Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík FlaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Nauðsynleg breidd í menntun og þekkingu Stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra: Viljum ekki ve hvílir á sa ær þjóðir sem leggja mesta áherzlu á almenna og sér- hæfða menntun og alhliða rann- sóknir, ekki sízt í þágu atvinnu- lífsins, hafa náð lengst í hag- vexti og þjóðartekjum á hvern vinnandi þegn, það er í al- mennri velferð. Það er því mikil- vægt að efla og treysta fræðslu- kerfið hér á landi, ekki sízt flaggskip þess, Háskóla íslands. Það er jafnframt mikilvægt að íslendingar sæki, hér eftir sem hingað til, menntun og þekkingu til annarra þjóða, beggja megin Atlantsála. Bæði til að viðhalda nauðsynlegri breidd í menntun og þekkingu þjóðarinnar, sem eru farsælust vopn í lífsbaráttu hennar, og til að hafa æskilega viðmiðun í þróun eigin skóla- kerfis. Það var því að vonum og verð- ugt, að málþing um háskóla og háskólamenntun í Bandaríkjun- um, sem hér var nýlega haldið, vekti nokkra athygli. Það gaf málþinginu aukið vægi að aðal- ræðumaður þess var dr. Theod- ore M. Hesburgh, einn þekktasti og virtasti menntamálafrömuð- ur Bandaríkjanna. Sem og að fjöldi íslendinga hefur sótt há- skólamenntun til Bandaríkjanna síðustu tvo áratugina - ekkert síður en á hefðbundnar háskóla- slóðir í Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi og á meginlandinu. Bandaríska skólakerfið er ólíkt því íslenzka í mikilvægum atriðum. Nemendur ljúka þar námi í framhaldsskólum við átján ára aldur, eða tveimur árum fyrr en hér. Þess er þó að gæta að skólaárið er lengra í Bandaríkjunum en hér, sem og daglegur kennslutími. Síðan hefst háskólanám sem ýmist er tveggja ára nám - mikið sótt af fólki úr atvinnulífinu - eða fjögurra ára nám til hefðbund- innar háskólamenntunar. Fjög- urra ára skólar útskrifa nem- endur á sama grunni og háskól- ar annars staðar í heiminum. Margir þeirra bjóða síðan upp á framhaldsnám til meistara- eða doktorsgráðu. Það eru rúmlega þrjú þúsund og fimm hundruð viðurkenndir háskólar í Bandaríkjunum; auk þess sem viðurkenndir eru um fimmtán hundruð sérskólar af ýmsu tagi. Um fjórtan milljónir nemenda sækja þessa skóla, þar af er þriðjungur í tveggja ára skólum. Nú eru um þijú hundruð og áttatíu þúsund útlendingar við nám í Bandaríkjunum og asta áratuginn. „Þetta sýnir að bandarísk menntun er greinilega eftirsótt, einkum hvað varðar framhaldsnám á háskólastigi,” segir Eiríkur Þorláksson, fram- kvæmdastjóri Menntastofnunar íslands og Bandaríkjanna, Ful- bright-stofnunarinnar,. í grein hér í blaðinu sl. fimmtudag. Hlutur íslendinga í hópi erlendra háskólanema í Bandaríkjunum er að vísu ekki stór. „í grófum dráttum má segja að af öllum íslenzkum námsmönnum á há- skólastigi sé um þriðjungur í námi erlendis (um þijú þúsund manns) og af þeim er stærsti hópurinn í Bandaríkjunum, eða um þýgund manns,” segir Eirík- ur í grein sinni. Háskólar í Bandaríkjunum eru af mörgum stærðar- og gæðaflokkum. Einkaskólar eru fleiri en opinberir eða rúmlega nítján hundruð, þar af fjölmarg- ir á vegum hinna ýmsu trú- flokka. Þeir njóta fulls sjálfstæð- is og eru á engan hátt háðir rík- isafskiptum. Þeir eru ekki heldur háðir velgjörðarmönnum sínum að öðru leyti en því, að þeir eru undir stöðugu gæðaeftirliti. „Kannski er það þess vegna sem svo hátt hlutfall beztu skólanna eru einkaskólar”, segir Theod- ore M. Hesburg, sem fyrr er nefndur, í viðtali við Morgun- blaðið á dögunum. Háskólanám í Bandaríkjunum er dýrt og skólagjöld veruleg, bæði í einkaskólum og ríkisrekn- um. Góðir námsmenn fá þó oft felld niður skólagjöld og komast í hlutastöður sem aðstoðarkenn- arar eða rannsóknarfólk til að afla sér framfæris, auk þess sem skólastyrkir eru veittir. Mergur- inn málsins er þó sá að margir bandarískir háskólar hafa upp á mjög eftirsóknarverða og arð- gæfa menntun að bjóða, einkum í raungreinum, sem skilar kostn- aði sínum aftur til samfélagsins, ef grannt er gáð, eins og raunar öll góð menntun. Það hefur verið einn höfuð- kostur og styrkur íslenzkrar menntunar og þekkingar frá lyktum síðari heimsstyijaldar, hve víða landsmenn hafa leitað fanga til æðri menntunar, bæði í Evrópu og Ameríku, samhliða því sem Háskóli íslands hefur fært út kvíar og styrkt stöðu sína. Málþing um háskóla- menntun í Bandaríkjunum, sem nýiokið er í Reykjavík, ýtir und- ir þessa viðleitni og styrkir menningartengsl okkar við um- heiminn. < sem HER á eftir fer stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, sem hann flutti á Alþingi í gærkvöldi. Millifyrirsagnir eru Morgunblaðs- ins. Virðulegi forseti, góðir íslending- ar. Við íslendingar búum við betri kjör en flestar aðrar þjóðir. Gildir það jafnt um efnahag okkar og per- sónuréttindi. Síðari helmingur þess- arar aldar hefur í raun verið sigur- ganga fyrir íslenska þjóð. Við höfum brotist frá fátækt til bjargálna og stöndumst nú samanburð við þær þjóðir sem fremstar standa. Sú góða staða gefur.okkur þó ekki tilefni til þess að láta okkur í léttu rúmi liggja þegar hægir á eða kyrrstaða verður, ég tala nú ekki um þegar um aftur- kipp er að ræða. Þannig fer því mið- ur ekki á milli mála að við lifum nú lengsta tímabil stöðnunar í íslenskum þjóðarbúskap frá lýðveldisstofnun. Vegna ástands fiskstofnanna hefur verið óhjákvæmilegt að draga saman í fiskveiðum og vinnslu, og við vitum jafnframt að væntingar manna til nýsköpunar í iðnaði og öðrum grein- um hafa brugðist. Útlit er fyrir að ytri aðstæður muni ekki lagast á næsta ári og horfur eru á áframhaldandi lægð í sjávarútvegi. Vonir standa þó til að samningar takist um nýtt álver I byijun næsta árs. Rætist þær vonir mun það vega upp á móti þeim þrengingum sem við höfum þurft að ganga í gegnum allt frá árinu 1987. Alvarlegar veilur í hagstjóm mögnuðu erfiðleikana Takmörk eru fyrir því hvaða áhrif við getum haft á þessar ytri aðstæð- ur, nema að því er lýtur að samninga- gerð við erlenda aðila um orkunýt- ingu. En á hinn bóginn er því ekki að leyna að auk erfiðra ytri að- stæðna hafa alvarlegar veilur í hag- stjórn magnað erfiðleikana. Veruleg- ur og viðvarandi halli á ríkissjóði í tíð fyrri ríkisstjómar hefur haft í för með sér gífurlega lánsfjáreftirspurn ríkissjóðs með óhagstæðum áhrifum á fjármagnsmarkaðinn, atvinnulífið og heimilin í landinu þar sem raun- vextir hafa af þeim ástæðum haldist háir. Þá hafa svonefndar björgunarað- gerðir, þar sem stofnað var með er- lendum lántökum til nýrra milli- færslusjóða, ekki leyst nokkurn vanda. I stað þess að taka á rekstrar- vanda, sóun og óráðsíu voru fjármun- ir þessara sjóða notaðir eins og deyfi- lyf. Á meðan lyfin verkuðu var látið sem allt væri komið í samt lag. Því miður var þá horft framhjá því að erfið staða fyrirtækjanna gæti stafað af mistökum eða óvarkámi stjóm- enda þeirra. Þetta var þáttur í stefnu fyrrverandi ríkisstjórnar sem ekki vildi beita almennt viðurkenndum hagstjómaraðferðum en trúði á lækningamátt opinberrar íhlutunar. í stað þess að hamla gegn útgjalda- þenslu ríkissjóðs og búa útflutnings- greinunum viðunandi starfsskilyrði voru skattar hækkaðir, raunvextir hækkuðu sífellt og erlendu lánsfé var beint í gegnum millifærslusjóðina til að lina þjáningar þeirra fyrirtækja sem verst stóðu að mati trúnaðar- manna ríkisstjórnarflokkanna í sjóð- unum- Þessir stjómarhættir, sem hér er lýst, höfðu ekki aðeins í för með sér mismunun fyrirtækja, heldur komu þeir í veg fyrir eðlilega þróun at- vinnulífsins þar sem þeim var haldið á floti sem nutu velvildar stjómar- herranna. Því miður standa menn nú frammi fyrir þeirri staðreynd að vandinn, sem menn töldu sig vera að ráðast gegn með þessum aðferð- um, er enn óleystur og hefur í mörg- um tilfellum magúast. Menn misstu tækifærið, þegar aflabrögð voru hag- stæð og verðlag á útflutningi hátt, til að leggja grunn að góðri lífsaf- komu. Það sem verra er, sjóðirnir sem hjálpræðið kom úr eru ekki að- eins tómir, heldur stórskuldugir. Þannig blasir við að á undanförnum fjórum ámm hefur hagur Fram- kvæmdasjóðs íslands versnað um tæpa þijá milljarða króna og er eig- infjárstaða hans nú neikvæð um a.m.k. 1,2 milljarða króna. Ríkisend- urskoðun hefur komist að þeirri nið- urstöðu að leggja þurfi rúma 1,7 milljarða króna í afskriftasjóð Byggðastofnunar til þess að mæta líklegum áföllum. Þá hefur stjórn stofnunarinnar farið fram á að ríkis- sjóður leggi atvinnutryggingadeild Byggðastofnunar til rúma 1,4 millj- arða króna á næsta ári, til að mæta töpuðum útlánum, en samtals. hefur verið gert ráð fyrir að útlánatap deildarinnar nemi rúmum 1,7 millj- örðum króna. Ríkisendurskoðun hef- ur talið að tvöfalda þurfi framlög í afskriftasjóð hlutafjárdeildar Byggðastofnunar og áætlar að tap ríkissjóðs vegna ábyrgða á hlutdeild- arskírteinum sjóðsins verði allt að 270 milljónir króna þegar upp verður staðið. Athyglisvert er að Ríkisendur- skoðun hefur komist að þeirri niður- stöðu að við stjórnarskiptin hafi framlög í afskriftasjóði áðurgreindra sjóða verið 1,3 milljarðar króna, en hefðu þurft að vera meira en 5,8 milljarðar króna. Með öðrum orðum, þá hafði verið látið eins og staða þessara sjóða væri 4,5 milljörðum króna betri en raun varð á. Þessi staða, auk gríðarlegrar skuldasöfn- unar ríkissjóðs síðustu mánuðina fyr- ir stjómarskiptin, er sú arfleifð sem síðasta ríkisstjóm skildi eftir. Ég vil minna á að skuldir ríkissjóðs jukust um nær 9 milljarða króna frá síðustu áramótum og fram til kosninganna í apríl. Um allt þetta þögðu þáver- andi forsætisráðherra og þáverandi fjármálaráðherra þunnu hljóði í kosn- ingabaráttunni og fóm þannig á bak við landsmenn. Vandi fiskeldis og ull- ariðnaðar falinn Þegar núverandi ríkisstjóm tók við völdum og framangreindur vandi kom í ljós þurfti enn fremur að taka á ýmsu sem hafði verið látið reka á reiðanum um langt skeið. Ég vil taka tvö dæmi til skýringar. í fyrsta lagi vil ég nefna tök fyrr- verandi ríkisstjórnar á vanda fisk- eldisfyrirtækja. Á vegum Fram- kvæmdasjóðs íslands var í október 1990 tekin saman greinargerð um alvarlega stöðu fyrirtækja í þessari grein. Þáverandi forsætisráðherra lagði þessa samantekt fyrir ríkis- stjómarfund hinn 9. nóvember 1990. Ríkisstjórnin fól pólitískum aðstoðar- mönnum fimm ráðherra að fara yfir málið 1 heild sinni. I áðumefndri greinargerð Framkvæmdasjóðs segir orðrétt: „Nú er svo komið að til einhverra ráða þarf að grípa til að greinin í heild lognist ekki út af og þar með öll sú þekking og verðmæti sem ligg- ur hjá þeim aðilum sem unnið hafa í greininni til þessa.” Á ríkisstjórnarfundi 18. janúar 1991 lagði þáverandi forsætisráð- herra fram skýrslu starfshóps að- stoðarmanna ráðherranna. í þeirri skýrslu segir að ákveða verði hvort halda beri fiskeldinu áfram eða leggja það niður. Orðrétt segir í skýrslunni: „í raun er verulegur hluti af þeim G.250 milljónum króna sem opinberir sjóðir og bankar hafa lánað til fisk- eldis tapaður.” Þá segir á öðmm stað í skýrslunni: „Þannig er sýnt að hvorki núver- andi framleiðsla né full framleiðslu- geta stöðvanna stendur undir nema litlum hluta stofnljárfestingar og rekstrarfjárþörf.” Þrátt fyrir þessa vitneskju þögðu ráðherrar, að því undanskildu að í umræðum í neðri deild Aiþingis skömmu fyrir þinglok gat þáverandi fjármálaráðherra þess í framhjá- hlaupi að 4-5 milljarðar króna kynnu að vera tapaðir í fiskeldi. Að öðra leyti var hvergi minnst á þennan gríðarlega vanda allan síðastliðinn vetur og farið með álit trúnaðar- manna ríkisstjómarinnar sem hem- aðarleyndarmál. Það er hins vegar athyglisvert að sama dag og skýrsla aðstoðarmannanna var lögð fram í ríkisstjóminni ritaði þáverandi for- sætisráðherra Framkvæmdasjóði ís- lands bréf með eindregnum tilmælum um að sjóðurinn keypti laxakynbóta- stöð að Kalmanstjöm fyrir meira en 150 milljónir króna. Með öðrum orð- um, á sama tíma og aðstoðarmenn- imir töldu fjárfestingu í fiskeldi von- lausa þröngvaði þáverandi forsætis- ráðherra Framkvæmdasjóði til nýrra fjárfestinga í greininni. í öðru lagi vil ég nefna tök fyrri ríkisstjómar á málefnum Álafoss hf. Forystumenn stjómarandstöðunnar hafa ráðist harkalega að ríkisstjóm- inni vegna gjaldþrots fyrirtækisins þótt þeim hafi um alllangt skeið fyr- ir kosningar verið kunnugt um að hverju stefndi. Björgunaraðgerðir höfðu ekki skilað tilætluðum árangri og fyrir lá að verulegt nýtt fjármagn þyrfti að koma inn í reksturinn til að endar næðu saman. Framkvæmdasjóður tapaði alls um 1,8 milljörðum króna á undanfömum árum vegna ítrekaðra björgunarað- gerða við Álafoss-fyrirtækin. Fyrir liggur að aðrir opinberir sjóðir hafa tapað a.m.k. 400 milljónum króna til viðbótar. Þáverandi forsætisráð- herra beindi þeim „eindregnu tilmæl- um” til stjómar Framkvæmdasjóðs að keypt yrðu verksmiðjuhús af Ála- fossi hf. í Mosfellsbæ á árinu 1990 fyrir meira en 250 milljónir króna. Stjóm sjóðsins beygði sig undir vilja ráðherrans en færði sérstaklega til bókar í fundargerð sjóðsins að þessi ráðstöfun samræmdist ekki hags- munum hans. Þegar síðan í óefni var komið sl. vor og öll framangreind aðstoð hafði ekki megnað að forða fyrirtækinu frá gjaldþroti kaus þá- verandi forsætisráðherra að láta málið danka fram yfir kosningar þannig að það kom í hlut þeirrar ríkisstjórnar, sem nú situr, að skýra frá hvemig komið væri. Ég hef rakið þessi dæmi til þess að leiða mönnum fyrir sjónir þá sóun á almannafé sem fylgdi atvinnu- stefnu fyni ríkisstjómar. Því miður er ekki öll sagan sögð. Minna má á bága stöðu rækjuvinnslunnar og margra fyrirtækja í sjávarútvegi. Eftir atvinnustefnu fyrri ríkisstjómar stendur slóði gjaldþrota fyrirtækja og sú staðreynd að þjóðin glataði gullnum tækifærum. Framsóknar- menn tala um gjaldþrotastefnu, en gjaldþrotin, sem við höfum orðið vitni að, era í raun aðeins óumflýjanleg afleiðing þeirra eigin stefnu. Og hver skyldu áhrifin af þeirri stefnu vera á lífskjör launafólks? Allir vita að skattar og vextir iýra kjör fólksins í landinu. Þeir fjármunir, sem varið er til að halda gjaldþrota fyrirtækjum gangandi, nýtast ekki til að bæta hér lífskjör. Ríkisstjórnin hófst þegar handa eftir kosningar við að vinda ofan af þessari óstjóm. Aðhaldsaðgerðir, sem gripið var til, hafa þegar skilað nokkram árangri. Verðbólga fer hraðlækkandi, hægt hefur á aukn- ingu innflutnings og dregið hefur úr þenslumerkjum. Markmiðið er að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.