Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991 t Elskuleg fósturmóðir mín, tengdamóðir og amma, MARGRÉT BJARNADÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, áður Vesturgötu 66, andaðist að kvöldi 26. nóvember. Bjarni Vésteinsson, Steinunn Sigurðardóttir, Margrét Bjarnadóttir, Sigurður Bjarnason. t Ástkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN JÓHANNSDÓTTIR, Garðavegi 8, Hafnarfirði, lést í St. Jósefsspítala þriðjudaginn 26. nóvember. Þorgils Þorgilsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn og móðurbróðir okkar, FRIÐRIK MAGNÚSSON hæstaréttarlögmaður frá Akureyri, lést 26. nóvember. Fanney Guðmundsdóttir, Magnús Árnason, Gunnar Árnason. t Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, LÁRUSG. JÓNSSON fyrrverandi skókaupmaður, umönnunar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli, sem lést laugardaginn 23. nóvember sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 29. nóvember kl. 10.30. Anna K. Sveinbjörnsdóttir, Hrefna Lárusdóttir Kvaran, Ragnar Kvaran, Anna Margrét Lárusdóttir, Jónas Hallgrímsson, Jón Lárusson, Sigríður Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SAMÚELSDÓTTIR, Skólabraut 5, Hellissandi, er lést þann 20. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. nóvember kl. 10.30. Jónína Vigfúsdóttir, Páll V. Stefánsson, Lára Vigfúsdóttir, Svanur Karl Friðjónsson, Maria S. Þórisdóttir, Signý Rut Friðjónsdóttir, Loftur V. Bjarnason, Friðjón Rúnar Friðjónsson, Berglind Þórisdóttir og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GÍSLA KRISTJÁNSSONAR skólastjóra á Hvolsvelli, verður gerð frá Háteigskirkju í Reykjavík laugardaginn 30. nóvem- ber kl. 10.30. Jarðsett verður í Stórólfshvolskirkjugarði. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Krabba- meinsfélag íslands. Guðrún Ormsdóttir, Kristín Helga Gísladóttir, Vilmundur Árnason, Ásgeir Gíslason, Angela Kellý Abbott, Jóhanna L. Gisladóttir, Valgeir Guðmundsson, Gísli Freyr, Trausti Már og Heiðrún ír. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, PÉTUR G. HALLSSON stýrimaður frá Síglufirði, Otte-Rudsgade 17,1 t.v., Aalborg, Danmörku, lést sunnudaginn 24. nóvember. Útför hans fer fram föstudaginn 29. nóvember í Aalborg. Inger Hallsson, Mona, Bjarni og Hallur K. Hallsson, tengdabörn, barnabörn og systkini hins látna. Þórdís Páls- dóttir - Minning Fædd 21. júní 1933 Dáin 22. nóvember 1991 Elsku amma Dísa okkar er dáin. Hún er farin frá okkur og kemur ekki aftur, en við ætlum alltaf að muna eftir henni og öllum góðú stundunum okkar saman. Það er svo gaman að minnast ferðarinnar okkar vestur í Dýrafjörð í sumar og hvað amma var dugleg og sterk að koma með okkur þótt hún væri veik og fyndi mikið til. Og kvöldin sem við fengum mömmu og pabba til að keyra okkur í Garðabæinn til að heimsækja ömmu og afa. Þá fengum við góðu kleinurnar hennar ömmu og amma lét okkur segja sér frá öllu sem var að gerast í skólan- um hjá okkur. Nú eru jólin að koma og þessi jól verða örugglega allt öðruvísi án ömmu Dísu. En við munum hugsa til hennar um jólin og hugga afa og Guðmund frænda og amma Dísa mun lifa áfram í hugum okkar. Takk fyrir allt. „Tilvera okkar er undarlegt ferðaiag. Við erum gestir og hóte! okkar er jörðin, einir fara og aðrir koma í dag því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson) Brynhildur, Pálmar Tjörvi og Auður. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja, vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. Þessar ljóðlínur komu í huga mér er ég fregnaði hið ótímabæra lát Dísu vinkonu minnar, sem sýnt hafði ótrúlegt þrek, andlegan styrk og lífsvilja í erfiðum veikindum sín- um, undanfama mánuði. Þórdís Pálsdóttir, en svo hét hún fullu nafni, fæddist 21. júní 1933 á Þingeyri. Árið 1952 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristmundi Finnbogasyni, miklum ágætismanni og eignuðust þau 5 mannvænleg börn. Við saumaklúbbssystur Dísu kynntumst henni þegar við vorum allar ^ saman í Húsmæðraskóla Reykjavíkur árið 1952-53. Við skól- asysturnar höfum alla tíð síðan haldið hópinn og höfum við því ver- ið saman í saumaklúbb í tæp 40 ár. Dísa var alltaf afburða dugleg og þroskuð. Hún var sú fyrsta af okkur til að gifta sig og hún varð einnig fyrst okkar að verða mamma og nú er hún sú fyrsta úr hópnum til að kveðja þennan heim og fara á fund almáttugs Guðs og þeirrar tilvistar sem enginn okkar þekkir en sem við allar vonumst eftir að fara til, í fyllingu tímans. Það er stórt skarð sem Dísa skil- ur eftir í okkar hópi og er hennar sárt saknað. Eftir eigum við þó yndislegar minningar um góða konu og traustan vin. Fallega heimilið þeirra Kristmundar var alla tíð opið okkur skólasystrunum og þangað var gott að koma og bar heimilið og allar móttökur þar vott um þann sérstaka myndarskap og snyrti- mennsku, sem alla tíð einkenndi Dísu. Við skólasysturnar vottum Krist- mundi, börnum þeirra og allri fjöl- skyldunni, okkar innilegustu samúð og biðjum Guð að styrkja þau á þessum erfiðu dögum og styðja þau í sorg sinni. F.li. skólasystranna, Björg Hjálmarsdóttir. Hjartkær vinkona er látin. Ilug- urinn reikar til þess tíma er við ungar að árum vorum saman í tjaldi í fjórtán daga á skátamóti á Þing- völlum sumarið 1948. Veðrið var eins fagurt og bezt lætur. Minning- arnar um Þórdísi eru fagrar eftir því. Dugnaðurinn sem vinkona mín sýndi í heljarstríði sínu var sá sami og einkenndi líf hennar allt. Hún vissi að hveiju stefndi en vildi ekki gefast upp. Hún dreif sig sárlasin í sumarbústað fjölskyldunnar í Dýr- afirði til að mæta í afmæli bróður síns. Lét sig hafa það þótt hún þyrfti að beita sjálfa sig hörku. Enginn velt hvenær lífslokin knýja á dyr. Og ekki átti ég von á því að þessi vinkona mín, sem var svo rík af lífsorku, vinnusöm með afbrigðum, reglusömu í einu og öllu og dásamleg eiginkona, húsmóðir og móðir, kveddi svo ung og svo snögglega. En eftir lifa verk henn- ar, stór og smá. Og ég veit að fjöl- skyldan hugsar með þakklæti til hennar fyrir þann tíma, sem þau áttu saman. Blessuð sé minning Þórdísar Pálsdóttur. Inga Tóta Elsku ömmu minni þakka ég fyr- ir allt. Sé ég í sálu þér, þó sértu fjarri. - Sé þar heilan heim. Tindrar ljós við ljós, angar rós við rós, býr þar guðleg göfgi. Nær sem röðull rís og rósir spretta, nær sem vor vaknar. nær sem bamslund mín til bæna stígur, mun ég minnast þín. Góð var okkar ganga, - guð einn ræður, hann, sem hjörtun skilur. Grátum þó eigi. Grimm eru örlög, og þyngri en tárum taki. Blessi þig blómjörð blessi þig útsær, blessi þig heiður himinn! Elski þig alheimur, eilífð þig geymi, signi þig sjálfur guð! (Jóhannes úr Kötlum) Júlli. Mamma mín Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfí ég út I bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma Ijáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hve allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín, elsku góða mamma mín. — Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflzt við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss bijóti í mola, Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín,- Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærust blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þ’ér í hinsta sinni, kiýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín,- Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Arni Helgason, Móðir mín) Kveðja frá börnum. í dag verður til moldar borin elskuleg mágkona mín, Þórdís Páls- dóttir, en hún lést í Borgarspítalan- um 22. nóvember síðastliðinn. Ég kynntist Dísu veturinn 1952, en þá vorum við báðar í Húsmæðra- skóla Reykjavíkur, hún í heimavist, en ég í dagskóla. Á sama tíma kynntist ég bróður hennar, sem seinna varð maðurinn minn. Þess vegna kom það af sjálfu sér að kynni okkar Dísu yrðu lengri, alveg fram á þennan dag. Við höfðum oft gaman af því að minnast þess tíma, er við vorum í Húsmæðraskól- anum og brandaranna þaðan. Dísa fæddist 21. júní 1933 á Þingeyri við Dýrafjörð og ólst hún þar upp. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhanna Daðey Gísladóttir, frá ísafirði, og Páll Jónsson frá Önundarfirði. Böm þeirra eru: Guð- munda Þórunn, Sigurður, Páll Hreinn og yngst var Þórdís, sem við kveðjum núna. Þegar Dísa var 10 ára lést faðir hennar, þegar skip hans, Hilmir ÍS 39, fórst 25. nóv- ember 1943, í ferð frá Reykjavík til Arnarstapa. Var þetta hræðilegt áfall fyrir alia, en móðir hennar lét ekki bugast. Hún ól börnin fjögur upp ein, kom þeim til mennta og kenndi þeim augsýnilega að vinna vel. Dísa giftist 6. september 1952 eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristmundi Finnbogasyni frá Þing- eyri. Þau eignuðust fimm börn, Jó- hönnu Daðeyju, f. 23. júní 1952, Pálmar, f. 8. apríl 1955, Ágústu, f. 4. júlí 1957, Hafdísi, f. 26. janú- ar 1963, og Guðmund, f. 19. des- ember 1972. Dísa og Kristmundur bjuggu fyrst á Þingeyri, en árið 1972 fluttu þau að Lindarflöt 14 í Garðabæ. Heimili þeirra bar vott frábærrar húsmóður og garðurinn einnig, hann var ekki undanskilinn. Síðastliðið vor, I apríl, varð ljóst að Dísa gengi með mjög alvarlegan sjúkdóm. Við urðum öll harmi sleg- in, en Dísa var sú eina, sem ekki virtist bregða. Þegar vorið var að koma, allt að lifna, grasið og blóm- in að vaxa, fuglar að búa sér hreið- ur og sólin skein, svo mikið og oft í sumar, þá þurfti elsku Dísa að beijast á móti þessum óvelkomna vágesti, sjúkdómnum hræðilegá. Og það gerði hún af svo mikilli hörku og dugnaði, að undrun sætti. Alltaf sá hún ljósglætu framundan. En þó að mennirnir áætli er það Guð sem ræður. Og við verðum að trúa að það sé einhver tilgangur með þessu öllu, sem við ekki skilj- um. Við eigum öll minningar, og þær tekur enginn frá okkur. Við hjónin og öll fjölskyldan eigum óteljandi minningar frá góðum stundum hjá fjölskyldunni á Lindarflöt 14 og líka að vestan, frá Dýrafirði. Dísa var einstök. Ef einhver veikindi bar að í fjölskyldu okkar hringdi hún alltaf og grennslaðist fyrir um hvernig við hefðum það. Já, hlýjan streymdi frá heimili þeirra og börnum öllum. Þetta viljum við hjónin þakka fyrir, af alhug. Við sendum Kristmundi og allri íjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur og biðjum að Guð lini sorg þ'eirra. Margrét Sighvatsdóttir Öll vitum við að í lífinu skiptast á skin og skúrir. Lífið er oft á tíðum rétt eins og veðráttan, stundum sól og blíða, en stundum geisa líka óveður. I lífi minnar fjölskyldu ríkir nú kuldi og vetur. Haustið er búið að vera langt, eða allt síðan vitað var að Dísa frænka, eins og svo margir aðrir, væri með krabbamein. Þegar slíkar fréttir berast eru allir harmi slegnir, allir vita hvaða þýðingu þetta hræðilega orð getur haft. Einhvern veginn er það þó alltaf svo að við vonum hið besta og ekki síst þegar sjúklingurinn berst eins hraustlega og Dísa frænka gerði, en stundum bregðast vonirnar. Ég ætla ekki að lofsyngja Dísu frænku, það hefði hún ekki viljað. Tilgangur þessara skrifa er einung- is sá, að minnast hennar á raunsæj- an hátt. Óneitanlega reikar hugurinn til baka á stundum sem þessari. Mínar minningar ná þó ekki langt, enda er aldurinn ekki hár, ég man þó þegar Dísa, Kristmundur og fjöl- skylda bjuggu á Þingeyri og eins þegar þau fluttu á Lindarflötina. Heimsóknirnar þangað eru orðnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.