Morgunblaðið - 11.10.1991, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
Hagsmunir neytenda
fyrir borð bomir
eftir Jóhannes
Gunnarsson
Synjun samgönguyfirvalda á ósk
flugféiagsins SAS um sama flugfar-
gjald á 6 nátta ferðum til Norður-
landa og 3ja nátta ferðum, hefur
vakið mikla athygli. Ljóst er að
ferðir til og frá íslandi eru dýrar
og því ekki að undra að margir
verða bæði sárir og reiðir þegar
yfirvöld hindra það að við getum
ferðast á ódýrari hátt til útlanda.
Ummæli formanns flugeftirlits-
nefndar, Birgis Þorgilssonar vegna
þessa máls, hafa vakið mikla at-
hygli. Hann hefur ítrekað lýst því
yflr að þessi ákvörðun sé tekin til
að vernda hagsmuni Flugleiða í
samkeppni við SAS. Jafnframt
sagði hann í viðtali við Morgunblað-
ið 5. okt. sl.: „Það er reynt að koma
til móts við bæði félögin sem hafa
átt milljarða viðskipti á undanförn-
um árum og mjög nána samvinnu.
Það er því hálf dapurlegt að menn
skuli ekki geta náð samkomulagi
um fargjöld á vetrarpakkanum.”
Og í viðtali við sama blað 6.
okt sl. sagði Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða: „við töidum
þessar verðbreytingar óæskiiegar. ”
Forsjárhyggjan dauð?
Þarf frekari vitnanna við? Flug-
leiðir töldu óæskilegt að SAS byðu
íslenskum neytendum ódýrari ferðir
og formaður flugeftirlitsnefndar
var sama sinnis. Því ákvað sam-
gönguráðherra að horfa framhjá
viðhorfum sínum og flokks síns um
mikilvægi fijálsrar samkeppni.
Hann ákvað þess í stað að koma í
veg fyrir að íslenskum neytendum
byðist ódýrari valkostur í ferðalög-
um til Norðurlanda svo treysta
mætti einokunaraðstöðu Flugleiða.
Viðhorf formanns flugeftirlits-
nefndar er sérstakur kafli út af
fyrir sig. Allt stefnir í aukið frjáls-
ræði í viðskiptum í Evrópu og að
samkeppni muni stóraukast, en það
er í raun helsta trygging neytenda
fyrir sanngjörnu verðlagi. Þetta
virðist Birgi líka illa, samkeppni á
ekki upp á pallborðið hjá honum
og því dapurlegt að hans mati að
seljendur nái ekki samkcrmulagi um
það sín á milli hvað neytendum
skuli boðið upp á. Raunar bætti
hann því við að seljendurnir yrðu
einnig að koma sér saman um
hvernig hagnaðinum af sölunni
skyldi skipt. Var einhver að tala
um að forsjárhyggjan væri með öllu
dauð í Evrópu þó svo að þegnar
A-Evrópu séu að hlaupa frá henni?
Mismunun viðskiptavina
Það kom fram í Morgunblaðinu
8. okt. að samgönguráðuneytið
hefði ákveðið að koma til móts við
óskir SAS og leyfa þeim að bjóða
4ja nátta fargjöld á verði 3ja nátta.
Enda myndu Fiugleiðir og SAS
semja um að Flugleiðir gætu boðið
upp á framhaldsflug með SAS til
níu ákvörðunarstaða á Norðurlönd-
um og að fyrirtækin kæmu sér sam-
an um skiptingu á tekjunum sem
hafa mætti af þessum ferðum!
Flugleiðamenn hafa ítrekað lýst
því yfir að þeir vilji taka fullan þátt
í þeirri samkeppni sem framundan
er í flugmálum. Það er því vægast
sagt undarlegt og ekki trúverðugt,
að þeir skuli nú hafa lagst gegn
aukinni samkeppni af hálfu SAS.
Viðbrögð almennings við gagn-
iýni Neytendasamtakanna hafa
ekki látið á sér standa. Síminn hef-
ur ekki stoppað hjá okkur og fólk
hefur iýst yfir stuðningi við gagn-
íýni okkar. Jafnframt hafa margir
nefnt dæmi um það hvernig Flug-
leiðir mismuna viðskiptavinum sín-
um eftir _því hvar farmiðinn er
keyptur. Utlendingar eiga kost á
mun ódýrari ferðum, samanber eft-
irfarandi dæmi sem send voru til
okkar. Það skal tekið fram að í öll-
um tilvikum hér á eftir er verð án
flugvallarskatts.
91 prósent verðmunur
Fyrsta dæmið fjallar um tvær
systur, báðar undir 24 ára aldri.
Önnur býr í Baltimore í Banda-
ríkjunum, en hin hér á landi. Sú
síðarnefnda ákvað að bregða sér
vestur að heimsækja systur sína.
Ódýrasti kosturinn miðað við
ferðaáætlun hennar var að kaupa
farmiða sem kostaði 54.670 kr., en
það er ársmiði með þriggja daga
bókunarfyrirvara. Systirin sem býr
vestra ákvað að bregða sér til Is-
lands í heimsókn þegar systir henn-
ar fór heim aftur. Farmiði hennar,
með nákvæmlega sömu skilmálum,
kostaði hins vegar 28.718 kr. Það
var því 25.952 kr. dýrara að kaupa
farmiðann á íslandi en í Baltimore
hjá sama flugfélagi, þ.e. Flugleið-
um. Munurinn er 91 prósent.
Annað dæmi sem okkur barst er
um farseðil sem var keyptur í New
York til íslands og til baka. Þetta
var sex mánaða opinn miði og kost-
aði 50.941 kr. Sambærilegur miði,
en ekki opinn, kostaði hér á landi
73.660 kr. og til að gera hann op-
inn þurfti að greiða 7.000 kr. auka-
lega, eða samtals 80.660 kr. Verð-
munurinn er því 46-58%.
Sannleikanum hagrætt
Apexmiði Ísland-New Yorkísland
kostar í dag 44.550 kr. En það eru
ýmsar leiðir til að komast ódýrt
héðan til Bandaríkjanna. Ef þú átt
kunningja í Lúxemborg getur hann
keypt miða Lux-Kef-New
York-Kef-Lux fyrir þig og kostar
slíkur 34.570 kr. Þú hendir tveimur
afrifum af miðanum, þ.e. milli
Lúxemborgar og íslands og sparar
10.000 kr. Munar um minna. Þetta
verð Lux-New York-Lux er svipað
og aðrar Norðurlandaþjóðir greiða
fyrir ferð til'New York. í umræðu-
þætti á Stöð 2 nýverið, þar sem ég
FLUGKENNSLAN
Athugasemdir af gefnu tilefni
eftir Gunnar
Þorvaldsson
Helgi Jónsson, flugmaður og flug-
rekandi skrifar grein í Morgun-
blaðið 26. september sl. um flug-
kennslu atvinnuflugmanna. í þess-
ari grein er honum tíðrætt um
þátt Flugskólans Flugtaks hf. þar
sem ég er einn af eigendum. Enda
þótt blaðagreinin einkennist af
heift Helga í garð flugmálastjóra
get ég ekki látið hjá líða að gera
við hana nokkrar athugasemdir þó
ekki væri nema til að leiðrétta
nokkum misskilning og draga
fram aðal þáttinn sem hlýtur að
vera hvernig þróa beri flugkennsl-
una og gera hana markvissari og
ódýrari.
Síðan 1978 hefur bókleg
kennsla til atvinnuflugprófs verið
rekin af fjölbrautarskóla Suður-
nesja, fyrst í Keflavík en nú í hús-
næði Fiugmálastjórnar á Reykja-
víkurflugvelli. Hinsvegar hafa
Flugnemar hingað tið átt kost á
að læra verklega þáttinn hjá ýms-
um aðilum sem leyfí hafa til slíkr-
ar kennslu.
Undanfarin ár hafa yfirvöld gert
auknar kröfur um menntun flug-
manna. Þess vegna beinist athygli
manna nú að því hvort hægt sé
að gera námið betra og ódýrara
með því að tengja bóklega og verk-
lega þáttinn meira saman. Flugtak
hefur 8 flugvélar til flugkennslu,
Helgi Jónsson 3, og Vesturflug 2.
Flugtak hefur útskrifað fleiri nem-
endui' til prófs en nokkur annar
skóli á undanförnum árum. Það
getur því varla talist tortryggileþt
að leitað sé til skólans þegar rætt
er um framtíðarskipulag flug-
kennslu á íslandi.
í september sl. gerði Flugtak
hlutaðeigandi aðilum tilboð um að
sjá um kennsluna. Fulltrúar frá
Flugtaki voru boðaðir á fund Flug-
málastjóra ásamt fulltrúum frá
Flugskóla Helga Jónssonar, Flug-
skóla Vesturflugs, Fjölbrautar-
skóla Suðurnesja og samgöngu-
málaráðherra. Hvorugur fulltrúa
hinna flugskólanna mætti á fund-
inn. Forráðamenn Vesturflugs
höfðu áður boðað til blaðamanna-
fundar um. málið og fram-
kvæmdarstjóri þess skrifað grein
í Morgunblaðið þar sem hann lýsti
andstöðu sinni við breytt fyrir-
komulag. Éins og áður, gleymdist
aðalatriði þessa máls en reynt að
gera samskipti flugmálastjóra og
Flugtaks tortryggileg. Frá Helga
Jónssyni komu sambærilegar yfir-
lýsingar. Flugmálastjóri hefur ver-
ið sakaður um að hann væri í skjóli
embættisins að reyna að koma á
„ríkisstyrktri einokun”. Greinilega
hefur þessi málflutningur náð eyr-
um einhverra því flugráð sá ástæðu
til sérstakrar bókunar um málið
ef marka má grein í Morgunblað-
inu 2. október sl. Erfitt er að sætta
sig við þessa bókun svo áhrifamik-
illa aðila í ljósi þess að mér vitan-
lega hefur flugráð ekki kynnt sér
hvaða möguleika flugskólarnir
hafa til að taka að sér þessa
kennslu.Flugmálastjóri eða þeir
„Það er von mín að su
umræða um flugkennsl-
una sem nú er komin
af stað verði til þess að
aukinn metnaður fyrir
góðu námi verði hafður
í fyrirrúmi.”
aðilar sem við höfum átt viðræður
við hafa aldrei talað um einokun
í mín eyru, heldur aðeins hugleitt
hvernig tengja má betur verklegan
og bóklegan þátt atvinnuflugn-
ámsins. Rætt hefur verið um, að
um fjórðungur verklega námsins
færi fram samhliða því bóklega.
Til að fyrirbyggja allan misskilning
þá fyllyrði ég fýrir hönd eigenda
Flugtaks hf. að við erum andvígir
einokun að hvaða tagi sem hún er.
Undanfarin ár hefur Flugtak
sett metnað sinn í að bæta kennsl-
una og hefur stigið stærra skref
en nokkur annar flugskóli á ís-
landi í þá veru m.a. með kaupum
á flughermi. Þetta tæki er eitt
besta sinnar tegundar og vissulega
timamót fyrir flugkennslu þegar
það var keypt. Allir sem eitthvað
þekkja til flugþjálfunar vita að
þjálfun í flughermi gegnir sífellt
þýðingarmeira hlutverki. Helgi
Jónsson segir í grein sinni að flug-
hermirinn hafi reynst illa. Þessi
yfirlýsing Helga er alröng en lýs-
andi fyrir málsmeðferðina því mér
vitanlega hefur Helgi aldrei séð
herminn eða haft af honum nokkra
rqynslu. Rætt hefur verið við flug-
Jóhannes Gunnarsson
„Því ákvað samgöngu-
ráðherra að horfa
framhjá viðhorfum sín-
um o g flokks síns um
mikilvægi frjálsrar
samkeppni. Hann
ákvað þess í stað að
koma í veg fyrir að ís-
lenskum neytendum
byðist ódýrari valkost-
ur í ferðalögum til
Norðurlanda...”
minnti á þennan verðmun, fullyrti
Einar Sigurðsson blaðafulltiúi
Flugleiða að fljótlega myndi verðið
á apexmiðum milli Islands og New
York lækka. Við nánari athugun
hefur komið í ljós að hér er ein-
göngu um að ræða þriggja daga
helgarmiða, sem eflaust fáir sjá
ástæðu til að nýta sér vegna mikils
tímamunar. Þetta kallast að hag-
ræða sannleikanum.
Að Jokum nefni ég dæmi um
verð milli Islands og fjögurra borga
í Evrópu og er verðið í öllum tilvik-
um tekið upp úr verðskrá Flugleiða.
Ef apexmiði er keyptur í Kaup-
mannahöfn til íslands kostar hann
30.253 kr., en samskonar miði
málayfirvöld um að þau keyptu
þennann hermi svo að allir aðilar
sem stunda blindflugskennslu hafí
sama aðgang að honum. Gæfan í
flugkennslunni væri að þeir sem
hana stunda gætu komið sér sam-
an um notkun slíks tækis í stað
þess að níða skóinn af þeim sem
lögðu í framtakið. Ég fullyrði að
þessi hermir er með þeim bestu
sinnar tegundar og stuðlar að ör-
uggari og markvissari flugkennslu.
- Flugmálastjóri er í mörgum til-
vikum ráðgefandi aðili fyrir æðsta
yfírmann flugmála og hefur auk
þess eftirlitskyldu með flug-
rekstraraðilum. Þegar mér verður
hugsað til þessa málflutnings, hef
ég stundum óskað mér að hann
væri sannur og að Flugtak nyti
allra þeirra fríðinda sem upp hafa
verið talin í óvandaðri umfjöllun.
Staðreyndin er hinsvegar sú að svo
hefur ekki verið og Flugtak hefur
sætt sama aðhaldi af hálfu flug-
málastjóra og aðrir er stunda flug-
kennslu í þessu landi.
Það er von mín að sú umræða
um flugkennsluna sem nú er kom-
in af stað verði til þess að aukinn
metnaður fyrir góðu námi verði
hafður í fyrirrúmi og að þeir sem
nú vilja stunda flugnám þurfi ekki
að líða fyrir ósætti þeirra sem
sjaldnast hafa komið sér saman
um eðlilegt sambýli. Flugtak hefur
yfir að ráða þeim kennurum,
kennslugögnum og tækjakosti sem
nauðsynlegur er til bóklegrar
kennsiu atvinnuflugnáms og getur
hafið hana nú þegar. Það ætti því
að vera tilraunarinnar virði að
prófa þessa leið og endurmeta síð-
an árangurinn að ákveðnum tíma
liðnum.
Iíöfundur er framkvæmdastjóri
íslandsflugs og Flugtaks.
keyptur hér til Kaupmannahafnar
kostar 33.750 kr., eða 12% meira.
Parísarbúi borgar 29.222 kr. fyrir
apexmiðann til Islands, en við
32.420 kr. til Parísar, eða 11%
meira. Sá sem býr í Zurich borgar
38.450 kr. fyrir pexmiðann til ís-
lands, en við 48.090 kr. til Zurich,
eða 25% meira. Loks skal nefnt
dæmi um Finnlar.d, en þar munar (
minnstu, Finnar þurfa að greiða
Flugleiðum 42.240 kr. fyrir apexm- -
iðann til ísiands, en við 42.620 kr.
til Finnlands, eða 1% meira.
Forstjóri Flugleiða hefur fullyrt
í Ijölmiðlum að íslendingar búi við
sama borð og erlendir viðskiptavin-
ir, sá munur sem þar geti verið sé
eingöngu vegna breytileika á gengi.
Ég læt lesendum eftir að dæma um
þetta miðað við þær tölur sem ég
hef nefnt hér að framan.
Gamaldags sjónarmið
í leiðara í Morgunblaðinu 8. okt.
sl. er ákvörðun samgönguráðherra
harðlega gagmýnd. Bent er á að
„þau sjónarmið, sem talsmenn sam-
gönguráðuneytis, flugeftirlits-
nefndar og Flugleiða hafa lýst
síðustu daga vegna þessa máls eru
gamaldags, eins og þróunin til
fijálsræðis hefur verið bæði hér og {
erlendis”. Og leiðarahöfundur spyr:
„Hvernig í ósköpunum eigum við
Islendingar að geta tekið þátt í
fijálsu viðskiptasamstarfi við aðrar
þjóðir, ef stjórnvöld hér hlaupa allt-
af til, ef erlendur aðili herðir sam-
keppni við íslensk fyrirtæki og beita
boðum og bönnum til þess að koma
í veg fyrir slíka samkeppni?” Þessi
orð leiðarahöfundar vil ég gera að
mínum og spyija jafnframt hvers
íslenskir fataframleiðendur áttu að
gjalda þegar þessi iðnaður lagðist
nánast í rúst vegna innflutnings á
ódýrari fatnaði? Létu stjórnvöld það
kannski viðgangast vegna þess að
forvígismenn þess iðnaðar tilheyrðu
ekki margumtöluðum kolkrabba í
ísienska efnahagslífinu? Allavega
sáu þau ekki ástæðu til að loka
landið sem mest af í viðskiptum við
útlönd, eins og talsmenn Flugleiða
og samgönguráðunéytis vilja þegar
kemur að samkeppni við Flugleiðir.
Höfundur er formaður
Neytendasamtakanna.
■ DR. LEIF GRANE prófessor í
kirkjusögu við guðfræðideild Kaup-
mannahafnarháskóla heldur tvo
fyrirlestra í guðfræðideild Háskóla
íslands, þriðjudaginn 14. október
og fimmtudaginn 16. október. Próf-
essor Grane er með fremstu Lúth-
ersfræðingum samtímans og fjalla
báðir fyrirlestrar hans um siðbót-
ina. Sá fyrri verður haldinn á
dönsku og fjallar um hvernig rit
kirkjufeðranna voru hagnýtt í deil-
um siðbótaralda: Bemærkninger om
kirkefædrene ved Reformationens
begyndelse. Seinni fyrirlesturinn
verður haldinn á ensku og fjallar
um samband fornmenntamannanna
(húmanistanna) og Lúthers. Nefnist
hann: Reuchlin, Erasmus and Luth-
er - different aims and common
enemies. Báðir fyrirlestrarnir verða
haldnir í fímmtu kennslustofu í
Aðalbyggingu Háskólans og hefst
kl. 10.15. Allir eru velkomnir.
^Fréttatilkynning frá gnðfræðideild HÍ.)
■ NÁTTÚRUVERNDARFÉ-
LAG Suðvesturlands fer vett-
vangsferð á laugardaginn 12. októ-
ber í fjöru á Kjalarnesi. Tilangur
ferðarinnar er að vekja athygli á
því hvernig lífverur ijörunnar
bregðast við minnkandi birtu og
lækkandi hitastigi í lofti og í sjó á
haustin. Um þetta verður fjallað í
ferðinni um leið og gengið verður
um fjöruna og lífverurnar skoðaðar
og greindar. Einnig verður verkefn-
ið Fjaran mín kynnt í leiðinni. Fólk
er beðið um að mæta við Brautar-
holt á Kjalarnesi kl. 13.30 en það-
an verður gengið niður í ijöru. Vett-
vangsferðin tekur um tvo klukku-
tíma.
■ HLJÓMSVEITIN G.C.D. held-
ur unglingadansleik í Hótel Vala-
skjálf á Égilsstöðum föstudaginn
11. október og dansleik fyrir 18 ára
og eldri laugardaginn 12. október.