Morgunblaðið - 11.10.1991, Side 36
36.,
M0RPÍUNPF4PI9, FÖSTyPAGUR.Íl. u
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) t*
Þú ert haldinn taumlausri
vinnugleði í dag og afköstin
verða því vel yfir meðallagi.
Afleiðingin verður sú að þér
hlotnast sérstök viðurkenning.
DYRAGLENS
Naut
(20. apríl - 20. maí)
.Ágreiningur gæti risið milli
þín og vinar. Góð dómgreind
kemur sér vel í starfi í dag.
Þig langar mjög í ferðalag um
þessar mundir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Pör gera framtíðaráætlanir.
Hyggið vel að fjármálunum,
einkum ef þið deilið þeim með
öðrum. Þér gengur allt í hag-
inn í viðskiptum og starfí.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HSS8
Þú lýkur mörgum verkefnum
í vinnunni í dag og munt fagna
góðum árangri með vinpm og
vandamönnum í kvöld. Sam-
band þitt við þinn ástkæra
treystist.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Viðfangsefni heima fyrir verð-
ur til lykta leitt í dag. Heppn-
in gengur í lið með þér á
vinnustað. Andleg hugðarefni
eru þér hugleikin um þessar
mundir. Sinntu ástinni.
..Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú ættir endilega að skokka
eða stunda aðra heilsurækt í
dag. Þér berst boð um ævin-
týralegt ferðalag. Skapandi
mönnum er best að lifa.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú átt auðvelt með að tjá skoð-
anir þínar í dag og ættir því
að ganga í að ljúka mikilvæg-
um málum sem drabbast hafa.
Leitaðu ráða hjá bankastjór-
anum varðandi fjárfestingará-
form. Fjölskyldudmálin ættu
að hafa forgang.
Sporödreki
(23. okt. — 21. nóvember)
Þú gerir góð kaup í verslunar-
ferð dagsins og færð góðar
fréttir frá samstarfsmanni.
Eyddu kvöldinu í faðmi fjöl-
skyldunnar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) <50
Penna- og málgleðin nær yfir-
höndinni í dag. Ljúktu við-
fangsefni sem hefur dregist
að klára. Sumir öðlast viður-
kenningu fyrir verk sem þeir
hafa þegar lokið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú kemur góðu lagi á fjármál-
in í dag og fínnur hjá þér
hvöt til þess að gefa þig meir
að hópstarfi og félagsmálum.
Farðu út að skemmta þér í
kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú eyðir misskilningin sem
risinn var milli þín og vinar
þíns. Gættu hagsmuna þinna
vel í viðskiptum. Fjölskyldu-
málin verða ánægjuíeg í kvöld.
FiskSr
(19. febrúar - 20. mars) '£*
Atvinnuleit ber árangur í dag.
Heppnin verður mér þér og
vinum þínum. Kvöldið verður
eftirminnilegt.
Stjömuspána á aó lesa sem
dœgradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
FERDINAND
Er það ekki indælt að liggja hérna Skólinn byrjar aftur eftir aðeins Mér leiðist að tala við þig, Magga
án þess að hafa hinar minnstu áttatíu og fimm daga ...
áhyggjur?
mt
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Kosturinn við að yfirmelda,”
segir Skotinn Hugh Kelsey, „er
sá að menn læra að vinna vel
úr litlu.” Neyðin kennir naktri
konu að spinna, gætum við sagt:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 1063
♦ 84
♦ K10743
Vestur ♦ K85 Austur
♦ G4 ♦ 875
♦ G762 II ♦ ÁK95
♦ ÁD9 ♦ G2
♦ G963 ♦ D1042
Suður
♦ ÁKD92
♦ D103
♦ 865
♦ Á7
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Utspil: spaðagosi.
Með þessa skiptingu er hæpið
að láta sér detta geim í hug
eftir einfalda hækkun makkers
í 2 spaða. En suður, Skoti að
nafni Jim Patrick, tók úrspils-
hæfni sína með í reikninginn.
Og ekki að ástæðulausu.
Hann spilaði tígli strax á öðr-
um slag. Vestur rauk upp með
ásinn og reyndi laufgosa. Það
gat verið rétta vörnin — og leit
svo sannarlega út fyrir að vera
það þegar gosinn átti slaginnl!
Auðvitað spilaði vestur lauf-
inu áfram og þá gat Patrick tek-
ið við stjóminni. Hann spilaði
tígli á kóng, henti tígli niður í
laufkóng og fríaði litinn með
trompun. Atti svo innkomu á
spaðatíu til að henda niður
tveimur hjörtum.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Salamanca á Spáni í
maí kom þessi staða upp í viður-
eign stórmeistaranna Alonso
Zapata (2.530), Kólumbíu, sem
hafði hvítt og átti leik, og Manu-
el Rivas (2.450), Spáni.
24. Hg6! (Eftir að svarta drottn-
ingin verður að fara af 6. reitaröð-
inni er svartur vamarlaus. T.d.
24. - Dc7, 25. Hxg7! - Kxg7,
26. Hgl+ - Kh8, 27. Dg5 og
mátar á h6 eða g7. Það er heldur
ekki gott að þiggja fórnina: 24. —
fxg6, 25. hxg6! — Hxf5, 26. Hhl+
og mátar. Svartur reyndi: 24. —
Dxd5, 25. Hxg7! — Kxg7, 26.
exd5 - Hh8, 27. d6 - He6, 28.
Dg5+ og svartur gafst upp. Eins
og fram hefur komið sigraði
sovézki stórmeistarinn Evgení
Vladimirov örugglega á mótinu, á
undan þeim Spassky og Kortsnoj.