Morgunblaðið - 28.11.1991, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NOVEMBER 1991
Morgunblaðið/Þorkell
Þyrlupallurinn malbikaður
Nýr lendingarpallur fyrir þyrlur, sem verið er að gera við Borgarspítal-
ann, var malbikaður á þriðjudag. Þá er pallurinn nær fullbúinn, aðeins
á eftir að mála hann og hann verður upplýstur síðar í vetur. Lendingar-
pallurinn er upphitaður, svo á hann á ekki að festa snjó. Verktakar,
sem unnið hafa við Borgarspítaiann, gáfu alla vinnu sína og segir
Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri sjúkrahússins, að öryggi auk-
ist mjög með þessum nýja palli.
Skipaútgerð ríkisins:
Hagnaður af Færeyja-
flutningum ofreiknaður
ENDURSKOÐUN Akureyri hf. segir í skýrslu, sem fyrirtækið hefur
unnið fyrir samgönguráðuneytið um rekstur Skipaútgerðar ríkisins,
öðru nafni Ríkisskipa, að vafasamt sé hvort Færeyjaflutningar fyrirtæk-
isins skili þeim hagnaði, sem forsvarsmenn þess hafa látið í veðri vaka.
Endurskoðendurnir segja að sá hagnaður hafi alltént ekki skilað sér
í rekstrarafkomu fyrirtæksins, sem rekið er með stórfelldu tapi.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra kynnti fyrir rúmum mánuði
þá ætlan sína að breyta rekstri Ríkis-
skipa og að ákveðið hefði verið að
selja eitt af þremur skipum fyrir-
tæksins og hætta um næstu áramót
flutningum til Færeyja, sem hafnir
voru 1989. Ráðherra sagði það ekki
vera hlutverk ríkisins að standa í
millilandaflutningum. Guðmundur
Einarsson, forstjóri Ríkisskipa, sagði
þá að hagnaður fyrirtækisins af
Færeyjasiglingum væri ein milljón
króna á mánuði og það þýddi tekj-
utap fyrir fyrirtækið að hætta þeim.
Endurskoðendumir segja í skýrslu
sinni til samgönguráðuneytisins að
forsendur fyrir þeim útreikningum,
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00
HeimiM: VeOurstota islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.1S I gær)
VEÐURHORFURIDAG, 28. NOVEMBER
YFIRLIT: Um 300 km suðvestur af Reykjanesi er 964 mb lægð sem
mun fara norðaustur yfir vestanvert landið.
SPÁ Fremur hæg vestan og norðvestan átt. Él um vestan og norð-
anvert landið, en léttskýjað norðaustanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustan átt, sums staðar allhvöss vest-
an- og suðvestanlands með slyddu en hægari og að mestu úrkomu-
laust í öðrum landshlutum. Hiti nálægt frostmarki.
HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan og suðvestan kaldi eða stinn-
ingskaldi sunnan- og vestanlands með smáéljum en hægviðri og
úrkomulítið annars staðar. Frost 1 tíl 3 stig.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
r * / * Slydda
/ * /
i * * *
* * * * Snjókoma
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, 5 Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri +3 snjóél Reykjavik 3 úrkomaígrennd
Bergen 7 skýjað
Helsinki 1 5 þokumóða
Kaupmannahöfn 5 rigning
Narssarssuaq +12 skýjað
Nuuk +13 léttskýjað
Osló 8 skýjað
Stokkhólmur 6 þokumóða
Þórshöfn 7 rigning
Aigarve 18 skýjað
Amsterdam 9 þokumóða
Barcelona 15 mistur
Berlín 4 mistur
Chlcago vantar
Feneyjar 12 heiðskirt
Frankfurt 0 þokumóða
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 5 rigningogsúld
London 10 súld
LosAngeles vantar
Lúxemborg 6 þokumóða
Madrtd 12 skýjað
Malaga 19 skýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal vantar
NewYork vantar
Orlando vantar
París 8 léttskýjað
Madeira 17 skúr
Róm 13 þokumóða
Vín 6 alskýjað
Washington vantar
Winnipeg +11 snjókoma
sem sýni hagnað á Færeyjasiglingun-
um, séu umdeilanlegar. Fenginn sé
út hagnaður með því að reikna kostn-
að við Færeyjasiglingarnar aðeins
milli Austijarða og Færeyja. Ekki
sé heldur tekið tillit til fjármagns-
kostnaðar, afskrifta, stjómunar-
kostnaðar og annars sameiginlegs
kostnaðar. Þessir útreikningar séu
ekki eðlilegir, enda verði ekki séð
að hagnaður af Færeyjasiglingunum
hafi skilað sér í rekstrarniðurstöðu
Ríkisskipa.
Endurskoðun Akureyri hf. telur
að sú stefna Ríkisskipa að halda
uppi sem umfangsmestum rekstri og
reyna með því að minnka þörf félags-
ins fyrir ríkisstyrki, sem numið hafa
þremur milljörðum króna á sl. 10
árum, hafi ekki skilað þeim árangri,
sem stefnt var að. í ljósi þess virðist
eðlilegt að í stað þess að færa út
kvíamar og taka upp Færeyjasigling-
ar hefði verið eðlilegra fyrir Ríkis-
skip að selja eitt skip, draga úr
umsvifum og minnka kostnað, segja
endurskoðendumir.
Höfundar skýrslunnar, þeir Björg-
úlfur Jóhannsson og Baldur Guðvins-
son, telja vænlegast til árangurs til
þess að létta af ríkinu fjárframlögum
til Ríkisskipa að minnka rekstrarum-
svif fyrirtækisins veralega og við
rekstrinum taki hlutafélag, sem þjóni
þeim stöðum, sem ekki geti án sjó-
flutninga verið. Landflutningar
gegni auknu hlutverki í að dreifa
vörum um landið. Endurskoðendurn-
ir telja koma til greina að styrkja
nýtt skipafélag í upphafi, en stefnt
yrði að afnámi þeirra styrkja á
ákveðnu árabili. Þetta er í takt við
þær hugmyndir, sem Guðmundur
Einarsson, forstjóri Ríkisskipa, hefur
lagt fram um einkavæðingu fyrir-
tækisins. Endurskoðendurnir telja
jafnframt að til greina kæmi að
hjálpa félaginu með því að ríkið legði
því til a.m.k. eitt skip í upphafí.
í síðasta fréttabréfi Rikisskipa
gagnrýnir Hjörtur Emilsson, aðstoð-
arforstjóri fyrirtækisins, skýrslu end-
urskoðendanna harðlega. „Á ýmsum
stöðum í skýrslunni er rangt farið
með staðreyndir og rökstuðning
skortir fyrir niðurstöðum og tillög-
um. Engir útreikningar fylgja skýrsl-
unni til stuðnings áliti skýrsluhöf-
unda eða tillögum. Orðalag og fram-
setning skýrslunnar er óheppilegt og
til þess fallið að gefa ranga mynd
af fyrirtækinu, stjórnendum þess og
starfsfólki,” segir Hjörtur. Hann
gagnrýnir ýmsa þætti skýrslunnar,
þó ekki fyrrgreindar athugasemdir
við Færeyjaflutningana.
Gjaldheimtan í Reykjavík:
Innheimta ívið betri
nú en á síðasta ári
GUÐMUNDUR Vignir Jósefsson, gjaldheimtustjórií Reykjavík, segir
að innheimta opinberra gjalda í borginni sé síst Iakari í ár en á síð-
asta ári. Innheimta álagðra gjalda á fyrirtæki og einstaklinga utan
staðgreiðslu var komin í 49,5% 31. október eða 4,8 milljarða af 9,7
millj. kr. álagningu. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 48%. 31. októb-
er höfðu 90,8% fasteignagjalda_ innheimst eða 2,8 milljarðar kr. en
heildarálagning nam 3,1 millj. Á sama tima í fyrra höfðu innheimst
88,5%.
Þá upplýsti Guðmundur að stað-
greiðsluskil væra rúmlega 90% sem
væri öllu betra en á síðasta ári en
sagði að þær tölur væru þó ekki fylli-
lega raunhæfar, þar sem þær byggð-
ust að nokkru leyti á áætlunum.
Guðmundur sagði að innheimta á
eftirstöðvum gjalda utan stað-
greiðslu frá fyrri árum hefði verið
lélegri á þessu ári en í fyrra. 1. jan-
úar 1991 vora útistandandi 7,8 millj-
arðar en um síðustu mánaðamót
höfðu aðeins innheimst 18% þeirrar
upphæðar, eða 1,4 milljarðar. Á
sama tíma í fyrra var hlutfall inn-
heimtu þessara skulda um 20%.
Sagði hann líklegt að veralegur hluti
þeirrar upphæðar yrði afskrifuð þeg-
ar búið væri að sannreyna hvort
skuldimar væru innheimtanlegar.
örur
a
\ (í ftaitMn'
Sjd tní
hefte
ittBfluUar
eira eóa
VVrftlngtihfvyllnff (rá tipphafl
Híekkun («+ M lcfmSai
">« llilis
Samanburður á verðlagsbreytingum frá upphafi þjóðarsáttar 1
fréttablaðinu Á döfinni.
Innlendar vörur hækkuðu um
7,1% en innfluttar um 13,1%
tímabili hafi framfærsluvísitala
hækkað um 13% en innfluttar vörar
um 13,1%. Allar innlendar vörur
hafa hækkað um 7,1% eða 5,6%
minna en innfluttar og þar af hafa
búvörur hækkað um 6,5% en annar
FÉLAG islenskra iðnrekenda birtir samanburð á hækkun vöruverðs á
innlendum og erlendum vörum frá upphafi þjóðarsáttar í nóvember-
hefti fréttablaðsins Á döfinni. Skv. könnun blaðsins hefur vcrðhækkun
á innlendum vörum verið umtalsvert minni en á innfluttum vörum á
þessu tíinabili. Búvörur háðar verðlagsgrundvelli hafa hækkað um 6,5%
frá febrúar 1990 til nóvember 1991.
Niðurstaða blaðsins er að á þessu innlendur varningur um 7,3%. Þessar
niðurstöður eru fengnar með því að
bera saman hækkun framfærsluvísi-
tölunnar og undirliða framfærsluvísi-
tölunnar sem mæla verðbreytingar
innlends og innflutts varnings.