Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR '24. SEPTEMBER 1991
33
Bikarkeppninni í brids lauk um helgina:
151 punktur. Sveit Ásgríms Sig-
urbjörnssonar 135 punktar.
Sveit Landsbréfa sigraði eftir
hörkukeppni við Siglfirðinga
Brids
í undanúrslitum sem fram fóru
á laugardag sigraði sveit
Ásgríms Sigurbjörnssonar sveit
Eiríks Hjaltasonar örugglega
með 140 punktum gegn 77. Sveit
Landsbréfa sigraði sveit Trygg-
ingamiðstöðvarinnar með 97
stigum gegn 82.
I silfurliðinu spiluðu bræðurnir
Ásgrímur og Jón Sigurbjörnssyn-
ir ásamt tveimur sonum Jóns,
þeirn Ólafi og Steinari, auk Guð-
laugs og Arnars eins og fram
hefur komið.
Spilað var í höfuðstöðvum ís-
landsbanka í Kringlunni. Nokkuð
var um áhorfendur báða dagana
en aðstaða fyrir þá var afleit.
íslandsbanka-bikarkeppninni
lauk með því að Einar Sveinsson,
formaður bankaráðs Islands-
banka, aflienti verðlaunin.
Keppnisstjóri var Kristján
Hauksson. Hann stjórnaði bæði
undan- og úrslitakeppninni af
mikilli röggsemi.
Sigurvegararnir, sveit Lands-
bréfa, hampa bikarnum í móts-
lok. Talið frá vinstri: Björn
Eysteinsson, Matthías Þor-
valdsson, Sverrir Ármannsson,
Magnús Olafsson, Aðalsteinn
Jörgensen og Jón Baldursson.
Amór Ragnarsson
Sveit Landsbréfa sigraði
í 64. spila úrslitaleik gegn
sveit Asgríms Sigurbjörns-
sonar sl. sunnudag og
tryggði sér þar með bikar-
meistaratitilinn annað árið
í röð. Úrslitin réðust ekki
fyrr en í síðustu spilunum
og skildu 16 punktar sveit-
irnar að í mótslok. í sveit
Landsbréfa spiluðu Jón
Baldursson, Aðalsteinn
Jörgensen, Magnús Ólafs-
son, Björn Eysteinsson,
Sverrir Ármannsson og
Matthías Þorvaldsson.
Spilaðar voru 4 lotur í úrslita-
leiknum. Sveit Landsbréfa vann
fyrstu lotuna 38-13. Norðan-
menn sigruðu í annarri lotu
37-33 og í þriQju lotu unnu þeir
einnig með 41 punkti gegn 18
og höfðu þar með tekið forystuna
91-89.
í opna salnum spiluðu í síðustu
umférð Jón Baldursson og Aðal-
steinn Jörgensen gegn Guðlaugi
R. Jóhannssyni og Erni Arnþórs-
syni en þeir höfðu komið inn í
sveit norðanmanna á lokasprett-
inum. Mjög mikil skiptinga- og
sviptingaspil komu upp í upphafi
lotunnar og virtist sem Guðlaug-
ur og Örn hefðu ögn betur. Guð-
laugi og Erni varð það hins veg-
ar á sá fingurbijótur í einu af
lokaspilunum að gefa Jóni 6
grönd sem kostaði siglfirzku
sveitina 26 stig. Það má geta sér
þess til að þetta atvik hafi kostað
það að bikarinn fór ekki til Siglu-
fjarðar. Síðasta spilið var einnig
nokkuð dramatískt en þar spiluðu
Jón og Aðalsteinn 6 hjörtu sem
má hnekkja með bestu vörn. (Sjá
nánar í bridsþætti Guðmundar
Páls., á blaðsíðu 40 í blaðinu í
dag.)
Lokatölur leiksins: Landsbréf
Það gekk mikið á í lokalotunni, mikið um skiptingarspil og úttekt-
arsagnir stóðu á báða vængi. Jón og Aðalsteinn spila gegn Guð-
laugi og Erni.
Morgunblaðið/Amór
Það var ekki á hvers manns færi að komast að þegar gert var
upp eftir hverja lotu.
____________Brlds_______________
Umsjón: Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag hófust þriggja kvölda
hausttvímenningur. Spilað var í tveim-
ur riðlum alls 24 pör.
A-riðill meðalskor 108
Bernódus Kristinsson - Þröstur Ingimarsson 125
Agnar-Erlendur 121
Freyja Sveinsdóttir - Sigríður Möller 120
B-riðill, meðalskor 156
Jón Andrésson - Leifur Jóhannesson 188
ÁrmannJ.Lárusson-RagnarBjörnsson 181
Vilhjálmur Sigurðsson - Sævin Bjarnason 179
Næsta fimmtudag verður keppninni
framhaldið.
Bridsfélag Reykjavíkur
Hafinn er fjögurra kvölda barómet-
ertvímepningur með þátttöku 43 para.
Eftir fyrsta kvöldið, 7 umferðir af 43,
er staða efstu para þessi:
Ragnar Magnússon - Pall Valdimarsson 135
Sævar Þorbjömsson - Karl Sigurhjartarson 119
Hrólfur Hjaltason - Sigurður Vilhjálmsson 108
Jón Steinar Gunnlaugsson - Magnús Torfason 108
Matthías Þorvaldsson - Sverrir Ármannsson 95
Sigurður Siguijónsson - Júlíus Snorrason 85
SigfúsÁmason-JónHjaltason 83
Ería Sigutjónsd. - Kristjana Steingrímsd. 83
Ásmundur Pálsson - Hjördís Eyþórsdóttir 76
Páll Hjaltason — Oddur Hjaltason 75
SvavarBjörnsson - Sveinn Rúnar Eiríksson 75
Bækur hjá BSÍ
Bridssambandið var að fá stóra
bókasendingu af bridsbókum, hringið
eftir upplýsingum á skrifstofuna, s.
91-689360, og hægt er að senda lista
yfir hvað til er, hvert á land sem er.
Þýðandi: Árni Bergmann
Leikmynd: Steinþór Sigurðsson
Búningar: Sigríður Guðjónsdóttir
Leikstjóri: María Kristjánsdóttir
Lýsing: Lárus Björnsson
Leikarar: Bessi Bjarnason, Guðrún Ásmundsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir,
Eggert Þorleifsson, Sigríður Hagalín og Þóra Friðriksdóttir.
Sýningar:
Föstudaginn 27. september Laugardaginn 5. október
Sunnudagbn 29. september Föstudaginn 11. október
Atli. lakinarkaður sýningaljöldi.
Miðasalan er opin daglega frá kl. 14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Auk þess er tekið á móti miðapöntunum í síma frá kl. 10-12 alla virka daga.
Súm 680680.
hvergi heima?
eftir Alexander Galín
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Borgarleikhús