Morgunblaðið - 21.09.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991
17
og lærðu almenn sveitastörf og
margt fleira. Eflaust finnst þeim
tómlegt að koma að Götu nú.
Þungt hefur verið þetta síðasta
ár, Adda flutt mikið veik á sjúkra-
hús, en ekki kvartaði Jón mikið.
Þegar leið á sumarið var ljóst að
Adda gæti ekki dvalið heima og var
þá ákveðið að flytja á dvalarheimilið
Kirkjuhvol. Eflaust hefur það verið
Jóni mjög þung ákvörðun að fara frá
Götu, en hann ætlaði að hafa hross-
in afram.
I sumar var haldið ættarmót af-
komenda Hólma-hjóna. Þótti honum
það vel hafa tekist og talaði um að
þakka ætti það framtak. Börnin
héldu Öddu afmælishóf í Götu nú í
haust og var mikil ánægja að flest
barnabörnin og barnabarnabörnin
voru þar líka.
Fyrstu helgina í september kom
Adda heim að Götu. Var þá ákveðið
að flytja á Kirkjuhvol um mánaða-
mótin og var Jón fullur áhuga um
að fá þá hluti sem til þurfti á nýja
heimilið. Ekki datt neinum í hug að
för hans yrði önnur og meiri.
Elsku Adda, ég vona að góður Guð
styrki þig á leið þinni áfram gegnum
lífið.
Snorri Guðmundsson
í dag er til moldar borinn frá Stó-
rólfshvolskirkju tengdafaðir minn
Jón Guðnason bóndi í Götu, Hvol-
hreppi.
Hann fæddist í Miðkoti í Vestur-
Landeyjum 23. febrúar 1918 en for-
eldrar hans, Rósa Andrésdóttir og
Guðni Magnússon, bjuggu síðar í
Hólmum í Austur-Landeyjum. Þar
ólst Jón upp elstur fjögurra systkina.
Hann lauk búfræðinámi við Bænda-
skólann á Hólum, enda snerist hugur
hans ávallt um búskap. Árið 1944
gekk hann að eiga eftirlifandi konu
sína, Ragnhildi Astu Guðmundsdótt-
ur ljósmóður. Þau hófu búskap sinn
á æskuheimili hennar, Götu, og
bjuggu ,þar ávallt síðan.
Jón hóf strax mikið ræktunarstarf
á jörðinni og stækkaði hana einnig
með kaupum á jarðarpörtum. Hann
var mjög stórhuga í uppbyggingu
húsa, jafnt gripahúsa sem íbúðar-
húss. Hann bjó alltaf með hefðbund-
inn blandaðan búskap, þar sem kýrn-
ar áttu stærstan þátt í afkomunni.
Hestarnir voru honum þó afar kærir
og reyndi hann ávallt að kynbæta
hrossastofn sinn, en ef til vill sinnti
hann því aldrei af eins miklum áhuga
og einmitt nú allra síðustu árin, eft-
ir að hafa dregið saman seglin í öðr-
um búgreinum.
Þau Götu hjón, Jón og Ragnhild-
ur, eignuðust fjögur börn. Þau eru:
Ástríður, Bjarghildur, Ásgeir Vögg-
ur, sem andaðist í æsku, og Guðni
Vignir. Þau Götu systkini sem upp
komust hafa eignast maka og börn.
Barnabörn Jóns eru nú tólf og tvö
bamabarnabörn. Elsta barnabarnið,
Ómar Jón, er alinn upp hjá afa sínum
og ömmu í Götu, yngri barnabörnin
voru þar tíðir gestir og dvöldu þar
oft langdvölum á summm.
Bömin kynntust þar sveitastörfum
og sérstaklega hestamennsku sem
húsbóndinn hafði mikinn áhuga á,
enda átti hann ávallt góða hesta og
sá til þess að barnabörnin eignuðust
hross strax og þau höfðu aldur til.
Ég sem þetta rita hafði aldrei
kynnst hestamennsku fyrr en ég
varð tengdadóttir Jóns. Hann vildi
leggja sitt af mörkum til þess að
efla áhuga minn á hestum með því
að gefa mér efnilegan fola.
Nú er skarð fyrir skildi í Götu,
húsbóndinn óvænt fallinn frá og hús-
móðirin fjarverandi vegna veikinda.
Guð blessi minningu Jóns og veiti
fóikinu hans styrk á erfiðum tímum.
Þórunn B. Björgvinsdóttir
Svissneskur
hótel- og ferðamálaskóli
1 árs nám í hótelrekstri. Lýkur með prófskírteini.
2 ára nám í hótelstjórnun. Lýkur með prófskírteini.
Námið er viðurkennt af HCIMA.
Námið fæst metið í bandarískum og evrópskum há-
skólum.
1 árs nám íferðamálafræði. Lýkur með prófskírteini.
Námskeið í almennum ferðaskrifstofustörfum.
IATA réttindi. _
HOSTfi
32 ára reynsla
SEH réttindi.
Skrifið til:
HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL,
1854 D Leysin, Switzerland.
Sími: 9041-25-342611 - Fax: 9041-25-341821.
Meira en þú geturímyndað þér!