Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 Minning: Kristínn Firmbogason framkvæmdasljóri Fæddur 28. maí 1927 Dáinn 4. október 1991 Kveðja frá Framsóknarfé- lagi Reykjavíkur Það er sjónarsviptir að Kristni Finnbogasyni og víst er að félagar hans á hinum pólitíska vettvangi sakna áræðins og stórhuga sam- ferðamanns sem fremur kaus að halda sig baka til en að vera í fremstu víglínu. Kristinn Finnbogason var um- deildur og vissi best af því sjálfur, hijúfur á ytra borði en með stórt hjarta. Það var hin mikla þversögn sem margir áttu erfítt með að skilja. Sem forystumaður framsóknar- manna í Reykjavík í þijá áratugi, bæði sem formaður Framsóknarfé- lags Reykjavíkur og fulltrúaráðs framsóknarfélaganna, markaði hann djúp spor. En fyrst og síðast verður hans minnst sem þess manns er beitti sér í fjármálum Framsókn- arflokksins og tryggði honum að- stöðu til félagsmálastarfa í Reykja- vík. Kristinn Finnbogason var stór í sniðum. Gilti einu hvort um leik eða störf var að ræða. Sá sem þessar línur ritar minnist veiðiferða með Kristni sunnan og norðan heiða. Þar fór ótrúlega slunginn veiðimað- ur sem veitti öðrum góða leiðsögn. Að kvöldi dags var hann hrókur alls fagnaðar, sagnafróður og skemmtilegur. Nú er skarð fyrir skildi og mest- ur er söknuður Guðbjargar eigin- konu hans sem stóð alla tíð við hlið hans sem traust bjarg. Framsóknarfélag Reykjavíkur sendir henni og bömum Kristins samúðarkveðjur á stundu sorgar. Alfreð Þorsteinsson formaður FR. í dag kveðjum við Kristin Finn- bogason, sem lést um aldur fram á Borgarspítalanum föstudaginn 4. október. Fyrstu kynni mín af Kristni voru nokkru áður en ég fór að starfa með honum í Framsóknarflokkn- um. Eg hafði verið að vinna út- varpsþátt um Búlgaríu, en þar hafði ég verið fararstjóri sumar- iangt og hrifíst mjög af landi og þjóð. Vinnufélagi minn, frændi Kristins, benti mér þá á að fara og ræða við Kristin Finnbogason, því að við ættum þarna sameigin- legt áhugamál. Ég sló á þráðinn til hans, kynnti mig, og spurði hvort hann mætti vera að því að tala við mig. „Komdu við á skrifstofunni hjá mér á morgun,” var svarið. Það gerði ég og fékk slíkar móttökur að mér gleymast seint. Þessi önn- um kafni maður rabbaði lengi við mig um heima og geima, þó aðal- lega um þetta sameiginlega áhuga- mál og áður en ég vissi af var hann búinn að ákveða að ég færi til Búlgaríu á hans vegum. Þar var mér tekið með kostum og kynjum, og nafnið mr. Finn- bogason var eins og töfraorð, ef það var nefnt eða nöfn búlgarskra vina Kristins sem hann hafði látið mig hafa til að skila kveðju til, þá var hlaupið til og allt gert til að þóknast mér. Seinna átti ég svo eftir að kynn- ast Kristni betur og vinna með honum innan Framsóknarflokks- ins. Voru þau kynni engu síðri. Þar naut hann mikils trausts og var oft haft á orði ef glímt var við erfíð mál að nú yrði að fá Kristin í málið. Ég sat með honum í stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur, þar sem við áttum alltaf gott sam- starf. Hann vann þar ómetanlegt starf og verður skarð hans vand- fyllt. Kristinn var ákveðinn og fylginn sér, og ef hann var búinn að ákveða eitthvað þá hætti hann ekki fyrr en hann var búinn að koma málinu í höfn og oftast kom hann því í höfn. Þannig var það líka þegar ég leit inn til hans á spítalanum um daginn. Hann ætlaði að kom- ast yfir veikindin, hann var ákveð- inn í því. En þar mætti „krafta- verkamaðurinn” Kristinn Finnbog- ason ofjarli sínum og varð að láta undan fyrir þeim sem öllu ræður. Eiginkonu hans Guðbjörgu, dætrunum Önnu og Rúnu og öðr- um börnum, tengda-, barna- og bamabarnabörnum Kristins bið ég guðsblessunar á þessum erfíða tíma. Asta R. Jóhannesdóttir í dag er til moldar borinn mágur minn Kristinn Finnbogason. Ég kynntist Kristni er ég tengdist fy'öl- skyldu hans. Foreldrar Kristins, Finnbogi og Sigríður, bjuggu þá á Bergsstöðum við Kaplaskjólsveg sem alla tíð, meðan þau bjuggu þar, var aðal miðstöð fjölskyldunn- ar, þar var margt skeggrætt yfír kvöldkaffinu, og er mér minnis- stætt frá þeim tíma hvað mér fannst Kristinn hugmyndaríkur og fram- kvæmdasamur, enda var það hans einkenni alla tíð. Fyrir utan að reka mörg fyrir- tæki ferðaðist Kristinn mikið, fyrstu kynni mín af þeirri hlið hans var er hann bauð móður sinni og systr- um að koma með í ferð til Vínar- borgar um páska. Aðra eins ferð höfðu þær aldrei farið og lofuðu hann fyrir hvað allt hefði verið stór- kostlegt og vel skipulagt. Sjálfur reyndi ég það síðar hversu góður ferðafélagi hann var, er við hjónin ferðuðumst með honum og Guðbjörgu nokkrum sinnum um Evrópu, og engum hef ég ferðast með sem var eins ratvís og hann. A heimili þeirra Guðbjargar og Kristins var alltaf jafngott að koma, enda Kristinn höfðingi heim að sækja, alltaf var veitt af rausn og vítt var til veggja og ógleymanlegar voru þorraveislurnar á Kjalarnes- inu. Með Kristni er genginn góður maður sem allra vanda vildi leysa, ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst honum. Blessuð sé minning hans. Við Jóna vottum Guðbjörgu og fjöl- skyldu, okkar dýpstu samúð. Björn Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Kristinn Finnbogason, fram- kvæmdastjóri og bankaráðsmaður í Landsbanka íslands, andaðist þann 4. þ.m. eftir erfíða sjúkrahús- legu. í dag er hann til moldar bor- inn. Hann sat bankaráðsfund sem haldinn var á Isafírði 7. september sl. Grunaði þá engan, sem þann fund sat með Kristni, að þetta yrði síðasti bankaráðsfundur sem hann sæti. Kristinn heitinn var fæddur að Ketilvöllum, Laugardalshreppi, 28. maí 1927 og var því 64 ára gam- all er hann lést. Foreldrar hans voru Finnbogi Árnason og Sigríður Ólafsdóttir. Ungur að árum lærði Kristinn raf- virkjun og varð meistari í þeirri grein. Starfaði hann við þá iðn hér í Reykjavík og á Blönduósi í nokk- ur ár. Er hann flutti til Reykjavík- ur gerðist hann bílasali, var iðnrek- andi um skeið, og forstjóri flug- félagsins Iscargo í nokkur ár. Á þessum árum voru Kristni falin mörg trúnaðarstörf fyrir Fram- sóknarfélögin í Reykjavík og Fram- sóknarflokkinn. M.a. var hann for- maður fulltrúaráðs Framsóknar- félaganna, formaður félags Fram- sóknarmanna í Reykjavík og gegndi auk þess fjölda trúnaðar- starfa fyrir flokk sinn, og lét sér mjög annt um velferð hans. Árið 1971, þegar Blaðaprent hf. var stofnað, var hann kjörinn í stjórn þess og um skeið var hann stjórnarformaður Blaðaprents hf. Tvívegis var Kristinn fram- kvæmdastjóri dagblaðsins Tímans. Gegndi hann því starfi samtals í 12 ár, nú síðast frá 1985 til dauða- dags. Kristinn Finnbogason var kjör- inn af Alþingi í bankaráð Lands- banka íslands 1. janúar 1973, og sat í því óslitið síðan, og alla tíð sem varaformaður þess. Kristinn var mjög áhugasamur um rekstur bankans. Kristinn Finnbogason var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Elín Jörgensen, f. 10. nóvember 1924, dáin 31. ágúst 1987 og eignuðust þau tvö börn, Sigríði og Kristinn. Eftirlifandi kona hans er Guðbjörg Jóhannsdóttir, f. 29. apríl 1927. Eignuðust þau 5 börn, Arnrúnu LiljUj Finnboga Eirík, Hjört, Önnu og Árna Hannes. Á yngri árum eignaðist Kristinn eina dóttur, Guð- rúnu, með Huldu Alexandersdótt- ur. Kristinn Finnbogason þekkti alla innviði Landsbanka íslands mjög vel eftir langa setu í bankaráði. Hann setti sig vel inn í hin ýmsu mál, sem komu til kasta bankaráðs- ins, og var fljótur að átta sig á hinum margbreytilegustu málum. Kristinn var þéttur á velli og fas- mikill í framkomu, skapstór og fastur á sínum skoðunum, en þó samvinnuþýður, þegar málin höfðu verið rædd og krufin til mergjar. Kristinn Finnbogason sýndi það í störfum sínum í bankaráði Lands- bankans að hann vildi hag bankans sem mestan. Að leiðarlokum vil ég, fyrir hönd Landsbanka íslands, þakka Kristni Finnbogasyni fyrir langt og gott samstarf og heilladijúgt starf í þágu Landsbanka Islands. Við munum sakna hans í bankaráðinu og óneitanlega er stórt skarð höggvið í raðir okkar við fráfall Kristins. Landsbanki Islands vottar ekkju hans, frú Guðbjörgu Jóhannsdótt- ur, börnum hans og öðrum aðstand- endum innilegustu samúð. Eyjólfur K. Sigurjónsson, forrnaður bankaráðs Lands- banka íslands. Vinur minn, Kristinn Finnboga- son, er látinn. Hann lést í Borgar- spítalanum föstudaginn 4. október sl. eftir skamma sjúkdómslegu. Þeir sem þekktu Krjstin vissu að heilsu hans fór hrakandi á undan- förnum tveimur árum. Hann neit- aði því hins vegar alltaf að eitthvað amaði að sér. Hann neitaði að gef- ast Upp þar til yfír lauk. Það var honum líkt. í vöggugjöf hafði honum hlotn: ast bjartsýni, skap og áræði. í félagsstarfi og hinum harða skóla lífsins hafði hann öðlast kjark og viljastyrk. í faðmi fjölskyldunnar öðlaðist hann æðruleysi. Hann var eins og klettur úr hafinu. Það var sama hvernig braut á honum að aldrei gafst hann upp. Þau orð voru ekki til í orðabók Kristins Finnbogasonar. Kynni okkar Kristins hófust þeg- ar ég hóf afskipti af stjómmálum fyrir Framsóknarflokkinn í Reykja- vík. Kristinn var lengi í forustu- sveit framsóknarmanna í Reykjavík sem formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur og síðan sem formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna. Kristinn gegndi- fjöldamörgum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknar- flokkinn. Hann sat í miðstjórn og framkvæmdastjórn flokksins og nú hin síðari ár var hann fulltrúi Fram- sóknarflokksins í bankaráði Lands- banka íslands og þar sat hann til hinstu stundar. Kristinn lét útgáfumál fram- sóknarmanna mikið til sín taka. Hann var framkvæmdastjóri dag- blaðsins Tímans frá 1972-1979 og síðan aftur frá 1985. Vinátta tókst með okkur Kristni þegar við í sam- einingu ásamt mörgum fleiri stóð- um í því að koma Tímanum út aft- ur. Til þess þurfti miklu meira en bjartsýni og áræði. Það þurfti í raun kraftaverk, enda var Kristinn Finnbogason oft kallaður „krafta- verkamaðurinn í framsókn”, og það nafn bar hann með réttu. Mér er enn í fersku minni þegar við gengum saman á gamlársdags- morgun 1985 út úr gamla Sam- vinnubankanum í Bankastræti eftir að hafa gengið þar frá hundruðum þúsunda króna skuldum Nú- Tímans hf. og komnir hálfa leið með að tryggja útgáfu Tímans aft- ur eftir áramótin. Þá spurði Krist- inn hversu mikið ég hefði fengið til baka frá gjaldkeranum. Þegar ég sagði honum að það væri 1 króna og 25 aurar bað hann mig um að geyma það vel því að allt væru þetta nú peningar. Það voru þessir aurar sem Kristinn Finnbog- ason hafði til að koma Tímanum aftur út. Áður en Kristinn varð fram- kvæmdastjóri Tímans þá var hann með eigin atvinnurekstur. Hann var „bisness-maður” af lífi ogsál. Hann var ávallt með eitthvað nýtt á pijónunum, hugmyndir komu og fóru. Færi hann af stað með nýja hugmynd fékk hann ekkert stöðv- að. Léti maður í ljós vantrú eða efa þá belgdi hann sig út og barði í borðið og sagði að í þessu væri „bullandi bisness”. Kristinn Finnbogason var ein- stakur maður. Hann var stjórnsam- ur, hreinskiptinn, hann lá ekki á skoðunum sínum og sagði mönnum til syndanna hvort sem þeim líkaði betur eða verr. Það hvessti oft á Tímanum og þá fengu menn að heyra það ef ekki var allt í þeim skorðum sem sá gamli vildi hafa það. Kristinn var fyrirferðarmikill í orðsins fyllstu merkingu. Það gustaði af honum þar sem hann fór. Á marga hefur hann sjálfsagt virkað sem harður og óvæginn en þeir sem til þekkja vissu að í þess- um stóra og fyrirferðarmikla búk var hlýtt hjarta og viðkvæm sál. Kristinn mátti ekkert aumt sjá þá var hann boðinn og búinn til hjálp- ar. Þeir eru ófáir sem Kristinn veitti aðstoð. Þar var sama hvort leitað til hans að nóttu sem degi, sporleti spurðist aldrei til hans. Kristinn treysti vissulega á sinn eigin mátt „en maðurinn einn er ei nema hálf- ur”. Eiginkona hans Guðbjörg Jó- hannsdóttir var honum hinn trausti bakhjarl sem gerði honum kleift að sinna hinum fjölþættu og marg- víslegustu verkum sem á honum og heimilinu hvíldu. Því kynntist ég af eigin raun sl. sumar er Krist- inn bauð mér með sér í veiði austur í Vopnafjörð. Sú ferð er mér ógleymanleg. I slíkum ferðum kynnast menn oft nánar en í amstri hversdagsleik- ans. Þá kynntist ég af eigin raun stráknum í Kristni Finnbogasyni og þeim mikla húmor er hann hafði. Hann var meinfyndinn og stríðinn, en alltaf var það vel meint. Hann sló sjálfan sig aldrei til riddara á kostnað annarra í þeim efnum. Með sárum trega sendi ég þess- um góða vini mínum og samherja þakkir fyrir samfylgdina, sem því miður var of stutt. Við Kristín send- um Guðbjörgu og aðstandendum öllum innilegar samúðarkveðjur. Finnur Ingólfsson Góður vinur og samstarfsmaður, Kristinn Finnbogason, bankaráðs- maður í Landsbanka íslands, er fallinn frá langt um aldur fram. Undanfarnar vikur átti Kristinn við alvarleg veikindi að stríða, en slíkur var kraftur hans og kjarkur að ekki var öðru trúað en að hann yrði kominn á fætur aftur innan skamms. Þegar ég heimsótti hann á sjúkrabeði var í hans huga ein- ungis um dagspursmál að ræða hvenær hann kæmi til starfa að nýju. En enginn má sköpum renna og Kristinn kvaddi þennan heim að kvöldi 4. október sl. Þótt ég kynntist Kristni ekki náið fyrr en á sl. ári, þekktumst við og áttum stöku sinnum sam- skipti þar sem báðir störfuðum við að framgangi stefnumála Fram- sóknarflokksins. Á sl. ári varð á þessu breyting og frá upphafi þess árs má segja, að við Kristinn höfum hist eða rætt saman daglega, þar sem störf okkar fóru saman innan veggja Landsbankans. Ég kynntist Kristni náið þennan tíma og ekki síst þar sem við notuðum ýmsar frístundir til samfunda, bæði í byggð og á fjöllum. Kristinn var um margt sérstakur maður. Einkennandi fyrír hann var hinn mikli áhugi hans á mönnum og málefnum. Hann var hafsjór af fróðleik- og ráðagóður. Skapstór var hann og staðfastur. Hann var hreinn og beinn, lá aldrei á skoðun- um sínum, var óhræddur að setja þær fram og þeim var ekki hnikað nema fram kæmu sterkari rök en hann studdist við. Hann var óhræddur að ræða ýmis þau mál sem aðra brast kjark til að vekja máls á. Þrátt fyrir annríki var með ólíkindum hvað Kristni tókst vel að sinna þvj' erilsama starfí sem á hon- um hvíldi. Þar kom fram hinn mikli dugnaður hans, kröfuharka til sjálfs sín og þijóskan að gefast aldrei upp. Hann var mikið ljúfmenni og undir yfirborðinu sló stórt hjarta. Hann var hjálpsamur svo af bar og fullviss er ég um að margir sam- ferðarmanna hans eiga honum margt að þakka. Kristinn v_ar bankaráðsmaður í Landsbanka íslands í áratugi. Hon- um þótti vænt um bankann og tók þátt í störfum hans af lífi og sál. Hann var vel að sér í málefnum hans, hafði mikið samband við hina ýmsu starfsmenn hans vítt og breytt um landið og reyndi þannig að fylgjast betur með starfseminni og því umhverfi sem bankinn starf- ar í. Milli Kristins og bankastjórnar var mjög náið og gott samband, sannkallað vináttusamband. Við höfum misst mikið við fráfall hans. Fyrir hönd okkar bankastjóranna vil ég að leiðarlokum þakka Kristni hið langa og farsæla starf hans í þágu Landsbankans og vináttusam- skipti hans við okkur. Élsku Guðbjörg mín. Missir þinn og barnanna er mikill. En minning- in um góðan eiginmann og föður lifir þegar sorgin líður hjá. Á stutt- um tíma kynntist ég mætum manni og eignaðist sannan vin. Á kveðju- stund þakka ég honum samferðina. Við Steinunn sendum ykkur innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Kristins Finnbogasonar. Halldór Guðbjarnason Haft er eftir frönskum heimspek- ingi, að hjartað skynji það sem skilningnum sé hulið. Við andlát Kristins Finnbogasonar, sem kvaddur er í dag, rifjast upp ein- stakir eðlisþættir í fari hans sem seint gleymast þeim sem kynntust. Þar eiga við upphafsorð þessarar kveðju. Aðrir munu rilja upp störf hans á fjölmörgum sviðum þjóðfélags okkar. Hér verður aðeins leitast við að gefa svipmynd af sérstæðri skap- höfn. Kristinn var um margt mjög ein- stæður persónuleiki. Kannski gust-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.