Morgunblaðið - 11.10.1991, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
Ríkisendurskoðun um Atvinnutryggingasjóð útflutningsgreina;
Sjóðurinn rekinn með 316
milljóna tapi á síðasta ári
Ekki gætt nægilegrar varfærni við mat á veðhæfni fyrirtækja
í ÁRSLOK 1990 námu lánveitingar Atvinnutryggingasjóðs útflutn-
ingsgreina 8.665 milljónum kr. A afskriftareikningi útlána stóðu þá
411 millj. Bankainnistæður og verðbréf sjóðsins námu 207 millj. og
aðrar eignir voru virtar á 10 millj. Samtals námu því eignir sjóðsins
8.471 millj. kr. Á sama tíma námu lántökur sjóðsins 8.512 millj. og
skuldir við viðskiptamenn 28 millj. Eigið fé Atvinnutryggingasjóðs
var því neikvætt um 69 millj. um áramót er hann var lagður niður
og eignir og skuldbindingar færðar til atvinnutryggingadeildar
Byggðastofnunar. Sjóðurinn var rekinn með 316 millj. kr. tapi á
árinu 1990. Þetta er niðurstaða í skýrslu Ríkisendurskoðunar um
fjárhag sjóðsins 1990.
af útgefnum lánsloforðum sjóðsins
eða um 30%. Fyriræki á Suðurlandi
fengu 243 millj. og á Reykjanesi
296. Hins vegar fengu fyrirtæki í
Reykjavík og á Norðurlandi vestra
minnst í sinn hlut eða samtals rúm-
lega 80 milij.
Óvarfæmi sjóðsljórnar
Á síðasta ári samþykkti Atvinnu-
tryggingasjóður lánsloforð til 11
fiskeidisfyrirtækja að fjárhæð 285
millj. kr. Við lánveitingamar var
tekið mið af ákvörðunum á stjórnar-
fundi 15. mars 1990 varðandi
tryggingar. Þar er við mat á veð-
hæfni miðað við að farið verði upp
í 90% framreiknaðs stofnkostnaðar
stöðvar eða metins stofnkostnaðar
ef afkastageta stöðvar og áætluð
framlegð gefa tilefni til. Ríkisendur-
skoðun gagnrýnir þetta og bendir
á að stjórn sjóðsins hafi í upphafi
sett sér þá almennu reglu að miða
veðrými fasteigna við 70% af bruna-
bótamati þeirra. „Því sýnist sem
veðreglur þær er giltu um fiskeldis-
stöðvar hafa verið verulega rýmri
en þær sem giltu um aðrar fasteign-
ir, sem sjóðstjórn samþykkti að taka
■ *
Lánsloforð atvinnutryggingardeildar|l
íárslok 1990 Fjárhæðir í milljónum króna
Landshluti Sjávar- útvegur Ftskeldi Iðnaður Samtals Samtáls %
Suðurland 1.356,7 276,0 22,9 1.655,6 20,0%
Reykjanes 1.092,9 85,0 173,0 1.350,9 16,3%
Norðurl. eystra JB18.3 ~30fp 271,0' 1.119,3 13,5%
Vestfirðir 1.050,5 38,0 6,0 1.094,5 13,2%
Austurland yi .044,7 0,0 0,0 1.044,7 12,6%
Vesturtand 802,7 33,0 17,0 852,7 10,3%
Norðurl. vestrajjj 635,9 20,0 42,5 689,4 8,4%
Reykjavík 339,5 80,0 58,0 477,5 5,7%
Samtals: 7.141,2 562,0 590,4 8.293,6 100,0%
ÁHUGAVERT OG
GEFANDI VERKEFNI
FYRIR UNGT FOLK
Rauðakrosshúsið er neyðarathvarf fyrir börn
og unglinga að 18 ára aldri.
Við Rauðakrosshúsið er starfandi hópur
sjálfboðaliða sem styður við bakið á innra starfi
þess. Þátttakendur, sem eru á aldrinum 20-30
ára, skiptast á að vinna með starfsfólki á vöktum,
stuttan tíma í senn, með því að sinna gestum á
staðnum og utan hans, Gert er ráð fyrir að hver
þátttakandi vinni u.þ.b. 5-10 klst. á mánuði.
Við leitum að fóiki sem hefur örlítinn tíma
aflögu og er tilbúið að taka þátt ,í krefjandi en
gefandi sjálfboðastarfi.
Námskeið fyrir nýja þátttakendur verður
haldið helgina 18. og 19. okt. nk. Skráning og allar
nánari upplýsingar veitir Hans Henttinen í síma:
622266, á skrifstofutíma. Skráningu lýkur
miðvikudaginn 16. október.
RAUÐ AKROSSH ÚSIÐ
Tjamargötu 35, 101 Reykjavík.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
veð í. Ríkisendurskoðun telur að
með þessu hafi stjórn sjóðsins ekki
gætt nægilegrar varfæmi,” segir í
skýrslunni.
Bendir hún á að af alls 16 fisk-
eldisfyrirtækjum sem hafi fengið
lán á árunum 1989 og 1990 séu
sjö nú orðin gjaldþrota. Telur Rík-
isendurskoðun að stjórn sjóðsins
hafi ekki tekið nægjanlegt tillit til
skilyrða reglugerðar sem fyrirtæki
verði að uppfylla til að koma til
greina við lánveitingu eða skuld-
breytingu hjá sjóðnum.
Vanskil 294 millj.
Útlán til hlutaijáraukningar
námu í árslok 1.212 millj. og höfðu
að mestu runnið til sjávarútvegsfyr-
irtækja og aðila sem tengdust fisk-
eldi. Ríkisendurskoðun bendir á að
í mörgum tilfellum hafi tengdir
aðilar bæði fengið lán til hlutafjár-
aukningar og almenn skuld-
breytingarlán. Bar lánþegum sjóðs-
ins að greiða um 508 millj. í af-
borganir og vexti á árinu en sam-
tals innheimtust 214 millj. og námu
vanskil 294 millj. í árslok. Vanskil
hafa til þessa verið mest hjá sjávar-
útvegsfyrirtækjum en Ríkisendur-
skoðun telur að þau muni fara mjög
vaxandi hjá fiskeldisfyrirtækjum. Á
afskriftareikningi útlána standa
411 rnillj.^ sem svarar til 4,7% af
útlánum. ítrekar Ríkisendurskoðun
fyrri niðurstöðu sína um fjárhags-
stöðu Byggðastofnunar að 1.760
millj. kr. af útlánum atvinnu-
tryggingadeildar gætu tapast og
því þurfi að auka framlög á afskrift-
areikning um 1.350 millj.
♦ ♦ ♦
Læknafélag íslands:
Sent bréf
um ástandið
í Króatíu
Læknafélagi íslands hefur bo-
rist bréf frá læknum í Króatíu
þar sem farið er fram á að upp-
lýsingum um ástandið í landinu
sé komið á framfæri við rétta
aðila. Bréfinu hefur verið komið
til stjórnvalda og lækna.
í bréfinu er ástandinu í Króatíu
lýst og tekið fram að brotnar séu
grundvallarreglur sem ættu að
gilda í stríði. Meðal annars um að
skjóta ekki á merktar sjúkrabifreið-
ar. Beðið er um að upplýsingum
um ástandið vérði komið til réttra
aðila ef það yrði til þess að átökun-
um linnti. Bréfið er birt í Frétta-
bréfi lækna frá /l.október.
Morgunblaðið/Þorkell
Vagninn sem aka mun um austubæ og miðbæ er af gerðinni
Mercedes Benz 0 309.
Akstur lítils almenn-
ingsvagns hafinn
Tilraunaakstur með litlum almenningsvagni hófst í gær á leið A
frá Hverfisgötu um austurhluta borgarinnar og miðbæinn. Rekstur
vagnsins annast sérstakur verktaki á vegum Strætisvagna Reykja-
víkur og er fargjald hið sama og með vögnum SVR.
Vagninn, sem er 21 sæta vagn
af gerðinni Mercedes Benz 0 309,
er ekki í hinum hefðbundna gula
lit SVR en verður rækilega merkt-
ur fyrirtækinu.
Hann mun aka um Hverfisgötu,
Klapparstíg, Njálsgötu, Baróns-
stíg, Egilsgötu, Þorfinnsgötu, Ei-
ríksgötu, Njarðargötu, Bergstað-
astræti, Skólavörðustíg, Banka-
stræti, Lækjargötu, Skólabrú,
Kirkjustræti, Aðalstræti, Hafnar-
stræti og að Hverfisgötu. Þegar
framkvæmdum við Vonarstræti
lýkur mun hann aka þar, svo og
í Suðurgötu og um Áðalstræti í
stað Skólabrúar og Kirkjustrætis.
Ekið verður frá stæði vagnsins
neðst í Hverfisgötu á heilum og
hálfum klt. frá kl. 10 til 16.30
mánudaga til föstudaga. Við-
komustaðir eru 20 og tekur hver
ferð 18 mínútur.
Að sögn Harðar Gíslasonar,
skrifstofustjóra SVR, verður til-
raun gerð með akstur vagnsins í
sex mánuði og þá metið hvort um
áframhald verði að ræða. „Að
hluta til er þarna um aukna
þjónstu við íbúa austurbæjar að
ræða en vagnar SVR hafa ekki
getað ekið margar þær götur sem
nýi vagninn mun aka, vegna
þrengsla. Komi í ljós að þetta fyr-
irkomulag gefist vel verður því
haldið áfram en við munum jafn-
framt leitast við að aðlaga það
athugasemdum sem við fáum frá
farþegum,” sagði Hörður í sam-
tali við Morgunblaðið.
Elías Hjörleifsson í Hafnarborg
ELlAS Hjörleifsson opnar sína fyrstu einkasýningu á Islandi í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, laugardag-
inn 12. október.
Fyrir tveimur árum flutti Elías
heim til íslands eftir 27 ára dvöl
í Danmörku. Elías er að mestu
sjálfmenntaður myndlistarmaður,
en sótti námskeið í teikningu og
grafík meðan hann bjó í Kaup-
mannahöfn. Hann hefur einnig
farið víða um Evrópu.
Á sýningunni í Hafnarborg
verða olíumálverk og myndir unnar
með olíustifti og olíukrít. Lista-
maðurinn lýsir myndefni verkanna
þannig: „Flest verkin eru tengd
íslenskri náttúru. Náttúran formar
sig oft sem verur og því á hún
stóra hlutdeild í verkum mínum.”
Öll verkin á sýningunni eru unnin
eftir heimkomuna til íslands.
Elías hefur haldið einkasýningar
og tekið þátt í fjölda samsýninga
í Damörku. Jlann tók þátt í sam-
sýningu í FÍM-salnum Laugarnes-
vegi 1979. Á liðnu.sumri tók hann
þátt í myndlistarsýningu á Ilellu
sem var liður í M-hátíð á Suður-
landi 1991 sem menntamálaráðu-
neytið stóð fyrir. Elías býr og stárf-
ar á Hellu á Rangárvöllum.
Sýningin í Hafnarborg verður
opin frá kl. 14-19 alla daga nema
þriðjudaga fram til 27. október.
Elías Hjörleifsson