið í
vJandsliðshópi Dana frá því að þeir
tilkynntu lið sitt í síðustu viku.
Miðhveijarnir Bent Christensen,
Schalke, Johnny Hansen, Ajax
og Claus Nielsen, Bröndby og
miðvallarspilararnir Henrik Lars-
en, Lyngby og Per Pedersen,
Lyngby leika ekki. í stað þeirra
leika: Henrik Larsen, Lyngby,
. Jakob Frits Hansen, Lille, Peter
Möller, AB, Heine Fernandez,
Silkeborg og Frank Pingel.
Donald Mackay, framkvæmda-
stjóri Blackburn Rovers sem
leikur í 2. deild, var rekinn frá félag-
inu í gær. Kenny Dalglish, fyrrum
framkvæmdastjóri
Frá Liverpool, hefur ver-
Bob ið nefndur sem
Hennessy næsti stóri hjá
lEn9landl Blackburn.
Mackay hefur verið fram-
kvæmdastjóri hjá Blackburn Rovers
síðustu fjögur árin. Á laugardaginn
tapaði liðið fyrir Ipswich á heima-
velli og þá var mælirinn fullur því
liðið hefur enn ekki unnið leik, gert
aðeins eitt jafntefli.
W. Fox, forseti félagsins sem
jafnframt er kaupsýslumaður,
hugsar stórt og vill nú fá Kenny
Dalglish til að taka við liðinu. Nú
er talið líklegt að Fox reyni allt til
að fá Dalglish til að taka við liðinu.
Fox bauð Tottenham 1,5 milljóna
punda í Gary Lineker fyrr í sumar
en því var hafnað.
um. __
■ ÁSGEIR Elíasson, þjálfari
Fram, er hjátrúarfullur eins og svo
margir íþróttamenn. Framarar
segja að ein ástæðan fyrir því að
þeir hafi tapað fyrir Víkingi, sé að
búiðn sem Ásgeir kaupir alltaf
tyggigúmmí fyrir leiki^ hafi verið
lokuð á sunnudaginn. Ásgeir vissi
það ekki, þar sem Framliðið hefur
ekki áður leikið á sunnudegi í sum-
ar.
■ FH-INGAR leika við norska lið-
ið Elverum sem leikur í 2. deild-
inni þar í landi á morgun, fimmtu-
dag í íþróttahúsinu að Strandgötu.
Leikurinn hefst kl. 18.30. Á undan,
kl. 17.00 leika FH og Fram í meist-
araflokki kvenna.
■ TONI Schumacher, fyrrum
landsliðsmarkvörður V-Þýska-
lands, sem hefur leikið í Tyrklandi
undanfarin þrjú ár, gekk til liðs við
Bayern Munchen í gær. Raimond
Aumann, markvörður Bayern, er
meiddur og verður Schumacher
varamarkvörður hjá félaginu.
■ AUMANN er farinn til Vail í
Bandaríkjunum, þar sem hann
verður skorinn upp fyrir meiðslum
í vinstra hné. Hann verður frá
keppni í fjóra mánuði.
■ ARIE Haan, sem þjálfar nú
Standard Liege, hefur verið oraður
sem næsti þjálfari hjá Köln. Einnig
hefur Jörg Berger, fyrrum þjálfari
Frankfurt, verið orðaður við félag-
ið. Þá er Sören Lerby einnig orðað-
ur við Köln.
■ WASSILIJ Kulkow, fyrirliði
Spartak Moskvu, hefur gengið til
liðs við Benfica, en hjá félaginu
leikur annar Sovétmaður - Sergej
Juran.
FELAGSLIF
Aðalfundur HKRR
Aðalfundur Handknattleiksráðs
Reykjavíkur verður haldinn
fimmtudaginn 5. september kl.
20.20 í húsakynnum ÍSÍ í Laugard-
al.