Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 31 Slippstöðin og Matthías Óskarsson í Vestmannaeyjum: Viðræður um sölu raðsmíða skipsins komnar á lokastig Slippstöðin tæki Bylgju VE upp í kaupin Pálmi Pálmason, Þorsteinn Arnórsson, Eðvald Friðriksson og Hall- dór Pétursson í sýningarsal Félags norðlenskra steinasafnara, en þar verður opnuð sýning á morgun, laugardag. Félag norðlenskra steinasafnara: Tegundir úr íslenska steinaríkinu á sýningu Samningaviðræður um sölu á raðsmiðaskipi Slippstöðvarinnar hf. eru nú á lokastigi, en undan- farið hafa viðræður farið fram á milli forsvarsmanna stöðvarinn- ar og Matthíasar Óskarssonar útgerðarmanns i Vestmannaeyj- um um kaup á skipinu. Smíði þess hófst síðla árs 1987 er við blasti verkefnaleysi hjá Slipp- stöðinni. Skipið var sjósett í fyrravor og hefur legið óselt við bryggju síðan, en tvívegis hefur Fiskveiðasjóður hafnað samning- Stjömukvöld í Sjallanum „Stjörnukvöld í Sjallanum” er heiti á dagskrá sem hefst í Sjall- anum um aðra helgi. Þá verður í kvöld, föstudagskvöld, tekin í notkun Karaoke-söngvél sem gest- um Sjallans verður gefinn kostur á að reyna. Fyrsta stjömukvöldið verður 19. október. Um er að ræða dagskrá sem verður á hveiju laugardagskvöldi fram að jólum. Boðið verður upp á nokkur föst atriði í hvert skipti auk þess sem aðrir skemmtikraftar koma fram. Eyjólfur Kristjánsson verður fastur gestur, en einnig munu koma fram m.a. Jóhannes Kristjánsson eft- irherma, Ragnar Bjamason, söngv- ari, Helena Eyjólfsdóttir og Finnur Eydal og Vaigeir Skagíjörð og Guð- rún Gunnarsdóttir. Kynnir verður Bjarni Hafþór Helgason. Sjallinn hefur fest kaup á Kar- aoke-söngvél, sem tekin verður í notkun í kvöld, föstudagskvöld. Vélin leikur lög af geisladiski, en gestum gefst kostur á að syngja með. um sem gerðir hafa verið um sölu skipsins. Matthías Oskarsson er útgerðar- maður Bylgju VE frá Vestmanna- eyjum, en skipið brann í Skipalyft- unni í Vestmannaeyjum 8. septem- ber síðastliðinn og skemmdist mik- ið. Engar endurbætur hafa enn sem komið er verið gerðar á Bylgju VE eftir brunann, en verði af samning- um milli Matthíasar og forsvars- manna Slippstöðvarinnar um skipa- kaupin er ætlunin að Slippstöðin taki Bylgju VE upp í kaupin. Bylgja VE-75 er 174 tonna stál- skip, smíðuð í Stálvík í Garðabæ árið 1976 og lengd árið 1987. Kvóti skipsins er 902,2 tonn í þorskígild- um, þar af er þorskur um 439,3 tonn, ýsa 234,4 tonn, ufsi, 281,5 tonn, karfi 75,1 tonn og koli 5,1 KRAFA Akureyrarbæjar í þrotabú ístess hf. vegna hita- veitureiknings vakti óskipta at- hygli starfsfólks veitunnar, en samkvæmt kröfulýsingarskrá hljóðaði krafan upp á rúmar 14 milljónir króna. Þetta þótti mönnum nokkuð skrýtið, þar sem engin hitaveita var í verksmiðju- húsi ístess við Krossanes. Hið rétta er að í kröfulýsingar- skrá varð nokkur ruglingur í dálki er tilgreinir tegund kröfu. Akur- eyrarbær lýsti samtals fímm kröf- um í búið, tveimur ábyrgðarkrÖfum, tonn. Raðsmíðaskipið hefur legið óselt við bryggju frá því það var sjósett í maí á síðasta ári og hefur það verið Slippstöðinni þungt í skauti. Fjármagnskostnaður vegna þess hefur verið á milli 25 og 30 milljón- ir króna á ári. Tvívegis hafa verið gerðir samningar um sölu skipsins, fyrst við útgerðarfélagið Þór hf. á Eskifirði og síðan við Meleyri hf. á Hvammstanga, en þeim samning- um hafnaði Fiskveiðasjóður. Smíði skipsins hófst í-lok árs 1987, en ákveðið var að ráðast í smíði þess þrátt fyrir að kaupandi væri ekki fyrir hendi til að halda uppi verkefnum hjá Slippstöðinni. Raðsmíðaskipið er 240 brúttórúm- lestir að stærð. og hljóðaði önnur upp á rúmar 17 milljónir, en hin upp á tæpar 14,4 milljónir. Vegna ruglings í dálkum kemur fram að um skuld við hita- veituna hafí verið að ræða. Krafa Akureyrarbæjar vegna hitaveitu- reiknings er hins vegar upp á 51 þúsund krónur. Skuld vegna raf- veitureiknings er rúmar 3,6 milljón- ir og vegna aðstöðu og kirkjugjarðs- gjalds er gerð krafa upp á 9,6 millj- ónir króna. Heildarkröfur Akureyrarbæjar í þrotabúið nema tæpum 45 milljón- um króna. FÉLAG norðlenskra steinasafn- ara opnar á morgun, laugardag, sýningu í húsnæði sem félagið hefur til afnota við Hafnarstræti 90 á Akureyri. Á sýningunni verða á milli fimm og sexhundr- uð steinar og munir sem félagar hafa unnið úr íslenskum steinum. Á sýningunni gefur að líta mis- munandi steintegundir úr íslenska steinaríkinu og einnig steina sem sagaðir hafa verið og slípaðir auk muna, skraut- og skartgripa sem unnir hafa verið úr steinunum. Félag norðlenskra steinasafnara var stofnað fyrir um tveimur árum og eru félagsmenn tæplega fimmtíu talsins af öllu Norðurlandi og reynd- ar víðar að. Félagið hefur fengið til afnota húsnæði við Hafnarstræti 50, þar sem aðstaða er til sýninga- og fundahalds og í kjallara verður- komið fyrir safn- og vinnsluaðstöðu fyrir félagsmenn. Náttúrufræðistofnun Norður- lands starfar í náinni samvinnu vú^afc' félagið, en markmiðið er að koma upp vel greindu steinasafni í hús- næði félagins. Þá er einnig á döf- inni að efna til námskeiða í steina- vinnslu og greiningu þeirra í framtíðinni. Félagið hefur notið velvildar og fyrirgreiðslu hjá Akureyrarbæ og þá hefur Kaupfélag Eyfírðinga lagt félaginu lið. Sýningin verður opin frá kl. 14 til 18 á laugardögum og sunnudög- um næstu vikur. Morgunblaðið/Rúnar Þór Þrotabú Istess: Skuld vegna hitaveitu 51 þúsund, ekki 14 millj. Gári besti hrúturinn Syðra-Langholti. HRÚTASYNING var haldin að Langholtskoti hér í Hrunamanna- hreppi sunnudaginn 29. septemb- er sl. Að þessu sinni voru sýndir 74 fullorðnir hrútar og að auki litu ráðu- nautarnir á 71 lambhrút og gáfu þeim stig. í efsta sæti af öllum hrút- unum var dæmdur Gári, 3ja vetra í eigu Haraldar Sveinssonar á Hrafn- kelsstöðum. Hlaut hann fagran silf- urskjöld sem er farandgripur og veittur hefur verið besta hrútnum á hverri sýningu síðan árið 1934. Það voru einmitt bændurnir sem þá bjuggu á Hrafnkelsstöðum, Sveinn, faðir Haraldar, og Helgi, móðurbróð- ir hans, sem gáfu þennan skemmti- lega verðlaunagrip til þess að keppa um á fjögurra ára fresti. Hæst dæmdi veturgamli hrúturinn var Dropi í eigu Steinars Halldórssonar í Auðsholti og hlaut hann bikar að verðlaunum. Það kom fram í máli ráðunautanna Siguijóns Bláfeld og Hjalta Gestssonar að þeir álitu að hrútar hér í sveit hafí aldrei verið eins gerðir og jafnvaxnir sem nú, greinilegur árangur hefði náðst með kynbótastarfi. Héraðshrútasýning fyrir Árnes- sýslu fer fram að Eystra-Geldinga- holti í Gnúpveijahreppi sunnudaginn 13. október. Hrútar héðan úr hreppnum mega ekki koma þangað þar sem riðuveikitilfelli kom upp hér á einum bæ fyrir þremur árum. Þá koma engir hrútar á sýninguna úr sveitunum vestan Hvítár/Ölfusár vegna sauðfjárveikivarna. - Sig. Sigm. Morgunoiaoio/bigurour öigmunaason Haraldur Sveinsson á Hrafnkels stöðum ineð silfurskjöldinn og verðlaunahrútinn Gára. ■ SNIGLABANDIÐ hyggst nú um helgina legjja í för með Heij- ólfí til Vestmannaeyja og heldur tónleika á Höfðanum bæði föstu- dags- og laugardagskvöld. Á föstu- dagskvöld sér framhaldsskólinn í Vestmanneyjum um skemmtunina sem þó mun vera öllum opin sem náð hafa tilskildum árafjölda. Það er vani hljómsveitarinnar við tæki- færi sem þessi að draga nokkra forkólfa úr skólaiífinu upp á svið og láta þá sýna á sér nýjar og óvæntar hliðar. Á laugardagskvöld er húsið hinsvegar opið öllum sem eru átján ára eða eldri og hafa hug á að sletta úr klaufunum. Tónleik- arnir hefjast á miðnætti bæði kvöld- ' in. (Fréttatilkynning) ■ HLJÓMS VEITIN Sálin hans Jóns míns leikur í Hafnarfirði um helgina. Sveitin mun koma fram í Firðinum á laugardaginn. Fyrir- hugað er að rótarar sveitarinnar fari blysför að staðnum um kl. 23.00 og er öllum velkomið að taka þátt í henni. ÚTVEGSMENN NORDURIANDI Áður boðaður aðalfundur útvegsmannafé- lags Norðurlands, er varð að fresta v/veð- urs, verður haldinn á Hótel KEA mánudaginn 14. október nk. kl. 14.00. Félagar fjölmennið. Stjórnin. fttUU. nijssf n i imnni )ó(-ir'ii I •ííixí rbba. Dansbarinn: MannakonT og Megas Hljómsveitin Mannakorn mun skemmta gestum Dansbarsins í vetur eins og í fyrravetur, en tekin verður upp sú nýbreytni að bjóða sérstökum gestum til tónleikahalds á undan dansleik. Nú um helgina verður það Meg- as. Megas kemur fram á sviði Dans- barsins á föstudags- og laugardags- kvöld um þessa helgi, 11.-12. októb- er, og hina næstu, 18.-19. október og aðstoða Mannakorn hann vjð flutninginn. Að sögn forsvars- manna Dansbarsins er þess vænst að þessi nýbreytni hljóti jákvæðar undirtektir gesta veitingahússins. Dansbarinn er samtengdur mat- staðnum Mongolian Barbeque á Grensásvegi. (Úr fréttatilkynningu.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.