Morgunblaðið - 28.11.1991, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
27
Leigubifreiðastj órar
óánægðir með háan af-
slátt af vinnu þeirra
JÓN M. Smith, sem sæti á í undirbúningsnefnd þeirra leigubifreiða-
stjóra sem nýverið sóttu um rekstrarleyfi fyrir nýja leigubifreiðastöð,
segir að helsta ástæða þessarar umsóknar sé óánægja leigubifreiða-
stjóra með það fyrirkomulag, sem nú tíðkist á leigubifreiðastöðvum
höfuðborgarsvæðisins. Afsláttur sé gefinn á vinnu þeirra, allt upp í
28%, án samþykkis þeirra sjálfra.
„Stöðvarstjórar leigubifreiða-
stöðvanna hafa verið að gefa fyrir-
tækjum og stofnunum afslátt allt upp
í 28% án okkar samþykkis. Vinna
okkar er boðin niður algerlega gegn
okkar vilja og svo kemur þetta niður
á tekjum okkar," segir Jón.
Hann segir það vera á milli fimm-
tíu og sjötíu leigubifreiðastjóra frá
hinum helstu leigubifreiðastöðvum
Reykjavíkursvæðisins, sem starfí á
nýju stöðinni ef leyfið fæst. „Þetta
hefur verið rætt okkar á milli í tæp
tvö ár. Þetta á þó ekki að þýða að
leigubifreiðastjórum fjölgi, því nú
þegar eru þeir of margir. Það stefnir
þess vegna allt í að einhver stöðv-
anna leggi upp laupana,” segir Jón
M. Smith.
íþróttamannvirki
Stálgrindahús fyr-
ir um 168 milljónir
SVEINN Halldórsson, umboðs-
maður bandaríska fyrirtækisins
Butler, sem framleiðir m.a. stál-
Eignabankinn hf.:
Nýtt fjár-
festingarfé-
lag- stofnað
Almenningshlutafélagið
Eignabankinn hf. hefur hafið
starfsemi og býður nú til sölu
hlutafé að upphæð 10 milljónir
króna. Félagið hefur hlotið stað-
festingu ríkisskattstjóra og því
geta kaupendur hlutabréfa feng-
ið endurgreiddan tekjuskatt að
ákveðnu hámarki.
Markmið félagsins er að fjárfesta
í hlutabréfum, verðbréfum og fast-
eignum. Þegar hafa selst hlutabréf
fyrir 18,5 milljónir og hlutafjáreig-
endur eru 28 talsins, að sögn Guð-
jóns Styrkárssonar, hæstaréttarlög-
manns og stjórnarformanns félags-
ins. Auk hans eru í forsvari fyrir
félaginu Gunnar Rósinkrans, verk-
fræðingur, Valgeir T. Sigurðsson í
Luxemborg og Bjarni Bærings,
framkvæmdastjóri.
grindahús, segir að fyrirtækið
bjóði uppsett, einangrað stál-
grindahús án sökkuls fyrir um
168 milljónir króna fyrir utan
virðisaukaskatt. Þetta sé staðlað
hús án alls búnaðar, en fullnægi
öllum kröfum og geti hýst úrslit-
aleikinn í heimsmeistarakeppn-
inni í handknattleik árið 1995.
Sveinn sagði að Víðishúsið í
Kópavogi væri frá Butler, en það
væri 6.660 fermetrar. Umrætt verð
miðaðist hins vegar við 7.632 fer-
metra gólfflöt (106 m x 72 m) og
18 metra lofthæð upp í mæni. Það
væri hannað samkvæmt ströngustu
stöðlum um íslenskar byggingar og
einangrað samkvæmt sömu stuðl-
um.
„Hvernig sem litið er á dæmið
þá er þetta mörgum sinnum lægra
verð en talað er um, þegar íþrótta-
hús er annars staðar, og heildar-
kostnaður yrði sennilega um helm-
ingi lægri miðað við fullfrágengið
hús.”
Sveinn sagði að íþróttahallir í
Bandaríkjunum væru nær eingöngu
smíðaðar úr stáli, því það væri hag-
kvæm og ódýr lausn. „Við gætum
þess vegna byggt yfir knattspyrnu-
völl fyrir þann pening sem ríkið
ætlaði að greiða vegna byggingu
íþróttahúss í Kópavogi vegna
heimsmeistarakeppninnar.”
Háskólabíó:
Tvær lúðrasveitir með
sameiginlega tónleika
LÚÐRASVEITIN Svanur og Lúðrasveit verkalýðsins halda sameigin-
lega tónleika í Háskólabíó laugardaginn 30. nóvember kl. 14 og er
þetta í fyrsta skipti sem þessar tvær stóru lúðrasveitir halda sameig-
inlega tónleika.
Hvor um sig munu þær spila eldasvítuna eftir Handel og lag vin-
nokkur lög en síðan sameinast þær sælu sjónvarpsþáttanna um Simp-
í eina stóra sveit, með um 80 hljóð- son-fjölskylduna. Stjórnendur
færaleikara sem spilar m.a. Myndir lúðrasveitanna eru Róbert Darling
á sýningu eftir Mussorgsky, Flug- og Malcolm Holloway.
Takr& me& vfrrr ag kurmfrrgfa
Gestgjafar kvöldsins munu Ijá því
persónulegan blæ með því að velja
eftirrétt eða forrétt eftir sinni eigin
uppskrift, eins og (dou sjálf hafa
kynnst í Bandarikjunum. Hótel
Holiday Inn verður skreytt og fært í
hátíðarbúning og Björn R. Einarsson
og félagar munu laða fram viðeigandi
stemmningu með Ijúfri hljómlist.
Mi&o og bor&apontonir hjá veijp^wjóra Holidoy Inn, Sigtúni 38, í sima: 689000 • Fax: 680675
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Dagskrá til heiðurs Helga
Dagskrá í tilefni af heildarútgáfu á þýðingum Helga Hálfdánarsonar á leikritum Shakespears og á grísku
harmleikjunum var flutt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Fjöldi leikara tók þátt í dagskránni, ásamt hljófæra-
leikurum. Á myndinni eru, frá vinstri, Örn Arnason, Arnar Jónsson, Helgi Skúlason og Róbert Arnfinnsson
og fremst á sviðinu standa Edda Heiðrún Bachmann og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Íslensk-ameríska félagið og Hótel Holiday Inn
gefa nú Islendingum kost á að taka þátt í
hinum eina og sanna "Thanksgiving" kvöldverði
í Setrinu um næstu Þakkargjörðarhelgi dagana-
28., 29. og 30. nóvember 1991.
Misstu ekki af þessu sérstaka tækifæri til þess
að bragða á alvöru kalkún framreiddum með
ekta amerískri fyllingu/'Cranberrysósu,
"Sweet potatoes" og "Pumpkin Pie".
Sérstakir gestgjafar kvöldsins verða:
fimmtudagskvöldið 28/11, bandarísku
sendiherrahjónin Sue og Charles E Cobb Jr.,
föstudagskvöldið 29/11, hjónin Lilly og
Þórhallur Asgeirsson og laugardagskvöldið
30/11, hjónin Lára Margrét Ragnarsdóttir
og Olafur Grétar Guðmundsson.