Morgunblaðið - 11.10.1991, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
49
VELVAKAMDI
SVARAR í SÍMA
B91282KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
álU'"----“~"11
Fórnfúsa inn á spítalana
Til Velvakanda
Einar Yngvi Magnússon skrifaði
Velvakanda bréf, sem birtist 8. okt-
óber 1991. Þar harmar hann þann
skort á fórnfýsi, sem einkenni hjúkr-
unarfræðinga. Honum finnst aug-
sýnilega óhæfa að þeir fari fram á
laun fýrir störf sín, sem hægt sé að
lifa af.
Einar er greinilega fórnfús mað-
ur. Þess vegna langar mig að benda
honum á ýmis störf á spítölum lands-
ins, sem eflaust væri vel þegið að
hann tæki að sér. Að sjálfsögðu
launalaust, eða svo til, enda er fóm-
fýsi hans án efa takmarkalaus. Einn-
ig væri vel þegið ef Einar gæti bent
á fleiri fórnfúsa einstaklinga, sem
ekki vilja „safna auði” af sjúkdómum
meðbræðra sinna. Þeir gætu þá drif-
ið sig til starfa, til dæmis við að
aðstoða við snúninga og lyfingar á
lasburða fólki, sem á því þarf að
halda.
Ef nægilega margir fómfúsir ein-
staklingar gefa sig fram, fulllir af
hugsjónaeldi eins og Einar, mun
álagið á sjúkradeildum landsins
minnka og meiri tími verða til að
að sinna andlegum þörfum hinna
sjúku.
Sigurveig Guðjónsdóttir.
TiUitsleysi
blaðaljós-
myndara
Mig langar með örfáum orðum að
þakka hópi unggs fólks, sem spilaði
fyrir mig og aðra tónleikagesti í
Langholtskirkju 29. september s.l.
Þessi hópur, ásamt jafnöldrum frá
hinum Norðurlöndunum mynduðu
„Samnorræna hljómsveit.” Unga
fólkið stóð sig með prýði. Hljómur-
inn, einbeitingin og ánægjan, var
mér efst í huga eftir þessa fögru
tónleika. Þakka ykkur kærlega fyrir.
Eitt var þó til að skemma fyrir,
en það var blaðaljósmyndari, sem
kom arkandi inn eftir kirkjugólfinu
í miðjum dúett eftir L. Madetoja.
Ekki datt ljósmyndaranum í hug að
bíða eftir því að laginu lyki, til að
taka myndir, ó nei. Ljósmyndarinn
stillti sér upp fyrir framan hljóðfæra-
leikarann og byijaði að smella mynd-
um. Ekki einni mynd, því hann hætti
ekki fyrr en hann var stöðvaður af
einum tónleikagestinum. Því beini
ég þessu til.ykkar blaðaljósmyndara
og annarra sem koma nálægt blaða-
mennsku, að sýna kurteisi og tillit-
semi. Ykkur hefði verið nær að fjalla
um þessa Samnorrænu hljómsveit
og þeirra framlag, fyrir tónleikana.
Ekki get ég séð að þetta sé minna
lofsvert en margt það sem fjallað er
um í ykkar blöðum.
Tónlistarunnandi.
Hvar er nú Landvernd?
I>essir hringdu ...
Fundin kvengleraugu
Kvengleraugu fundust í síðustu
viku í strætisvagnaskýlinu við
Eiðistorg. Upplýsingar eru í síma
611911 eftir kl. 18.
Barnavagni stolið
Kona í Fossvogshverfi hafi
samband við Velvakanda þar sem
stolið hafði verið barnavagni
hennar úr gangi fjölbýlishússins
sem hún býr í. Gerði konan ráð
fyrir að þjófarnir myndu reyna
að selja vagninn. Hann er fremur
sjaldséðrar gerðar, grár, vel með
farinn Gesslein-vagn, sem nota
má sem kerru. Verði fólk vart við
vagninn er það beðið um að hafa
samband við lögregluna.
Fyrir skömmu var frá því skýrt
í fréttum, að nokkrir bændur eða
einstaklingar hefðu tekið sig til
og breytt íslandskortinu dálítið,
stíflað árfarveg inni á Hruna-
mannaafrétti og búið til nýtt
stöðuvatn, sem mun vera um 16
hektarar að flatarmáli. Er það
ætlunin að koma til fiski í vatninu
þótt fróðir menn segi bréfritara,
að þær tilraunir muni lítinn árang-
ur bera á næstu árum. Vatnið
verði ekki að „vatni” nema á löng-
um tíma eða með öðrum orðum,
lífskilyrðin fyrir físk verða ekki til
á einni nóttu. Vangaveltur um
þetta eru þó ekki tilefni þessa bréf-
korns, heldur hitt: Hafa einstakl-
ingar eða hreppsnefndir yfirleitt
leyfi til að leggja landið undir vatn
að sínum eigin geðþótta? Má
kannski fylla heilu dalina ef jarð-
areigendum og hreppsnefnd býður
svo við að horfa? Ef ég man rétt
þá hefur gengið dómur þess efnis,
að bændur eigi ekki afréttinn þótt
þeir hafi á honum nýtingarrétt.
Hvar er nú Landvernd og hvar er
nú Náttúruverndarráð? Þeir eru
margir, sem hafa verið að furða
sig á þessu, og því væri gaman
að heyra eitthvað frá þessum sam-
tökum.
Áhugamaður um náttúruvernd.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar. Ekki verða birt nafnlaus
bréf sem eru gagnrýni, ádeilur
eða árásir á nafngreint fólk.
KULDASKOR
HLÝIR OG MJUKIR
MEÐ EÐA ÁN RENNILÁSS !
STÆRÐIR: 41 -46
VERÐ: 5.990 kr.
LITUR: SVART
mmm MAVim
■LAUGAVEGI95
.innsmióia
S K Ó R Á A 1 L A FJOLSKYLDUNA...
:V liJ CiUU
Teg. Sabrina
160x200 m/dýnum kt 99.840,-
180x200 m/dýnum kn 109.880,-
Mikið úrval af alls konar hjónarúmum
í mismunandi stærðum oggerðum.
GÓÐ GREIÐSLVKJÖR
WEIDER TG-700P ERGOMETER
ÞREKHJÓL MEÐ PÚLSMÆLI
Tölvumælir sem gefur upp hraða, tíma,
vegalengd, kaloríubrennslu og púls.
ÞÚ HJÓLAR OFTAR OG LENGUR Á GÓÐU HJÓLI
Þetta frábæra þrekhjól kemur nú endurbætt með
nýrri tölvu og púlsmæli. Hundruð ánægðra kaup-
enda geta vottað um frábæra eiginleika þessa
þrekhjóls.
• Ekkert reimadót. • Breitt og bólstrað sæti.
• Þungt kasthjól. • Hæðarstilling ó sæti og stýri.
• Jafnt og gott óstig. • Stöðugt, endingargott, fyrirferðarlítið.
• Hljóðlótt. • Hentor öllum aldurshópum.
• Gottverð.
Verð kr. 25.500,- Stgr. kr. 23.970,-
HHHHfflS
SENDUMI
PÓSTKRÖFU
UMLAND
ALLT.
utiuf
Glæsibæ, sími 812922.
H
EUR0-VISA
RAÐ
SAMNINGAR