Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991
19
Ríó-tríóið:
Gera plötu til ágóða
fyrir landgræðslu
RÍÓ-tríóið afhenti Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra 20.000
eintök af hljómplötunni Landið fýkur burt s.l. fimmtudag, en
platan verður seld um allt land á næstunni til ágóða fyrir land-
græðslu. Liðsmenn tríósins gefa vinnu sína við plötuna. Kaupþing
fjármagnar útgáfuna og Lionsmenn munu sjá um sölu hljómplöt-
unnar. Söluátak mun standa fram til 23. nóvember, meðal annars
með aðstoð Rikisútvarpsins, sem senda mun út sérstaka þætti af
þessu tilefni. Platan fer ekki í almenna sölu fyrr en að söluátak-
inu loknu.
Sveinn Runólfsson, landgræðsl-
ustjóri, sagði á blaðamannafundi,
sem haldinn var í tilefni útgáfu
hljómplötunnar, að gróður- og
jarðvegseyðing varðaði þjóðina
alla. „Það er því mikils um vert
að sem flestir taki virkan þátt í
landgræðslustörfum, bæði ungir
sem aldnir. Þeir yngri til að kynn-
ast vandamálunum, sem við er að
etja, og við hinir eldri til að öðlast
skilning og áhuga á að leysa vand-
ann og leggja okkar af mörkum,
hvort sem það er ijármagn eða
aðgerðir til úrbóta,” sagði Sveinn.
Hann sagði að landgræðslustarfið
ætti meðbyr að fagna um þessar
mundir og sagðist hvetja alla til
að taka vel á móti sölufólki, sem
myndi falbjóða plötuna.
Helgi Pétursson, einn Ríó-
manna, sagði að hugmyndin að
titillagi hljómplötunnar, Landið
fýkur burt, og texta þess, hefði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ríó-menn ásamt landgræðslustjóra. Frá vinstri: Ágúst Atlason, Sveinn Runólfsson, Ólafur Þórðar-
son, Gunnar Þórðarson, sem semur öll lögin á plötunni, og Helgi Pétursson. Jónas Friðrik Guðna-
son, sem gerði textana, gat ekki verið viðstaddur.
orðið til í samtali hljómsveitar-
manna um málefni landgræðslu.
Hann sagði að platan væri fyrst
og fremst persónuleg kveðja Ríó-
manna, sprottin úr þeirra eigin
reynslu, því að þeir hefðu eins og
aðrir landsmenn velt fyrir sér gróð-
ur- og landeyðingu.
Daníel Þórhallsson mælti fyrir
munn Lions-hreyfingarinnar og
sagði Lionsmennláta sig flest
framfaramál einhveiju skipta.
Hann sagði að til þess að komast
yfir að ganga með hljómplötuna í
öll hús hefðu Lionsmenn fengið
11 og 12 ára skólabörn til liðs við
sig. Börnunum yrðu ekki greidd
sölulaun, heldur yrði þeim næsta
vor boðið í ferðalag austur í Gunn-
arsholt, í höfuðstöðvar Land-
græðslu ríkisins, og yrði þeim
bæði sýnt örfoka land og svæði,
þar sem tekizt hefði að snúa vörn
í sókn.
Landið fýkur burt er gefin út á
hljómplötu, hljómdiski og hljóð-
snældu.
EPTA-tónleikar í Garðabæ
SÍÐARI píanótónleikar Eddu
Erlendsdóttur á vegum Evrópu-
sambands píanókennara verða
haldnir laugardaginn 2. nóvem-
ber kl. 17.00 í Kirkjuhvoli í
Garðabæ.
Um síðustu helgi kom út geisla-
diskur með leik Eddu, þar sem hún
leikur eingöngu píanóverk eftir
C.P.E. Bach, en þetta er fyrsti disk-
urinn með verkum eftir þennan
höfund leikinn á nútímapíanó.
Á fyrir hluta tónleikanna leikur
Edda tvær sónötur og fantasíu eft-
ir C.P.E. Bach, en á þeim síðari
tuttugu valsa op. 9a og sónötu í
a-moll op. posth. 164 eftir Schubert.
Edda Erlendsdóttir
■ AÐALFUNDUR Samtaka
bæjar- og héraðsfréttablaða var
haldinn í Vestmannaeyjum helgina
18.-20. október sl. í samtökunum
eru sextán bæjar- og héraðsfrétta-
blöð. Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru þijú fræðsluerindi flutt
á fundinum. Gestur Traustason
frá Tölvustofunni fjallaði um tölvu-
væðingu blaða með Macintosh, Sig-
uijón Jóhannsson, útlitshönnuður
og fjölmiðlakennari, flutti erindi um
fyrstu dagblöðin á íslandi og gaf
umsögn um bæjar- og héraðsfrétta-
blöðin. Svohljóðandi ályktun var
samþykkt samhljóða: „Áðalfundur
Samtaka bæjar- og héraðsfrétta-
blaða, haldinn í Vestmannaeyjum
18. til 20. október 1991, lýsir yfir
ánægju sinni með þá ákvörðun fjár-
málaráðherra, að segja upp því eina
eintaki af hveiju aðildarblaði sam-
takanna sem keypt var. Aðalfund-
urinn hvetur stjórnvöld til að stíga
skrefið til fulls, segja upp öllum
fjölmiðlaáskriftum og afnema alla
flokkspólitíska útgáfustyrki. Þar
með sitja allir fjölmiðlar við sama
borð. Aðalfundur Samtaka bæjar-
og héraðsfréttablaða ítrekar, að
blöð innan samtakanna vilja standa
á eigin fótum, án ríkisstyrks. Engu
að síður álítur fundurinn að hið
opinbera mætti í mun ríkara mæli
en gert er, nýta sér þá þjónustu sem
blöðin bjóða upp á.” Ný stjórn var
kjörin á aðalfundinum. I henni eiga
sæti: Sigurður Sverrisson,
Skagablaðinu, formaður, Fríða
Proppé, Fjarðarpóstinum, ritari,
Gísli Valtýsson, Fréttum, gjald-
keri, ennfremur þeir Páll Ketils-
son, Víkurfréttum og Sigurjón
Sigurðsson, Bæjarins Besta,
Isafirði.
SPEHNANW!
-efþú átl miða!
Sjálfstceðisflokkurinn efnir
til almenns stjórnmálafundar í
Sjallanum á Akureyri sunnadaginn
3. nóvember kl. 15dX).
Rceðurflytja Davíð Oddsson,
forscetisráðherra,
og Halldór Blöndal, landbúnaðar-
og samgönguráðherra.
Frjálsar umræður - fyrirsþumir.
Allir velkomnir.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Halldór Blöndal
Mest seldu rúmin
í Bandaríkjunum.
Flágæða dýnur
í mörgum
veróflokkum.
Marco
Opið virka daga frá kl. 10-18
Langholtsvegi 111. sími 680690. laugardaga frá kl. 10-14.