Morgunblaðið - 28.11.1991, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
Kvíðastillandi lyf —
Nauðsyn eða óþörf fíkn?
eftirJón G.
Stefánsson
Síðastliðið sumar var sett ný
reglugerð, um þátttöku ríkisins í
lyfjakostnaði. Síðan hafa þeir sem
nota kvíðastillandi lyf greitt þau
sjálfir að fullu. Sanngirni þessa fyr-
irkomulags hefur m.a. verið studd
þeim rökum að ríkisvaldið eigi ekki
að afhenda ókeypis „ávanabindandi
fíkniefni”.
Hugtökin róandi lyf (en svo eru
kvíðastillandi lyf díefnd í sérlyfja-
skrá), ávanalyf, ávanabindandi lyf,
fíkniefni og ávanabindandi fíkniefni
hafa verið notuð saman, án frekari
útskýringa. Þannig notkun þessara
hugtaka getur leitt til þess misskiln-
ings að í þeim felist það sama. Einn-
ig getur slíkt orðalag villt fyrir fólki
svo það haldi, að þeir, sem nota
kvíðastillandi lyf, geri það vegna
ávana og fíknar.
Hér á. eftir verður sagt frá veiga-
mestu ástæðum notkunar kvíða-
stillandi lyfja og útskýrt að þau eru
hvorki ávana- né fíknilyf.
Fyrst er algengústu kvíðasjúk-
dómum lýst stuttlega. Það eru þeir
sjúkdómar þar sém kvíðastillandi
lyf koma að mestu gagni. Sagt
verður frá hve margir fá þessa sjúk-
dóma og rætt hve lengi veikindin
standa. Síðan verður fjallað um
meðferð kvíðasjúkdóma með kvíða-
stillandi lyfjum og útskýrt hvers
vegna heitið „kvíðastillandi lyf’ er
réttara en „róandi lyf’ og það er
rangt að kalla þessi lyf ávanalyf
eða fíkniefni. Að lokum verður sýnt
fram á að það er siðferðilega rangt
að láta sjúklinga sem líða af kvíða-
sjúkdómum bera meiri kostnað af
nauðsynlegri lyfjameðferð en aðra
sjúklinga.
Kvíðasjúkdómar
Kvíðasjúkdómar eru algengir
sjúkdómar. Þeir eru oft langvarandi
og valda verulegum þjáningum og
fötlun. Orsakir þeirra eru bæði
líkamlegar og sálrænar. Tilhneiging
til sumra þeirra gengur í erfðir.
Algengustu kvíðasjúkdómar lýsa
sér þannig.
Víðtæk kvíðaveila.
Sjúklingurinn er nær stöðugt
spenntur, kvíðinn og hræddur um
að eitthvað muni koma fyrir. Hann
er órólegur og þreytist fljótt. Hon-
um er oft þungt fyrir bijósti og
finnst hann ekki ná andanum. Hann
svitnar og hefur mikinn hjartslátt.
Oft er hann þurr í munni, er óglatt
og er með kökk í hálsi. Hann er á
nálum, viðbrigðinn og á erfítt með
að einbeita sér. Hann á oft erfitt
með svefn.
Bráð kvíðaköst.
Sjúklingurinn fær aftur og aftur
ofsafengin kvíðaköst að.því er virð-
ist alveg að ástæðulausu. Hann
fyllist skyndilega ótta og skelfingu
og finnst eitthvað hræðilegt vera
að koma fyrir, hann sé að deyja eða
verða vitskertur. Jafnframt fær
sjúklingur mörg líkamleg kvíðaein-
kenni, svo sem hraðan og þungan
hjartslátt, hraða öndun, svitaútslátt
og skjálfta.
Fælni.
Sjúklingurinn er mjög hræddur
við að gera eitthvað sérstakt eða
að lenda í ákveðnum kringumstæð-
um vegna þess að þetta hefur áður
valdið honúm mikilli vanlíðan. Hann
reynir að forðast þetta af fremsta
megni. Hann veit vel að svo mikill
ótti er ástæðulaus en getur ekki
ráðið við hann þrátt fyrir að það
valdi honum verulegum erfíðleikum
að forðast það sem óttinn tengist.
Fælni lýsir sér á ýmsan veg.
Eftir því hvemig fælnin lýsir sér,
má skipta henni í þrjá aðalflokka.
1. Víðáttufælni.
Sjúklingurinn óttast þá mjög að
vera á opnu svæði, að vera í marg-
menni, að standa 1 röð eða að vera
í almenningsfarartæki, svo dæmi
séu nefnd. Algengt er að vera
skelfdur við að ganga fjölfarnar
götur, að fara í stórmarkað eða að
vera einn úti. Þótt það valdi honum
verulegum erfiðleikum að forðast
þá staði sem hann hræðist,' gétur
hann ekki annað. Takist honum að
fara t.d. í stórmarkað, líður honum
mjög illa meðan hann er þar. Sum-
ir sjúklingar fá bráð kvíðaköst við
slíkar aðstæður. Sjúklingar geta
orðið svo illa haldnir að þeir kom-
ast ekki út af heimili sínu nema í
fylgd einhvers sem þeir treysta.
2. Félagsfælni.
Sjúklingurinn óttast mjög að
verða sér til minnkunar eða verða
fyrir gagnrýni. Hann skelfíst og
forðast samskipti við ókunnuga.
Stundum þorir hann ekki að tala,
heyri ókunnugir til eða getur ekki
skrifað nafnið sitt ef ókunnugir
horfa á. Þessi hræðsla veldur hon-
um miklum erfíðleikum í skóla, í-
vinnu og í öllu félagslífi.
3. Einföld fælni.
Sjúklingurinn er þá hræddur við
eitthvað visst og nokkurn veginn
afmarkað. Hann getur t.d. verið
hræddur við að fara í lyftu, vera í
flugvél eða við að vera í þröngu
herbergi. Hann getur verið hræddur
við dýr, t.d. hunda eða ketti, eða
fólk, t.d. lækni í hvítum slopp. Þetta
veldur honurh verulegum erfíðleik-
um en samt getur hann ekki sigr-
ast á óttanum.
Þráhyggja og árátta.
Sjúklingur með þráhyggju getur
ekki hætt að hugsa um eitthvað
þótt hugsunin valdi honum vanlíðan
og honum finnist hún fáránleg.
Sjúklingur með áráttu er oftast
með þráhyggju og fínnst hann endi-
lega þurfa að gera eitthvað í sam-
bandi við þá hugsun. Reyni hann
að standa á móti þessari þörf, fyll-
ist hann kvíða. Hann fer t.d. að
hugsa um að hann hafi skilið eftir
ljós á bílnum og fer og gengur tvisv-
ar í kringum hann til að fullvissa
sig um að svo sé ekki. Samt getur
hann ekki losað sig við þessa hugs-
un og fer aftur og gengur nú þrisv-
ar í kringum bílinn til að fullvissa
sig um að ljósin séu slökkt. Eftir
margar slíkar ferðir tekst honum
loks að hætta að hugsa um að ljós
geti verið á bílnum.
Þráhyggja og árátta valda oft
mikilli vanlíðan og fötlun.
Kvíði af völdum sálræns áfalls.
Sjúklingurinn hefur orðið mjög
kvíðinn og spenntur eftir að hafa
orðið vitni að éinhveiju • ógnvæn-
legu, t.d. dauðaslysi. Hann getur
ekki jafnað sig á þessu. Hann
dreymir um atburðinn og þegar
hann rifjast upp í huga hans líður
honum mjög illa. Hann finnur til
sektarkenndar og veltir fyrir sér
hvort hann beri einhveija ábyrgð á
því sem skeði. Hann á erfitt með
svefn og er leiður og niðurdreginn.
Kvíðasjúkdómar eru algengir
Nýlega hefur verið athugað hér
hve .algengt er að fólk á aldrinum
55 til 57 ára hafi einhvern tíma á
ævinni haft geðsjúkdóm. Kvíðasjúk-
dömar reyndust vera mjög algeng-
ir. í töflu 1 er sýnt eftir kyni hve
má'rgir (%) hafa einhvern tíma á
ævinni verið með kvíðasjúkdóm.
Algengust er víðtæk kyíðaveila, hjá
samtals 21,7%. Konur eru mun oft-
ar méð þennan sjúkdóm en karlar
og kvíðasjúkdómar eru yfírleitt al-
gengari hjá konum.
Kvíðasjúkdómar eru
langvarandi
í töflu 2 er sýnt hve margir (%)
höfðu einkenni kvíðasjúkdóms, síð-
asta mánuð, síðastliðna sex mánuði
eða síðastliðið ár, fyrir athugun.
Þar sést, að verulegur hluti þeirra,
er einhvern tíma hefur haft ein-
hvern þessara sjúkdóma, hefur liðið
af einkennum sjúkdómsins innan
síðasta árs. Kvíðasjúkdómar koma
að jafnaði fyrst fram hjá fólki þeg-
ar það er ungt. Þær tölur er hér
koma fram bera því vitni að kvíða-
sjúkdómar eru oft langvarandi og
fólk hefur þá árum, jafnvel áratug-
um saman.
Kvíðasjúkdómar valda mikilli
vanlíðan og fötlun. Þeir eru algeng-
ir og langvarandi. Læknar verða
að beita öllum ráðum til að lækna
þá og draga úr einkennum þeirra.
Þeir nota ýmsar sálfræðilegar að-
ferðir sem stundum nægja án lyfja-
meðferðar.
Mjög oft er þó nauðsynlegt að
nota jafnframt viðeigandi lyf. Lang-
flest þeirra eru úr þeim lyfjaflokk-
um er nefnast í íslensku sérlyfja-
skránni róandi lyf og geðdeyfðar-
lyf. Heitið „róandi lyf’ er þó vil-
landi þar sem sérkenni þessara lyfja
eru ekki að vera róandi heldur er
sérstök kvíðastillandi verkun ein-
kennandi fyrir þau. Það er á þess-
ari kvíðastillandi verkun sem notk-
un þeirra til lækninga byggist fyrst.
og fremst. Það er því réttnefni að
kalla þau kvíðastillandi lyf, því að
lýsir sérstökum eiginleika þeirra og
aðalnotkunar ábendingu. Flest
kvíðastillandi lyf eru svo kölluð
benzódíazepín-afbrigði. í þessum
flokki eru t.d. lyfin Díazepam og
Klórdíazepoxíð. Sömu gerðar
(benzódíazepín-afbrigði) eru einnig
þau svefnlyf sem mest eru notuð
hér svo sem Tríazólam (Halcion
o.fl.), Flúnítrazepam (Rohypnol),
Flúrazepam (Dalmadorm), o.fl.
Verkun þessara lyija allra er kvíða-
stillandi, þótt sum séu, a.m.k. í
fyrstu, meira svæfandi en önnur.
Mjög dregur úr hinni svæfandi
verkun við langtíma notkun en
kvíðastillandi verkun lyfjanna helst,
líkt og krampastillandi verkun
flogaveikilyfja.
Notkun geðlyfja
í athugun er gerð var á geð-
lyfjaávísunum eins mánaðar tíma-
bils, í Reykjavík árið 1984, kom í
ljós að langsamlega flestar geð-
lyfjaávísanir, 82%, voru á kvíða-
stillandi lyf og svefnlyf. Þetta tíma-
bil fengu 3,1% karla og 5,1% kvenna
(eldri en 14 ára) kvíðastillandi lyf.
Þessar tölur eru ekki háar í ljósi
þess fjölda sjúklinga er hafa ein-
kenni kvíðasjúkdóms á mánaðar-
tímabili og sýndur er í töflu 2.
Þol og fráhvarf
Notkun geðlyfja og mjög margra
annarra lyfja leiðir með tímanum
til líkamlegrar aðlögunar að lyfinu
(líkamlegs ávana eða þols). Þegar
notkun lyfsins er hætt aðlagar lík-
aminn sig að því að lyfið hverfi úr
honum (fráhvarf). Meðan á aðlögun
að lyfi stendur, koma áhrif þess oft
sterkar fram og stundum á annan
STÁLVERKSMIÐJA
TIL SÖLU
Til sölu cr stálverksmiðja þrotabús íslenska
stálfélagsins hf. Um er að ræða fullbúna verksmiðju
hannaða til að bræða brotajárn og gera úr því
stálstengur til sölu á erlendum mörkuðum.
Málmtætari er keyptur var á kaupleigu af íslenska
stálfélaginu hf. gæti fylgt með náist samningar [>ar
um við hlutaðeigandi kaupleigufyrirtæki.
Sala verksmiðjunnar er háð samþykki veðhafa.
Nánari upplýsingar:
Helgi Jóhannesson hdl.
Lágmúla 7, Reykjavík.
Sími 812622 eða 653527.
Fax 686269 eða 653526.
Tafla 1. Fjöldi (%) fólks, á aldrinum 55 til 57 ára, sem einhvern tíma hefur haft kvíðasjúkdóm.
Karlar Konur Alls
% % %
Víðáttufælni með bráðum kvíðaköstum 0,9 2,6 1,7
Víðáttufælni án bráðra kvíðakasta 2,9 4,8 3,8
Félagsfælni 2,5 4,5 3,5
Einföld fælni 7,5 10,2 8,8
Bráð kvíðaköst 1,1 3,1 2,1
Víðtæk kvíðaveila 11,8 32,2 21,7
Árátta o g þráhyggja 0,7 2,1 2,0
Kvíði af völdum sálræns áfalls 0,2 1,2 0,6
Tafla 2. Fjöldi (%) fólks, á aldrinum 55 tii 57 ára, sem hefur einkenni kvíðasjúk- dóms, síðasta mánuð, síðastliðna sex mánuði eða síðastliðið ár, fyrir viðtal.
síðast- liðinn mánuð % síðast- liðna 6 mánuði % síðast- liðið ár % einhvern tímaá ævinni %
Víðáttufælni með bráðum kvíðaköstum 1,0 1,2 1,2 1,7
Víðáttufælni án bráðra kvíðakasta 1,6 1,9 2,2 3,8
Félagsfælni 1,5 1,7 1,7 3,5
Einföld fælni 2,4 3,1 3,5 8,8
Bráð kvíðaköst 0,5 0,9 1,0 2,1
Víðtæk kvíðaveila 4,7 5,8 7,7 21,7
Árátta og þráhyggja 0,7 0,8 0,9 2,0
Kvíði af völdum sálræns áfalls 0,3 0,5 0,5 0,6
Jón G. Stefánsson
„Það er siðferðilega
rangt að láta þá sem
þjást af kvíðasjúkdóm-
um bera meiri kostnað
af nauðsynlegri lyfja-
meðferð en þá, sem líða
af öðrum sjúkdómum.”
veg en síðar verður. Aðlögun frá
lyfi hefur svo oftast gagnstæð áhrif
við aðlögun að lyfi. Sem dæmi má
nefna að þau svefnlyf sem mest eru
notuð valda mestri syfju í fyrstu
en mun minni eftir að aðlögun að
þeifn á sér stað.
Aðlögun frá lyfínu veldur síðan
vöku sem er mest fyrst en dvínar
svo. Sum lyf við of háum blóðþrýst-
ingi valda líkamlegri aðlögun. Þeg-
ar notkun þeirra er hætt getur blóð-
þrýstingur hækkað umfram það
sem var fyrir töku lyfsins meðan á
aðlögun frá lyfinu stendur.
Læknar þekkja vel hvernig lík-
amleg aðlögun verður að lyfi (þol-
myndun) og síðan frá því (frá-
hvarf) sé notkun þess hætt. Þeir
taka tillit til þessara aðlögunar í
meðferð sjúklinga sinna með því
að byija gjöf slíkra lyfja í smáum
skömmtum en auka hana síðan eft-
ir því sem líkamleg aðlögun á sér
stað. Þegar lyfjagjöfinni er hætt er
farið að á hinn veginn. Dregið er
úr lyfjaskömmtum smátt og smátt.
Á þennan veg er komist hjá hættu
og óþægindum. Líkamleg aðlögun
verður að fjölda lyfja og annarra
efna, sérstaklega þeirra er verka á
miðtaugakerfið. Kvíðastillandi Iyf
eru þar í engri sérstöðu.
Ávani
Allir geta vanið sig á það sem
þeim fínnst auka ánægju eða vellíð-
an (sálrænn ávani). Það á einnig
við um lyfjatöku ef sjúklingur fínn-
ur að hún bætir líðan hans. Slíkur
ávani getur stundum orðið um of
að mati annarra eða viðkomandi
sjálfs. Hann horfir of mikið á sjón-
varpið í stað þess að gera eitthvað
gagnlegra, keyrir of mikið í bíl í
stað þess að ganga, tekur verkja-
töflu í stað þess að fara í heitt bað
eða kvíðastillandi lyf í stað þess að
fara út í gönguferð. Kvíðastillandi
lyf og svefnlyf hafa enga sérstöðu
hvað varðar líkamlegan eða sálræn-
an ávana. Ávani, líkamlegur eða
sálrænn, hefur stundum vandamál
í för með sér, en þau vandamál eru
leysanleg og valda ekki umtalsverð-
um erfíðleikum í meðferð sjúklinga.
Ávanalyf
Efni eða lyf, sem verka þannig
á miðtaugakerfið, að menn venjist
á að nota þau svo óhæfilega, að
þeir skaði með því sjálfa sig eða
aðra, nefnast ávanaefni eða ávana-
lyf. Áfengi er t.d. slíkt ávanaefni.
Kvíðastillandi lyf eru ekki ávanalyf
í þessum skilningi.
Fíkn
Fíkn er verulegt vandamál. Fíkn
er mjög sterk löngun í eitthvað og
látið er undan henni, jafnvel þótt
vitað sé með vissu að það verði til
vandræða eða skaða. Fíkn kemur
fyrir í mörgum myndum. Sumir eiga
í erfiðleikum vegna fíknar í að spila
í kössum Rauða krossins, aðrir
vegna fíknar í mat eða fíknar í
sætindi. Sterk fíkn getur myndast
í sum lyf, t.d. sterk verkjalyf eins
og morfín.