Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991 Dulfegnrð fortíðar Myndlist_____________ Bragi Asgeirsson Fortíðin á sér jafnan viss dul- armögn, gædd einhveijum óræð- um seið og saknaðarkennd, og þetta allt er dregið saman í eitt orð í útlendum málum og nefnist þá „nostalgia”, en hefur veri útlagt sem heimþrá á íslenzku. Hugtakið „heimþrá” segir þó engan veginn allt, því að heim- þráin getur verið tii heimalands- ins, æskustöðvanna eða einungis heim úr vinnunni eða skólanum og hefur þá næsta lítið með fort- íðina að gera. En í myndum Karólínu Lárus- dóttur, sem búsett hefur verið í Englandi um árabil rennur þetta saman í eitt og verður hvoru- tveggja að heimþrá og dulrömm- um söknuði til fortíðarinnar. A sýningu hennar í listhúsinu Borg er myndefnið að stórum hluta sótt til samnefnds hótels við hliðina, sem starfað hefur í rúma sjö tugi ára og móðurafi hennar reisti af miklum stórhug. Við þetta hótel eru trúlega tengdar miklar endurminningar frá bernsku- og þroskaárum og þær hafa yfir sér annað yfir- bragð en borgarbúa almennt, sem flestir sækja þangað einhver minningarbrot. Annars konar yfirbragð hlýju, ástúðar og kær- leika. Allt þetta kemur fram á sýn- ingunni, sem samanstendur af 26. olíumálverkum og stendur til 3. desember. I myndum Karólínu Lárus- dóttur er lagt á borð á Hótel Borg, búið um rúm og boðið upp í dans. Góði risinn á hótelinu er mættur til leiks, og sérrí tvær virðulegar amerískar konur, bak- stigann og turninn, og auk þess dansa kokkarnir cig kvöldvaktin hefur tekið við. Á þennan hátt vekur hún til lífsins gamlar endurminningar og gæðir þær römmum seið hinna löngu liðnu daga er lífið var ungt en heimur- inn stór, nálægðin mikil og fjar- lægðirnar óttablandnar en óraunhæfar. Haldi maður áfram sér í ferða- menn á Þingvöllum, straukonu á Laugarvatni, dansað er á þjóðhá- tíðardaginn, engill til manns úti í iðjagrænni náttúrunni, spákona hugsar djúpt, kápusali breiðir úr sér og kona er á mjög góðum stað. Við höfum þar með skyggnst inn í viðfangsefnin, en málverkið sjálft segir aðra sögu og hér ein- kennist útfærslan af einhveiju samblandi dulfegurðar og berns- kri hugsun, þar sem fólk virðist ekki.einu sinni jarðtengt heldur gefur þyngdarlögmálinu langt nef, svífur um og tekst á loft. Karólina Lárusdóttir Myndirnar eru fallega málað- ar og augljóst er að Karólína hefur sótt í sig veðrið sem mál- ari og eru hér myndir eins og „Bið” (2), „Kona kaupir fisk” (3), „Lagt á borð á Hótel Borg” (9), „Kvöldvaktin” (10) og „Bak- stiginn á Hótel Borg” (21) til vitnis um það, því að í þessum myndum er liturinn safaríkari og pensilförin mýkri en áður og á það einkum við fyrstnefndu myndina. Fyrir mitt leyti held ég mest upp á vatnslitamálarann og graf- íklistamanninn Karólínu Lárus- dóttur, en nú virðist málarinn vera að knýja fast og frekjulega á og má svo fara að það beri dijúgan árangur fyrr en varir. Stjömuhröp Það er stutt síðan Erla Þórarins- dóttir lokaði dyrum sýningar sinnar í Norræna húsinu, og nú er hún komin aftur með sýningu, en að þessu sinni í sýningarhorni Sævars Karls, að Bankastræti 9. Þetta verður að teljast sýningar- gleði í efri kantinum, en það skal þó viðurkennt að margur sem ekki leggur leið sína á sýningu í Nor- ræna húsinu, gerir það frekar varð- andi listhús í miðborginni. Að þessu sinni sýnir Erla nokkur málverk, sem eru mjög svipuð þeim í Norræna húsinu og búið er að fjalla um á síðum blaðsins, en svo er hún einnig með eins konar inn- setningu á gólfi sýningarsalarins. Um þessa framkvæmd, sem sækir hugmynd sína í stjörnuhröp, segir Erla: „Stjörnuhröp eru steinar á stærð við sandkorn sem lenda í aðdráttarsviði jarðar og glóðhitna er þeir koma á miklum hraða (10-70 km/sek.) inn í gufuhvolfið. I flestum tilfelium brenna lbftstein- arnir upp áður en þeir ná yfirborði jarðar. Það sem við sjáum er gló- andi Ijósspor eftir braut steinsins. Sá sem sér stjörnuhrap má óska sér, en á óskastund er varkárni beitt; óskir geta ræst.” Erla reynir í verki sínu að fram- kalla áhrif stjörnuhraps á skynsvið skoðandans. Þetta gerir hún með sérstakri lýsingu svo og röð mi- slitra steina á gólfinu, sem hún hefur raðað mjög skipulega. Víst er skipulagningin andstæð ferli loftsteinsins smáa, er verður að stjörnuhrapi, en hins vegar er flók- ið skipulag alheimsins hárnákvæm vísindi, þótt stundum komi fram eins og ósjálfráð rof. En þessi rof eru nú einmitt hluti hins mikla Erla Þórarinsdóttir listamaður. skipulags, eins og t.d. ósýnilegt andrúmsloftið, sem er eins og rof í ómælisvíddum himinhvolfsins þar sem ekkert Iíf þrífst, fæðir af sér margbrotið líf á hinni hörðu og óbifanlegu hringlaga fyrirferð jarð- arinnar. Þetta er óvenjuleg sýning á staðnum og mikið í hana lagt, en lamparnir og yfirlýsingin erta fljót- lega sjóntaugarnar. Hvernig lista- konan hugsar sér svo sambandið á milli stjörnuhraps og verksins er ekki gott að segja og hún gefur skoðandanum ekki nægilega hlut- læga innsýn í hugmynd sína með hinni stuttu vísindalegu útskýr- ingu. Allt um það, þá er framkvæmdin verð allrar athygli og markar nýjar víddir á listferli Erlu Þórarinsdótt- ur. Rummikub metsöluspilið. Rummikub er spiliö sem allir frá 5 ára aldri geta spiiað. Rummikub þar sem jókerinn bregður á leik og gerir spilið spennandi og skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna. GUÐJÓN GUÐMUNDSSON HEILDVERSLUN, SÍMI 65 30 75 P ÚT ERU komnar hjá Erni og Örlygi tvær fróðleiksbækur undir samheitinu Skrýtið og skemmti- legt. Önnur þeirra íjallar um dýrin en hin um mannslíkamann. í kynn- ingu útgefanda segir m.a.: „Þetta eru svonefndar flipabækur en með því er átt við það að síðurnar eru tvöfaldar og á hverri þeirra er flipi sem börnin eiga að lyfta og þá kemur ýmislegt fróðlegt og óvænt í ljós. I bókunum er fjöldi stað- reynda um dýrin og mannslíkamann sem gera menn forviða og orðlausa. Það sem er falið undir flipanum er bæði skemmtilegt og fræðandi.” Hálfdan Ómar Hálfdanarson þýddi bækurnar. ■ ÖRN OG ÖRLYGUR hafa gef- ið út öskju með ýmsum gögnum eftir Gran Lewi og Liz Greene sem eiga að hjálpa fólki að átta sig á eigin persónuleika og annarra og hvernig það getur í framhaldi af því haga lífí sínu. í kynningu útgef- anda segir m.a.: „Þetta eru engin kristalkúlufræði heldur leiðbeinandi upplýsingar og ábendingar. Þessi útgáfa er algjör nýjung hér á landi en askjan hefur áður komið út víða erlendis og vakið mikla athygli og notið mikilla vinsælda. Askjan hefur að geyma 5 hluti (2 bækur, skrif- blokk, blýant og hjól með dýra- hringnum) sem hjálpa fólki að gera nákvæmt stjörnukort á tíu til fímmtán mínútum, án nokkurrar sérþekkingar á reglum og útreikn- ingum stjörnuspekinnar. Með þessu móti öðlast það nýjar og skemmti- legar upplýsingar um eigin per- sónuleika, vina sinna og vanda- manna.” ■ Á FUNDI stjórnar Sálfræð- ingafélags Islands 20. nóvember sl. varð gerð eftirfarandi samþykkt: „Stjórn SÍ: harmar þá ákvörðun HÍK og FÍN að segja sig úr BHM. Stjórn SÍ telur þörf fyrir sterk sam- tök háskólamanna, sérstaklega nú þegar óvissa ríkir um stöðu háskóla- menntunar vegna aðildar Islands að EES. Stjórnin lýsir sig fúsa til viðræðna um samstarf háskóla- manna í framtíðinni.” (Préttatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.