Morgunblaðið - 28.11.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
29
Sovétríkin:
Fjölskyldur látinna
embættísmanna njóta
ennþá forréttínda
Moskvu. The Daily Telegraph.
FJÖLSKYLDUR Jósefs Stalíns
og Níkíta Khrústsjovs, fyrrver-
andi Sovétleiðtoga, og tuga ann-
arra látinna embættismanna eiga
enn rétt á ókeypis bifreiðum með
einkabílstjórum og ýmsum öðr-
um forréttindum, að því er fram
kom í skýrslu sem kynnt var í
Æðsta ráði Sovétríkjanna ný-
lega. Þar sagði einnig að þótt
Fulltrúaþing Sovétríkjanna hefði
verið lagt niður nytu hundruð
manna, sem áttu þar sæti, enn
ýmissa forréttinda.
í skýrslunni sagði að afnot for-
réttindastéttarinnar af ríkisbifreið-
um hefðu „farið úr böndunum” fyr-
ir löngu og misnotkun hennar á
þjónustu ríkisins hefði kostað hið
opinbera mikla fjármuni. Því sem
næst hver einasti maður, sem gegnt
hefði einhveiju af valdamestu emb-
ættunum, og fjölskyldur þeirra nytu
enn forréttindanna og hvað það
varðaði hefði ekkert breyst frá
valdaránstilraun sovéskra komm-
únista í ágúst.
í skýrslunni kom ennfremur fram
að hundruð manna, sem áttu sæti
á fulltrúaþinginu, hefðu enn aðgang
að ríkisbifreiðum, sérstökum versl-
unum og húsnæði í Moskvu, auk
þess sem þeim byðust ferðir til út-
landa. Jafnframt var lagt til að af-
not þingmanna Æðsta ráðsins af
ríkisbifreiðum yrðu takmörkuð
■ BELFAST- Bresk stjórnvöld
sendu 600 manna herfylki til viðbót-
ar til Norður-írlands í gær til að
reyna að stöðva mannskæð átök
sem farið hafa vaxandi milli trúar-
fylkinganna í landinu, mótmælenda
og kaþólikka, að undanförnu.
Skömmu eftir að Tom King, varn-
armálaráðherra Bretlands, hafði til-
kynnt um þessa ráðstöfun, fann
lögreglan lík af manni sem Irski
lýðveldisherinn, IRA, hafði numið
á brott. Þar _með er tala fallinna í
átökunum á írlandi komin upp í 87
á þessu ári, en var 90 allt árið í
fyrra. Fyrr í þessum mánuði var
tæplega 2000 manna liðsauki send-
ur til Norður-Irlands eftir að sjö
manns höfðu fallið í blóðugum átök-
um trúfylkinganna.
verulega. Þrátt fyrir þessar nýju
upplýsingar vildi þingið ekki ræða
málið og talið er að sú ákvörðun
verði til að grafa frekar undan áliti
þess, en það virðist engu hlutverki
gegna lengur í sovéskum stjórnmál-
um.
-----♦ » ♦-----
Sænska þingið:
Hámarks-
hraði verði
hækkaður
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SÆNSKA þingið samþykkti í
gær að beina þeim tilmælum til
stjórnar umferðamálastofnunar
landsins að hámarkshraði á
hraðbrautum í grennd við stór-
borgir verði hækkaður á ný en
hann var lækkaður úr 110 km
á klst. í 90 km fyrir tveim árum.
Stjórnin tekur ákvörðun í mál-
inu 10. desember.
Aðeins Vinstriflokkurinn [gamli
kommúnistaflokkurinn] og fáeinir
þingmenn jafnaðarmanna og Mið-
flokksins voru á móti því að hækka
hámarkshraðann á ný. Minnihlut-
inn segir að slysum hafí fækkað
vegna lækkaðs hámarkshraða og
auk þess sé skaðleg mengun frá
bílum minni. Frá 1989 hefur há-
markshraði á samanlagt nær 100
km af fullkomnum hraðbrautum
verið 90 km og skýrslur sýna að
þrír af hvetjum fjórum ökumönn-
um á þessum vegarköflum aka
hraðar en leyfilegt er, flestir á 110
km hraða á klst. eða enn hraðar.
Af umræðum um málið er ljóst
að ökumenn afsaka hegðun sína
með því að þeim finnist að vegim-
ir séu í svo góðu ástandi og bílarn-
ir svo vel búnir að réttlætanlegt
sé að aka yfir hámarkshraða.
Reuter
Gaia í Havana
Kúbversk börn skoða víkingaskipið Gaiu sem lagði að bryggju í höfuðborg Kúbu, Havana, á mánudag. Gert
er ráð fyrir að skipið haldi næst til borgarinnar Progeso í Mexíkó og þar næst Rio de Janeiro í Brasilíu.
Hjálparstofnun norsku kirkjunnar:
Hætta talin á hungursneyð
í Múrmansk o g Arkangelsk
Vegna stopulla olíuflutninga óttast
íbúarnir þó kuldann enn meira
„ÞAÐ er ekki lengur um að ræða kreppu, heldur upplausn, hungur-
sneyð og hættu á, að fólk krókni úr kulda” segir í skýrslu, sem
nú liggur fyrir hjá Hjálparstofnun norsku kirkjunnar, en í henni
er sagt frá ástandinu í rússnesku borgunum Múrmansk á Kola-
skaga og Arkangelsk við Hvítahaf. Norðmenn og norska kirkjan
hafa verið með margvíslegt hjálparstarf á þessum slóðum en nú
er talið, að aðeins alþjóðleg aðstoð geti komið í veg fyrir miklar
hörmungar.
„í ríkisverslununum í Múrmansk
fyrirfinnst ekki lengur ætt kjöt eða
ferskur fískur,” segir skýrsluhöf-
undurinn, Tore Börresen, en síð-
asta misserið hefur hann tvisvar
kynnt sér ástandið í borginni og í
Arkangelsk einnig. Á þeim tíma
hefur það versnað mikið. Var frá
þessu skýrt í norska blaðinu Aften-
posten.
„í Arkangelsk fæst engin mjólk
nema gegn lyfseðli og þá aðeins
fyrir börn yngri en eins árs. Þegar
ég var á ferð var hins vegar enga
mjólk að fá í borgunum, hvorki
fyrir börn né aðra, og í Arkangelsk
var mikill brauðskortur. Lítið var
um grænmeti og kartöflur og eng-
an fatnað og skó nema eitthvað í
verslunum með notuð föt. Þá hafði
engin brennsluolía verið flutt til
borganna.
Á ftjálsa markaðnum þar sem
ekki er fylgst með verðlaginu er
framboðið miklu minna en í fyrra-
vetur og einkum af kjöti. Á það
einkum við um Arkangelsk en í
Múrmansk er það svo dýrt, að eftir-
launaþegi til dæmis getur aðeins
fengið 2,5 kíló fyrir mánaðarlaun-
in.
Fólkið á þessum slóðum óttast
þó jafnvel kuldann enn meira en
hungrið. í borgunum eru fjar-
varmaveitur en vegna þess, að olíu-
sendingar til þeirra eru stopular
eru íbúðir og vinnustaðir jökulk-
öld,” segir Tore Börresen í skýrsl-
unni. Kemur einnig fram hjá hon-
um, að lyfjaskortur hafí verið
næstum alger og sjúkrahúsin jafn-
vel án nauðsynlegustu tækja.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
Siglufjöröur: Torgið hf., Aðalgötu 32.
Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaður: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafirði: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.