Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. > Olga og óvissa í Póllandi Um 60% kjósenda í Póllandi ákváðu að neyta ekki atkvæð- ísreitar síns í þingkosningunum sem fram fóru þar í landi á sunnudag. Þessi dræma kjörsókn endurspeglar einkum þrennt. í fyrsta lagi hefur pólskur almenningur með þessu lýst óánægju með þá harkalegu áætlun um endurreisn efnahagslífsins sem stjórnvöld kynntu eftir hrun kom- múnismans í landinu og hrint var í 'framkvæmd af fullum þunga í árs- byijun 1990. í annan stað sýnir þetta andóf almennings ljóslega hversu risavaxið verkefni það er að losa tæplega 40 milljóna manna þjóðfélag úr viðjum kommúnískrar miðstýring- ar. Og í þriðja lagi blasir við að slík- ar aðgerðir eru ekki líklegar til vin- sælda og geta kallað fram snöggar breytingar á stjómmálasviðinu eins og nú hefur gerst í Póllandi. Fylgi fyrrum kommúnista í þing- kosningunum hefur eðlilega vakið sérstaka athygli. Flokkurinn, Lýð- ræðisbandalag vinstrimanna, hlaut 11,98% atkvæða og 60 menn kjöma en stærstur er flokkur Tadeusz Mazowieckis, fyrrum forsætisráð- herra, sem mun eiga 62 fulltrúa á þingi. Þessi árangur fyrrverandi kommúnista er ekki síst til kominn sökum þess að stór hópur manna, einkum gamla forréttindastéttin, tel- ur hagsmunum sínum best borgið með því að styðja flokk þennan. Að auki hefur leiðtogum flokksins í krafti vel skipulagðrar kosningabar- áttu greinilega tekist að höfða til óánægju almennings, ekki hvað síst á landsbyggðinni. Það er ofmælt, að fyrmm kommúnistar séu sigurvegar- ar kosninganna en árangur þeirra sýnir ljóslega, að örvænting er að grípa um sig í Póllandi og eru það að sönnu uggvænleg tíðindi. Fyrir kosningamar var vitað, að þátttakan í þeim yrði lítil en að ein- ungis rúm 40% atkvæðisbærra manna skyldu sjá ástæðu til að mæta á kjörstað kom á óvart. Það vekur vissulega athygli að þetta viðhorf sé ríkjandi í Póllandi, meðal þjóðarinnar sem fór fyrir lýðræðisbyltingunni í Austur-Evrópu og var nágrönnum sínum svo mikilvægt fordæmi er þeir risu upp gegn þeirri heimspeki mann- fyrirlitningar, kúgunar og ofríkis sem ríkti í alþýðulýðveldunum sósíalísku. Pólveijar hafa einnig verið í farar- broddi þess endurreisnarstarfs sem hafið er í Mið- og Austur-Evrópu og hafa hlotið mikið lof á Vesturlöndum fyrir djarfar áætlanir sínar á því sviði. Stuðningur sem þaðan hefur borist hefur á hinn bóginn ekki verið í samræmi við væntingar manna þar eystra og yfirlýsingar vestrænna ráðamanna. Hins vegar er það svo að lítil þátt- taka hefur verið í öllum þeim kosning- um sem boðað hefur verið til í Pól- landi frá því endi var bundinn á tæp- lega 45 ára alræði kommúnista þar árið 1989. I þingkosningunum í júní- mánuði það ár, sem ekki töldust öld- ungis fijálsar þar eð kommúnistum voru tryggð 65% sæta í neðri deild þingsins, tóku 62% þátt í fyrri um: ferð og aðeins 25% í þeirri síðari. í maímánuði í fyrra var boðað tii sveit- arstjórnakosninga í landinu og voru það fyrstu fijálsu kosningarnar í rúm 50 ár. Aðeins 42% atkvæðisbærra manna mættu á kjörstað og þótti sú niðurstaða benda til ört vaxandi óánægju meðal almennings vegna efnahagsaðgerðanna harkalegu, sem getið hafa af sér um 10% atvinnu- leysi, gífurlegt kaupmáttarhrap og mikinn samdrátt í þjóðarframleiðslu. Þessi óánægja var síðan staðfest í forsetakosningunum sem fram fóru fyrir rúmu ári er óþekktur ævintýra- maður, Stanislaw Tyminski, bar sig- urorð af þáverandi forsætisráðherra landsins í fyrri umferð. Alls buðu rúmlega 100 flokkar og listar fram í þingkosningunum á sunnudag. Sú staðreynd ein hefur vafalítið orðið til þess að fæla marga frá því að mæta á kjörstað. Á hinn bóginn kunna valkostirnir í raun að hafa verið takmarkaðir í hugum kjós- enda. Valið stóð í reynd á milli átta flokka sem hlynntir eru misjafnlega róttækum umbótum og eru á einn eða annan hátt tengdir Samstöðu, verkalýðshreyfingunni, sem ruddi kommúnistum úr sessi, og flokks fyrrum kommúnista og stuðningslista þeirra. Beinast liggur því við að túlka úrslitin og takmarkaða þátttöku á þann veg, að Pólveijar hafi hvorki viljað kjósa yfir sig fyrrum kommún- ista né heldur veita stjórnvöldum af- dráttarlaust umboð til að fylgja fram efnahagsumbótunum sem snert hafa svo marga og skert hafa lífskjörin svo mjög. Yfirlýsingar Lechs Walesas, for- seta Póllands, gefa til kynna að hann hyggist þvinga fram myndun þjóð- stjómar eða neyða Samstöðuflokkana til samstarfs og hugsanlega taka sjálfur við embætti forsætisráðherra. Hvorugur kosturinn virðist líklegur til að skila árangri. Með klofningi Samstöðu, sem staðfestur var á síð- asta ári er deilur tóku að magnast um stefnuna-í efnahagsmálum, kom í ljós djúpstæður persónulegur ágreiningur meðal nokkurra helstu talsmanna og leiðtoga hreyfingarinn- ar í gegnum árin. Þar hefur hvergi nærri gróið um heilt og því er með öllu óvíst að unnt verði að mynda starfhæfa ríkisstjóm umbótaflokk- anna sem hafa nauman meirihluta á þingi. Þegar litið er til þeirrardirfsku sem einkennt hefur framgöngu pólskra ráðamanna á efnahagssviðinu og þess staðfasta ásetnings þeirra að færa landið í hóp þróaðra ríkja þarf ef til vill ekki að koma á óvart að niður- staða kosninganna hafi orðið þessi. Greinilegt er að stjómvöld þurfa að hafa úthald til þess að fylgja fram efnahagsumbótum en það getur aug- ljóslega leitt til vemlegs fylgistaps a.m.k. um tíma. Sýnilegt er, að al- menningur er tregur til að færa þær fórnir, sem nauðsynlegar eru taldar og við blasir að flokkakerfí eins og þekkist á Vesturlöndum hefur enn ekki myndast. Allt má þetta heita eðlilegt þegar haft er í huga hversu gríðarleg umskipti hafa átt sér stað í Póliandi á aðeins rúmum tveimur árum. Niðurstaða kosninganna er því ekki áfellisdómur yfir lýðræðinu í Póllandi en aldrei áður hefur komið fram með jafn skýrum hætti að ný- fijálsu ríkin í Mið- og Austur-Evrópu geta ekki innleitt markaðshagkerfí og efnahagsumbætur án þess að til komi stórfelld aðstoð og fjárfestingar erlendis frá. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991 Fiskiþing: Lýst yfír stuðningi við nú- verandi fiskveiðistj ómun Lagt til að athugað verði hvort framsal aflaheimilda leiði til tilætlaðarar hagræðingar og eða byggðaröskunar FISKIÞING lýsti í gær stuðningi við núverandi fiskveiðistjórnun með samþykkt ályktunar þess efnis, að aflamarksleið sé heppilegust þeirra leiða, sem þekktar eru í dag við stjórn fiskveiða. Samþykkt þessarar ályktunar vakti mikla reiði meðal þeirra, sem undir urðu í atkvæða- greiðslunni, enda töldu þeir að með því að leggja hana fram hefðu flytjendur hennar brotið samkomulag, sem gert hafði verið í sjávarút- vegsnefnd. Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ, segir að með þessu hafi Fiskiþing í raun samþykkt auðlindaskatt á útgerðina, þar sem óheft sala á óveiddum fiski geti ekki leitt til annars. Sjávarútvegsnefnd Fiskiþings lagði fram ákveðna tillögu um stjórn fiskveiða sem var svo hljóðandi: „50. Fiskiþing gagnrýnir þær mót- sagnir, sem koma fram í 1. grein laga um stjórnun fiskveiða nr. 38/1990, þar sem segir að nytja- stofnar á íslandsmiðum séu sam- eign íslenzku þjóðarinnar. Fram- kvæmdin er síðan sú að skipa- og bátaeigendum er úthlutað veiði- heimildum sem framseldar eru, bæði fyrir eitt ár í senn og til endan- legrar eignar þeirra sem kaupa. Þrátt fyrir að seinna í sömu grein standi: „Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiði- heimildunum.” Lögð verði áherzla á að athuga mun betur samverkandi áhrif hinna ýmsu veiðarfæra og athuga skiptingu afla í hin ýmsu veiðarfæri. Þingið mótmælir þeirri röskun sem óhjákvæmilega verður í atvinnumálum landsbyggðarinnar með hinum nýju kvótalögum, sem leitt hafa til sölu fjölda smábáta. Fiskiþing bendir á að framkvæmd laganna í núverandi mynd getur kippt grundvellinum undan búsetu manna í heilum byggðarlögum, sem byggja afkomu sína á veiðum og vinnslu. Fiskiþing óskar eftir að lög- in verði tekin til endurskoðunar með tilliti til ofangreindra staðreynda og byggðarlögum verði á einhvern hátt bættur skaðinn.” Jafnframt kom frá nefndinni svohljóðandi tillaga: „50. Fiskiþing álítur í sambandi við endurskoðun laga um stjóm fisk- veiða, komi einungis til álita saman- burður á aflamarksleið og sóknar- marksleið við stjórnun fiskveiða. Fiskiþingið felur stjóm Fiskifélags- ins að tilnefna fjóra menn úr sínum hópi til að vera fiskimálastjóra til ráðuneytis í málinu.” Allir fulltrúar sjávarútvegsnefndar rituðu nöfn sín undir þessar tillögur. Þriðja tillagan, og sú, sem sam- þykkt var, kom svo frá minnihluta sjávarútvegsnefndar, þeim Eiríki Tómassyni, Grindavík, Kristjáni Ásgeirssyni, Húsavík, Soffaníasi Cecilssyni, Gmndarfírði, og Sveini Hirti Hjartarsyni, hagfræðingi LÍÚ, auk Hjartar Hermannssonar frá Vestmannaeyjum Hún er svohljóðandi: „50. Fiski- þing telur að fiskveiðistjórn með aflamarksleið sé heppilegust þeirra leiða, sem þekktar era í dag við stjórn fiskveiða. Við endurskoðun laga nr. 38/1990 um stjómun físk- veiða verði sérstaklega athugað hvort framsalsrétturinn leiði til þeirrar hagræðingar, sem að var stefnt og hvort hann leiði til byggða- röskunar.” Tillaga Eiríks og félaga var sam- þykkt eftir miklar umræður með 16 atkvæðum gegn 8 eftir að breytingartillaga við hana hafði ver- ið felld. Deilur manna snerast urn mögulega byggðaröskun vegna sölu aflakvóta, líkumar á auðlindaskatti með óheftu framsali kvóta; hvort tilætluð hagræðing næðist með nú- verandi veiðistjómun og hvórt og hve mikið þyrfti að fækka í flotan- um. Eiríkur Tómasson frá Grindavík lýsti sig strax mótfallinn tillögu sjávarútvegsnefndar um fiskveiði- stjómun. Hann sagðist ekki geta séð að fiskveiðistjórnunin og fram- sal aflaheimilda kippti grundvellin- um undan byggðarlögunum. For- kaupsréttur þeirra hamlaði gegn því. Mest breyting hefði þó orðið á Suðumesjum og þar hefðu fallið út fyrirtæki, þar sem reksturinn hefði ekki verið í lagi. Það væri sú stefna stjórnvalda að halda sjávarútvegin- um ætíð við eða undir hungurmörk- um, sem réði því að afkoman í út- veginum væri jafn slæm og raun bæri vitni svo og minnkandi afla- heimildir. Kvótakerfið hefði þar ekkert að segja. Hann varaði jafn- framt við því að fækka skipum um of og sagði að alls ekki mætti miða flotastærðina við jafnskertar afla- heimildir og við byggjum nú við. Þá benti hann á að fjarstæða væri að ætla að í sjávarútveginum væri Frá Fiskiþingi einhver gróði til að leggja á auðlind- askatt. Jónas Haraldsson, lögfræðingur LÍÚ, lýsti sig einnig andvígan til- lögu sjávarútvegsnefndar og sagðist hlynntur aflamarksleiðinni. Hún Trillukarlar á Snæfellsnesi vilja breytingar á lögum um sljóm fískveiða: Mesta kapphlaup frá því Okla- homa var opnuð fyrir landnámi TRILLUKARLAR á Snæfellsnesi hafa afhent Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráðherra áskorun um að úr gildi verði fellt bráðabirgðaá- kvæði í lögum um sljórn fiskveiða þar sem kveðið er á um skiptingu kvóta á milli smábáta á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 1994. Til þessa ákvæðis verður gripið ef hlutdeild smábáta, báta undir sex tonnum á krókaleyfi, í heildarbotnfiskafla hefur vaxið um meira en 25% að meðaltali á árunum 1991-1993 miðað við þá aflahlutdeild sem þeir áttu kost á í ár og verður þá miðað við afla hvers og eins á þessu þriggja ára tímabili. Undir áskorunina rita 132 trillukarlar á Snæfellsnesi. í formála að áskorun Snæfelling- anna segir að vegna umrædds ákvæðis hafi gripið um sig geigvæn- legur ótti hjá tillukörlum landsins. „Ottast nú hver um sinn hag, og keppir hver sem betur getur um sem stærsta hlutdeild af þessari dýr- mætu köku. Hafið er nú mesta kapphlaup sögunnar, síðan Okla- homa var opnuð fyrir landnámi. Um afleiðingar þessa kapphlaups þarf ekki að efast lengur. Menn æða á miðin í tvísýnum veðrum og mæta jafnvel mikið stærri bátum, sem era á landleið vegna veðurs. Sumir sem gera út minnstu bátana og róa að öllu jöfnu eingöngu í sumarfríum sínum allra blíðustu sumarmánuð- ina, keppast nú við að útbúa þessi pínulitlu horn með línuspili og gera nú út á línu á hörðum vetrarmánuð- um, þegar allra veðra er von fyrir- varalaust. Þeir róa með eins og kemst í bátana af línu, og ræðst það síðan af veðri og flskiríi hvort nokkuð spyrst til þeirra meir. Bar- áttan hjá flestum trillukörlum stendur um það, hvort hlutdeild þeirra að loknu kapphlaupinu reyn- ist nægileg til þess að þeir og þeirra fjölskyldur geti lifað af, eða hvort þeir neyðist til að selja frá sér lífs- björgina til stóru togaraútgerðanna og fara sjálfir á vergang. Og marg- ir geta ekki einu sinni selt aflaheim- ild fyrr en að fimm árum liðnum, samkvæmt reglugerð um nýjustu bátana.” í áskoruninni er lagt til að króka- veiðarnar verði framvegis gefnar fijálsar að öðru leyti en því að þeim verði einungis stjórnað með daga- takmörkunum. væri hagkvæmust fyrir þjóðfélagið. Framsalsrétturinn væri nauðsynleg- ur, en menn yrðu að gæta þess að keyra flotastærðina um of niður. Hann sagði að menn mættu ekki kenna kvótakerfinu um erfiðleik- ana, þar réði einfaldlega fiskskort- urinn. „Skip verða líka alltaf seld og hafa ailtaf verið, líka fyrir kvóta- kerfið. Vandamál í útgerð verða alltaf til og skip seld vegna þess, hvort sem veiðum er stjórnað með framseljanlegum aflaheimildum á skip eða ekki,” sagði Jónas. Marías Þ. Guðmundsson, stjórnarmaður í Hrönn hf. á ísafirði, sagði það hafa verið mistök í núgild- andi Iögum að skip skyldu ekki úr- elt, þegar aflaheimildir hefðu verið seldar. Þau sæktu þá í tegundir utan kvóta, en það væru þau skip, sem hefðu veiðheimildir, alveg fær um að gera. Reynir Traustason frá Flateyri sagði kvótakerfið fela í sér óskap- lega mismunum, þar sem menn væru ýmist negldir niður í örbirgð eða allsnægtir. Kaup og sala veiði- heimilda væri mikið áhyggjuefni, einkum hvað varðaði smærri byggð- ir, sem væru algjörlega háðar sjávarútvegi. Það væri stórkostleg brenglun í núverandi kerfi, en menn þyrðu bara ekki að segja það. „Flestir okkar vilja sjá landið í byggð, en vandinn sem að því steðj- ar er kvótakerfið er eins og það er í dag,” sagði Reynir. Hann sagði- að sóknarstýring væri eini raunhæfí kosturinn við fískveiðistjórnunina. Nú jaðraði við upplausn í þjóðfélag- inu vegna umræðunnar um hömlu- lausa sölu óveidds físks og hún end- aði líklega hvergi annars staðar en í auðlindaskatti. Tryggvi Gunnarsson frá Vopnafirði sagðist fylgjandi kvóta- kerfinu, en væri á móti sölu á óveiddum fiski. Þar væri ekki um annað að ræða en hreinan þjófnað útgerðanna frá þjóðinni, sem ætti fiskinn lögum samkvæmt. Óheft framsal afla hlyti að valda byggða- röskun og það yrði að stöðva. Tómas Þorvaldsson, Grindavík, sagði það einkennilega þróun að fulltrúar æðstu menntastofnunar þjóðarinnar skyldu ganga jafn- harkalega fram gegn hagsmunum sjávarútvegsins og raun bæri vitni. Þar færi hópur öfgamanna, sem einskis léti ófreistað til að hrópa á auðlindaskatt til að koma höggi á fólkið, sem ætti afkomu sína undir fiskvinnslu og útgerð. Hann væri sjálfur á móti því að hægt væri að selja óveiddan físk, enda hefðu menn ekki gert ráð fyrir þeim mögu- leika, þegar kerfíð hefði verið sam- þykkt á sínum tíma. Olafur Gunnarsson, Ólafsvík, sagði að framsalið væri aðalágrein- ingsefnið og margt gæti breytzt í tímans rás. Verð á óveiddum fiski væri nú of hátt vegna takmarkaðra aflaheimilda og væri langt fyrir ofan svokallað rekstrarverð, en hann teldi að með tímanum myndi fram- boð og eftirspurn leita jafnvægis. Hann taldi réttast að fara afla- marksleiðina fyrst um sinn, en endurskoða yrði ákvæðið um fram- sal aflaheimilda. Guðjón A. Krisljánsson, forseti FFSI, sagði sóknarmarkið einu færu leiðina við fiskveiðistjórnun vildu menn komast hjá því að fá á sig auðlindaskatt. Það hefði aldrei verið hugsun manna að hægt yrði að selja kvótann. Nú væri það réttlætt með tízlufyrirbrigðinu hagræðingu og allir ættu að hagræða sér til and- skotans. Vandinn væri bara ekki leystur með hagræðingu sem tæki fjögur ár eða meira. Byggðirnar yrðu komnar á hausinn miklu fyrr. Hann sagði nauðsynlegt að eitthvað fækkaði í flotanum, en út í hött' væri að miða stærð hans við veiði- heimildir nú, því þá væri fjarri því að mögulegur afli næðist, þegar þorskstofninn hjarnaði við á ný. Þorskafli hefði sveiflazt nokkuð reglulega áratugum saman og virt- ist sem niðursveiflunni væri venju- lega náð á þremur árum. „Við verð- um að hætta svartnættisþruglinu og skapa flotanum verkefni, meðal annars, við vannýtta fiskistofna eins og gulllax. Það var ekki byijað stórt í rækjunni, en í dag er hún ein okkar mikilvægustu auðlinda. Við þurfum að bretta upp ermarnar og taká til verka,” sagði Guðjón. Logi Jónsson, frá Vestmanna-K eyjum taldi réttast, að þingið sam- þykkti tillöguna þess efnis að skoða bæri bæði sóknarmark og aflamark sem raunhæfan kost við fiskveiði- stjórnun, aðrar ekki. Kristján Loftsson útgerðarmað- ur sagðist hlynntur sóknarmarkinu, en með því mætti ná betri og ásætt- anlegri tökum á fiskveiðistjóminni. Kvótakerfið dygði einfaldlega ekki til þess auk þess sem hættan á auðlindaskatti yrði minni með sóknarmarkinu. Kristján Ásgeirsson, Húsavík, sagðist hlynntur aflamarkinu þó deilt væri um framsalið. Hann sagð- ist ekki sjá, að sóknarmark væri betra fyrir byggðarlögin og heldur ekki að það bægði frá hættunni á auðlindaskatti. Stærsti vandinn í dag væri slæm afkoma útgerðar og fískvinnslu og stærstur hluti fyrir- tækjanna ætti í greiðsluerfíðleikum. Samdráttur þorskveiðiheimilda um 20% hefði þar auðvitað mikil áhrif. Þrír einsöngvaranna. F.v.: Þorgeir Andrésson, Björk Jónsdóttir og Þóra Einarsdóttir. Morgunbiaðið/Ámi Sæberg Kór Langholtskirkju: Kantata á Allra heilagra messu KÓR Langholtskirkju mun flytja kantötu nr. 131 eftir J.S. Bach við messu í kirkjunni á morgun kl. 14. Flutningurinn er á vegum Minningarsjóðs Guðlaugar B. Pálsdóttir en tilgangur hans er meðal annars að styrkja Kór Langholtskirkju. I fyrra fengu tveir söngnemendur, þau Björk Jóns- dóttir og Ragnar Davíðsson, styrk úr sjóðnum. Þau hófu söngferli sinn með Kór Langholtskirkju og cru einsöngvarar með kórnum að þcssu sinni. Kantatan verður ásamt kantötu nr. 21 endurflutt kl. 17.00 á sunnu- Sigurður Kristjáns- son sýnir í Galleríi 8 SIGURÐUR Kristjánsson listmál- ari opnar I dag málverkasýningu í Galleríi 8, Austurstræti 8. Sig- urður er 94 ára að aldri. Hann hélt síðast sýningu 1970, en sýnir nú myndir, sem langflestar hafa aldrei verið sýndar áður. Sigurður er fæddur 1897 í Mið- húsum í Garði, sonur hjónanna Kristjáns Sigurðssonar og Ingveldar Magnúsdóttur, Þórarinssonar út- vegsbónda, sem þá bjó í Miðhúsum. Tveggja ára gamall fluttist hann með foreldrum sínum til Reykjavík- ur. Árið 1918 fór hann til Kaup- mannahafnar og lærði þar teikningu og húsgagnasmíði. Hann vann sjö ár að iðn sinni í Danmörku og Sví- þjóð og var svo fjögur ár í siglingum um heiminn. Meðal annars dvaldist hann nokkra mánuði í Suður-Amer- íku og á Ítalíu. Sigurður vann í mörg ár á smíða- vinnustofu Reykjavíkurbæjar og á eigin vinnustofu, þar sem hann vann að listmunaviðgerðum, bæði fyrir söfn og almenning, auk þess sem hann vann að eigin list. Hann hélt ýmsar sýningar á árunum 1961 til 1970. dag. Talið er að J.S. Bach hafí samið kantötu nr. 131 árið 1707 þegar hann var organisti í Múhlhausen en ekki eru til námkvæmar heimildir um tilurð kantötu nr. 21. Margt bendir þó til hann hafí samið hana þegar hann sótti um organistastöðu í Halle 1713. Björk Pálsdóttir, einn einsöngvaranna á sunnudaginn, sagði í samtali við Morgunblaðið að kantöturnar yæri einstaklega fallegar. „Þær eru með því fallegasta sem maður heyrir. Tónl- istin er róandi en um leið upphe- fjandi. Annars er erfítt að útskýra hughrifin. Þau verða til á tónleikun- um, sérstaklega ef vel er flutt og við gerum auðvitað okkar besta.” Auk þeirra Bjarkar og Ragnars sem áður hafa verið talin upp syngur Þor- geir Andrésson tenórhlutverk en hann syngur um þessar mundir hlutverk Taminós í Töfraflautunni í uppfærslu íslensku óperannar. Þá syngja tveir kórfélagar, þau Harpa Harðardóttir og Þóra Einarsdóttir, einsöng. Kamm- ersveit Langholtskirkju leikur með, skipuð 20 hljóðfæraleikurum. Kon- sertmestari er Júlíana Elín Kjartans- dóttir. Hjónin Ólöf Karvelsdóttir og Páll Pálsson stofnuðu Minningarsjóð Guð- laugar B. Pálsdóttur árið 1986 en það ár lést dóttir þeirra, Guðlaug Björg, af slysförum. Hlutverk sjóðsins er meðal annars að efla tónleikahald Kórs Langholtskirkju en Guðlaug var um árabil í hópi kórfélaga. Er gamall trommu- leikari á viUigötum •• - segir Hilmar Orn tónlistarmaður HILMAR Örn Hilmarsson tónlistarmaður sem hlýtur Felixinn, evrópsku kvikmyndaverðlaunin, fyrir tónlist sína við kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, hefur samið tónl- ist við fjölmargar kvikmyndir og sjónvarpsleikrit undanfarin ár. Einnig bjó hann í Bretlandi og vann þá með ýmsum breskum tónlistarmönnum. í samtali við Morgunblaðið sagði Hilmar Öm að áhugi hans á tónlist hefði verið vakinn í frum- bernsku af Páli ísólfssyni sem bjó í sama húsi. „Þessi áhugi var þó mistúlkaður á þann veg að ungur var ég neyddur til þess að stunda nám í píanó- og fiðluleik. Mér leiddist námið og skrópaði oftar en ekki í tónlistartímana. Það getur þó vel verið að þama hafi ég smitast af tónlistarbakteríunni sem heltók mig á unglingsárun- um. Fimmtán ára gamall byijaði ég að spila á trommur með hinum og þessum bílskúrshljómsveitum. Þegar ég var sautján eða átján ára ákvað ég að leggja trommukjuðana á hilluna og fara að vinna að hugmyndafræðilegum verkefnum á sviði tónlistar þannig að segja má að ég sé gamall trommuleikari á villigötum. Eg samdi meðal annars texta fyrir hljómsveitina Þey og tók þátt í að móta tónlistarstefnu hennar. Árið 1982 ákvað ég að taka mér langt hlé frá tónlist. Það varaði þó ekki lengur en svo að árið eft- ir var ég kominn á kaf í vinnu á sviði hvers konar hljóðtækni fyrir ýmsa aðila og má þar meðal ann- ars nefna ensku hljómsveitina Phychic-TV en tónlist hennar þótti mjög framsækin. í framhaldi af vinnu minni fyrir Phychic-TV bár- ust mér fleiri tilboð og fluttist ég til Lundúna í árslok 1984 til þess að sinna þeim. Næstu árin vann ég með ýmsum breskum tónlistar- mönnum og má þar nefna Dave Ball í hljómsveitinni Softcell en saman gáfum við út diskóplötuna No Pain.” Hilmar Örn sneri aftur til ís- lands árið 1986 og síðan hefur hann aðallega fengist við að semja tónlist fyrir kvikmyndir og sjón- Hilmar Örn Hilmarsson tónlist- armaður. varp. „Eftir heimkomuna tók ég að mér að semja tónlist við sjón- varpsleikrit Kristínar Jóhannes- dóttur, Lífí til einhvers, og fann þá að samning kvikmyndatónlist- ar átti mjög vel við mig. Síðan hef ég aðallega fengist við svipuð verkefni eins og t.d sjónvarpsleik- ritin Flugþrá og englakroppa, Nóttina já nóttina og Glerbrot ásamt kvikmyndinni Skyttunum. Á síðustu áram hef ég einnig séð um upptökustjóm á plötum Bubba og Megasar en auk þess, mér til mikillar ánægju, unnið sem ólaun- aður upptökumaður hjá fjöldanum öllum af ungum hljómsveitum.” Hilmar Örn segir starf við kvik- myndatónlist flóknara en marga gruni. „Öll venjuleg tónskáld ráða lengd verka sinna og semja eftir innblæstri hveiju sinni. Hjá kvik- myndatónlistarmönnum er þessu öðruvísi farið. Ég verð að semja verk mín með það í huga að þau auki áhrif viðkomandi myndar og hef því ekki eins fijálsar hendur og venjulegt tónskáld. Mér þykir ekki skemmtilegt að vinna en það vill bara svo til að tónlistarvinna er það sem ég á auðveldast með að inna af hendi. í rauninni er ég latasti maður í heimi og hið eina sem mér finnst skemmtilegt er að liggja uppi í sófa og lesa saka- málasögur. Að sjálfsögðu þykir mér ánægjulegt að hafa unnið til þessara verðlauna og ég vonast eftir að þau verði til þess að ég fái fleiri verkefni og þægilegan frama á tónlistarsviðinu. Gangi það eftir verður þess ekki langt að bíða að ég verði feitur og ríkur og í aðstöðu til þess að sinna því sem mér fínnst skemmtilegast, þ.e. flatmaga í þægilegum sófa f og lesa sakamálasögur.” Um þessar mundir fæst Hilmar Örn við að semja tónlist fyrir kvik- mynd Kristínar Jóhannesdóttur Svo á jörðu sem á himni. Hann á von á því að vera bundinn við þetta verkefni fram í maí á næsta ári en óvíst er hvað hann tekur sér fyrir hendur að því loknu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.