Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 23 Vestur Norður Austur Suður Martens Þorl. Szyman. Guðm. 1 lauf 2 lauf 3 spaðar 3 grönd pass dobl Norður Austur Gawrys Guðl. 1 tígull 2 spaðar pass dobl pass Vestur Örn pass 4 spaðar a.pass Suður Lasocki 1 spaði 4 spaðar 2 lauf Guðmundar sýndu báða hálitina. Szymanowski spilaði út tígulkóng sem Þorlákur drap með ás og svínaði hjartadrottningu. Honum til armæðu átti Martens kónginn og skipti í lauf. Þorlákur lét níuna og drap drottningu aust- urs með ás og spilaði spaða á gos- ann. Austur drap með drottningu og spilaði tígli en það var of seint. Þorlákur trompaði, tók hjartaás, trompaði hjarta með áttunni, trompaði tígul, trompaði hjarta með gosanum og spilaði loks spaðasex- unni á sjöunda og tók ásinn og frí- slaginn í hjarta. 10 slagir og 790. Við hitt borðið byijaði spila- mennskan eins, nema vestur spilaði út tígli. En inni á hjartakóng spil- aði Orn tígli sem suður trompaði. Hann tók hjartaás, trompaði hjarta, trompaði tígul og trompaði hjarta og spilaði spaðagosanum úr borði. Þegar Guðlaugur lét lítið stakk Lasocki upp ás, og spilaði meiri spaða og þá gat Guðlaugur tekið hinn spaðaslaginn sinn og tígulslag svos spilið var einn niður. 13 til íslands. í næsta spili dobluðu Pólveijarnir Guðmund Pál í hjartabút og gáfu hann, svo ísland græddi 9 stig. „Þetta gæti hafa verið spilið sem réð úrslitum,” sagði Edgar Kaplan í sýningarsalnum, og vonbrigða- svipurinn á Kzysztof Marteins leyndi sér ekki á sjónvarpsskermin- um. Þegar lotunni lauk hafði ísland skorað 43 stig gegn 15 og leiddi í leiknum með 338 stigum gegn 258. A sama tíma lauk keppni í kvennaflokki. Þar vann B-sveit Bandaríkjanna auðveldan sigur á Austurríki. Bandarísku heimsmeist- ararnir heita Nancy Pasell, Stasha Cohen, Sharon Osberg, Nell Cahn, Sue Picus og Lynn Deas. Þetta er í þriðja sinn í röð sem Deas vinnur þetta mót. Þess má geta að hún spilaði á Bridshátíð í Reykjavík fyr- ir tveimur árum. Urslitaleiknum í opna flokknum lýkur um það bil sem þetta blað kemur fyrir augu lesenda, eða klukkan sjö að íslenskum tíma. Þá kemur í ljós hvort íslendingar eign- ast sína fyrstu heimsmeistara í opn- um flokki í íþróttagrein, en spila- mennska íslenska liðsins bendir ekki til að ástæða sé til að óttast annað. ■ ÞEGAR ís- lendingarnir vökn- uðu á Grand Hotel Intercontinental í Yokohama á fimmtudagsmorg- uninn og kveiktu á fréttunum á.CNN hittist svo á að verið var að sýna frétt um komu norsku víkingaskipanna til Was- hington. Skipin sigldu undir íslensk- um fánum og þulurinn tilkynnti að Vigdís Finnbogadóttir forseti ís- lands tæki á móti þeim ásamt Sonju Noregsdrottningu. Þeta fannst mönnum gott fyrir daginn, enda kom í ljós að íslenska liðið bætti 30 stigum við forskot sitt í gær. H ÞEGAR íslendingarnir vökn- uðu á Grand Hotei Intercontinental í Yokohama á fimmtudagsmorgun- inn og kveiktu á fréttunum á CNN hittist svo á að verið var að sýna frétt um komu norsku víkingaskip- anna til Washington. Skipin sigldu undir íslenskum fánum og þulurinn tilkynnti að Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands tæki á móti þeim ásamt Sonju Noregsdrottningu. Þeta fannst mönnum gott fyrir dag- inn, enda kom í ljós að íslenska lið- ið bætti 30 stigum við forskot sitt í gær. ■ PÓL VERJARNIR hafa fengið slæma útreið hjá dómnefnd mótsins síðustu daga. Dómnefndin staðfesti Æ & ♦ * ■ * m ^8 W úrskurð keppnisstjóra um 3 stiga sekt vegna rangra upplýsinga um sagnir í slemmunni sem sagt var frá í Morgunblaðinu á fimmtudag. Að auki fengu Pólveijarnir 3 stiga sekt fyrir að vera með ófullnægj- andi kerfiskort, og Balicki og Zmudzinski var bannað að setjast við spiiaborðið fyrr en þeir lagfærðu kortið. Að auki fengu Pólveijarnir 4 stiga sekt, síðar í leiknum, fyrir að bruðla með tímann. ■ EFTIR aðra 16 spila lotuna á fimmtudag brast á hálfgerð upp- lausn í liði Pólveija. Þeir stóðu í hóp og hnakkrifust, og Zmudzinski lýsti því yfir að hann nennti ekki að spila lengur við Balicki, hann væri svo ruglaður. Þeir ætluðu svo aldrei að koma sér að spilaborðinu aftur i þriðju lotuna, en þar sem þeir spiluðu einna best í henni, veltu íslendingarnir því fyrir sér hvort rifrildið hefði verið sett á svið að einhveiju leyti. Er að verða hálf- vitlaus á taugum - segir Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði ALMENNINGUR fylgist grannt með framgangi mála á Heimsmeist- aramótinu í brids og ekki síður áhugasamir bridsarar. Það er svo til sama hvar er komið, alls staðar er verið að ræða um brids. Hjalti Elíasson og Hallur Símonarson eru báðir margfaldir íslands- meistarar og Aðalsteinn Jónsson frá Eskifirði er búinn að spila brids í mörg ár. „Þetta er alveg makalaust og ótrúlegt að svo lítil þjóð skuli ná svona langt því það eru tugir miilj- óna sem leika keppnisbrids í heimin- um,” sagði Hallur Símonarson, blaðamaður og bridsari. „Það átti enginn von á þessu þegar strákarnir fóru út, ekki einu sinni þeir sjálfir og þegar ég var í þessu þá datt mér aldrei í hug að við ættum eftir að eignast heims- meistara í brids,” sagði Hallur í gærdag og bætti því við að strák- arnir væru ekki enn búnir að klára dæmið en hann teldi 90% líkur á að þeir næðu titlinum. „Ég á margar góðar minningar úr starfi mínu sem íþróttafrétta- maður en ég held að þetta sé' með skemmtilegri augnablikum sem ég hef átt. Eg hef verið ótrúlega spenntur, spenntari en oftast áður í íþróttum. Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu ótrúlega Margir með áheit og framlög Bridssamband íslands vonast til að endar náist saman vegna kostn- aðar við að senda landsliðið á heimsmeistaramótið í brids. Elín Bjarnadóttir, framkvæmdasijóri sambandsins, segir að fjöldi ein- staklinga og fyrirtækja hafi haft samband undanfarna daga og látið vita um áheit og framlög. Áður en landsliðið hélt til Japan hafði Reykjavíkurborg styrkt Brids- sambandið um eina milljón og ríkis- stjórnin veitt vilyrði fyrir tveimur milljónum á fjáraukalögum. Þá styrkti Hafnarfjarðarbær liðið um 100 þúsund krónur og Kópavogur um 50 þúsund. Skíðadeild Breiða- bliks lánaði landsliðinu skála sinn endurgjaldslaust og Úlfar Eysteins- son, veitingamaður, sendi kokka þangað með mat, þegar liðið var við æfingar. Þá hafði liðið nær ótak- markaðan aðgagn að íþróttahúsi Garðabæjar og þar aðstoðaði Ólafur Einarsson það við þrekæfingar. Gosan gaf vinninga á æfingamót fyrir liðið. „Við sendum líka ákall til bridsspilara að styrkja okkur með fijálsum framlögum á safn- reikning í íslandsbanka í Garðabæ, sem hefur það háheilaga „spilanúm- er” 5252. Það kom mér á óvart, hversu fáir urðu við þessu, en á móti kemur, að hver og einn lagði fram umtalsverða upphæð, allt upp í 100 þúsund krónur,” sagði Elín. „Við fengum þúsund Happó-miða frá Happdrætti Háskólans, að and- virði 250 þúsund krónur, og eigum eftir að sjá hvort heppnin verður með okkur.” ' Elín sagði að nokkuð hefði verið um áheit. Þar reið Stefán Guðjo- hnsen í Málningu hf. á vaðið og hét 500 krónum á hvert stig, sem íslenska liðið fær umfram hið pólska, eða 30 þúsund krónum ef liðið tapar. „Jón Hjaltason í Keilu- höllinni tvöfaldaði þetta og heitir 1000 krónum á hvert stig, eða 500 krónum á hvert stig sem liðið tapar með, ef svo fer. Aðfaranótt fimmtu- dags hringdi svo Logi Þormóðsson í Keflavík í mig og sagði mér að hann hefði heitið 100 krónum á hvert stig sem landsliðið fékk í undankeppninni. Liðið fékk 254,25 stig, svo framlag Loga vegna und- ankeppninnar er 25.425 krónur. Að auki ætlar Logi að greiða 10 þúsund krónur á hvern leik, sem liðið vinnur í úrslitum. Þeir hafa þegar unnið Bandaríkjamenn og Svía og þar með fengið 20 þúsund. Vinnist sigur á Pólveijum bætast við 10 þúsund krónur og þá verður framlag Loga alls 55.425.” Elín sagði að í gær hefðu ýmis fyrirtæki og einstakingar haft sam- band, til dæmis Harðarbakarí á Akranesi. „Hingað hafa líka hringt fjölmargir, sem hafa spurt um reikningsnúmerið okkar, án þess að segja til nafns. Við þurftum að láta tengja fleiri síma hér á skrif- stofunni til að taka við öllum áheit- um.” vel strákarnir hafa spilað allan tím- ann og það er augljóst að undirbún- ingur þeirra hefur verið mjög góð- ur,” sagði Hallur. „Ég er að verða hálfvitlaus á taugum. Maður verður að fara að fá sér eitthvað róandi við þessu,” sagði Aðalsteinn Jónsson á Eski- firði, en hann sendi landsliðinu 50 þúsund krónur til að sýna þeim að fylgst væri með þeim um land allt. „Það eru allir rosalega spenntir hérna og það má eiginlega segja að vinna liggi niðri enda eru allir að ræða um brids og fylgjast með strákunum. Þeir hafa leikið alveg svakalega vel og það er ljóst að þeir eru orðnir heimsmeistarar, það er ekki nokkur vafi á því.” Hjalti Elíasson er margfaldur íslandsmeistari í brids, hvernig líst honum á frammistöðu landsliðsins? „Það er heldur betur gott hljóð í mér núna. Strákarnir hafa spilað mjög vel enda eru þetta reyndir strákar sem fóru mjög vel lesnir til leiks og þegar þú ert vel lesinn þá er engu að kvíða í prófinu,” sagði Hjalti. „Ég óttaðist Svíana mest en ég vissi upp á hár að ef þeir næðu að leika sinn brids þá væri hægt að leggja hann á hvaða vogaskálar sem væri,” sagði Hjalti sem er far- inn að hægja á sér í bridsinu enda búinn að spila keppnisbrids frá því 1953. „Mig dreymdi oft um að kom- ast á Heimsmeistaramótið og var viss um að ef við kæmumst þangað þá kæmi í ljós að margar þjóðir væru lélegri en við. Það er mikill kostur fyrir brids á íslandi að flestir bestu spilarar landsins eru í sama félaginu, Brids- félagi Reykjavíkur, og því eru þeir alltaf að spila við sterka mótheija. Ætli Bridsfélag Reykjavíkur sé ekki einn alsterkasti klúbbur í heiminum, ég gæti best trúað því,” sagði Hjalti. Allir sögðust þeir ætla að fylgj- ast með lokasprettinum í nótt enda væri ekki hægt annað. „Maður dott- ar með útvarpið í gangi og vaknar svo þegar Bjarni Fel. kemur með fréttirnar,” sagði Hjalti síðdegis í gær. Verðkönnun Verðlagsstofnunar á fiski: Allt að 100% verðmunur á einstökum tegundum MEÐALVERÐ á nýjum fiski í fiskbúðum og matvöruverslunum hef- ur hækkað um 4% milli ára, og er það sama hækkun og á fiskverði í framfærsluvísitölunni. Þetta kemur fram í niðurstöðum verðkönn- unar Verðlagsstofnunar, sem gerð var 10. september síðastliðinn, en stófnunin gerði sambærilega könnun í september á síðasta ári. Samkvæmt könnuninni reyndist fiskur í flestum tilvikum vera ódýr- ari á þeim stöðum utan höfuðborgarsvæðisins sem könnunin náði til en á höfuðborgarsvæðinu. Til dæmis var meðalverð á ýsu og ýsuflökum 14% hærra á höfuðborgarsvæðinu, smálúðuflök voru 36% dýrari og stórlúða 29% dýrari. Fiskverð var oftast lægst á ísafirði og Bolungarvík en hæst á höfuðborgarsvæðinu. Könnun Verðlagsstofnunar náði til 21 fiskbúðar og 22 matvöruversl- ana á höfuðborgarsvæðinu, og reyndist vera allt að 100% verðmun- ur á einstökum fisktegundum. Þannig var til dæmis munurinn á hæsta og lægsta verði heillar rauð- sprettu 100%, 66% verðmunur var á smálúðuflökum, 57% munur var á rauðsprettuflökum, 55% munur á söltuðum kinnum, 50% munur á útvötnuðum saltfiski í bitum, 47% munur á nýjum karfaflökum með roði, 40% munur á útvötnuðum salt- fískflökum og 33% verðmunur á heilli slægðri ýsu. Utan höfuðborgarsvæðisins náði könnunin til tveggja fiskbúða og 19 matvöruverslana, og þar reynd- ist munurinn á hæsta og lægsta verði vera mun meiri, eða allt að 502% á heilli rauðsprettu. Munur á hæsta og lægsta verði á söltuðum kinnum var 313%, verðmunurinn á rauðsprettuflökum var 267%, á heitli ýsu var munurinn 151%, á stórlúðu í sneiðum 144%, á smá- lúðuflökum 124% og á útvötnuðum saltfiskflökum í bitum var munur- inn á hæsta og lægsta verði 102%. krefjandi. Þess vegna nota ég Rautt eðal-ginseng. Þannig VASKUR 0G VAKANDI „STÓRMÓT í skák eru mjög RAUTT EÐAL GINSENG kemst ég í andlegt jafn- vægi, skerpi athyglina og eyk úthaldið." Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák. þegar reynir á athygli og þol Hvert hylki inniheldur 300 mg af hreinu rauðu eðal-ginsengi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.