Morgunblaðið - 28.11.1991, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
Saga-bíó opnað um helgina:
Frumsýningar í öll-
um húsum SAM-bíós
SAGA-bíó, hið nýja kvikmyndahús SAM-bíós í Mjóddinni, verður
opnað formlega á föstudag með frumsýningu á myndunum „Thelma
and Louise” og „One good cop”. í tilefni þessara tímamóta verða
einnig frumsýningar í hinum tveimur kvikmyndahúsum SAM-bíós,
Bíóhöllinni og Bíóborginni.
Árni Samúelsson, eigandi SAM-
bíó, segir að auk þessa verði brydd-
að upp á þeirri nýjung í starfsemi
kvikmyndahúsanna að taka einn af
sölum þeirra undir sýningar á
myndum, sem alla jafna sjást ekki
í kvikmyndahúsum hérlendis. Mun
þessi salur heita Gullmolinn og
fyrsta myndin sem sýnda verður
þar er „Sheltering sky” eftir ítalska
leikstjórann Bernardo Bertolucci.
Sem kunnugt er af fréttum verða
tveir salir í Saga-bíó,. sem er til
húsa þar sem skemmtistaðurinn
Broadway var áður. Tekur stærri
salurinn 450 manns í sæti en hinn
minni 250 manns.
KGA
Alferð Árnason markaðsstjóri SAM-bíós í hinum stærri af tveimur
nýjum sölum Saga-bíó sem opnar á föstudaginn.
í Kringlunni27. —30. nóvember 1991
-3-
Póstur og sími stendur fyrir símasýningu í Kringlunni á 2.
hæð. Þar gefur á að líta fjölbreytt úrval símtækja, sím-
svara, faxtækja að ógleymdri einkasímstöð fyrir heimilið.
Kynntu þér þjónustuna og notfærðu þér allt að 20% afslátt
verði valdra símtækja sem gildir í söiudeildum í Kirkju-
stræti, Kringlunni, Ármúla 27 og á póst- og símstöðvum
um land allt.
Beocom 2000
Vandaður tölvustýrður takkasími, hannaður af Bang &
Olufsen. Tónval. Hátalari. Styrkstillir. 20 númera minni.
Endurval síðustu þriggja númera sem valin hafa verið.
Hraðvalstakki fyrir eitt símanúmer. Skjár sem sýnir númer
sem valin voru og aðgerðir sem búið er að framkvæma.
\ Átta stillingar á hringingu. Spjald með
\minnisblokk. Leiðbeiningar á ís-
1 lensku um notkun símans. Merk-
ingar á takkaborði á íslensku.
Echo
Óvenjulegur sími í úrvalinu hjá Pósti og sfma. Með vegg-
" \festingu eða á borð. Tónval. 9 númera
4J0^Se __________________________,1.,
,.5^kr- 1 áður en tólinu er lyft af. Takkar til að
forrita sérþjónustu stafrænnar símstöðvar.
ReplikSvar
Sími með innbyggðum símsvara. 10 númera minni. End-
"ver» \ urval- Tónval. Takka til'að forrita sérþjón-
^.925 -
-—i ustu í stafrænni símstöð. Með vegg-
festingu eða á borð. 20 mínútna
míkrósnælda. Með lykilnúmeri er hægt að
hlusta á og má út móttekin skilaboð með fjarstýringu úr
öðrum tónvalssíma.
MicroSvar
Lítill og hagkvæmur símasvari fyrir heimilið. Einfaldur í
ver» \ notkun. Með veggfestingu eða á borð.
9.8Fjarstýranlegur með lykilnúmeri úr
öðrum tónvalssíma. 20 mínútna
míkrósnælda.
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeildir f Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og á póst- og símstöðvum um land allt
Myfax
Handhægt faxtæki sem sameinar símanúmer og faxnúm-
er. Þegar hringt er í númerið úr venjulegum síma þá
skiptir faxtækið yfir á símtenginu og á móttöku á send-
ingu ef um fax er að ræða. Sáraeinfalt í notkun og vegur
aðeins 3,3 kg. Tekur allt að 5 skjöl í matara. Grátóna-
kvarði fyrir ljósmyndir. Ljósritun. Handstýrðeða sjálfvirk
móttaka sendinga. Gróf eða fín sending. Sjálfvirk
"Wms \ skeTpustiHing- Útprentað yfirlit sendinga.
Stærð; 300 mm (breidd), 260 mm
.«7kr.\
(dýpt),90mm (hæð).
$
&
1
25«
•"'*! x
.*;]
'zá
m
■í>s'
%
'íf%
i
%
m
<4
Sn
f:
fi, iv"
z*
'&h
p
$
%
%
&
5*
SS
Norræna húsið:
Sýningin
framlengd
SÝNINGIN á grafíkmynduin í
anddyri Norræna hússins eftir
sænska listamanninn Mattias
Fagerholm hefur verið fram-
lengd til sunnudagsins 1. des-
ember.
Mattias Fagerholm er fæddur í
Stokkhólmi 1952. Hann stundaði
nám við Listaháskólann í Stokk-
hólmi 1972-1978. Hann hefur hald-
ið einkasýningar í Stokkhólmi,
Gautaborg, Málmey og víðar og
tekið þátt í fjölrriörgum samsýning-
um f heimalandi sínu og erlendis.
Verk hans eru í eigu Listasafns
ríkisins í Stokkhólmi og Listasafns-
ins í Gautaborg.
Sýningin verður opin daglega kl.
9-19 og á sunnudag 1. desember
er sýningin opin frá kl. 12-19.
Hugbúnað-
arkynning-
ar hjá EJS
EINAR J. Skúlason hf. hefur tek-
ið upp á þeirri nýbreytni að vera
með vikulegar kynningar á hug-
búnaði í húsakynnum fyrirtækis-
ins á Grensásvegi 10, 2. hæð. Þar
hyggst fyrirtækið kynna ýmis
forrit sem það hefur umboð fyr-
ir. í dag verðúr forritið Works
fyrir Windows kynnt.
Að sögn Arnar Arasonar fannst
mönnum takast svo vel Windows-
forrítakynning fyrirtækisins, sem
haldin var fyrr í þessum mánuði,
að ákveðið var að taka upp reglu-
legar slíkar kynningar á fimmtu-
dögum í vetur, þar sem kynnt verða
ýmis forrit. Örn sagði ekki ætlunina
að reyna að leysa einhver einstök
vandamál, en frekar að menn geti
kynnt sér hvort viðkomandi forrit
hentaði þeim eða ekki og einnig
kynnt sér nýjungar. Örn sagði
Works samofinn hugbúnað sem,
fæli í sér ritvinnslu, töflureikni,
gagnavinnslu og grafík, en það
vinnur í Windows-umhverfi, sem
sækir mjög í sig veðrið.
Heilsuátak í
Efra- Breiðholti
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR frá
Heilsugæslustöðinni Efra-Breið-
holti Hraunbergi 6 verða í Hóla-
garði föstudaginn 29. nóvember
kl. 15-18.
Heilsuátakið á að minna íbúa
hverfisins á að góð heilsa er gulli
betri.
Veitt verður fræðsla/ráðgjöf um
mataræði og holla lífshætti. Blóð-
þrýstingur verður mældur hjá þeim
er þess óska.
(Fréttatilkynning)
■ í TILEFNI af útkomu fyrstu
íslensku Karaoke-plötunnar
Syngdu með kynnir Ölver plötuna
á undanúrslitakvöldi íslandsmeist-
arakeppninnar fímmtudaginn 28.
nóvember. Syngdu með kemur út á
kassettu og geisladiski í byijun
desember.
■ Á VEITINGAHÚSINU A.
Hansen í Hafnarfirði stendur nú
yfir sýning á grafíkmyndum eftir
myndlistarmanninn Kristberg Ó.
Pétursson. Kristbergur stundaði
nám við Myndlista- og handíðaskól-
ann og Ríkisakademíuna í Amsterd-
am. Hann hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga sl. tíu ár og haldið
nokkrar einkasýningar, þær helstu
í Hafnarborg 1984, Nýlistasafninu
1987 og Gallerí einn einn 1990.
Sýningin stendur .til 8. des.