Morgunblaðið - 28.11.1991, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
Bandaríkin:
NY tegund berkla-
veiki veldur skelk
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BERKLAVEIKl, sem venjuleg lyf vinna ekki á, hefur stungið sér
niður í fangelsum í New York-ríki og skotið heilbrigðisyfirvöldum
skelk í bringu.
Á áttunda áratugnum tókst svo
til alveg að útrýma vandamálum
tengdum berklum í Bandaríkjun-
um. í kjölfar eyðni hefur berklatil-
fellúm hins vegar fjölgað svo mjög,
að „við erum á barmi hættu-
ástands sem gæti leitt til stórvand-
.ræða”, er haft eftir dr. Anthony
Fauct, yfirmanni ónæmisrann-
sókna hjá Heilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna.
Þessi sérstaka tegund berkla-
veiki, sem venjuleg lyf vinna ekki
á, hefur nú þegar orðið banamein
13 fanga og eins fangavarðar.
Berklaveiki af sömu tegund varð
vart í sjúkrahúsum í New York
og Miami fyrr á þessu ári. Hún
er sögð mjög erfíð viðfangs fyrir
lækna pg læknismeðferð mjög
dýr. Yfirmenn heilbrigðismála ótt-
ast, að fangaverðir og starfsfólk
á sjúkrahúsum geti óvart sýkst
án þess að það uppgötvist og smit-
að aðra.
Berklar sýkja lungun. Heil-
brigðu fólki tekst oftast að vinna
bug á sýkingunni .án þess að sýkja
aðra og það verður vart við aug-
ljós merki sjúkdómsins; hósta,
þreytutilfinningu og minni líkams-
þyngd.
Þeir sem sýkst hafa af eyðni,
farið í krabbameinsmeðferð, hafa
lengi verið vannærðir eða ei-u veik-
ir fyrir af öðrum orsökum, eins
og margt útigangsfólk í Banda-
ríkjunúm er, eru líklegastii til að
sýkjast af berklaveiki og útbreiða
hana. Fangarnir sem létust í New
York höfðu allir sýkst af eyðni og
fangavörðurinn var með krabba-
mein.
Sérfræðingar segja að ber-
klasmit berist oft milli manna með
hósta og helst þar sem fjölmenni
er og fólk er í langvarandi snert-
ingu við aðra. Þeir telja nauðsyn-
legt að herða leit að berklaveikitil-
fellum og einangra þá sem grein-
ast með smit.“Öruggt bóluefni er
ekki til.
Sóttvarnastöð ríkisins í Atlanta
skráði 25.701 berklaveikitilfelli á
árinu 1990 og var það 9% aukning
frá árinu áður.
Kambódía:
Reuter
Allt laust og það, sem hægt var að losa, var rifið út úr aðsetri Rauðu khmeranna og síðan borinn eldur
að kestinum.
Flýði burt frá Phnom Penh
alblóðugur og illa leikinn
Þúsundir manna vildu koma höndum yfir Khieu
Samphan, einn helsta böðul Rauðu khmeranna
Phnom Penh. Reuter.
„DREPUM hann, drepum
hann,” kvað við frá mannfjöld-
anum, sem safnaðist saman fyr-
ir utan aðsetur Rauðra khmera
í Phnom Penh í Kambódíu í gær
en inni í húsinu voru Khieu
Samphan, leiðtogi khmeranna,
Evrópubandalagið bann-
ar fargjaldahækkanir
Brussel. Reuter.
Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) tilkynnti fimm
flugfélögum í gær að þeim bæri að lækka fargjöld á tugum mikil-
vægra leiða. Félögin eru British Airways, Air France, Alitália,
Olympic Airways og SAS.
Samkvæmt EB-reglum ber fé-
lögunum að rökstyðja fargjalda-
hækkanir 5% yfír viðmiðunarverð
með auknum kostnaði og kannar
framkvæmdastjórnin síðan hvort
hægt sé að fallast á rökstuðning-
inn. Fyrstnefnda félagið verður
að lækka fargjöld á alls 25 leið-
um, hin á færri, SAS aðeins á
einni leið.
Þetta er í fyrsta skipti sem
framkvæmdastjórnin notfærir sér
réttinn til að banna hækkanir sem
ríkisstjórnir viðkomandi landa
hafa samþykkt.
nýkominn til borgarinnar, og
Son Sen, annar frammámaður
þeirra. Krafðist fólkið, sem
margt var vopnað sveðjum,
hefnda vegna þeirra hundraða
þúsunda eða milljöna manna,
sem khmerarnir drápu á valda-
skeiði sínu. Fyrr en varði rudd-
ust nokkur hundruð manns inn
í húsið. Var mesta mildi, að
Samphan skyldi ekki drepinn
en í gær flýði hann ásamt Son
Sen aftur til Tælands, alblóðug-
ur og illa leikinn.
Haft er eftir vitnum, að hefðu
lögreglan og hermenn ekki komið
Samphan til hjálpar hefði fólkið
drepið hann. „Ég hélt, að það
ætlaði að slíta hann í sundur á
milli sín,” sagði ljósmyndari nokk-
ur. Lögreglan fékk þá félaga loks-
ins tii að skríða inn í skáp með
hjálma á höfði en þá lét æstur
múgurinn höggin dynja á honum
með sveðjum og bareflum. Gengu
menn auk þess berserksgang um
húsið, ruddu út öllu lauslegu og
kveiktu í úti í garðinum.
Það var ekki fyrr en Hun Sen
forsætisráðherra kom og bað fólk
um að sýna stillingu, að mann-
fjöldinn leystist upp. Voru þá Khi-
eu Samphan, Son Sen og tveir
aðrir khmerar fluttir í brynvarinni
bifreið út á flugvöll og settir um
borð í flugvél, sem fór með þá til
Bangkoks í Tælandi.
í yfirlýsingu stjórnarinnar
kvaðst hún harma aðförina að
Rauðu khmerunum þótt hún skildi
vel tilfínningar fólksins. Kvaðst
hún einnig mundu standa við allar
greinar friðarsamningsins, sem
undirritaður var í París, og hét
því, að þessir atburðir endurtækju
sig ekki. Rauðu khmerarnir eru
aðilar að samningnum og því hef-
ur atburðurinn vakið nokkur ugg
um viðbrögð þeirra við honum.
Sagnfræðingar telja, að Khieu
Samphan beri meginábyrgð á því,
að þegar Rauðu khmerarnir náðu
völdum í Kambódíu Í975 voru
tvær milljónir manna fluttar burt
úr Phnom Penh í þrælavinnu úti
á landsbyggðinni, á „blóðvöllun-
um” eins og kallað var. Þar létu
hundruð þúsunda manna lífið af
hungri og sjúkdómum eða voru
tekin af lífí. í Phnom Penh er
varla nokkur maður, sem ekki
missti einhvern ástvin sinn fyrir
morðingjum Rauðu khmeranna.
Miðausturlönd:
Bush Bandaríkjaforseti vill
samninga um Golanhæðimar
Washington. Reuter, The Daily Telegraph.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa lagt til við ísraela og Sýr-
lendinga, að þeir semji um frið sín í milli gegn því, að ísraelar
flytji brott herlið sitt frá Golanhæðum. Einnig hverfi ísraelar með
lið sitt að nokkru frá syðsta hluta Líbanons. Kemur þetta fram í
boðinu um viðræður milli Israela og araba í Washington 4. desem-
ber sem ísraelar hafa hafnað í bili.
Tahð er að stjóm George Bush
Bandaríígaforsétá, yj1ji með tillög-
um sínum leggja áherslú-á að hún
telji þá stefnu ísraéisstjómar að
heimta frið án þess að láta hem-
umið land af hendi geta orðið til
að sigla viðræðunum í strand verði
henni haldið til streitu. Haft er
eftir heimildarmönnum að í tillögu
Bandaríkjamanna um Golanhæð-
irnar sé ekki tekin afstaða til þess
hvort ísraelar skili þeim öllom eða
haldi eftir einhverju dandi. Em
ísraelar spurðir hvað mikið land
þeir vilji láta af hendi við Sýrlend-
inga gegn friðarsamningum ,og
Sýrlendingar inntir eftir því hvers
konar samninga þeir vilji gera fái
þeir Golanhæðimar aftur að miklu
leyti. Þá leggur Bandaríkjastjórn
einnig til við Israela og Líbani, að
Suður-líbanski herinn, vopnuð
samtök kristinna Líbana sem njóta
stuðnings ísraela, láti bæinn Jezz-
ine af hendi við Iíbanska stjórnar-
herinn.
ísraelar segja að ekki komi til
mála að hverfa frá Suður-Líbanon
fyrr en hermdarverkamenn hætti
árásum sínum á ísrael frá stöðvum
í Líbanon og sýrlenski herinn fari
frá landinu. Viðbúið er eínhig að
tillagan um Golanhæðimar eigi
eftir að valda uppnámi í ísrael,
en þær voru í raun innlimaðar í
landið 1981 og fyrr í þessum
mánuði ítrekaði ísraelska þingið,
að um þær yrði ekki samið. Golan-
hæðir eru hernaðarlega mjög mik-
ilvægar og þar að auki eru þar
verulegar vatnslindir. Aðgangur
ríkjanna fyrir botni Miðjarðarhafs
að vatni er eitt af ágreiningsefnun-
um og ekki það lítilvægasta.
„Deiluaðilar ættu sjálfir að
ákveða hvað þeir ætla að ræða
um. Þetta er ekki mál sem aðrir
ættu að ákveða, ekki einu sinni
goðvinir okkar, Bandaríkjamenn,” /
sagði dr. Yossi ólmert, talsmaðúr
stjómvalda í ísrael. Haidar Abdel
al-Shafí, samningamaður Palest-
ínumanna, sagði á hinn bóginn að
Bandaríkjamenn.hefðu aðeins sett
fram tillögur um efni viðræðn-
anna; þeir væru ekki að neyða
þeim upp á deiluaðila.
M PARÍS- Málgagn franska
kommúnistaflokksins, l’Humanité,
tapaði á síðsta ári 21 milljón franka,
um 210 milljónum ISK, og lesendum
þess fækkaði um tíu þúsund. Þetta
er þrisvar sinnum meira tap en árið
á undan. Blaðið hefur aldrei átt í
eins miklum erfiðleikum og nú, að
sögn Rolands Leroyritstjóra. Sagði
hann l’Humanitéeinungis eiga fram-
tíð fyrir sér ef það berðist áfram
fyrir byltingunni.
■ STOKKHÓLMI- Seðlabanki
Svíþjóðar hækkaði vexti sína um
eitt prósentustig á þriðjudagsmorgun
úr 10,5% í 11,5%. Hækkuðu mark-
aðsvextir í Svíþjóð umsvifalaust í
kjölfar þessarar tilkynningar og
einnig er talið að vextir á húsnæðis-
lánum muni hækka. Sem skýringu á
þessari vaxtahækkun nefndi seðla-
bankinn alþjóðlegar vaxtahækkanir
á síðustu vikum og gjaldeyrisút-
streymi upp á 12,1 milljarð sænskra
króna á einni viku eftir að Finnar
felldu gengi marksins um 12,3%.
■ PARÍS- Sovétmenn hafa í fór-
um sínum leyniskjöl um franska
ríkisborgara og eru þau elstu um
190 ára gömul, að sögn franska viku-
ritsins L’Express. Sovétmenn vilja
afhenda Frökkum skjölin gegn því
að fá í staðinn skjöl er níssneskir
andstæðingar bolsévikka höfðu með
sér í útlegð eftir byltinguna 1917
og voru frá stjórnarárum keisaranna.
Ritið hefur eftir sovéskum embættis-
manni að Þjóðverjar hafi komist yfír
skjölin er þeir lögðu undir sig Frakk-
land í seinni heimsstyijöld, flutt þau
til Tékkóslóvakíu og þar hafi Rauði
herinn klófest þau í ■stríðslok-1945.
í skjölunum er méðal ánnars um að
ræða 300.000 lögreglu- og leyni-
skýrslur, 20.000 skýrslur hermálayf-
irvalda, skjalasöfn frímúrara, einnig
skjöl Rotschild-auðkýfingaættarinn-
ar og forsætisráðherranna Leons
Blums og Jules Moch. Alls fíalla
þau um milljón einstaklinga frá því
um 1800 til 1940.