Morgunblaðið - 11.10.1991, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
„ Að koma sér
upp svikamyllu”
eftirÁrna Gíslason
Á dögunum birtist eftir mig grein
í Morgunblaðinu, _sem ég kallaði
Eignatilfærslu Islandssögunnar.
Ástæðan fyrir því að ég sendi nú
frá mér aðra grein eru þau miklu
viðbrögð sem ég hef fengið við
greininni, ásamt ýmsu sem komið
hefur fram í umræðunni um fisk-
veiðistjórnunina á seinustu dögum.
Fyrst er til að taka mikil ótíðindi
um ástand fiskistofna hér við land.
Ofan á allt annað verður nú að
skera verulega niður veiðiheimildir.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Forstjóri Granda birtist á skjánum
og sagði: Flýta verður hagræðing-
unni eins og kostur er (lesist: Hrað-
ari eignatilfærslu. Við verðum að
fara að fá Stokkseyri. Meitilinn
norður í land.) Formaður LÍÚ: Eitt-
hvað hefur mistekist (Nú!). Það
verður að loka meiripartinum af
miðunum fyrir sunnan land. Hann
bætti svo við daginn eftir á neyðar-
fundi í Þorlákshöfn, þar sem íbúar
Árborgarsvæðisins börðust með
kjafti og klóm fyrir því að meiri-
hluti lífsviðurværisins yrði ekki
sendur norður yfír heiðar (í nafni
hagræðingarinnar!): Ég sný ekki til
baka með lokunina fyrir Suður-
landi, og er sammála hagræðingar-
stefnu.
Mitt í öilu kraðakinu kom svo
frétt í sjónvarpinu frá Noregi um
að Norðmenn, sem fylgjast vel með
þróun fiskveiðistjórnunar hér,
þyrðu ekki lengur svo mikið sem
að líta í átt til íslands um fyrir-
mynd að fiskveiðistjórnun. (Var það
furða!!!) Þetta sem Islendingar væru
að gera, ylli þvílíkri byggðaröslyin,
ranglæti og mismunun að engu tali
tæki. Sérstaklega bentu þeir rétti-
lega á að verð á framseljanlegum
kvótum, með rétti til eignfærslu og
afskrifta, væri orðið með ólíkindum.
Það atriði sem hvað mesta at-
hygli vakti í fyrri grein minni, var
spurningamerkið sem ég setti við
allar sölur undanfarið á hlutabréf-
um í útgerðarfyrirtækjum á marg-
földu nafnverði, og að áætlanir
næðu út yfir gildistíma núverandi
kvótalaga. Allt sem ég sagði í fyrri
grein minni var byggt á umræðunni
undanfarið ásamt viðræðum við
menn sem til þekkja og þá sérstak-
lega endurskoðendur.
Ég rölti svo niður í Fjárfestingar-
félag og gekk skömmu seinna út
þaðan með bækling undir hendinni:
Útboðslýsing vegna sölu hlutabréfa,
Skagstrendingur hf. Nú skal það
strax tekið fram, að þó svo að út-
boð Skagstrendings verði tekið hér
fyrir, eru sjálfsagt fleiri útboð af
svipuðum toga sem ég hef ekki
séð. Ég vil líka taka fram, að allt
er þetta sjálfsagt löglegt og fer
fram „eftir settum leikreglum”.
Ég fór að glugga í báeklinginn.
Fyrst leit ég á ársreikning fyrir
1990.
Þar gefur að líta glæsilegar tölur
um góða eiginfjárstöðu, góðan
rekstur og tvo góða togara sem
gætu um ókomin ár malað gull
áfram, án þess að kaupa eitt ein-
asta kíló af kvóta í viðbót. Eitt stakk
þó í augun: I eignum eru færð veiði-
réttindi undir liðnum Aðrir fastaíj-
ármunir; fyrir rúmar 129 milljónir,
sem höfðu framreiknaðar verið í
ársbyijun um 147 milljóniren síðan
afskrifaðar um rúmar 18 milljónir
(gott á skattinn!!!). Ég kem að þessu
atriði síðar í greininni.
Snúum okkur þá að hlutafjárút-
boðinu.
Samkvæmt útboðinu er nú í
smíðum fýrir félagið nýtt skip í
Noregi. Áætlað smíðaverð er 900
milljónir (guð láti á gott vita á þess-
um síðustu og verstu tímum áætl-
anagerða !!). Þetta er gert þó svo
að kaupa megi sambærileg skip
fyrir brot af þessu verði af bönkum
eftir nauðungaruppboð, t.d. í Fær-
eyjum.
Á bls. 4 undir liðnum Starfsemi
stendur neðst: Skagstrendingur hf.
hefur samið um smíði á nýjum verk-
smiðjutogara í Noregi og er þetta
nýja hlutafjárútboð til að treysta
stöðu félagsins vegna þeirra samn-
inga. Og neðar á sömu síðu stendur
undir liðnum Áhætta: Hafa verður
í huga við mat á hlutabréfum í sjáv-
arútvegsfyrirtækjum, að rekstur
þeirra er um margt háður utanað-
komandi skilyrðum. Þar má nefna
aflabrögð, verð fyrir afurðir á er-
lendum mörkuðum, olíuverð og
gengisskráningu íslensku krónunn-
ar. Þá er rétt að taka fram að lög
um fískveiðistjórnun sem nú eru í
gildi geta tekið breytingum í fram-
tíðinni.
Að loknum þessum lestri datt
mér í hug eftirfarandi: Það er betra
að hafa vaðið fyrir neðan sig. '
Fram kemur einnig að boðin verði
út hlutabréf fyrir 50 milljónir króna
á genginu 5. Samkvæmt upplýsing-
um Fjárfestingafélagsins eru þau
öll seld.
Á blaðsíðum 6-7 er lagður fram
Áætlaður rekstrarreikningur og það
sem er kallað Forsendur áætlunar.
Þó svo að þetta séu mjög svo tak-
markaðar upplýsingar, sem liggja
til grundvaílar áætlununum (og
minna um margt á reikninginn
hérna um árið: An: Eitt stykki flug-
turn 10.000.000!!!) er samt þrennt
sem stingur verulega í augu.
1. I forsendum er gert ráð fyrir
5% lægri verðum á afurðum en
fékkst 1990. Þetta finnast
mönnum full lág skekkjumörk
og t.d. mun verð nú hafa lækkað
meira en sem nemur þessum 5%.
Um þetta veit náttúrulega eng-
inn og ætla ég engan dóm að
leggja á þetta atriði.
2. Sé litið á íiðinn Afskriftir á þess-
um 4 árum (1991—94) sem
áætlanir ná til kemur í ljós að
„framtíðar veiðiréttindi” eru af-
skrifuð um samtals rúmlega 186
milljónir króna. Að mati margra
færustu lögfræðinga er hér um
brot á stjórnarskrá að ræða. Því
miður kemur ekkert fram í
gögnunum sem skýrir hvernig
þessar afskriftartölur eru fengn-
ar.
3. Þetta atriði vil ég kalla „rúsín-
una í pylsuendanum”. Áætlan-
irnar ná til ársloka 1994. Nú eru
að vísu lögin um fiskveiðistjórn-
un ótímasett. Þeim var þrælað
í gegnum þingið með miklum
gauragangi. Umræðan verður
harðari og harðari og menn eru
farnir að tala um að þetta fari
að springa. Það sé ekki spurning
um hvort, heldur hvenær. Ríkis-
stjórnin hefur skipað nefnd til
að endurskoða lögin og á því að
vera lokið í árslok 1992. Hvern-
ig lögin verða þá veit enginn!!!
Ég get ekki stillt mig um að
spyija: Er það ekki ótrúleg ósvífni
að biðja sparifjáreigendur í landinu
um 250 milljónir (fimmfalt nafn-
verð) til að taka aðaláhættuna á
fjárfestingu upp á tæpan milljarð,
þegar svona er í pottinn búið?
Allt er þetta byggt á kenning-
unni um að hagræða hjá sér. Nú
væri svo sem allt í sómanum með
að gera það, ef öðruvísi stæði á.
Til skiptanna er bara ekki nóg.
Menn, sem ættu að una glaðir við
sitt og hafa gert það gott, fá nú
að vaða uppi og sölsa til sín lífs-
björgina frá öðrum. Og leggja heilu
byggðarlögin í rúst með hjálp kerf-
is, sem búið er að koma upp með
fullu samþykki ríkisvaldsins, að því
er virðist.
Mér er t.d. lífsins ómögulegt að
skilja hvernig hægt er að færa veiði-
heimildir undir fastafjármuni; fisk
í sjónum, sem kannski veiðist og
kannski veiðist ekki. Og svo til að
kóróna vitleysuna, eru sömu veiði-
heimildir, sem örugglega hafa rýrn-
að við kvótaskerðinguna, fram-
reiknaðar (auknar á pappírunum)
miðað við vísitölu byggingarkostn-
aðar.
Svo virðist í ársreikningi Skág-
strendings að einungis séu færð til
eignar viðbótarkvótakaup. Ætli
næsta skref verði svo ekki að allar
veiðiheimildir verði eignfærðar og
síðan afskrifaðar.
Væri t.d. hægt að banna manni
að yfirfæra eign sína í hendur út-
lendinga? Á leiðinni er jú meira
fijálsræði í þeim efnum. Væri t.d.
nokkuð því til fyrirstöðu, að aðili
seldi öðru fyrirtæki í sinni eigu
kvótann og byijaði að afskrifa upp
á nýtt?
Heyrst hefur að fyrirtæki með
lélega eiginfjárstöðu, hafi með eign-
færslu veiðiheimilda, stórlagað
stöðuna, og stefni nú á hlutabréfa-
markaðinn. „Skítt” veri með að
verðlagning á veiðiheimildunum sé
út í hött og órekstrarhæft dæmi
út af fyrir sig.
Auðvitað una seljendur glaðir við
sitt. Þeir fá jú fyrir kvótann, sem
þeir margir hveijir fengu fyrir til-
viljun, miklu meiri peninga, en hann
gæti gefið þeim, ef þeir nýttu hann
sjálfir. Hvað varðar þá heldur um,
þó þeir einu sem geta keypt, án
þess að fremja efnahagslegt sjálfs-
morð, séu þeir sem geta látið al-
menning borga í gegnum skatta-
kerfið.
Sjóðasukkskerfið unir líka glatt
við sitt. Sitja þeir ekki uppi með
eftir Sigurð Helgason
Það er ánægjulegt að við íslend-
ingar erum komnir í röð þeirra
þjóða, þar sem dauðsföllum af
hjartasjúkdómum fer verulega
fækkandi. Enginn vafi er á því að
þessum árangri ber. að þakka
öflugu forvarnastarfí og rannsókn-
um á hjartasjúkdómum á vegum
Hjartaverndar og verulegum fram-
förum í lækningum. Samkvæmt
MONICA-rannsókninni kemur
þessi staðreynd í ljós:
MONICA-rannsókn Hjarta-
verndar. Fjöldi kransæðadauðs-
falla á Islandi 25—74 ára
Ár 1981 1986
Karlar 184 120
Konur 48 32
Alls 232 152
Er hér fækkun dauðsfalla hjá
körlum 35% og konum um 30%
og nýjum tilfellum hefur fækkað
um 19%. Höfum við þegar kom-
ist í hóp þeirra þjóða, sem best-
um árangri hafa náð. Við íslend-
ingar gætum þó gert enn betur,
en verulegur skortur á fjármun-
um er alvarlegasta vandamálið.
Lífsháttabreyting hefur
mikil áhrif
í breska læknaritinu Lancet
voru birtar niðurstöður rannsókna
frá háskólasjúkrahúsi í San Franc-
isco og í Texas. Kannað var hvort
róttækar lífsháttabreytingar í mat-
aræði, líkamsþjálfun og slökun,
ásamt algjöru tóbaksbindindi gæti
eytt kölkun í kransæðum og þar
með læknað kransæðasjúkdóma.
Árangur var mjög athyglisverður
en tilraunin stóð í eitt ár. Lækkaði
kólestertój að meðaltali 'um .24,3%,..
Árni Gíslason
„Framhaldið gæti svo
orðið, að „eigendur”
sameignar þjóðarinnar
gætu (með nokkrum
rétti?) eftir nokkur ár
sagt: Ríkisvaldið sagði
okkur að eignfæra
veiðiheimildir og nú er
þessi eign okkar af-
skrifuð. Og sá sem á
afskrifaða eign hlýtur
að mega að ráðstafa
henni. ”
órekstrarhæf dæmi út um allt? Svo
birtist allt í einu frelsandi engill
með einhveija seðla, sem hann er
búinn að hafa út úr upphaflega
gjafakvótanum, og þarf að fara að
borga skatt af þeim. Kaupir hann
ekki bara tapið (svo vitnað sé í
Guðmund Malmquist). Fær hann
svo ekki kvótann, á óraunhæfu
bijóstverkur batnaði stórlega og
við myndatöku kom í ljós að krans-
æðasjúkdómurinn hafði gengið til
baka, þrengsli í æðum minnkað
og blóðflæðið aukist. Höfundar
telja að með þessu hafi í fyrsta
sinn verið sannað að hægt sé að
draga úr eða lækna kransæðasjúk-
dóma með róttækum lífshátta-
breytingum. Er skýrt frá þessum
merku niðurstöðum í 1. tölublaði
Hjartaverndarfrájúní 1991. Veru-
lega öflugt endurhæfingarstarf á
sér stað hér á landi fyrir hjarta-
sjúklinga auk mjög rrtikilvægrar
frumendurhæfingar á Reykjalundi.
Endurhæfingarstöð Hjarta- og
lungnasjúklinga, HL-stöðin, hefur
verið rekin frá 1. apríl 1989 lengst
af á Háaleitisbraut 11—13. HL-
stöðin flutti 1. sept. sl. í íþróttahús
fatlaðra í Hátúni 14. Með þessari
breytingu verður starfsemin tvö-
földuð og engir biðlistar. Stærsti
þáttur starfseminnar er viðhalds-
þjálfun fyrir hjartasjúklinga,
lungnasjúkiinga svo og frumendur-
hæfing eftir hjartaaðgerðir. Yfir-
sjúkraþjálfari hefur verið Soffía
St. Sigurðardóttir, en nú í haust
tók við því starfi Ingveldur Ing-
varsdóttir. Yfirlæknir hefur verið
Magnús B. Einarsson. HL-stöðin
hefur verið rekin með mikilli piýði
og staðfestir mjög góð aðsókn það
best. Að stofnun þessarar endur-
hæfingarstöðvar hafa staðið
Hjartavernd, SÍBS og Landssam-
tök hjartasjúklinga. Á grundvelli
svipaðs samstarfs hefur verið reist
endurhæfingarstöð á Akureyri,
sem starfar af miklum krafti.
Leggja þarf áherslu á að holl
hreyfing og þjálfun eykur dug og
kraft og eflir mótstöðuna gegn
endurteknum sjúkdómseinkenn-
um. . _____________ ..
verði. Svo er bara að eignfæra og
byija svo að afskrifa.
Hvað eru menn svo að halda
neyðarfundi á krummaskuðum úti
um hvippinn og hvappinn, þar sem
eina fundarefnið er að reyna að
skrapa saman aura handa „kvóta-
eigandanum” til að halda lífsbjörg-
inni á staðnum. Hvað eru menn
eiginlega að röfla? Af hveiju ekki f
bara að heija þjóðflutningana
strax? Hvað sagði ekki strákurinn,
sem komst í sumarafleysingu hjá |
Þjóðhagsstofnun og samdi ritgerð
um að fiskvinnslufólk út um allt „
væri bara úrelt fyrirbrigði, sem 1
ætti að leggja af og flytja allan fisk-
inn óunninn úr landi. Er það ekki
það sem útlendingarnir vilja? Af
hveiju hámörkum við ekki bara
afkomu útgerðarinnar, og leggjum
niður fiskiðnaðinn í eitt skipti fyrir
öll? Hver nennir heldur lengur að
vinna í fiski fyrir 20 þúsund á viku
í besta falli, þegar menn geta haft
allt að 250 þúsund á viku fyrir sömu
vinnu um borð í frystitogara? Og
svo kemur útgerðarmaðurinn og
skálar við mann í kampavíni á land-
leiðinni.
Hættum nú öllum hálfkæringi!
Sjá menn virkilega ekki hvers kon-
ar hringavitleysa allt kvótakerfið [
er orðið? Sjá menn ekki ennþá hvert
þetta er að leiða okkur? Sjá menn
ekki misréttið og hina hröðu r
byggðaröskun, sem er að hefjast,
þar sem mannlegi þátturinn er sett-
ur til hliðar og’ markaðsöflin fá að fl
„grassera” óhindruð? Ætlar stór
hluti fólks í þessu landi að líða það
að örfáum sægreifum sé Ieyft að
leika sína svikamyllu, óhindrað? Og
að sjóðasukkskerfið sleppi oft fyrir
horn með sína óráðsíu? Ætlar fólk
að halda áfram að vera mótspilari
í leik, þar sem það á enga mögu-
leika og hlýtur að tapa?
Er ekki kominn tími til að safna
saman spilunum, stokka og gefa
upp á nýtt?
Höfundur er fiskverkandi og
fyrrverandi skipstjóri.
Góð fjölskyldusambönd
stuðla að bata
Merkilegar rannsóknir í háskó-
lanum í Ottawa í Kanada hafa
sýnt að góður maki og góð fjöl-
skyldusambönd geta stuðlað fyrr
að bata sjúklinganna. Hafa þeir
reynt að koma á kennslu í því,
hvernig fjölskyldan geti endur-
skipulagt samband sitt við sjúkl-
inginn og með því gefið honum
meira sjálfstraust. Víða erlendis
er komið á fót námskeiðum með
mökum, sem standa í nokkra daga.
Er þar farið yfir margvísleg andleg
vandamál, sem oft koma upp hjá
hjartasjúklingum og hvernig best
er að leysa þau. Fer þar einnig
fram kennsla í heilbrigðu lífemi
Og hvernig vinna megi gegn stressi
og álagi. Kennd er slökun og hvatt
til þátttöku í margvíslegum leikj-
um. Vandinn er sá að breyta
lífsvenjum á víðtækan og skipuleg-
an hátt, svo sem með breyttri vinn-
utilhögun, mikilli almennri hreyf-
ingu og gjörbreyttu mataræði. Að
lokum er lögð áhersla á það að
meðhöndla þarf sérhvern sjúkling
af hjartasérfræðingi og af sjálf-
sögðu með hliðsjón af getumögu-
leikum hans.
Happdrætti Hjartaverndar
1991
Liðinn er nú röskur aldarfjórð-
ungur frá stofnfundi Hjartavernd-
ar, landssamtaka_ hjarta- og æða- i
verndarfélaga á íslandi. Megintil-
gangur stofnunar Hjartaverndar
var baráttan við hjarta- og æða-
sjúkdóma og voru framtíðarverk- i
efni eftirtalin:
1. Fræðslu- og upplýsingastarf- w
semi um hjarta- og æðasjúkl- "
inga.
2. Rannsóknir á almenningi eða
hinu svokallaða hrausta fólki.
Stórauka þarf rannsókn-
ir á hjartasjúkdómum «