Morgunblaðið - 28.11.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
23
Sigmar Jónsson
sem stunda virðisaukaskattfrjáls
viðskipti verji þau forréttindi sín
með kjafti og klóm, eins og sagt
er. Þau eru mikils virði í harðri
samkeppni um eyðslufé lands-
manna. Hins vegar bendir margt
til að þau renni senn sitt skeið á
enda, vegna þróunar á hinum sam-
eiginlega markaði Evrópuríkja.
Skylt er að hafa í huga að samn-
ingur okkar um EES ná ekki til
skatta. Þessir samningar hafa held-
ur ekki verið samþykktir. En hvort
sem þeir verða samþykktir eða ekki
komumst við tæplega hjá því að
aðlaga margt í okkar skattheimtu
því sem gerist í Evrópulöndunum
sem eru okkar aðalviðskiptalönd.
Einkum og sér í lagi á þetta við
um alla skattheimtu af atvinnu-
rekstri.
Undanþágur falla úr gildi
Samkvæmt upplýsingum frá
heildarsamtökum evrópskra stór-
kaupmanna í Bruxelles hafa hingað
til verið í gildi undanþágur frá virð-
isaukaskatti á farþegaflutninga í
löndum Evrópubandalagsins. Búist
er við að þær undanþágur falli úr
gildi um áramótin 1992-1993. Þá
er einnig reiknað með að niður verði
felldar aðrar álögur, sem hafa verk-
að hindrandi á farþegaflutninga,
svo sem flugvallarskattur.
Nokkuð er á reiki innan Evrópu-
bandalagsins hve hár virðisauka-
skattur er. Aðildarríki bandalagsins
eru nú tekin að aðlaga sinn virðis-
aukaskatt því fyrirkomulagi sem
taka mun gildi árið 1997. Þá eiga
skattþrep alls staðar að verða tvö,
5% og 15%. Lægra þrepið verður
fyrir nauðsynjavörur, barnafatnað
og fólksflutninga.
Þótt samningar okkar við EES
taki ekki til skatta verður að telja
afar ólíklegt að íslensk stjórnvöld
reyni að hafa skattheimtu af at-
vinnurekstri í samkeppni með öðru
móti en þar verður gert. Moldviðri
það sem þyrlað var upp vegna þess
að framkvæmdastjóri FÍS taldi ekki
óeðlilegt að við legðum virðisauka-
skatt á farseðla eins og blasir við
að gert verður alls staðar í kringum
okkur eftir eitt ár, var því til lítils
blásið upp, nema til þess að láta
þjóðina halda að í farseðlasölum
ætti lítilmagninn í þjóðfélaginu sinn
sannasta vin.
Engar hömlur - en réttlæti
Við stórkaupmenn erum andvígir
öllum hömlum á ferðalögum, jafnt
milli landa sem innan. Sé verslun
búin sömu skilyrði hérlendis og í
nágrannalöndum okkar hræðumst
við ekki samkeppni. Auðvitað verð-
ur alltaf einhver verðmismunur
milli landa, rétt eins og er milli
verslana. Sumar vörur verða dýrari
hér, aðrar ódýrari. Raunar eru þeg-
ar sumar innfluttar vörur ódýrari
hér en sums staðar erlendis, það
hafa erlendir ferðamenn komið
auga á.
Við horfum björtum augum til
þeirra tíma þegar tollar og landa-
mærahömlur heyra sögunni til og
við búum við sömu kjör og aðrir.
Við vonumst til að geta hagnast á
því að fá að standa jafnfætis keppi-
nautum okkar á markaði sem tekur
til 370 milljóna manna.
Höfundur er framkvæmdastjóri
og í stjórn Félags íslenskra
stórkaupmanna.
Ásgeir Guðmundsson
Ib Árnason Riis
Bók um gagn-
njósnir á Islandi
UT ER komin hjá Skjaldborg
bókin Gagnnjósnari Breta á ís-
landi - Islendingurinn Ib Árna-
son Riis segir frá eftir Ásgeir
Guðmundsson.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „í heimsstyijöldinni síðari
sendi þýska leyniþjónustan
nokkra íslendinga hingað til lands
til að stunda njósnir. Þeir gáfu sig
fram við hernaðaryfirvöld við
komuna til landsins og tveir
þeirra, sem fyrstir komu, gerðust
gagnnjósnarar á vegum bresku
leyniþjónustunnar og sendu falsk-
ar upplýsingar til Þýskalands. I
bók þessari segir frá því, þegar
þýska leyniþjónustan fór fyrst á
fjörurnar við hann í Kaupmanna-
höfn haustið 1941 og hvernið það
atvikaðist að hann gekk í bresku
leyniþjónustuna og starfaði_ fyrir
hana sem gagnnjósnari á íslandi
í þijú ár, frá maí 1942 til stríðs-
loka í maí 1945.
Heimsstyrjöldin síðari. skóp
mörgum manninum sérkennileg
örlög og fór Ib Árnason Riis ekki
varhluta af því. Störfum hans fyr-
ir bresku leyniþjónustuna lauk
þannig að hann lenti út í kuldanum
og hafði það örlagarík áhrif á
framtíð hans. Hann býr nú í Kali-
forníu.”
Bókin Gagnnjósnari Breta á Is-
landi er 215 bls. og er prentuð í
Prentsmiðju Árna Valdemarsson-
ar.
30% RAUNIÆKKUN
FLUTNINGSGJALDA
ER STAÐREYND!
Markvissar aðgerðir starfs-
manna EIMSKIPS til hagræð-
ingar ásamt fjárfestingum fé-
lagsins í nýrri flutningatækni og
fullkomnum skipum hafa á
síðustu 5 árum skilað að meðal-
tali um 30% raunlækkun á
flutningsgjöldum.
Frumkvæði, aðhald og virk
þátttaka viðskiptavina okkar
hefur verið okkur hvatning og
kveikt nýjar hugmyndir varð-
andi leiðir til að ná fram þessari
lækkun.
Við óskum öllum viðskipta-
vinum og starfsmönnum fé-
lagsins til hamingju með þann
mikla árangur sem þegar hefur
náðst.
Höldum áfram á sömu braut!
o
to
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM PÉR LEIÐ