Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 HANDKNATTLEIKUR Sigurður Sveinsson í leik með Selfyssingum gegn sínum gömlu félögum í Val. Morgunbiaðið/Svcmr Sigurður í landsliðið á ný Sigurður Sveinsson, leikmaður Selfoss, hefur ákveðið að gefa kost á sér á ný í landsliðið í hand- knattleik og verður með í leikjunum gegn Tékkum á þriðjudag og mið- vikudag í næstu viku. „Ég er tilbúinn að leggja mitt áf mörkum til að reyna að koma landsliðinu aftur í flokk a-liða,” sagði Sigurður við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Það verða landsliðsæf- Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals og landsliðsins í handknattleik sleit krossband í hné í fyrrakvöld eins og óttast var. Hann á um tvennt að velja: Annað hvort að fara í uppskurð og vera frá í fimm mánuði eða taka sér hvíld í 10 til 14 daga og reyna síðan að æfa og leika með spelkur. „Það er erfitt að ákveða hvorn kostinn ég vel, en á þessari stundu hallast ég frekar að uppskurði,” sagði Jakob við Morgunblaðið í gærkvöldi. ingar um helgina og ég reyni að gera góða hluti hér eftir sem hing- að til,” bætti hann við. Sigurður var síðast með í HM í Tékkóslóvakíu fyrir tæplega tveim- ur árum, en fékk lítið að vera með. Hann lék síðast gegn Norðmönnum vorið 1990 og þá sem fyrirliði, en hefur helgað sig félagsliðum sinum síðan. Hann hefur byijað sérstak- lega vel með Selfyssingum í ís- Valdimar Grímsson, hinn horna- maður Vals og landsliðsins, meidd- ist líka í leiknum gegn Selfyssing- um. í ljós kom að hann hafði brák- að rifbein og eins blæddi inná líf- himnuna. „Eg hef lent í ýmsu en aldrei öðru eins, sársaukinn var svakalegur,” sagði Valdimar. „Ég verð örugglega eitthvað frá, en þegar sárið er gróið er spuming um að fá staðdeyfíngu fyrir leiki. Hvaða áhrif þetta hefur og hvað ég verð lengi frá er ómögulegt að segja til um.” landsmótinu og ekki síst vakið at- hygli fyrir sterkan varnarleik. Sigurður sagði að nú væru breyttir tímar varðandi landsliðið og hanfn væri til í slaginn. „Það er góður andi í landsliðinu og ég hlakka til að koma aftur inn, en svo er bara að sjá hvort ég standi undir því að vera í liðinu!” Landsliðið verður tilkynnt í dag og má fastlega gera ráð fyrir að strákarnir, sem stóðu sig svo vel með U-21 liðinu á HM í Grikklandi í byijun september, fái tækifæri, leikmenn eins og Gústaf Bjarnason og Einar Sigurðsson frá Selfossi, Björgvin Rúnarsson, Víkingi, Pat- rekur Jóhannesson, Stjörnunni og Framararnir Gunnar Andrésson og Jason Ólafsson auk Sigurðar Bjamasonar. Lokaundirbúningurinn fyrir B-keppnina hafinn FJÓRIR leikmenn, sem spila með þýskum liðum, koma íleik- ina gegn Tékkum í næstu viku. Það eru þeir Héðinn Gilsson, Dússeldorf, Sigurður Bjarna- son, Grosswallstadt, Óskar Ármannsson, Osswell, og Konráð Olavson, Dortmund. Jón Kristjánsson, Suhl, er í stóra Indsliðshópnum, en verð- ur ekki með að þessu sinni og sama er að segja af Geir Sveinssyni, Alzira, og Júlíusi Jónassyni, Bidasoa, sem kom4B^ ast ekki vegna leikja í spænsku deildinni á sama tíma. orbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik, tók upp þá stefnu að gera samning við öll erlend félög, sem íslenskir handknattleiksmenn leika með, og veit því hvaða leikmenn koma í tiltekin verkefni. Fyrir Iigg- ur að Geir og Júlíus komast í alla leiki eftir Tékkaleikina, en leik- mennirnir í Þýskalandi missa af leikjum í kringum áramótin vegna þýsku keppninnar. Héðinn Gilsson gerði samning við Dusseldorf áður en Þorbergur tók við landsliðinu og því getur reynst erfiðara að fá hann í leiki en aðra. • Lokaundirbúningurinn hefst með heimsókn Tékka í næstu viku. • 14. til 18. nóvember verður mót í Ungveijalandi, þar sem ísland, Ungveijatand, Austurríki og Ítalía tak þátt. • Milli jóla og nýárs eru áætlaðir þrír leikir hér á landi. Til stóð að fá heimsmeistara Svía, en afsvar kom frá þeim fyrir skömmu. Kóreumenn gátu heldur ekki komið, en viðræður standa yfír við Rússa. • 2.-5. janúar verða þrír leikir gegn_ Finnum hér á landi. • 22.-26. janúar tekur landsliðið þátt í móti í Austurríki og verður það síðasta mótið fyrir sjálfa keppnina. • 28. febrúar verður landsliðið kall- að saman til æfínga fram að B- keppni. • Búlgarir koma og leika tvo leiki 3.-4. mars. • 8.-9. mars verða tveir leikir við Júgóslava hér á landi. Kjartan til Kýpur Kjartan Steinbach, milli- ríkjadómari í handknatt- leik og einn af tólf alþjóðlegum kennurum, sem hafa leyfí til að kenna á á dómaranám- skeiðum á vegum alþjóða handknattleikssambandsins (IHF), er á förum til Kýpur. Kjartai) heldur þangað á sunnudaginn til að halda nám- skeið fyrir 25 dómara þar í landi, sem stendur yfír frá mánudegi til laugardags. Kjartan fékk boð um að halda námskeið í Saudi-Arabíu eða á Kýpur. Hann valdi Kýp- ur. Mikið áfall Hornamenn landsliðsins frá í óákveðinn tíma KNATTSPYRNA ÞjáKaranetið fullhnýtt 1. deildarfélögin hafa ráðið þjálfara og átta félög í 2. deild ENDAR hafa náðst saman í sambandi við ráðningu þjálf- ara 1. deildarliðanna. Upphaf- lega var gert ráð fyrir að mjög miklar breytingar yrðu, en þegar upp var staðið og búið að hnýta netið, eru aðeins fjórir nýir möskvar i því; Hjá Fram, KR, FH og KA. Ekkert 1. deildarfélagið var með erlendan þjálfara í fyrra og var það í fyrsta skipti síðan 1972 að heimamenn stjómuðu lið- unum í deildinni. Nú hafa KR-ing- ar ráðið Tékkann Ivan Sochor, en aðrir nýrir þjálfarar eru Pétur Ormslev hjá Fram, Gunnar Gísla- son hjá KA og Njáll Eiðsson hjá FH. • • Atli Eðvaldsson er aðstoðar- maður Sochor, en Ómar Torfason er aðstoðarmaður Péturs. Önnur félög hafa sömu þjálf- ara. Ingi Björn Albertsson hjá Val, Guðjón Þórðarson hjá ÍA, Sigurður Lárusson hjá Þór, Logi Ólafsson hjá Víkingi, Hörður Hilmarsson hjá UBK og Sigurlás Þorleifsson hjá ÍBV. Omar Jó- hannsson hefur gengið til liðs við Eyjamenn, en hann mun sjá um að þjálfa þá þrettán leikmenn sem eru á Reykjavíkursvæðinu í vetur. Breytingar í 2. deild Nýir þjálfara hjá 2. deildarfé- lögum eru Þorsteinn Ólafsson, Víði, Ólafur Jóhannesson, Þrótti - ' " ■•fhnaiiu r.f.iV'.’.rri ’a kickT R., Magnús Einarsson, ÍR og Hörður Helgason, Stjörnunni. Fylkir og Selfoss hefur ekki geng- ið frá ráðningu þjálfara, en Magn- ús Jónatansson, sem þjálfaði Þrótt R., hefur verið orðaður við Arbæj- arfélagið. Þeir þjálfarar sem verða áfram með lið sín, eru: Bjami Jóhannes- son, Grindavík, Kjartan Másson, Keflavík, Ámundi Sigmundsson, BÍ og Aðalsteinn Aðalsteinsson, Leiftur. Tveir þjálfarar í 1. deild eru jafnframt leikmenn: Pétur Ormslev og Gunnar Gíslason. Tveir þjálfarar í 2. deild eru jafn- framt leikmenn; Ámundi Sig- mundsson og Aðalsteinn Aðal- steinsson. nir.cd íij \t II 1 uui.) i ■! Teiturhefur . áhuga á Sigurði Sigurður Jónsson óánægður hjá Arsenal Sigurður Jónsson er mjög óán- ægður með að komast ekki í lið Arsenal og segist helst vilja fara frá félaginu. „Það er niðurdrepandi að þurfa að leika með varaliðinu. Ef ekkert gerist í mínum málum næstu tvær vikurnar fer ég fram á að vera settur á sölulista,” sagði Sigurður við Morgunblaðið. Sigurður hefur rætt sín mál við framkvæmdastjórann, George Gra- ham. „Á meðan gengi Arsenal er svo gott sem raun ber vitni á ég varla von á því að komast í liðið. Ég er að þreifa fyrir mér sjálfur á öðrum vígstöðvum þessa dagana, áður en ég fer formlega fram á söiu,”1 sagði' Sigurður.: 1 ■ Teitur Þórðarsson, þjálfari Lyn, hefur sýnt áhuga á að fá Sigurð til Lyn. „Ég veit ekki hvað ég á að segja um það, en ég held að það sé ekki mjög spennandi dæmi að fara til Noregs,” sagði Sigurður, sem leikur með íslenska landsliðin«*w á Kýpur í næstu viku. M RÚNAR Kristinsson lék með varaliði Stuttgart gegn franska varaliði Sochaux í fyrrakvöld. Stuttgart vann 3:1 og gerði Eyjólf- ur Sverrisson tvö markanna, en Rúnar, sem var með allan seinni hálfleik, átti m.a. skot í slá. Rúnaf kemur heim í dag eftir vikudvöl hjá 1 þýska knatlspyrtiúli^iriuJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.