Morgunblaðið - 28.11.1991, Síða 1
72 SIÐUR B
272. tbl. 79. árg.
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
^rentemiíya^lor^unblaðsins
Armenía-Azerbajdzhan:
Forsetar
lýðveldanna
fallast á frið-
arviðræður
Moskvu. Reuter.
FORSETAR Armeníu og Az-
erbajdzhans, Levon Ter-Petr-
osjan og Ajaz Mútalíbov, féllust
í gær á að hefja friðarviðræður
og sagði Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseti eftir fund sovéska
ríkisráðsins að með því hefði
dregið úr stríðshættu á landa-
mærum lýðveldanna.
Forsetarnir féllust á þá tillögu
ríkisráðsins að hefja tvíhliða frið-
arviðræður, annars vegar milli for-
setanna tveggja og hins vegar
milli viðræðunefnda lýðveldanna
þar sem fulltrúar frá Rússlandi
og Kazakhstan myndu miðla mál-
um.
Ríkisráðið lagði til að reynt yrði
að draga úr líkum á opinni styrj-
öld milli Armeníu og Azerbajdz-
hans með því að fjölga í sérsveitum
sovéska innanríkisráðuneytisins á
átakasvæðum í Nagorno-Kara-
bakh, sjálfstjómarsvæðinu um-
deilda í Azerbajdzhan sem byggt
er Armenum að mestu leyti.
Einnig lagði ríkisráðið til að
þing lýðveldanna tveggja aftur-
kölluðu ákvörðun sína um að taka
öll völd í sjálfstjómarlýðveldinu
N agorno-Karabak.
Reuter
Leiðtogi Khmeranna flýr
Phnom Penh alblóðugur
Khieu Samphan, leiðtogi Rauðu Khmeranna, fékk óblíðar mótttökur
er hann kom í gær til Phnom Penh, höfuðborgar Kambódíu. Andstæð-
ingar hans efndu til mikilla mótmæla, kveiktu í heimili hans og hugð-
ust ganga af honum dauðum en hermenn komu Khieu til bjargar og
hjálpuðu honum alblóðugum að komast aftur úr landi. Myndin var tek-
in er hann klifraði um borð í brynvagn og á innfelldu myndinni má
sjá blóðtaumana niður andlit Khieu.
Sjá „Flýði burt frá Phnom Penh alblóðugur...” á bls. 28.
ísraelar hafna framhaldsviðræðum um frið í bili:
Bandaríkjastjóm neitar
að breyta fundarboðinu
Jerúsalcm, Aninmn, Washington. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN segist ekki getað breytt þeirri ákvörðun sinni
að bjóða ísraelum og aröbum til framhaldsviðræðna um frið í Was-
hington 4. desember. Að sögn Margaret Tutwiler, formælanda banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, munu Bandaríkjamenn halda áfram
undirbúningi til þess að allt verði til reiðu að hefja samningaviðræð-
ur næstkomandi miðvikudag. Israelsstjórn ákvað í gær að hafna í
bili boði Bandaríkjamanna um framhaldsviðræður og heimildarmenn
í ísrael sögðu að farið yrði fram á að þær hæfust ekki fyrr en eft-
ir trúarhátíð gyðinga, Hanukka, sem lýkur 9. næsta mánaðar. „Þetta
er mjög slæmt, ég sé ekki hvaða markmiði það á að þjóna,” sagði
aðalsamningamaður Palestínumanna á ráðstefnunni í Madrid, sem
lagði grunn að viðræðunum.
Abdel al-Shafi neitaði í gær að
tjá sig um það hvort fresturinn sem
Israelar krefjast myndi verða til
þess að Palestínumenn hættu við
þátttöku. Hann sagðist vona að
Bandaríkjastjórn breytti afstöðu
sinni til vegabréfsáritunar PLO-
mannanna.
Sjá „Bush Bandaríkjaforseti
vill samninga um Golanhæð-
irnar” á bls. 28.
Andstæðing-
ar Saddams
fái hernað-
araðstoð
Washingfton. Reuter.
CLAIBORNE Pell, formaður ut-
anríkisnefndar öldungadeildar
Bandaríkjaþings lagði í gær til
að viðskiptabanni Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) gegn írak yrði
fylgt betur eftir og íröskum
stjórnarandstæðingum yrði veitt
hernaðaraðstoð til þess að koma
Saddam Hussein forseta frá.
í skýrslu sem utanríkisnefndin
sendi frá sér í gær er því haldið
fram að Irakar hafi brotið gegn
ákvæðum vopnahléssamkomulags
SÞ, sem batt enda á Persaflóastríð-
ið, með því að flytja mikið af vörum
og tækjum yfir landamærin til ír-
ans. Þar hafi varningurinn verið
seldur á verðlagi sem tíðkaðist helst
á brunaútsölu.
Segir í skýrslunni að jafnvel heilu
verksmiðjurnar hefðu verið teknar
niður og smyglað yfir til írans.
Hefðu flutningarnir farið fram um
svæði sem Kúrdar réðu í írak. Full-
trúi nefndarinnar hafi t.d. séð rúm-
lega 30 stórar gröfur, sjö risastóra
krana, skóflur og hundruð þunga-
flutningabíla í borginni Haj Omran
á landamærum írans og íraks. Þá
liefði löng röð vörubifreiða hlöðnum
vélum og tækjum beðið þess að
komast yfir landamærin. Að hluta
kunni að hafa verið um stolinn varn-
ing að ræða en uppistaðan hafi ver-
ið frá svæðum sem herir Saddams
hefðu á valdi sínu.
í skýrslunni er sagt að íraskir
stjórnarandstæðingar sem gjör-
þekki jórdönsk efnahagsmál haldi
því fram að engir séu þó fremri
Jórdönum í því að bijóta vopnahlés-
samkomulag SÞ.
Loks kemur fram í skýrslunni að
fjöldagrafir hefðu fundist í Kúrdist-
an að undanförnu sem þykir benda
til þess að allt að 182.000 Kúrdar,
sem talið var að hefðu verið fluttir
til suðurhluta íraks eftir 1988,
hefðu verið myrtir.
Adel Abba, leiðtogi íraska komm-
únistaflokksins, sagði í gær að ýmis
samtök íraskra stjórnarandstæð-
inga áformuðu að herða baráttuna
gegn Saddam og stjórn hans á
næstunni. Nefnd sem falið hefði
verið að samræma aðgerðir myndi
senn hittast í írak til þess að leggja
á ráðin gegn Saddam.
Heimildarmenn í Israel sögðu að
jafnframt því sem ísraelar vildu að
viðræðunum yrði frestað myndu
þeir krefjast þess að þær yrðu flutt-
ar fljótlega til vettvangs í Miðaust-
urlöndum. Þeirri kröfu hafa arabar
áður hafnað. Samningamaður Pal-
estínumanna, Haidar Abdel al-
Shafi, fordæmdi yfirlýsingu ísraela
og sagðist halda að ríkisstjórn Yitz-
haks Shamirs væri með þessu að-
eins að tefja fyrir viðræðunum.
„Hvað er hægt að gera ef þeir eru
ófærir um að taka ákvörðun?”
spurði al-Shafi.
Tutwiler, sagði í gær að Banda-
ríkin myndu ekki sætta sig við nein
skilyrði af hálfu viðræðuaðila. Að-
eins Jórdanir og Líbanir hafa til
þessa tekið boði Bandaríkjamanna
um framhaldsviðræður í Washing-
ton. Sýrlendingar hafa ekki svarað
enn og Palestínumenn hafa að vísu
ákveðið að taka boðinu en vilja að
ráðgjafar úr röðum liðsmanna
Frelsissamtaka Palestínu (PLO) fái
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna,
svo að þeir geti þannig tekið óbein-
an þátt í viðræðunum. Israelar neita
að ræða við PLO sem þeir álíta
hryðjuverkasamtök. Talið er að yf-
irlýsing Tutwilers um skilyrði merki
að áðurnefndir ráðgjafar PLO fái
ekki vegabréfsáritun. Bandaríkin
slitu samningaviðræðum við PLO í
fyrra í mótmælaskyni við árásir
eins skæruliðahóps samtakanna á
baðstrandargesti í ísrael.
Yance undirbýr komu frið-
argæslusveita til Júgóslavíu
New York. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna (SÞ) samþykkti einróma í
gærkvöldi að senda Cyrus Vance, sérlegan fulltrúa sinn, til Júgó-
slavíu til þess að undirbúa hugsanlega komu friðargæslusveita
SÞ til átakasvæða i Króatiu.
Vance mun eiga viðræður við
fulltrúa Serba og Króata og að
þeim loknum leggja á ráðin um
hvort öryggisráðið eigi að verða
við óskum stríðsaðila og senda
friðargæslusveitir til Júgóslavíu.
Heimildarmenn hjá öryggisráð-
inu sögðu í gærkvöldi að Vance
aðhylltist að friðargæslusveitum
yrði komið fyrir við helstu átaka-
svæði. Sendiherra Júgóslavíu hjá
Sameinuðu þjóðunum fór í gær
fram á íhlutun SÞ í landinu. Sam-
bandsherinn ræður stórum hluta
Króatíu og vilja Serbar að friðar-
gæslusveituin verði komið fyrir á
mörkum yfirráðasvæðanna en
Króatar vilja að þær taki stöðu á
upprunalegum landamærum
Króatíu og Serbíu.
Vance, fyrrum utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fékk Serba
og Króata um helgina til þess að
fallast á nýtt vopnahlé og hefur
það í megin atriðum haldist. í
samþykkt öryggisráðsins var
hvatt til þess að deiluaðilar í Júgó-
slaviu virði að fullu ákvæði vopna-
hléssamkomulagsins. í því felst
að þjóðvarðiið Króatíu aflétti um-
sátri um herstöðvar sambands-
hersins og að Serbar hefji brott-
flutning hersins frá Króatíu.