Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991 Ö/Inm þeim, sem með nœrveru sinni og gjöfum heiÖruðu mig á aldarafmœli mínu 18. nóvem- ber sl., flyt ég hjartan/egustu kveðjur og þakkir. Sérstakar þakkir fœri ég systrunum og starfs- fólki sjúkrahússins. Megi guö blessa ykkur öll og farsœla á komandi tímum. Hansína Jóhannesdóttir, Stykkishólmi. ÓÐAL fyrirtækjasala Skeifúnni 11A ® 679999 Lögmaður: Sigurður Sigurjónsson hrl. Söluturn - grillstaður Vorum að fá í einkasölu mjög góðan söluturn og grill- stað í Breiðholti. Góð velta. Mjög góð aðkoma. Besti sölutíminn framundan. Höfum ýmis önnur fyrirtæki á söluskrá Við suðurhöfnina í Hafnarfirði Höfum til sölu iðnaðarhúsnæði sem fæSt í 60 fm eining- um og hentar ýmsum rekstri. Aðkeyrsludyr. Nánari upplýsingar á skrifstofu. HRAUNHAMARhf FASTEIGNA-OG SKIPASALA Reykjavikurvegi 72. Hafnarfirði. S-54511 Sími 54511 Magnús Emilsson lögg. fasteignasali Selvogsgrunnur - einbýli Á einni hæð ca 175 fm steinhús, byggt 1967, ásamt 27 fm bilsk. og lítlu gróðurhúsi. Stórar stofur, arinn. Skjólgóður garður, vel ræktaður m/góðri verönd. Barmahlíð - sérhæð Til sölu mjög góð neðri sérhæð (1. hæð). Hæðin skiptist í forstofu, gott sjónvhol, eldhús, búr (lagt f. þwél.), rúmg. bað, 2 sáml. suðurstof- ur (svalir í suður), 3 svefnherb. þar af 1 forstherb., nýtt gler. Sér bíla- stæði. Ákv. sala. Laus fljótl. í hjarta borgarinnar dýrt klassa-„penthouse”. Lyfta. Glæsil. innr. íb. Útsýni. Lambhóll - Ægisíða Til sölu góð risíb. í steinhúsi í nágr. Háskólans. Útsýni. Ákv. sala. Árkvörn - Ártúnsholti Glæsilegt fjölbýlishús á einum besta byggingarstað í Reykjavík. Ibúðirnar eru vel hannaðar og skilast í des- ember nk. rúmlega tilb. u. trév. Gott útsýni. Traustur byggingaraðili. Fáar íbúðir eftir. Eftirfarandi verðdæmi er miðað við að seljandi taki á sig stóran hluta affalla húsbréfa. Tilb. u. trév. 2ja herb. 53,50 fm 5.350 millj. Tilb. u. trév. 3ja herb. 93,70 fm 7.500 millj. Tilb. u. trév. 4ra herb. 11 ESKIHLÍÐ Mjög falleg 3ja herb. risib. í litlu sambýli. Parket o.fl. Áhv. 2,6 millj. yerð 5,3 millj. MÁVANES - ARIMARNES Stórt «g. giæsilegt eirfbhús rúmi. 300 fm-ásamt 47 fm bílsk. Húsið -stendur é sjóvarlóð ög $r í góðu standi. Nánari uppl. ésamt teikn. á skrifst. okkar. 7,80 fm 8,600 millj. STÓRHOLT Tæplega 70 fm falleg 3ja herb. íb. á góðum stað í nýlegu húsi. Verð 6,9 milli. HRAUNBÆR Falleg og'rúmg. 2ja herb. íb. ca 57 fm á 1. hæð í góðu og -end- urn. fjölbhúsi. Nýtt eldh. o.fl. Suð- ursv. Verð 5,5 millj. Eignahöllin - fasteignasala, Suðurlandsbraut 20, 3. hæð, sími 680057 og 680223. Þórður Ingvarsson, Hilmar Viktorsson, viðskfr., Símon Ólason, hdl. Ævi Kristjáns Eldjárns Bókmenntir Sigurjón Björnsson Gylfi Gröndal: Kristján Eldjárn Ævisaga Forlagið, Reykjavík 1991, 398 bls. Með nokkru hiki og eftirvænt- ingu opnar maður bók sem hefur að geyma ævisögu Kristjáns Eld- járns. Með hiki því að lesandi gerir miklar kröfur til ævisöguritara Kristjáns. Ævi hans var mikil og merk, störf hans með miklum ágæt- um og sem forseti vann hann hug og hjörtu þjóðar sinnar. Þeir sem voru svo lánsamir að kynnast hon- um mátu hann mikils og hlaut að þykja vænt um þennan gáfaða, heilsteypta og hlýja mann. Maður óttast að ævisöguritarinn valdi von- brigðum. En eftirvæntingin er einn- ig nokkur. Sé ævisagan sönn og rétt hlýtur þáð að vera góð bók, dýrmæt eign. Ævisaga Kristjáns Eldjárns er veglegt rit. Um fjögur hundruð blaðsíður. Talsvert er af myndum og vel frá öllu gengið hið ytra. Bókin skiptist í átta kafla. Tveir þeir fyrstu fjalla um forfeður Krist- jáns og formæður og nánustu ætt- menni auk þess sem gripið er til minningabrota sem Kristján hafði sjálfur skráð um ýmis svipleiftur úr bensku sinni. I þriðja kafla er svo sagt frá menntaskólaárunum á Akureyri. Að loknu menntaskóla- námi hélt Kristján til Káupmanna- hafnar^ og hóf að lesa fornleifa- fræði. í fjórða kafla greinir frá því tímabili og ber þar hátt rannsókna- leiðangur til fornra íslendinga- byggða á Grænlandi. Um það skrif- aði Kristján frásagnir í blöð hér heirria og er mikið stuðst við þær. Nám Kristjáns var rofið af heims- styrjöldinni og átti hann ekki aftur- kvæmt til náms í Kaupmannahöfn eftir stríðið. Að loknum Hafnar- árum hófst starf hér heima: náms- lok (í íslenskum fræðum), störf á Þjóðminjasafni íslands og síðar for- staða þess, fornleifarannsóknir, þar sem Þjórsárdalur og Skálholt koma að vonum mjög við sögu og síðast en ekki síst mikil og merk ritstörf. Frá þessum árum segir í fimmta kafla og sjötta kafla. Tólf ár var Kristján Eldiján forseti íslands og sat Bessastaði. Um þau ár er sjö- undi kaflinn. Síðasti kaflinn nefnist Ævilok og greinir frá þeim stutta — alltof stutta — tíma sem Kristj- áni var auðið lífs eftir að hann lét af embætti. Fáir menn hafa í seinni tíð verið kvaddir með jafnmiklum söknuði í lok bókar er skrá um heimildir. Kemur þar í ljós að óprentuð handrit Kristjáns eru all- mikil, t.a.m. dagbækur, minninga- brot og ýmsir smáþættir. Ritaskrá Kristjáns er hér einnig í samantekt Halldórs J. Jónssonar. Lengi hefur maður vitað að Kristján Eldiján var mikið skrifandi maður, en bjóst þó Margskonar eignaskipti. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Opið á laugardaginn. Kristján Eldjárn naumast við að um svo mikið magn væri að ræða. Ritaskráin er 22 þéttprentaðar tveggja dálka blaðs- íður. Innfærslur virðast vera á milli sex og sjö hundruð. Þar eru taldar a.m.k. fimm bækur, útgáfur, þýð- ingar, mikill Ijöldi fræðilegra rit- gerða, smápistlar, ritdómar margir, ræður og ávörp og allmargar af- mælis- og minningagreinar sem sýna að Kristjáni var annt um að sýna vinum sínum og minningu þeirra ræktarsemi. Eins og áður segir er ævisaga Kristjáns Eldjárns mikið og veglegt rit. Framangreint yfirlit ætti og að geta gefið hugmynd um að hún er einnig efnismikil. Höfundur getur þess í eftirmála að hann hafi haft ómetanlegan stuðning af óprentuð- um skrifum Kristjáns, dagbókum og minningabrotum og leynir það sér ekki þegar bókin er lesin. Vissu- lega er það rétt að slík persónuleg gögn gefa frásögninni sérstakan blæ og færa mann nær persónunni sem fjallað er um. Og víst eru frá- sagnir Kristjáns lifandi og vel gerð- ar. Hinu er þó ekki að neita að dagbækur t.a.m. eru ákaflega vand- meðfarin gögmÞær duga vel þegar sannreyna þarf tímasetningu at- burða og ganga úr skugga um ýmsar staðreyndir. En eðli sínu samkvæmt greina dagbækur þó yfirleitt frá atburðum frá degi til dags, oft ýmsu smálegu, en sjaldn- ast veita þær yfirlit yfir lengri tíma þar sem hið mikilvægasta er dregið saman. Mér þykir sem höfundur hafi ekki alltaf varað sig á þessum annmarka. Eins og áður var minnst á hafði Kristján sjálfur tekið tals- vert saman um forfeður sína og bernsku. Mjög er stuðst við það hér og er það skemmtiiegur og aðlað- andi lestur. En fullt þungt þykja mér þó þær frásagnir vega miðað við það sem á eftir fer. Manni býð- ur í grun að Kristján hafi verið eitt- hvað byijaður að efna til ævisögu sinnar eða æviminninga og hafi sú AIMENNA FASTEIGNASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 Gylfi Gröndal ritun verið talsvert öðru vísi hugsuð en bókin sem hér birtist. Um for- setaárin tólf er einn kafli. Fremur er það veigalítil frásögn og í hann vantar veigamikla þætti. Sáralítið er t.a.m. sagt frá ferðlögum hans innanlands og ekki er minnst á af- skipti hans af stjórnarmyndunum sem óneitanlega er mikilvægur þáttur forsetastarfsins. En um það hefur bókarhöfundur raunar þetta að segja: „Bókarhöfundur sá ekki minnisblöð og þann hluta dagbók- anna sem varða stjórnarmyndanir og fleiri atburði; þær heimildir bíða sagnfræðinga framtíðarinnar.” Það er því líklega ekki við höfund að sakast, því að ólíklegt er að hann hafi ekki viljað sjá og nota þessi gögn. Vera má að gögn þessi hafi þótt of viðkvæm til notkunar nú. Það er mjög margt gott að segja um þessa bók og vissulega er hún eigulegt og prýðilega læsilegt verk. En margt finnst mér vanta í hana og meiri „vinnslu” hefði hún þurft. Vera má að hún sé of snemma á ferðinni. Betra hefði verið að bíða svo sem tíu ár til viðbótar. --------» ♦ «-------- ■ HENRIK Jansson rithöfundur ætlar að tala um ritstörf sín og lesa úr verkum sínum í fundarsal Nor- ræna hússins fimmtudaginn 28. nóvember kl. 17.15. Henrik Jansson er fæddur 1955 í ^Jakobsstad, en hefur lengi búið í Abo. Fyrsta bók hans, smásagnasafnið Lit de Parade, kom út 1981, skáldsagan Gruppen hette No C:o kom út 1984 og síðan komu skáldsögurnar Enc- ore, 1986, Isbergens tid 1988 og á þessu ári kom út skáldsagan Vern- issage. Henrik Jansson hefur einnig skrifað doktorsritgerð um Per Olov Enquist 1987. Henrik Jansson er staddur hér á landi til þess að hitta íslenska rithöfunda og kynna sér verk þeirra og mun hann skrifa greinar um íslenskar bókmennir í finnsk tímarit. Hann hefur fengið norrænan rithöfundastyrk til farar- innar. ■ ALMENNUR félagsfundur Míanneldisfélagsins verður haldinn fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20.15 í Odda stofu 101, Háskóla íslands... Fyrirlesari verður dr. Ei- ríkur Orn Arnarson sálfræðingur og mun hann fjalla um lystarstol og lotugræðgi (Anorexia og bulim- ia). Eiríkur Örn lærði sálafræði í Bretlandi við háskólana í Manchest- er og Liverpool. Hann lauk dokt- orsgráðu í klíniskri sálarfræði árið 1979. Eiríkur hefur verið yfirsál- fræðingur á Geðdeild Landspítalans síðan árið 1986, en áður var hann yfírsálfræðíngur Geðdeildar Borg- arSpítala 1984-1986. Eiríkur hefur kennt klíniska sálarfræði við Há- skóla Islands síðan 1980. Ranii- sóknastörf Eiríks Arnar varða m.a. faraldsfræðilegar athuganir á fælni og áhrif af andlegu álagi á viðbrögð í hjarta og æðakerfi. Eiríkur Örn hefur unnið við meðferð á lysta- stoli og lotugræðgi um margra ára skeið og skrifað greinar um efnið. 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjori KRISTINN SlGURJONSSON. HRL. löggiltur fasteignasau Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Nýtt og glæsilegt einbýlishús á útsýnisstað í Kópavogi. Steinhús 157,1 fm auk bílskúrs 31,4 fm. Úrvals frégangur á öllu. Mikil og góð áhv. lán. Skipti möguleg á góðri 4ra herb. íbúð. Sérbýli í smíðum af meðalstærð í borginni eða Kópavogi, Grafarvogur kemur til greina. Skipti möguleg á nýlegu og góðu einnar hæðar einbhúsi af meðalstærð í Hafnarfirði. Nokkrar ódýrar eignir til sölu í gamla bænum og nágrenni. Sumar með frábærum greiðslu- kjörum. Teikn. Og nánari uppl. ó skrifst. Miðsvæðis í borginni óskast 3ja-4rp herb. íbúð á 1. eða 2. hæð eða í lyftuhúsi. Góð sérhæð með bílskúr. Húseign með tveimur íbúðum. Má þarfnast endurbóta. • • •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.