Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 Reuter Klipið í keppinn Fyrsta opinbera sumo-gjímukeppnin utan Japan er nú haldin í Royal Albert Hall í London. Á myndinni má sjá glímukappann Konishiki, sem fæddur er í Bandaríkjunum, ryðja anstæðingi sínum, Tochinow- aka út úr hringnum. Sovétríkin: Upplausn og valda- barátta ínnan hersins Brussel. Reuter. MIKIL valdabarátta á sér stað inn sovéska hersins, sem er að sumu leyti stjórnlaus eftir að kommúnistaflokkurinn burtkall- aðist. Er það haft eftir embættis- mönnum Atlantshafsbandalags- ins (NATO),_sem voru í Moskvu í siðustu viku. Segja þeir, að slagurinn standi á milli umbóta- sinna og harðlínumanna og einn- ig milli niiðstjórnarvaldsins og lýðveldanna. Embættismennirnir, sem hittu að máli marga frammámenn í sov- éska hernum og rússneska stjórn- málamenn, segja, að upplausn ríki innan Rauða hersins og ekki sé lengur ljóst hver sé hans rétti yfír- bjóðandi. Afleiðingin sé sú, að inn- an hans geisi valdabarátta milli umbótasinna og harðlínumanna. Vilja þeir fýrmefndu fækka í hern- um í 1,5 milljónir manna, setja hann undir borgaralega stjóm og koma á nánari tengslum við Atlantshafsbandalagið, sem þeir líta til sem fyrirmyndar um sam- starf frjálsra ríkja. Harðlínumenn- irnir vilja líka umbætur á hernum en þeir em andvígir miklum af- skiptum borgaralegra yfírvalda og segjast hafa illan bifur á Atlants- hafsbandalaginu og fyrirætlunum þess. Einn af embættismönnunum frá NATO sagðist telja, að skoðanir harðlínumanna mótuðust ekki síst af ótta við þá upplausn, sem mikill niðurskurður á heraflanum hefði í för með sér. Það er ekki til hús- næði fyrir þá hermenn, sem nú eru að koma heim frá Austur-Evrópu, og það má finna heilu héruðin og borgimar þar sem hver einasti vinnandi maður er í hergagnafram- leiðslunni. Auk alls þessa stendur stríðið á milli miðstjórnarvaldsins og lýðveldanna og þykir augljóst, að Rússar ætla sér yfirráðin yfir heraflanum. Skotland: Geislavirk efni frá Irak endurunn- in í Dounreay? HUGSANLEGT er, að geislavirk efni, sem írakar ætluðu að nota við smíði kjarnorkusprengju, verði flutt til endurvinnslustöðvarinn- ar í Dounreay í Skotlandi og endurunnin þar. Kom þetta fram í skoska dagblaðinu Glasgow Herald á mánudag og þar sagði enn- fremur, að Skoski þjóðernissinnaflokkurinn ætlaði að beita sér fyr- ir mótmælum og borgaralegri óhlýðni til að koma í veg fyrir þess- ar fyrirætlanir. Verkamannaflokkurinn í Noregi: Ráðherrar leggja áherslu á nauðsyn tengsla við EB Utanríkis- o g öryggishagsmunir best tryggðir með EB- aðild HAGSMUNIR Noregs í utanríkis- og öryggismálum verða best tryggðir með því að landið gangi í Evrópubandalagið (EB), að sögn Thorvalds Stoltenbergs utanríkisráðherra í minnihlutastjórn Verka- mannaflokksins á mánudag. Er kynntar voru tillögur um framlög til varnarmála sagði Johan Jorgen Holst varnarmálaráðherra að treysta yrði tengslin við önnur Evrópuríki og taldi Norðmenn vera að einangrast í öryggismálaumræðum. Ummæli Stoltenbergs vöktu menn. „Við lifum og hrærumst á mikla athygli og talsmenn Hægri- flokksins, sem vill EB-aðild, fögn- uðu þeim. Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra hefur ákveðið að frestað verði að Verkamannaflokk- urinn taki afstöðu til aðildar að EB þar til haustið 1992. Á meðan fari fram ítarlegar umræður um málið innan flokksins en vitað er að þar eru skoðanir mjög skiptar og óttast margir klofning á borð við þann sem varð er aðild var hafnað naumlega í þjóðaratkvæðagreiðslu 1972. Áður var kunnugt að Stoltenberg er hlynntur aðild en samt kom nokkuð á óvart að hann skyldi taka svo skelegga afstöðu er hann flutti ræðu hjá Samtökum liðsforingja í Ósló. Dagblaðið Aftenposten segir að ráðherrann hafí rætt við Brundt- land um efni ræðunnar áður en hann flutti hana. Stoltenberg benti á að svo gæti farið innan skamms að mikill meirihluti íbúa Norður- landanna yrði í EB og taldi að ætl- uðu Norðmenn sér að taka áfram virkan þátt í norrænu samstarfi yrðu þeir að ganga í bandalagið. 20 milljónir Norðurlandabúa myndu fá jafn mikil áhríf í ráðherranefnd bandalagsins og Þjóðveijar, sem eru 80 milljónir. Þess vegna myndu margir álíta að þróttmikið, norrænt samstarf gæti aðeins átt sér stað á vettvangi EB. „Á meðan Noregur er utan EB, sem er grundvöllur sjálfrar Evrópusamvinnunnar, höf- um við minni áhrif en ella á mál- efni sem skipt geta sköpum fyrir okkur,” sagði Stoltenberg. allt öðru tímaskeiði hér á landi en aðrar þjóðir Evrópu og erum aftar- lega á merinni í umræðum um ör- yggis- og vamarmál,” sagði hann. „Þetta er það sem veldur mér mest- um áhyggjum sem stendur”. Ráð- herrann taldi að röksemdir sem heyrðust nú í deilum andstæðinga og stuðningsmanna aðildar að EB væru margar úreltar, þær væru gamlir draugar frá 1972. Hann sagði þróun alþjóðamála nú svo hraða að taka þyrfti allar forsendur áætlana ráðuneytisins til endur- skoðunar með stuttu millibili. Margt benti til þess að Vestur-Evrópusam- bandið, samtök níu EB-landa sem jafnframt eru í Atlantshafsbanda- laginu, yrði grunnurinn að væntan- legu varnarsamstarfí EB-þjóðanna. „Eg er ekki í nokkrum vafa um að miklvægasta málið sem við munum þurfa að sinna á næstunni er að treysta tengsl okkar við Evrópu- löndin.” Holst sagði að Norðmenn yrðu að móta stefnu sína með tilliti til nálægðarinnar við Rússland, sem væri og yrði mesta herveldi álfunn- ar. Hann fagnaði ákvörðunum ráða- manna risaveldanna um niðurskurð kjarnavopna, ekki síst á hafínu, en taldi nauðsynlegt að sjá hvað raun- verulega yrði gert í málunum áður en hægt yrði að draga úr viðbúnaði Norðmanna. Þetta mál hófst með því, að dag- blaðið Sunday Mail birti bréf frá breska innanríkisráðherranum til Johns Wakehams orkumálaráð- herra en þar kvaðst hann mundu styðja það, að geislavirk efni frá írak yrðu endurunnin í Dounreay, ef Wakeham og Douglas Hurd utanríkisráðherra teldu það vera í þágu breskra hagsmuna. Þá hafa blöðin einnig komist yfír minnis- punkta eða bréf frá Ian Lang Skot- landsmálaráðherra þar sem hann segist ekki munu standa í vegi fyr- ir þessum áformum. I bréfinu segir Lang annars, að endurvinnslan fyrir Iraka muni vafalaust verða harðlega gagn- rýnd, ekki síst af hálfu skoskra þjóðemissinna enda sé Dounreay- stöðin mjög umdeild, ekki aðeins í Skotlandi, heldur einnig á Norður- löndum. Segir hann, að þegar unn- in séu geislavirk efni frá öðrum löndum sé jafnan á það bent, að úrganginum sé skilað aftur til upp- runalandsins, en það geti ekki átt við um geislavirku efnin frá írak. Aðrir stjórnarandstöðuflokkar i Skotlandi hafa lítið sagt um þetta mál. Verkamannaflokkurinn, sem vonast til að skipa næstu ríkis- stjórn í Bretlandi, telur sig ekki hafa efni á að gagnrýna endur- vinnsluna og þessa aðstoð við Sam- einuðu þjóðirnar, sem krefjast eyð- ingar efnanna. Fijálslyndir demó- kratar segja, að Skotar verði að leggja sitt af mörkum við að uppr- æta áætlanir íraka um smíði kjarn- orkusprengju. Ermarsundsgöng: Umdeild ákvörðun um hraðlestina til Lundúna Lundúnum. Daily Telegraph. BRESKA stjórnin hefur loks ákveðið, að hraðlestarteinarnir milli Ermarsundsganganna og Lundúna skuli koma inn i austur- borgina en yfirmenn bresku ríki- sjárnbrautanna vildu, að enda- stöðin yrði í Suður-Lundúnum. Gagnrýna þeir ákvörðunina Atlantshafsbandalagið: Frakkar hindra aukin tengsl við A-Evrópu Brussel. Reuter. FRAKKAR standa í vegi fyrir því að samkomulag náist innan Atlantshafsbandalagsins (NATO) um að það taki upp formleg tengsl við lönd Austur-Evrópu og Sovétríkin, að því er heimildarmenn í höfuðstöðvum NATO sögðu fyrr í vikunni. Bandaríkjamenn og Þjóðverjar að þannig verði hægt að koma til hafa skýrt frá því að áform séu uppi um að stofna „samstarfsráð” innan NATO með aðild Austur-Evr- ópuríkja. Ekki er þó gert ráð fyrir að bandalagið bjóði nýjum lýðræðis- ríkjum, svo sem Póllandi, Ungveija- landi og Tékkóslóvakíu, fulla aðild Johan Japgen Holst var-ómyrJuirj, roðaiskuldbindk •igiiUaáA'eija þau. móts við kröfur ríkja í Austur-Evr- ópu um að bandalagið styðji betur við bakið á þeim. Áformin verða rædd á leiðtogafundi NATO í Róm 7.-8. nóvember. „Frakkar gætu komið í veg fyrir þetta allt saman, þar sem aðildar- ríkin verða öll að samþykkja höfuðstöðvum Atlantshafsbanda- lagsins í Brussel. Franska sendi- nefndin hjá NATO vildi ekki tjá sig um þetta en heimildarmennirnir sögðu að Frakkar vildu frekar að tengslin við Austuf-Evrópuríkin yrðu aukin innan Evrópubandalags- ins, þar sem áhrif þeirra eru meiri. Frakkar og nokkrar aðrar NATO- þjóðir óttast einnig að verði hlut- verk NATO aukið komi það niður harðlega og Sir Alastair Morton, framkvæmdasljóri Eurotunnel, sem sér um gangagröftinn, seg- ir, að vegna þess muni verkið dragast fram yfir aldamót. Þetfa mál hefur verið að vefjast fyrir stjórninni í hálft annað ár en ókosturinn við að fara að ráðum bresku járnbrautanna var sá, að brautarlagningin hefði valdið verð- falli á þúsundum íbúða og einbýlis- húsa í suðurborginni. Það þótti líka valda minni spjöllum á umhverfinu að láta lestarteinana liggja inn í Lundúnir austanverðar. Malcolm Rifkind samgönguráðherra skýrði frá þessu í gær á þingi íhalds- flokksins í Blackpool og vörpuðu þá sumir þingmenn öndinni léttar. Höfðu þeir óttast, að brautarlagn- ingin myndi geta kostað þá þing- sætið. Eins og fyrr segir hafa yfirmenn bresku járnbrautanna og Eu- rotunnels gagnrýnt ákvörðunina og íjármálasérfræðingar telja, að hún dragi úr áhuga einkaaðila á að fjár- festa í brautinni. Sir Bob Reid, stjómarformaður bresku jám- brautanna, sagði, að Rifkind hefði af pólitískum ástæðum ákveðið að „flytja farþegana þangað, sem þeir vildu ekki fara, og bæta þannig iíuL_fróttíu- - HinR vQpar ,Anl uonir hnnHnar jxifl -gscr^i -í » vvvw Aitiiu ui v. t vtnx ummrmi t iu »rLic"j t á áhrifum Ráðstefnunnar um ör- ð,”| yggi ogisamvinnu.iíiEyrópi) (IJÖSE). , 20i mínútum við’ ferðalagiðrí vinn í|_________________________________________urm"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.