Morgunblaðið - 23.10.1991, Side 44
VÁTRYGGING Jk RISC SYSTEM/6000
8EM BRÚAR SJÓVÁ'JOALMENNAR KEYRIR UNIX FRAMTÍÐARINNAR: IBM AIX
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTOBER 1991
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
-j
Dómur í Ávöxtunarmáli:
Eigendur fyrirtæk-
isins dæmdir í 2 og
2 Vi árs fangelsi
EIGENDUR Ávöxtunar sf, Pétur Björnsson og Ármann Reynisson,
voru í gær dæmdir í sakadómi Reykjavíkur í 2 og 2 Vi árs óskilorðs-
bundið fangelsi fyrir umfangsmikil fjársvik. Fjársvik Péturs, sem
fékk þyngri dóminn, eru talin hafa numið um 75 milljónum króna
á núvirði en fjársvik Ármanns um 60 nnlljónum.
Mennirnir voru sýknaðir fyrir
nokkurn hluta ákæruliða og gert
að greiða 7/12 hluta sakarkostnað-
ar en 5/12 hlutar greiðast úr ríkis-
sjóði. Reynir Ragnarsson, löggiltur
endurskoðandi, og Hrafn Bach-
mann, fyrrum framkvæmdastjóri
Kjötmiðstöðvarinnar, voru sýknaðir
af þeim ákærum sem fram voru
bornar gegn þeim.
Meðal þess sem Pétur Björnsson
og Ármann Reynisson voru sak-
felldir fyrir voru brot á lögum um
Veðrið:
Hlýrra á Is-
landi en í
Mið-Evrópu
HITI verður hærri á'íslandi
en í Mið-Evrópu næstu daga.
Samkvæmt upplýsingum frá
Magnúsi Jónssyni, veður-
fræðingi, þarf að leita allt til
Suður-Evrópu til að finna
hærri meðalhita en er hér á
landi um þessar mundir.
Magnús segir að næstu daga
megi búast við afar mildu veðri
á Islandi. í dag verði hiti um
8-10 stig á höfðuborgarsvæð-
inu en gæti farið upp í 16 stig
norðanlands, á morgun megi
búast við 4-8 stiga hita, á föstu-
dag verði hiti svipaður en á
laugardag gæti hlýnað á -ný.
Hann segir að áfram verði
fremur kalt í Skandinavíu og
Mið-Evrópu, um frostmark á
nóttunni en hitinn upp í 10 stig
á daginn. Leita þurfi suður fyr-
ir Mið-Evrópu eftir þokkalegum
hita, um 15 stigum yfirdaginn.
Aðspurður sagðist Magnús
hafa á tilfinningunni að hitastig
hefði verið í meðallagi það sem
af væri hausti en vissulega
hefði hlýindakaflinn síðustu
daga haft sín áhrif.
Látinn eftir
meðvitundar-
leysií 16 ár
LÁTINN er Björgvin Magnússon,
20 ára gamall piltur úr Hafnar-
firði, sem verið hafði meðvitund-
arlaus allt frá því hann slasaðist
í árekstri á mótum Hringbrautar
og Sóleyjargötu í Reykjavík 18
febrúar 1976, þá 4 Vi árs gamall.
Björgvin var ásamt foreldrum
sínum og félaga föður síns í bíl er
þau lentu í árekstri við strætisvagn.
Við áreksturinn hlaut Björgvin al-
varlegan heila- og mænuskaða og
vaknaði hann aldrei til fullrar með-
vitundar í þau rúm 16 ár sem hann
lifði eftir slysið.
verðlag, samkeppnishömlur og
óréttmæta viðskiptahætti með aug-
lýsingum um starfsemi fyrirtækis-
ins. Þá var ákvörðun ríkissaksókn-
ara árið 1986 um að höfða ekki
mál gegn Ávöxtunarmönnum eftir
rannsókn á málum fyrirtækisins,
talin bindandi fyrir ákæruvaldið um
einn kafla ákærunnar og var honum
því vísað frá.
Reynir Ragnarsson var meðal
annars sýknaður á grundvelli fyrn-
ingar af ákærum um að hafa brotið
lög með áritun sinni á reiknings-
skil Ávöxtunar sf. og Verðbréfa-
sjóðs Ávöxtunar hf. fyrir árið 1987
Fundið var að mörgum atriðum
hvað reikninsskilin varðar í dómin-
um en sagt að þar sem þessi brot
varði aðeins sektum fyrnist þau á
tveimur árum. Fyrningarfrestur
hafi aldrei verið rofinn með lög-
formlegum hætti af rannsóknarlög-
reglustjóra eða löglærðum fulltrúa
hans.
Veijendur Ármanns og Péturs
og sækjandi hafa tekið sér frest til
að ákveða hvort þeir skjóti málinu
til Hæstaréttar.
Dóminn kváðu upp Pétur Guð-
geirsson sakadómari, sem var
dómsformaður, og sérfróðir með-
dómsmenn hans; löggiltu endur-
skoðendurnir Sigurður Stefánsson
og Sigurður Pálsson.
Sjá einnig bls. 4.
Lögreglan í Hafnarfirði handtekur byssumanninn
Hafnarfj örður:
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ölvaður byssumaður tekinn
skammt frá Reykjanesbraut
Víkingasveit lögreglunnar kölluð út
ÖLVAÐUR maður vopnaður tvíhleyptri haglabyssu var handtek-
inn af lögreglunni í Hafnarfirði á níunda tímanum í gærkvöldi.
Maðurinn var þá staddur fyrir utan íshús Reykdals í gamla bæn-
um, í aðeins 100 metra fjarlægð frá Reykjanesbraut. Talið er að
hann hafi náð að hleypa af einu skoti.
Þegar lögreglan fékk tilkynn- sveitina. Loka þurfti af svæðinu
ingu um manninn um kl. 21 var við íshúsið en þarna skammt frá
strax ákveðið að kalla eftir aðstoð er Reykjanesbraut, fjölfamasta
og haft var samband við Víkinga- umferðaræð Suðurnesja. Áður en
Víkingasveitin kom á vettvang
hafði Hafnarfjarðarlögreglunni
tekist að yfirbuga manninn.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Hafnarfirði eru skúrar
við íshúsið þar sem maðurinn
hafðist við en þeir eru notaðir
undir bílaverkstæði. Lögreglan
hefur áður þurft að hafa afskipti
af manni þessum sökum óreglu.
Talsmenn atvinnuiífs almennt ánægðir með EES-samninginn:
Flest atriði þessa samnings
jákvæð fyrir sjávarútveginn
- segir Magnús Gunnarsson, formaður Samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarútvegi
TALSMENN atvinnulífsins á íslandi hafa flestir lýst ánægju með
niðurstöðu samnings um evrópskt efnahagssvæði sem náðist í Lúxem-
borg aðfaranótt þriðjudags. Forsætisráðherra segir að með samn-
ingnum væri að opnast ný veröld fyrir Islendinga og utanríkisráð-
herra segir, að hann sé vegabréf Islendinga inn í 21. öldina. Fulltrú-
ar stjórnarandstöðu á Alþingi hafa hins vegar tekið samningnum
af mikilli varúð og bent á að mörg atriði hans séu enn óupplýst.
„Ég held að flest atriði þessa
samnings séu mjög jákvæð fyrir
sjávarútveginn, svo fremi sem niður-
stöður hans eru á þá leið sem upplýs-
ingar okkar gefa til kynna,” sagði
Magnús Gunnarsson, formaður
Samstarfsnefndar atvinnurekenda í
sjávarútvegi, við Morgunblaðið. Og
Kristján Ragnarsson, formaður
Landsambands íslenskra útvegs-
manna, sagði að útvegsmenn væru
ánægðir með samninginn.
Einar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar,
sagði það vera ánægjulegt fyrir ís-
lenskan saltsíldariðnað, ef tékist
hefði að ná fram tollfrelsi á markaði
Evrópubandalagsins fyrir allar teg-
undir saltsíldarflaka frá íslandi.
Áður leit út fyrir að 10% tollur yrði
áfram á þessari afurð.
Olafur Davíðsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra iðnrekénda,
sagði að með aðild að þessum samn-
ingi ætti iðnaðurinn meiri möguleika
en ella að mæta vaxandi sam-
keppni. Aðföng muni lækka, hráefni
og þjónusta. Vilhjálmur Égilsson,
framkvæmdastjóri Verslunarráðs,
sagði að aðgangur íslendinga fyrir
sjávarafurðir muni þýða byltingu í
íslenskri fiskvinnslu og verði líklega
stærsta framlag til byggðastefnu á
Islandi. Þá muni vöruverð lækka í
kjölfar samningsins vegna aukinnar
samkeppni.
Bæði Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASI, og Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, töldu
að samningurinn myndi efla fiskiðn-
að á íslandi og opna fyrir ný sóknar-
færi í sjávarútvegi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að ávinningurinn, sem fælist
í tollfrjálsum aðgangi fyrir stærstan
hluta sjávarafurða Islendinga væri
ótvíræður. Og með samningnum
hefði opnast ný veröld fyrir Islend-
inga. „Þetta er stærsti markaður og
öflugasta markaðsheild sem menn
búa við í veröldinni. Við liggjum vel
að honum og erum að fá þar að-
gang,” sagði Davíð.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra sagði að samningurinn
veitti íslendingum réttinn til að nýta
þau tækifæri sem þjóðfélagið þurfti
á að halda.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, sagði
að árangurinn í sjávarútvegsmálum
væri meiri en menn hefðu búist við.
Hins vegar væri erfitt að meta samn-
inginn í heild og ekki mætti halda
að samningurinn bjargaði þjóðinni
úr þeirri efnahagskreppu sem hún
væri í.
Olafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, sagði að
þótt nokkur árangur hefði náðst í
sjávarútvegi væri ljóst að með samn-
ingnum hefði 350 milljóna manna
samfélag fengið aðgang að íslensku
efnahagslífi, sem hlyti að hafa veru-
leg áhrif.
Kristín Einarsdóttir, þingmaður
Kvennalistans og formaður Sam-
/töðu, samtaka um óháð ísland,
sagðist ekki geta betur séð en samn-
ingurinn gæti haft afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir ísland og með honum
afsali íslendingar cér verulegum
hluta sjálfsákvörðunarréttar þjóðar-
innar. „Ég á erfitt með að trúa því
að óreyndu að meirihluti sé fyrir
þessu á Alþingi,” sagði Kristín.
Sjá nánar á bls. 16-23
og I verinu.