Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 A I 11 Brynja Árnadóttir við eitt verka sinna. Hafnarborff: -------o Sýnir pennateikningar BRYNJA Arnadóttir hefur opn- að sýningu á pennateikningum í kaffistofu Hafnarborgar, Hafnarfirði. Brynja er fædd 8. janúar 1942 á Siglufirði. Hún lærði fyrst teikn- ingu hjá Birgi Schiöth á Siglu- fírði. Á árunum 1959-1960 stund- aði hún nám hjá Ragnari Kjartans- syni myndlistarmanni í Myndlist- arskólanum við Freyjugötu. Brynja nam einnig í Baðstofunni, sem er myndlistarskóli í Keflavík. Kennari hennar þar var Jón Gunn- arsson listmálari. Sýning Brynju í Hafnarborg er þriðja einkasýning hennar. Hún sýndi í Bjórhöllinni í október 1989 og í Keramikhúsinu I febrúar sl. Brynja tók einnig þátt í samsýn- ingu í Baðstofunni í Keflavík árið 1984. Sýningin stendur til sunnudags- ins 20. október og er opin frá kl. 11-19 virka daga og 14-19 um helgar. Alfreð Flóki leið- ir mig áfram - segir Nína Björk Árnadóttir sem skrifar ævisögu listamannsins NÍNA BJÖRK Árnadóttir, skáld, hefur unnið að bók um listamanninn Alfreð Flóka und- anfarin þijú ár. Upphaflega var ætlunun að bókin kæmi út fyrir síðustu jól en úr því varð ekki af óviðráðanlegum orsökum. Stefnt var þá að því að gefa bókina út fyrir þessi jól en ekki verður heldur að því. Bókin er því væntanleg fyrir jólin 1992. „Ég er viss um að bókin kemur ekki út fyrir þessi jól vegna þess að Alfreð Flóki hefur verið á móti því. Mér hefur aldrei liðið jafn vel við nokkurt verkefni því ég finn fyrir návist hans og veit að hann leiðir mig áfram,” sagði Nína Björk. Hún sagði að bókin væri þegar orðin nokkuð viðamik- il. I henni væri skemmtileg frá- sögn móður Alfreðs Flóka af æsku og unglingsárum hans, viðtöl við nokkra af vinum listamannsins, myndir, frásagnir og ljóð eftir hana sjálfa. Kveikjan að bókinni sagði Nína að væru kynni hennar og lista- mannsins. „Ég fann líka fyrir því að hann vildi að ég gerði bókina. Þá hafði áhrif að ég var kjörin borgarlistamaður og hafði tæki- færi til að gera hugmyndina að veruleika.” Um Alfreð Flóka segir Nína Björk að hann hafi verið hinn fullkomni bóhem. „Hann vildi ekki eignast neitt. Hlutir sem fólk keppist við að eignast voru fyrir honum hjóm eitt. Aftur á móti var hann gangandi alfræðiorða- bók, gat þuluð heilu ljóðabálkana og farið með orðrétt úr heimsbók- menntunum og um líf höfunda og listamanna. Alfreð Flóki hafði líka gaman af því að segja sögur og var mikill leikari. Spann jafnvel Morgunblaðið/KGA Nína Björk Árnadóttir skáld. upp heilu leikritin sem hann lék sjálfur.” „Alfreð Flóki var fyndinn og skemmtilegur en hann rægði aldr- ei einstakar persónur. Aftur á móti gat hann talað illa um hóp manna. Sagði til dæmis að gagn- rýnendur gætu verið á Melavellin- um. Þeim mætti síðan hleypa út af og til í korter og korter. Ég held að hann hafi vitað að hann myndi deyja ungur en hann leitað aldrei til manns vegna þess. Aftur á móti má kenna dauðageig í sum- um verkum hans,” sagði Nína Björk,„í þeim eru líka magískt tákn sem fara í taugarnar á sum- um fólki vegna þess að það skilur þau ekki. Mér finnst aftur á móti nauðsynlegt að hafa eitthvað í listaverkum sem fólk skilur ekki og getur skáldað inn í frá sjálfu sér.” Nota sjaldnast skákborð þegar ég skoða skákir Morgunblaðið/Júlíus - segir Viswathan Anand stórmeistari, einn efnilegasti skákmaður heims „ÞETTA er mjög athyglisvert mót og athyglisverðar skákir eru tefldar hér á hverjum degi,” sagði indverski stórmeistarinn Viswanathan Anand í samtali við Morgunblaðið, en hann kom hingað til lands í byrjunar mán- aðarins til þess að fylgjast með Heimsbikarmóti Flugleiða í skák 1991. Anand er 21 árs gamall og er talinn í hópi sterkustu skákmanna heims, með 2.635 Elo-stig. Hann er fæddur í borginni Madras á suð- urhluta Indlands og býr þar mestan hluta ársins. Héðan heldur hann til Tilburg í Hollandi þar sem hann tekur þátt í geysisterku skákmóti þar sem þátttakendur verða Garíj Kasparov, núverandi heimsmeist- ari, Anatolíj Karpov, fyrrverandi heimsmeistari, Jan Timman, Nigel Short, Korchnoj og Kamskíj. „Þetta líklega sterkasta skákmót sögunn- ar, en þó er erfítt að bera það sam- an við mótin í Linares á Spáni og Heimsbikarmótið hér, því í Tilburg taka átta skákmenn þátt á meðan þeir eru fjórtán í Linares og sextán í Reykjavík.” „Eg ferðast mikið til að tefia á mótum en ég fer sjaldan til útlanda til að fylgjast með skákmótum. Mér fannst þetta mót þó spennandi og auk þess tefli ég á mótinu í Tilburg þegar þessu móti lýkur,” sagði Anand. Hann sagðist hafa ■ byrjað að tefla þegar hann var sex ára gam- all en byijað að taka þátt í mótum níu ára. „Ég tefli sex mánuði árs- ins og hvíli mig í sex mánuði. Ég er atvinnumaður í skák og geri ekkert annað. Ég kemst vel af og er mjög ánægður með innkomuna en hún fer að sjálfsögðu eftir ár- angri mínum í mótum.” Hann sagði að á síðasta áratug hefði skákáhugi færst í vöxt á Ind- landi en engu að síður hefðu fáir verðugir andstæðingar verið þar til að kljást við. Það hefði hamlað nokkuð framgangi hans sem skák- manni. „Þegar ég var þrettán ára varð ég Indlandsmeistari í flokki unglinga. Því fylgdu tækifæri til að ferðast til útlanda og boð um að taka þátt í skákmótum. Þannig öðlaðist ég smám saman reynslu við skákborðið og vandamálið leystist að nokkru leyti. Ég tók þátt í fjórum mótum á tveimur árum og þegar maður stefnir stór- meistaratitli má það ekki minna vera. En ef til vill nýtir maður tækifærin betur þegar þau eru svona fá.” Hann sagðist ekki hafa eytt miklum tíma í æfingar á þessum árum. „Þegar mér leiddist gluggaði ég í Informator [skáktímarit]. Mér fínnst mjög gaman að lesa um skák og velta fyrir mér þeim flóknu stöð- um sem þar eru skýrðar. Kannski er þetta bara leti, ég nenni ekki að stilla upp mönnum á skákborð- inu og fara í gegnum skákirnar á þann hátt. Ef í skákskýringunni er t.d. fjallað um fjögur tilbrigði þá fer það í taugamar á mér að fylgja hveiju fyrir sig eftir og stilla svo upp á nýtt og fylgja næsta til- brigði eftir o.sfrv. Eg hef vanið mig á þetta og nota sjaldnast skák- borð þegar ég skoða skákir. Það sem mestu skiptir er að hafa ánægju af því sem maður gerir. Leiðist þér fyrir framan skákborðið þá eykur það ekki þekkingu þína að þijóskast við.” Anand kvaðst ekki stefna að neinum sérstökum metorðum innan skáklistarinnar. „Ég hafði háleit markmið þegar ég var yngri en nú vil ég aðeins tefla og láta kylfu ráða kasti. Að sjálfsögðu væri gam- an að vinna heimsmeistaratignina og ég held að næstum alla skák- menn dreymi um það, en ég get ekki sagt að ég hafí sett mér það markmið innan einhverra tíma- marka. Núna er markmiðið að sjálf- sögðu að komast undanúrslit áskorendakeppninnar, en ég vil fremur fást við þau mót sem ég tefla á næst.” Morgunblaðið/KGA Fjöldi Hafnfirðinga og Garðbæinga var mættur á fund sem haldinn var í gær vegna undirskriftarsöfnunarinnar sem fara mun fram um helgina. Undirskriftarsöfnun til stuðnings St.Jósefsspítala Á MILLI fimmtíu og sextíu félagasamtök i Hafnarfirði og nágranna- byggðalögum munu gangast fyrir undirskriftasöfnun um helgina til að mótmæla lokun St. Jósefsspítala sem deildarskipts sjúkrahúss. Hafn- arfirði og Garðabæ verður skipt í hverfi eftir skólum og er fyrirhugað að ganga í hvert hús þar svo og í Bessastaðahreppi. Söfnunin fer fram bæði á morgun og á sunnudag. Á fundi sem haldinn var vegna fyrirhugaðrar undirskriftasöfnunar í gær sagði Erna Fríða Berg, formað- ur Bandalags kvenna í Hafnarfírði:„Það er augljóst að með 48% skerðingu á framlögum ríkisins til spítalans getur ekki orðið um óbreytta þjónustu að ræða og þó heilbrigðisráðherra leggi áherslu á að ekki eigi að loka spítalanum þá þýðir þessi skerðing lokun á þá þjón- ustu sem við höfum í dag. Þessu getum við ekki unað.” Árni Sverrisson, framkvæmda- stjóriHt. Jósefsspítala, sagði á fund- inum: „Það er ekkert til sem þýðir sparnað fyrir ríkið í rekstri þessa spítala frekar en annarra sem ekki kemur niður á þjónustunni.” „Ráðherra hefur talað um að hann gefi okkur kost á að gera tiilögur um breytingar með sama hætti og spítölunum á Reykjavíkursvæðinu eru gefnir. Sé þetta atriði hins vtgar skoðað nánar kemur í ljós að niður- skurðurinn á St. Jósefsspítala er 48% en einungis 10% á sjúkrahúsunum í Reykjavík. Það segir sig því sjálft að ekki er verið að tala um sömu hlutiná,’’ sagði Árni Sverrisson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.