Morgunblaðið - 11.10.1991, Qupperneq 52
i.vkii.i jiw \n «:óni kvöldi
I I I IOI
roguttfrlitfrffr
VATRYGGING
SEM BRÚAB %:
BILIÐ
síóváÍii^almennar
FOSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
VERÐ I LAUSASÖLU 110 KR.
Reykjavík:
Jafnmörg dauðaslys
wog allt árið í fyrra
36 manns slösuðust og einn lést í 168 umferðarslysum, sem lögreglan
í Reykjavík fékk til rannsóknar í septembermánuði. Það sem af er
ársins hafa 6 manns látist í umferðinni í Reykjavík og eru það jafn-
margir og létust allt árið í fyrra, að sögn Gylfa Jónssonar lögreglu-
fulltrúa, sem segir að miðað við reynslu fyrri ára megi búast við fjölda
alvarlegra slysa á síðasta fjórðungi ársins, þegar skammdegið gengur
í garð.
í þremur dauðaslysanna urðu
gangandi vegfarendur, rosknar kon-
ur í öllum tilfellum, fyrir bfl, í tveim-
ur biðu ökumenn bifhjóla bana og í
einu slysanna lést ökumaður eftir
árekstur.
Um þriðjungur umferðarslysa sem
lögreglan gerði skýrslur um í sept-
ember voru aftanákeyrslur, tæpur
fjórðungur stafaði af því að almenn-
ur umferðarréttur var ekki virtur og
um sjötta hvert slys varð vegna þess
að biðskylda var brotin. í um 4%
umferðarslysanna áttu ölvaðir öku-
menn hlut að máli og er það helming-
ur þess sem var í ágúst. 6 reiðhjóla-
menn slösuðust í september, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar.
Slippstöðin á Akureyri:
Raðsmíðaskipið
til Vestmannaeyja?
Samningaviðræður forsvars-
manna Slippstöðvarinnar hf. á
Akureyri og Matthiasar Osk-
arssonar, útgerðarmanns í
Vestmannaeyjum, um kaup
Matthíasar á raðsmíðaskipi
Slippstöðvarinnar eru nú á lok-
astigi.
Smíði skipsins hófst síðla árs
1987. Þá var útlit fyrir að starf-
semi Slippstöðvarinnar stöðvaðist
vegna verkefnaskorts og var ráð-
ist í smíðina þó kaupandi væri
ekki fyrir hendi. Skipið var sjósett
í fyrravor. Frá þeim tíma hefur
það legið við bryggju, en tvívegis
hefur Fiskveiðasjóður hafnað
samningum um sölu skipsins. Fjár-
magnskostnaður vegna þess hefur
verið á milli 25 og 30 milljónir
króna á ári.
Matthías Oskarsson er útgerð-
armaður Bylgju VE, en skip hans
er mikið skemmt eftir bruna í
Skipalyftunni í Vestmannaeyjum
í september. Verði af samningum
tekur Slippstöðin Bylgju upp í
kaupin.
Sjá Akureyrarsíðu bls. 31.
Morgunblaðið/KGA
HAFNARVINNA í HAUSTNÆÐINGI
Inn- og útlán:
Landsbank-
inn lækkar
vexti í dag
A
Islandsbanki
lækkar þá ekki
Landsbankinn lækkar í dag
vexti á innlánum um 3% og á
útlánum um 2%, en íslands-
banki lækkar ekki vexti nú.
Útlánsvextir íslandsbanka og
Landsbanlýa Islands eru nú
1-3% hærri en hjá sparisjóðun-
um og Búnaðarbankanum.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbanka, sagði að
bankinn hefði yfirleitt verið leið-
andi um vaxtaákvarðanir, en það
væri ekki nauðsynlegt að hann
væri það alltaf. Ragnar Önundar-
son, framkvæmdastjóri hjá ís-
landsbanka, segir að bankinn
lækki ekki vexti nú, þar sem hann
þurfi ekki að auka útlán sín. Hann
sagði að ekki væri frekari tíðinda
að vænta af vaxtabreytingum hjá
bankanum fýrr en með nýrri láns-
kjaravísitölu og nýrri verðbólgu-
spá seinni hluta mánaðarins.
Sjá frétt á bls. 4.
Loðnan fundín á þremur
svæðum út af Vestfjörðum
LOÐNUSKIPIN, sem eru að loðnuleit vestur og norðvestur af land-
inu, fundu í fyrrinótt töluvert af loðnu og töldu skipstjórarnir eitt-
hvað af henni veiðanlegt. Skipin hafa orðið loðnunnar vör á þremur
svæðum, norðvestur af Dohrnbanka, djúpt norður af Horni og í álnum
milli Islands og Grænlands, okkar megin við miðlínu. Rannsóknarskip-
ið Arni Friðriksson hefur þegar byrjað mælingar á svæðinu norðvest-
ur af Dohrnbanka, en ekki liggur fyrir hve mikið er þarna á ferðinni.
Hjálmar Vilhjálmsson, fískifræð-
ingur, hefur verið í sambandi við
leitarskipin og rannsóknarskipið.
Hann segir, að nú séu skipin byijuð
að leita á svæðinu norður af Vest-
fjörðum, í kantinum norður af Kög-
ur- og Strandagrunni, en þar hafa
rækjuskip orðið vör við loðnu und-
anfarnar vikur. Skipin væru ekki
með nætur um borð, nema eitt, en
skipstjórarnir teldu sig hafa getað
fengið afla, hefðu þeir haft veiðar-
færin með.
Hjálmar sagðist ekkert geta sagt
um, hve mikið væri þarna á ferð-
inni, en hið jákvæða í málinu væri,
að þeir hefðu fundið loðnu og veður
•n?
Bridsmótið í Japan:
Nýir heimsmeistarar
verða krýndir í dag
ÍSLENSKA landsliðið í brids var með 80 stiga forskot á lið Pól-
veija í gær, eftir 128 spil af 160. Síðustu spilin voru spiluð í nótt
og keppninni átti að ljúka snemma í morgun. Nýir heiinsmeistar-
ar verða krýndir við hátíðlega athöfn í Yokohama í Japan um
hádegi að íslenskum tíma.
íslenska liðið hefur oft haft
ástæðu til að gleðjast undan-
farna daga, þegar farið er yfir
stigin.
Björn Eysteinsson fyrirliði ís-
lenska liðsins sagði eftir að spila-
mennskunni lauk í gær: „Islensku
spilararnir hafa sýnt stöðugleika,
haldið áfram að spila sinn brids,
ekki látið slá sig út af laginu, og
það hefur verið ánægjulegt að
sjá.” Framir.istaða íslendinganna
hefur vakið mikla athygli í Yoko-
hama og ekki síður sá mikli áhugi
íslendinga, sem Japanirnir hafa
orðið áþreifanlega varir við.
„Það.eru allir rosalega spenntir
hérna og það má eiginlega segja
að vinna liggi niðri enda eru allir
að ræða um brids og fylgjast með
strákunum,” sagði Aðalsteinn
Jónsson forstjóri á Eskifírði í sam-
tali við blaðið í gær. Hjalti Elías-
son er margfaldur íslandsmeistari
í brids og hann sagði m.a. þetta
um frammistöðu Islendinganna:
„Strákarnir hafa spilað mjög vel
enda eru þetta reyndir strákar
sem fóru mjög vel lesnir til leiks
og þegar þú ert vel lesinn er engu
að kvíða í prófinu.”
í húsakynnum Bridssambands-
ins hefur verið mikið um að vera
síðustu daga, opið hús hefur verið
þar síðustu nætur og mikið hringt
þangað með spurningar um
frammistöðu liðsins. Þá hafa
margir heitið á íslenska liðið og
gefið peninga. Segir Elín Bjama-
dóttir, framkvæmdastjóri sam-
bandsins, að hún geri sér góðar
vonir um að endar nái saman
hvað varðar kostnað við heims-
meistaramótið.
Sjá fréttir á bls. 22-23.
væri gott til mælinga. Ætlunin væri
að rannsóknarskipið Bjarni
Sæmundsson færi til mælinga ásamt
Arna á þriðjudagskvöld, en Bjarni
hefði verið að ljúka öðrum leiðangri
og lítilsháttar lagfæringa og undir-
búnings væri þörf. Þetta liti því bet-
ur út nú, en tvö síðastliðin haust,
þegar veður og ís komu í veg fyrir
fullnægjandi mælingar.
Skipin, sem nú eru að leita loðnu
auk rannsóknarskipsins eru Súlan
EA, Sunnuberg GK, ísleifur VE og
Höfrungur AK. Sverrir Leósson, út-
gerðarmaður Súlunnar, segist vera
bjartsýnn á framhaldið eftir að hafa
talað við skipstjóra sinn, Bjarna
Bjarnason. Sér kæmi það ekki á
óvart og væri hann þess fullviss að
framundan væri gjöful og góð loðnu-
vertíð.
Að loknum þessum leiðangri og
mati á niðurstöðum hans, verður
leyfilegur afli á komandi vertíð gef-
inn út.
Slæm reynsla
er af 000
UM 95% þeirra sem hringja í
neyðarnúmerið 000, gera það
ekki til að óska eftir bráðaaðstoð
lögreglunnar, heldur vegna þess
að númerum hefur slegið saman
eða börn verið að fikta í símtækj-
um heima hjá sér.
Þrátt fyrir miður góða reynslu
af neyðarnúmerinu, telur lögreglan
í Reykjavík nauðsynlegt að hafa
númerið tengt.
Sjá „Númerum slær saman ...”
bls. 1D.