Morgunblaðið - 11.10.1991, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
i
• • ^
Ragnar Onundarson framkvæmdastjóri hjá Islandsbanka:
Þurfum ekki að auka útlán-
in og lækkum því ekki vexti
Landsbanki íslands lækkar vexti um
2-3% en lækkaði ekki um mánaðamótin
„Ástæðan fyrir því að við lækkum ekki vextina núna er að við
þurfum ekki að auka okkar útlán, en við gerum ráð fyrir að þeir
sem eru að Iækka vextina miðað við okkur hlutfallslega vilji auka
sín útlán og hafi lausafjárstöðu til þess,” sagði Ragnar Önundar-
son, framkvæmdastjóri hjá íslandsbanka, aðspurður hvers vegna
bankinn lækkaði ekki vexti 11. október, eins og sparisjóðirnir og
Búnaðarbanki íslands gerðu í framhaldi af lækkun um mánaðamót-
in. Landsbankinn lækkar vexti á innlánum um 3% og á útlánum
um 2%, en hann lækkaði ekki um mánaðamótin. Útlánsvextir ís-
landsbanka og Landsbanka íslands eru nú 1-3% hærri en hjá spari-
sjóðunum og Búnaðarbankanum.
Ragnar ítrekaði þa_ð sem hann
hefur sagt áður að íslandsbanki
stefndi að því að það yrði jafn-
vægi milli ávöxtunar verðtryggðra
og óverðtryggðra liða þegar litið
væri yfír árið í heild. Óverðtryggð-
ir liðir hefðu borið lægri vexti
framan af árinu heldur en svaraði
til þess útkomu á verðtryggðum
liðum, þar sem verðbólgan hefði
orðið meiri en ráð var fyrir gert.
Nú væri verið að jafna þennan
mun og þeir litu svo á að það
væri eðlilegt. Hverjar málsástæður
sparisjóðanna væru gæti hann
ekki sagt til um, enda yrðu þeir
að svara fyrir um það. Aðspurður
sagði hann að það yrði ekki frek-
ari tíðinda að vænta af vaxtabreyt-
ingum hjá bankanum fyrr en með
nýrri lánskjaravísitölu og nýrri
verðbólguspá seinnihluta mánað-
arins.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, sagði
aðspurður um afhveiju bankinn
lækkaði ekki vextina meira að
bankinn hefði yfírleitt verið leið-
andi um vaxtaákvarðanir en það
væri ekki nauðsynlegt að hann
væri það alltaf. Það væri mikil
einföldun að horfa á vaxtaákvarð-
amir í þessum eina punkti, það
þyrfti að skoða þær í samhengi
og yfír stærra tímabil. Þessi mál
væri til stöðugrar endurskoðunar
í bankanum.
VEÐUR
í DAG kl. 12.00 , 5o,
||1 WMmjljÍr I
íý-f
'V’T-' '' V't '■
V,, -
Heimild: Veöurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.151 gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 11. OKTOBER
YFIRLIT: Við strönd Grænlands vestur af Vestfjörðum er minnk-
andi 993 mb lægð sem hreyfist lítið en yfir Suður-Skandinavíu er
1026 mb hæð.
SPÁ: Fremur hæg sunnan- og suðvestan átt um allt land. Smáskúr-
ir eða slydduél suðvestan og vestanlands en annars staðar úrkomu-
laust eða úrkomulítið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGÁRDAG: Norðan- og norðvestan gola eða kaldi
og skúrir eða smá slydduél um vestanvert landið, en hægviöri og
að mestu úrkomulaust í öðrum landshlutum. Híti 1 til 3 stig.
HORFUR Á SUNIMUDAG: Austan og norðaustan átt, fremur hæg.
Smáslydduél á Vestur- og Norðvesturlandi en úrkomulítið annars
staðar. Hiti 0 til 2 stig.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# * *
* * * * Snjókoma
* * #.
\ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V H
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—I- Skafrenningur
Þrumuveður
m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti voður Akureyri 12 skýjaö Reykjavík 6 súld
Björgvin vantar
Helsinki 13 þokumóða
Kaupmannahöfn 15 þokumóða
Narssarssuaq 2 léttskýjað
Nuuk 0 slydduél
Ósló 12 alskýjað
Stokkhólmur 11 þokumóða
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 18 mistur
Barcelona 25 mistur
Berlfn 21 mistur
Chicago 6 léttskýjað
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 14 þokumóða
Glasgow 13 mistur
Hamborg 20 heiðskírt
London 18 mistur
Los Angeles 23 heiðskírt
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 12 rigning
Malaga 18 rigning
Mallorca 26 léttskýjað
Montreal 10 skýjað
NewYork 14 skýjað
Orlando 21 alskýjað
París 23 skýjað
Madeira 19 skúr
Róm 25 léttskýjað
Vin 15 mistur
Washington 13 þokumóða
Wínnipeg 6 alskýjað
Vaxtalækkanir banka
og sparisjóða
LANDSBANKI ÍSLANDS
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
Forvextir víxillána
□21 ,o%
□ 21,0%
Alm. skuldabréfalán (B flokkur)
| 19fl%
.. 22,0%|
HM
4,0%
ISLANDSBANKI
\ 7,0%
7,0% A
mennar spairisjóðsbæki r
20,0%
Forvextir víxillána
] 20,5%
□ 19,0%
□ 19(0%
Alm. skuldabréfalán (B flokkur)
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
30.09
1.10
11.10
BUNAÐARBANKI islands
1] 4,0%
II 4,0%
I 6,0%
Almþnnar sparisljóðsbækur
j 19,5%
□21,0%
□ 21,0%
Forvextir víxiliána
J 20,5%
i9k)%
117,5%
Alm. skuldabréfalán (B flokkur)
2U25%1
m íh8k*»sæ%
. .i □ 5,5%
■ 1 4,i >%
SPARISJÓÐIR :
e’ffí
nnar sparis
I 18,25'
óðsbækur
20,0%
%
Forvextir víxillána m 17,5% i
m 16,5% I
] 20,5%
Alm. skuldabréfalán (B flokkur)
□ 6,5%
3,5%
5
4,0% Almennar sparisjóðsbækur
_J 18,0%
117,0%
□21,0%
10
15
20%
Morgunblaðið/KG
Skoðanakönnun Gallups fyrir Vinnu-
veitendasamband íslands:
Meirihluti með
þjóðarsátt áfram
í góðu samræmi við mína tilfinningu
fyrir afstöðu fólks segir forseti ASÍ
UM 70% þeirra sem afstöou taka eru fylgjandi því að samið verði
á hliðstæðán hátt og samið var í þjóðarsáttasamningunum en 30%
andvígir, að því er fram kemur í skoðanakönnun sem Gallup á ís-
landi hefur gert fyrir Vinnuveitendasamband íslands. Tæplega 40%
aðspurðra tóku ekki afstöðu. Þeir sem voru fylgjandi voru áfram
spurðir hvort þeir væru fylgjandi hliðstæðum samningum þótt því
fylgi litlar eða enga launahækkanir og svöruðu 72% því játandi, 19%
voru á móti og 9% voru óákveðnir. Frá niðurstöðunum er skýrt í
október fréttablaði VSÍ.
„Þetta er í góðu samræmi við
mína tilfinningu fyrir afstöðu fólks.
Það sem kemur mér eiginlega mest
á óvart er hversu margir taka ekki
afstöðu. Það má hins vegar segja
að það kunni að vera eðlilegt í þess-
ari gjörningahríð sem nú gengur
yfírað fólk missi dálítið áttir,” sagði
Ásmundur Stefánsson, forseti AI-
þýðusambands íslands aðspurður
um niðurstöður könnunarinnar.
„Ég er ekki í neinum vafa um
að menn telja að það sem gert var
með samningunum í fýrra hafi ver-
ið skynsamlegt og það er nokkuð
almennt mat að það hafi tekist bet-
ur en gert var ráð fyrir, þó auðvit-
að sé líka dálítitll hópur sem er
óánægður,” sagði hann ennfremur.
Ásmundur sagðist þess fullviss
að stór hluti fólks vildi halda áfram
á sömu braut og halda sömu
markmið í heiðri og í þjóðarsáttar-
-sámningumíiö..Þáð.þýddi:að fólk -
gerði kröfu til þess að kaupmáttur-
inn yxi en minkaði ekki. „Þetta
sýnir að fólk er meðvitað um að
kauphækkunin sem slík ákvarðar
ekki kaupmáttinn. Hann ákvarðast
af stöðunni í heild, ekki síst af verð-
bólgunni.”
Úrtakið í könnuninni var 1.000
manns og fengust 702 svör. Spurt
var: „Á næstunni verður gengið til
kjarasamninga. Ert þú fýlgjandi eða
andvíg(ur) því að samið verði á hlið-
stæðan hátt og gert var í þjóðar-
sáttarsamningunum í febrúar
1990.” Ekki kom fram marktækur
munur á afstöðu opinberra starfs-
manna og í einkageiranum. 72%
fólks á aldrinum 16-24 ára tekur
ekki afstöðu til áframhaldandi þjóð-
arsáttar en fylgið eykst eftir því
sem aldurinn færist yfir og er tæp
93% hjá elsta aldurshópnum 60-75
ára.