Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 Sly savarnafélag- íslands er ekki í Landsbjörgu eftir Örlyg Hálfdanarson Nýlega voru stofnuð samtök sem bera heitið Landsbjörg, lands- samband björgunarsveita. Stofn- endur voru Landssamband hjálpar- sveita skáta, LHS, með 22 sveitum, Landssamband flugbjörgunar- sveita, LFBS, með 6 sveitum, Björgunarfélag Vestmannaeyja og Björgunarsveitin Stakkur í Kefla- vík. Stjóm Slysavamafélagsins hafði borist það til eyrna áður en stofn- fundurinn var haldinn að stofnend- ur Landsbjargar hygðust nota und- irheitið „landssamband björgunar- sveita”. A formlegum og óformleg- um fundum með fulltrúum LHS og LFBS mótmælti stjórn SVFÍ notkun þessa undirheitis. Ástæðan ætti að vera hverjum heilskyggn- um manni augljós: Innan Lands- bjargar eru 30 björgunarsveitir. Utan hinna nýju samtaka eru hins vegar 94 björgunarsveitir SVFI. Því miður fóra stofnendur Landsbjargar ekki að tilmælum SVFI og auglýsa starfsemi sína í nafni „landssambands björgunar- sveita”. Á haustfundum Slysavarnafé- lagsins sem haldnir voru á 11 stöð- um í öllum landshlutum í lok síð- asta mánaðar og þar sem mættir voru 450 fulltrúar af öllu landinu, kom fram megn óánægja og hörð mótmæli vegna notkunar Lands- bjargar á framangreindu undir- heiti, „landssamband bjö'rgunar- sveita”. Skorað var á stjórn Slysa- varnafélagsins í ályktunum og ræðum að beita öllum ráðum til þess að koma í veg fyrir þessa misnotkun nafnsins, sem gæfí ranga, ósanna og villandi mynd af umfangi Landsbjargar. Nafnið „iandssamband björgun- arsveita” hefur þegar valdið um- talsverðum misskilningi og leiðind- um. Margt fólk heldur að björgun- arsveitir Slysavarnafélagsins séu með í þessum nýju samtökum, enda kynna þau sig hvarvetna með þeim hætti að leiðir til misskiln- ings, m.a. við fjársafnanir. Slysa- vamafélagið telur þetta óeðlilega starfshætti, og bendir á að yfir- standandi auglýsinga- og styrkt- arfélagasöfnun í nafni „lands- sambands björgunarsveita” er Slysavarnafélaginu með öllu óviðkomandi. Slysavarna- og björgunarmál er alvarlegt hlutverk, sem einstakl- ingar og félagasamtök taka að sér. Slysavarnafélag íslands, sem er í eigu íslensku þjóðarinnar, hef- ur um sex áratuga skeið haft for- ystu um slysavarna- og björgunar- mál á íslandi og lagt fram gífur- lega vinnu og fjármuni á þeim vettvangi. Slysavarnafélagið hefur ætíð óskað eftir góðri samvinnu við alla sem hafa svipuð áhugamál á stefnuskrá sinni, einnig Lands- björgu. Slysavarnafélagið telur sér hins vegar skylt að gefnu tilefni að greina frá helstu staðreyndum þessa máls, þegar ábyrgir aðilar, viljandi eða óviljandi, villa um fyr- ir almenningi. Allur metingur milli björguna- raðila um getu, stærð og fjölda er slysavarna- og björgunarstarfmu ekki samboðið og félagið mun ekki taka þátt í slíku, en telur þó rétt eins og málum er komið, að birta hér nokkrar staðreyndir varðandi uppbyggingu sína og störf. Rétt er að taka það skýrt fram, að félag- ið leggur höfuðáherslu á slysavarn- ir (forvarnir eins og þær eru oft nefndar nú á dögum) en rekur samhliða þeim öfluga björgunar- starfsemi. I stuttu máli eru megin- þættir starfsins sem hér segir: Slysavamafélagið er landsfélag með tæplega 20.000 skráðum fé- lögum. Innan þess era 114 deildir, þar af eru 29 kvennadeildir og 18 unglingadeildir. Björgunarsveitir félagsins eru 94 og á útkallsskrá þeirra era 3.116 björgunarmenn. Útköll árið 1990 urðu 1.190. Stjórnstöðvar og tækjageymslur félagsins eru 73 og fluglínutæki era 78. Slysavarnaskýli á landinu eru 83. Innan félagsins eru starf- andi 65 kafarar. Björgunarsveit- irnar þafa yfir að ráða 92 bifreið- um, 22 snjóbílum og 142 snjósleð- um. Slysavarnafélagið á 24 harð- botna báta, 82 slöngubáta og þijú björgunarskip. Félagið rekur björgunarmiðstöð með vakt allan sólarhringinn. Fé- lagið annast rekstur Tilkynninga- skyldu íslenskra skipa í Slysa- varnahúsinu. Tilkynningaskyldan tók við 390.033 tilkynningum á síðasta ári, eða 1.086 tilkynningum á dag. Tilkynningaskyldan er einn mikilsverðasti þátturinn í öllu sjó- björgunarstai’fí þar sem hægt er að beina þeim bátum og skipum sem næst eru slysstað til björgun- ar. Slysavamafélagið annast rekst- ur Slysavamaskóla sjómanna. Til þessa dags hafa 6.007 sjómenn sótt námskeið skólans. Slysavarna- félagið rekur björgunar- og ruðningsskóla í samvinnu við Al- mannavarnir ríkisins þar sem þjálf- uð era rétt viðbrögð við afleiðing- um náttúruhamfara. Skólinn er ársgamall en hefur þegar útskrifað á sjötta tug manna og starfsemin er í stöðugum vexti. Slysavarna- félagið rekur umfangsmikla fræðslu- og þjálfunarstarfsemi fyr- ir björgunarsveitir sínar. Á þessu ári verða námskeiðin um 130. Slysavarnafélagið hefur ráðið sérstakan erindreka til þess að sinna eingön'gu barnaslysavörnum og er að hefja varanlegt landsátak undir kjörorðunum Vörn fyrir börn og Gerum bæinn betri fyr- ir börnin. Slysavarnafélagið hefur um ára- tuga skeið lagt mikið af mörkum til umferðarmála og hyggst stór- auka það á næstunni. Hér hefur verið stiklað á stóru um starfsemi Slysavarnafélagsins. Af þessari upptalningu má ljóst vera að samtök sem vinna að björg- unarmálum og hafa björgunar- sveitir félagsins ekki innanborðs geta ekki talið sig „landssamband björgunarsveita”. Slysavarnafélagið lét fyrir nokkrum mánuðum lögskrá þetta heiti „landssamband björgunar- sveita”. Ekki til þess að nota það sjálft, heldur til þess að hafa það tiltækt þegar sá dagur rynni að þeir sem að björgunarmálum vinna sameinuðust. Forráðamönnum Landsbjargar er fullkunnugt um að félagið lét lögskrá nafnið og því furðulegra er að þeir skuli leyfa sér að nota það með þessum hætti. Það mætti einna helst álykta að þeir vildu ekkert fremur en að félagið lögsækti þá fyrir notkun- ina. Mér finnst rétt að gera almenn- ingi að lokum grein fyrir því að sameiningarviðræður björguna- raðilanna þriggja, SVFÍ, LHS og LFBS, höfðu átt sér stað á annað ár þegar þeim var slitið í janúar 1991 að ósk LHS, en þá hafði LFBS þegar dregið sig út úr við- ræðunum. Áður en til viðræðuslit- anna kom við LHS höfðu fulltrúar þess og LFBS hafið sameining- Örlygur Hálfanarson arviðræður án vitneskju SVFÍ. Aðalfundur Slysavarnafélagsins var haldinn að Skógum undir Eyja- j'jöllum 17. og 18. maí sl. Þar var eftirfarandi tillaga samþykkt: „Aðalfundur SVFÍ 1991 harm- ar, að samningaviðræðum SVFI, LHS og LFBS skyldi slitið að ósk LHS í janúar sl. Fundurinn lýsir jafnframt fullum stuðningi við stjórn félagsins í þeim samningaviðræðum, sem fram fóru áður en til viðræðuslitanna kom. Fundurinn lýsir einnig yfir sam- þykki sínu við yfirlýstan vilja stjórnar félagsins að taka samningaviðræður upp aftur og hvetur til að svo verði gert.” Ég vil fyrir hönd Slysavarnafé- lags íslands enn á ný skora á Landsbjörgu að falla frá undirheit- inu „landssamband björgunar- sveita”, sem öllum má ljóst vera að er röng nafngift. Þá vil ég ít- reka samþykktina frá Skógum og hvetja fulltrúa Landsbjargar að hefja viðræður við SVFI með það stefnumark eitt í huga að sameina alla björguanraðilana. Þannig munu starfskraftar og fjármunir nýtast betur en nú er. Þjóðin á í raun heimtingu á því. Höfundur er forseti Slysavarnafélags Islands. Svar til Jóns Aðal- steins Jónssonar Nýju frímerkin á póstkorti af eina stóra farþegaskipinu sem ennþá siglir reglubundið til Islands að sumarlagi. eftir Guðmund Sæmundsson í frímerkjaþætti í Morgunblað- inu 25. ágúst sl. spyr Jón Aðal- steinn Jónsson hvers vegna Esja, strandferðaskip ríkisins nr. 1 með því nafni, hafi ekki verið valin á eitt þeirra fjögurra frímerkja af póstskipum sem kom út hinn 9. október. Af þessu tilefni tel ég undir- ritaður réttast að gera grein fyrir forsendum á vali allra merkjanna enda fæst þá jafnframt svar við þessari spumingu: Þegar mér var Sauðárkróki. Á VEGUM Tónlistarskólans og Tónlistarfélagsins á Sauðárkróki verða haldnir tvennir tónleikar í októbermánuði. Laugardaginn 12. október kl. 17.00 leika Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Kristinn Örn Krist- insson píanóleikari verk eftir Elgar, Kreisler, Sarasate, Eyþór Stefáns- son og fleiri. Á þessum tónleikum mun Guðný Guðmundsdóttir leika „Var jafnframt á það bent í því sambandi að öll skipin væru hvert um sig verðugur full- trui síns tímabils í sam- göngusögu okkar fs- lendinga.” falið að gera tillögur um þau fjög- ur skip sem kæmu helst til greina að prýða skyldu umrædda útgáfu var jafnframt á það bent í því sambandi að öll skipin væru hvert á íslenskar fíðlur úr birki sem smíð- aðar eru af Kristni Sigurgeirssyni fíðlusmið á Sauðárkróki. Á degi tónlistarinnar 26. október nk. verður Edda Erlendsdóttir pían- óleikari með tónleika þar sem hún flytur verk eftir C.P.E. Bach og F. Sehubert. Báðir tónleikarnir verða í sal Tónlistarskólans á Borgarflöt 1. - BB um sig verðugur fulltrúi síns tíma- bils í samgöngusögu okkar íslend- inga frá seglabúnaði til dísilvélar, að þau væra sem ólíkust að útliti og hefðu ekki birst á íslenskum frímerkjum áður. Nú vildi svo til að mynd af Esju hinni fyrstu er á frímerki frá 1973 í tilefni af 100 ára afmæli íslenskrar frímerkj- aútgáfu og einnig er Gullfoss nr. 2 á frímerki frá 1964. Með hlið- sjón af framansögðu voru þau skip því ekki valin til þessarar útgáfu. Að öðru leyti er þetta að segja: Strax í upphafí þótti sýnt að ekki væri fært að ganga fram- hjá fyrsta íslenska millilandaskip- inu, Gullfossi nr. 1, sem fulltrúa gufuskipatímabilsins, ef svo má að orði komast. Bæði dönsku skip- in, seglskipið Sölöven og gufuskip- ið Arcturas, sem jafnframt var með seglabúnaði; vora dæmigerð 19. aldar skip í Islandssiglingum. Að vísu er Árcturas á færeysku frímerki frá 1983, en siglingar skipsins hingað, sem hófust 1858, mörkuðu slík tímamót í sam- göngumálum íslendinga að ófært þótti að ganga framhjá því, auk þess sem hönnun Þrastar Magn- ússonar á íslenska frímerkinu tek- ur færeysku útgáfunni fram, að mínu áliti. Þá stóð valið á milli dísilskipanna tveggja, Dronning Alexandrine og Esju nr. 2, sem lengi gekk undir nafninu „Nýja- Esja”. Bæði þessi skip áttu sér langa og litríka sögu að baki í póst- ojg farþegasiglingum í þágu okkar Islendinga; Drottningin í 32 ár og hafði siglt yfir 500 ferðir milli Danmerkur og íslands þegar yfir lauk, en Esja nr. 2 í 30 ár, lengst af í strandferðum. Það sem helst reið baggamuninn um val Esjunnar var að búið var að velja tvö dönsk skip og því þótti eðli- legra að hin tvö væru íslensk. Þá var Esja nr 2 mörgum íslendingum kær eftir siglinguna til Petsamo 1940 og Kaupmannahafnarferð- ima í stríðslok 1945, en í báðum þessum ferðum flutt.i skipið 560 farþegar frá hinum stríðshijáða heimi. Auk þess var Esja aðalburð- arásinn í samgöngum hér innan- lands á hættutímum síðari heims- styijaldarinnar 1939—1945. Önnur þekkt íslandsför sem sigldu reglubundið hingað og vel gátu komið til greina á íslensk frímerki voru Díana, Laura, Vesta, Ceres, Skálholt, Hólar, Flóra, Botnía, Sterling, ísland og Lyra auk íslensku skipanna. Af þessari upptalningu má glögglega sjá hversu erfitt valið getur verið, en skipin á frímerkjaútgáfunni hinn 9. október n.k. ná yfir 117 ára tímabil í samgöngusögu okkar, frá 1852 að Sölöven kom fyrst til Reykjavíkur til ársins 1969 að Esja nr. 2 var seld til útlanda. Að lokum vil ég nota tækifærið og þakka Jóni Aðalsteini Jónssyni fróðleg og skemmtileg skrif um frímerki og söfnun þeirra. Höfundur er frímerkjasafnari og hefur skrifað mikið um ferða- og sajngöngumál. Tónleikar í Tónlist- arskóla Sauðárkróks

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.