Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.10.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 Stefna og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar kynnt Lögbundin verðtrygging afnumin í lok næsta árs Fjárfestingarlánasjóðum breytt í hlutafélög í STEFNU og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar, sem lögð var fram í gær, kemur fram að frá ársbyijun 1993 verða engar lagalegar kvað- ir á notkun verðtryggingar fjárskuldbindinga, og mun verðtrygging eftirleiðis alfarið ráðast af frjálsum samningum milli lánveitenda og lántakenda. Til að greiða fyrir þessari þróun munu ríkissjóður og opinberar lánastofnanir í auknum mæli gefa út óverðtryggðar skuldbindingar,” segir í stefnuáætluninni. Morgunblaðið/Júlíus „Velferð á varanlegum grunni” er heiti stefnu og starfsáætlunar ríkisstjórnarinnar sem Davíð Odds- son forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kynntu á fréttamannafundi í gær. Við hlið þeirra situr Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Ahersla á markadslausn- ir og hagsmuni neytenda -segjaformenn stjórnarflokkanna Ríkisstjórnin ætlar að vinna að lagabreytingum nú í haust til að tryggja eðlileg starfsskilyrði hér á landi fyrir útibú erlendra banka sem heimilt verður að opna frá og með l. janúar 1992. Þá kemur fram í stefnuáætluninni að peningamála- stjórn Seðlabankans verður efld þannig að hann geti tekist á við nýjar aðstæður vegna aukins frelsis á fjármagnsmarkaði. Sett verða lög um starfsemi fjárfestingarlánasjóða atvinnuveganna og þeim breytt í RARIK breytt í hlutafélag '"^RÍKISSTJÓRNIN ætlar að kanna hvort heppilegt sé að aðgreina orkuvinnslu Landsvirkjunar vegna stóriðju frá orkuvinnslu til almenningsveitna. „Kannaðir verða kostir þess og gallar að minnka eignarhlut opinberra aðila í Landsvirkjun. Einnig mun ríkissljórnin leita leiða til að jafna enn frekar húshitunar- kostnað í landinu. Rafmagnsveit- um ríkisins verður breytt í hluta- ^félagsform og i framhaldi af því kannaðir möguleikar á því að selja hlutafé til sveitarfélaga og annarra aðila,” segir í stefnu og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjómin hefur ákveðið að gera áætlun um virkjun helstu orkulinda landsins fram á næstu öld. Gera á áætlun um rannsóknir og nýtingu orkulinda og land- grunnsins. Verður lagt fram frum- varp í vetur um eignarhald á orku- lindum og afréttum og almenning- um þar sem skilgreint verður hvaða réttur til náttúruauðæfa landsins skuli fylgja bújörðum og hvað skuli teljast almannaeign. Endurskoða á lög um orkumál ’">til að auka samkeppni orkufyrir- tækjanna og draga úr miðstýringu, m. a. með breyttu eignarhaldi og rekstrarformi. Orkufyrirtækjunum verður gert að greiða þjónustugjöld til opinberra aðila fyrir rannsóknir, leyfisgjald fyrir orkuvinnslu o.fl. í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar er jafnframt áformað að auka sjálfstæði og rekstrarábyrgð ann- arra ríkisfyrirtækja með breyttu rekstrarformi, einkum því að breyta beim í hlutafélög. Þau fyrirtæki, sem einkum koma til skoðunar í þessu sambandi, eru Póstur og simi, Rafmagnsveitur ríkisins, Lands- virkjun og fleiri. „Formbreyting af því tagi sem hér um ræðir útilokar , hvorki frekari breytingar, svo sem þær að rekstur og rekstrarþættir framangreindra stofnana séu boðnir ^iít eða seldir, né þarf hún nauðsyn- lega að fela í sér að hlutur ríkisins hlutafélög. Stefnt verður að fækkun sjóðanna með samruna þeirra inn- byrðis eða við aðrar lánastofnanir og í framhaldi af því mun ríkið selja sinn hlut. Áfram verður unnið að afnámi á hömlum á gjaldeyrisviðskiptum og fram kemur að hugað verður að leiðum til þess að gera ísland að starfsstöð fyrir alþjóðlega fjármála- þjónustu. Ríkisstjórnin hyggst afnema lagaákvæði sem kveða á um einok- un í útflutningsverslun, efla sam- keppni og setja lög sem beinast gegn einokun og hringamyndun í viðskiptalífinu. Þá ætlar ríkisstjórnin að lögfesta reglur í vetur um greiðslukortavið- skipti og undirbúa lagafrumörp um neytendalán. Sett verða ný kaupa- lög þar sem m.a. verða ákvæði um rétt neytenda til að rifta kaupsamn- ingum sem gerðir eru í skyndingu innan ákveðins tíma. Þá hyggst ríkisstjórnin beita sér fyrir setningu laga um Staðlaráð íslands til að stuðla að öflugra eftirliti með gæð- um vöru og þjónustu. Lögð er áhersla á að festa og stöð- ugleiki séu forsenda þess að fiskveið- istjórnúnin leiði til þeirrar hagræð- ingar sem stefnt sé að. „Á það skal því lögð áhersla að með þessu starfi arinnar. Ríkisstjómin hyggst auka sjálf- stæði opinberra stofnana, þannig að stjórnendur þeirra fái aukið ákvörðunarvald og aukna ábyrgð. í öðrum tilvikum á að bjóða út rekst- ur og þjónustu einstakra stofnana og aðskilja þannig rekstrarlega ábyrgð og útgjöld hins opinbera. Meðal annars segir í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar: „Athugaðir verða möguleikar á að breyta rekstrar- formi ákveðinna deilda Ríkisút- varpsins. Ríkisútvarpinu verður í framtíðinni, sem hingað til, gert DAVÍÐ Oddson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kynntu í gær á fréttamannafundi stefnu og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar út kjörtímabilið. Davíð sagði að inn- tak stefnuskrárinnar væri, eins og fram kæmi í heiti hennar, að byggja velferðina á varanlegum er ekki stefnt að því að innleiða fyrir- varalítið grundvallarbreytingar á því sviði er raskað geti þróun í hagræð- ingarátt,” segir ennfremur í kaflan- myndugleika. Leitað verður leiða til að efla íslenzka dagskrárgerð í út- varpi og sjónvarpi, m.a. með útboð- um.” Byggðastofnun til Akureyrar Ráðuneytum verður fækkað með stjórnarráðslögum, þar sem iðnað- ar- og viðskiptaráðuneyti verða sameinuð og verkefni umhverfis- málaráðuneytis aukin. Hagrætt verður í fleiri stofnunum ríkisins. Hlutverki Byggðastofnunar verður breytt og hún mun í auknum mæli sinna ráðgjafarþjónustu við fyrir- tæki og sveitarfélög, en dregið verð- ur úr lánastarfsemi á hennar vegum. Að auki verður stofnuninni ætlað að gera tillögur um hvernig laða megi innlenda og érlenda fjár- festingaraðila að lansbyggðinni. Stofnunina á að flytja til Akureyrar á kjörtímabilinu. -1 111. grunni. Jón Baldvm sagði að megináherslan væri á að draga úr pólitískri miðstýringu, efla markaðskerfið og koma á sam- keppni, nýta betur fjármuni og tryggja hagsmuni neytenda. Jón Baldvin sagði að nú stæði yfir lengsta samdráttarskeið í sögu Ákveðið hefur verið að útvegurinn standi frá upphafi núverandi fisk- veiðiárs undir öllum kostnaði við veiðieftirlit. Þá hefur verið ákveðið að leggja til breytingar á lögum um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins. „Samkvæmt gildandi lögum kostar sjávarútvegurinn tiltekin verkefni til úreldingar fiskiskipa og í byggða- málum með tekjum af allt að tólf þúsund lesta aflaheimildum. Þessi verkefni verða takmörkuð eða lögð með öllu niður. Aflaheimildir Hag- ræðingarsjóðs verða seldar til eins árs í senn á almennu gangverði sams konar heimilda á hverjum tíma. Þeir sem stunda tilteknar veiðar skulu eiga forkaupsrétt til aflaheimilda sjóðsins í hlutfalli við fyrri veiðiheim- ildir sínar. Þær veiðiheimildir sjóðs- ins sem ekki eru keyptar á leigu af honum með forkaupsrétti skulu seld- ar á leigu til hæstbjóðenda. Tekjun- um verður varið til hafrannsókna, sem ríkisstjórnin leggur nú áherslu á að verði efldar,” segir í kafla um breytt verkefni Hagræðingarsjóðs. Fram kemur að flýtt verður þróun í átt til fijálsrar verðmyndunar sjáv- arfangs. Er lokamarkmiðið að leggja niður Verðlagsráð. Boðuð er endurskipulagning stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og sögð full ástæða til að koma á fót stjórnsýslustofnun sem myndi ann- ast ýmis verkefni, tengd stjórn fisk- veiða, öflun og úrvinnslu tölulegra upplýsinga, eftirlit með gæðamálum o.fl. Yrði henni ætlað að taka við verkefnum sem nú eru á snærum sjávarútvegsráðuneytis, Hafrann- sóknarstofnunar, Fiskifélags íslands og Ríkismats sjávarafurða. í lok kafla um sjávarútvegsmál segir að í samræmi við stefnu ríkis- stjórnarinnar um einkaæðingu ríkis- fyrirtækja sé nú unnið að breyting- um á rekstrarformi Síldarverksmiðja ríkisins af sérstökum starfshópi. Er sérstak^ fruijivarps un) það aðvænta á Áíþingi á im.iíii þjóðarinnar frá því á kreppuárunum. „Það eru alltof mörg einkenni einok- unar, fákeppni og skorts á sam- keppni í þjóðfélaginu. Okkur hefur ekki tekist að útvega neytendum þjóðfélagsins nauðsynlegar vörur í landbúnaðarkerfinu á viðráðanlegu verði, aðallega vegna þess að þar höfum við rekið úrelta einokun- arpólitík. Við boðum breytingar á því á kjörtímabilinu og boðum mark- aðslausnir,” sagði Jón. Jón sagði að komið væri að endi- mörkum vaxtar í sjávarútvegi. „Við höfum náð samkomulagi um að taka sjávarútvegsstefnuna í heild til endurskoðunar. Það er áréttað að festa sameignarákvæðið um eignar- hald þjóðarinnar á auðlindinni í sessi og skilgreind verkefni nefndarinnar sem á að hafa verkstjórn við endur- skoðun sjávarútvegsstefnunnar í heild,” sagði Jón. Davíð sagði að þeirrar tilhneiging- ar hefði gætt að stjórnmála menn gættu fremur hagsmuna framleið- enda en neytenda en í stefnuskránni væri þessu á ýmsan hátt snúið við. „í landbúnaðinum er verið að vinna að því að koma að heiðarlegum sam- skiptum á milli framleiðenda og neytenda með sem minnstri milli- göngu hins opinbera,” sagði hann. Jón Baldvin sagði að búvörusamn- ingurinn hefði verið gerður í blóra við Alþýðuflokkinn og Borgaraflokk- inn í tíð síðustu ríkisstjórnar. Honum hafi þó ekki verið algerlega hafnað en alþýðuflokksmenn vildu fá trygg- ingu fyrir því að markmið um að tryggja neytendum lægra vöruverð næðist. Sagði hann að álit ríkislög- manns á gildi samningsins væri ekki úrskurður heldur yrði aðeins úr því leyst fyrir dómstólunum. „Menn telja að riftun samningsins skapi verulega áhættu á að til skaðabótakrafna gæti komið,” sagði Jón. Stjórnarformennirnir voru spurði hvort gengið hefði verið frá verkefn- atilfærslu skógræktar og land- græðslu úr landbúnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis. Davíð sagði að það væri ekki frágengið en hann gerði ráð fyrir að lagt yrði fram frumvarp um þessa verkefnaskipt- ingu síðar í mánuðinum. Davíð sagði að þingflokkar ríkis- stjórnarinnar hefðu farið yfir stefnu- skrána nákæmlega. Ekki hefðu verið greidd atkvæði um einstök atriði en enginn vafi léki á að það væri víð- tækur og almennur stuðningur stjórnarflokkanna á bak við stefnuna og hún byggðist á þingmeirihluta. Jón sagði að þingmenn Alþýðu- flokksins hefðu kynnt sér textann ítarlega. „Þegar hann var á lokastigi fékk formaður flokksins umboð til að ganga frá endanlegri gerð text- ans. Hann var því ekki lagður fram til samþykktar í heild sinni en nýtur að sjálfsögðu stuðnings í grundvall- aratriðum. Það þýðir jafnframt að ekki eru allir þingmenn bundnir af orðalagi um hvert einstakt atriði,” sagiji ilón. i. . kleift að sinna öryggishlutverki sínu verði seldur/’ segir i hvítbók stjórn- og ni'-nningariegum _ skyldum^^a| um. Fjártil 1-2% ríkisútgjalda aflað með einkavæðingu Hugmyndir um breytt rekstrarform hluta RÚV RÍKISSTJÓRNIN hyggst afla ríkissjóði fjár með sölu ríkisfyrirtækja sem nemur 1-2% af útgjöldum hans á kjörtímabilinu. Einkum verður lögð áherzla á einkavæðingu þeirra ríkisfyrirtækja, sem starfa á samkeppnismarkaði. Þar á meðal eru Búnaðarbankinn, Sementsverk- smiðjan á Akranesi og Sildarverksmiðjurnar. Þá verður ríkisprent- smiðjan Gutenberg seld og hlutur ríkisins í Ferðaskrifstofu íslands, Endurvinnslunni og fleiri fyrirtækjum. Sjávarútvegsmál: Eins árs aðlögnn að frjálsu fískverði „RÍKISSTJÓRNIN hyggst móta sjávarútvegsstefnu er nær jafnt til veiða, vinnslu og markaðsmála, hamlar gegn ofveiði, treystir byggð, stuðlar að hagræðingu, og tryggir stjórnskipulega stöðu sameignar- ákvæðis laga um stjórn fiskveiða,” segir í kafla stefnuáætlunar ríkis- stjórnarinnar um sjávarútegsmál. Flutt verður frumvarp í haust sem heimilar Verðlagsráði sjávarútvegsins að ákveða frjálst fiskverð með meirihlutaákvörðun og að loknum eins árs aðlögunartíma verði fijálst fiskverð meginreglan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.