Morgunblaðið - 28.11.1991, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
Rithöfundarnir Maj Sjöwall og Tomas Ross:
Skrifa tvær útgáf-
ur af sömu sögu
Rithöfundarnir Maj Sjöwall og Tomas Ross voru á dögunum
staddir á Islandi í tilefni af útgáfu bókar þeirra „Konan sem líkt-
ist Grétu Garbo”. Tomas hefur skrifað 10 spennusögur í heima-
landi sínu Hollandi og j'afnframt unnið að kvikmyndagerð en Maj
er fyrst og fremst þekkt fyrir sagnaflokkinn „Skáldsaga um glæp”
sem hún samdi í félagi við eiginmann sinn Per Wahlöö. Níu af tíu
sagnanna hafa komið út á íslensku. Þráinn Bertelsson, rithöfundur
og kvikmyndaleikstjóri, þýddi fyrstu þrjár bækurnar en Ólafur
Jónsson, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi, hinar siðari.
Blaðamaður hitti rithöfundana
að máli í miðbæ Reykjavíkur og
forvitnaðist fyrst um hvernig tveir
rithöfundar í sitt hvoru landinu
færu að því að semja eina bók.
„Jú, því er þannig farið,” svar-
aði Tomas, „að annað okkar fær
hugmynd og ber hana undir hitt.
Þá taka við langar umræður um
söguþráðinn og alls kyns smáatr-
iði, ~sem þarf að samræma. Við
þurfum að komast að niðurstöðu
um hvernig fólk lítur út, er per-
sóna til dæmis með gleraugu, er
hún með dökkt hár eða lendir hún
ef til vill í ástarævintýri. Ótal atr-
iði af þessu tagi mætti telja upp,”
sagði Tomas og lagði mikla áherslu
á að þessi hluti taki langan tíma.
„Við höfum oft ólíkar skoðanir á
þessum málum sem ég hugsa að
helgist að hluta til af því að við
komum frá tveimur ólíkum löndum
og tveimur ólíkum menningar-
heimum sem þarf að koma fyrir í
einni bók.”
Þegar komist hefur verið að
samkomulagi um söguþráðinn er
gerð beinagrind af bókinni og
ákveðið hvað á að gerast í hveijum
kafla. „Að því loknu setjumst við
niður, hvort í sínu lagi, og skrifum
kafla um okkar persónu,” sagði
Tomas. „Ég skrifaði kynningu á
hollenskum bílasala, sem ég hafði
valið mér, en Maj sagði frá sænsk-
aftur á móti að fá upplýsingar um
skrítna fólkið sem býr undir vind-
myllunum í Hollandi,” sagði hann
og kímdi. Bæði lögðu áherslu á
að þó útgáfurnar séu tvær sé sag-
an sú sama. Bækur Maj og Per
hafa þótt sýna nokkuð raunsæja
mynd af lífi lögreglumanna í stór-
borg. Maj var spurð hvernig rithöf-
undur geti gefið slíka mynd af
raúnveruleika sem hann þekki ekki
af eigin raun.
„Þegar við byijuðum að skrifa
sögurnar höfðum við sambönd í
sænsku lögreglunni sem hjálpuðu
okkur töluvert," sagði Maj, „en
blöðin hjálpuð okkur einnig ótrú-
lega mikið. Maður getur komist
að heilmörgu ef maður les þau
nógu vel,” sagði hún og benti á
að nýja bókin væri töluvert ólík
bókunum um Martin Beck, lögre-
gluforingja, og félaga hans í
sænsku lögreglunni. „Þær bækur
áttu að gefa raunsanna mynd af
lífi lögreglumanna, sem mér skilst
af sænskum lögreglumönnum að
hafi tekist, en söguþráður þessarar
er meiri fantasía þó umhverfi og
persónur séu raunsæjar.”
Maj og Tomas vinna nú saman
að nýrri spennusögu en Maj sagð-
ist einnig vera með eigin skáldsögu
í vinnslu. Sagan er um miðaldra
konu sem býr í Stokkhólmi. Saman
hafa Maj og Tomas valið spenni-
sögur til þýðingar fyrir hollenskan
útgefanda í nokkur ár.
Tomas Ross og Maj Sjöwall.
um blaðamanni. Aðalvandamálið
kom ekki upp fyrr en persónumar
tvær hittust. Hver átti að skrifa
þann kafla? Á endanum varð úr
að Maj skrifaði kaflann á sænsku,
faxaði hann til HoUands þar sem
textinn var lauslega þýddur á hol-
lensku, og ég endurskrifaði hann
á hollensku. Ég skrifaði næsta
kafla og sendi hann til Maj. Þann-
ig unnum við bókin, kafla fyrir
kafla. Maj bætti við að þessi að-
ferð hafi bæði kosti og galla. „Auð-
vitað tók vinnan töluverðan tíma
en í staðinn fyrir að tveir rithöf-
úndar með mismunandi stíl skrifí
Morgunblaðið/KGA
eina bók með einum stíl fengum
við bæði að njóta okkar. Tomas
skrifaði hollensku útgáfuna fyrir
Hollendinga í sínum stíl en ég
skrifaði sænsku útgáfuna, sem
liggur til grundvallar íslensku þýð-
ingunni, með mínum stíl,” sagði
Maj. Tomas sagði með þessum
hætti hafi hann getað útskýrt
ýmislegt fyrir hollensku lesendum
sem ekki hefði þurft að lýsa fyrir
Svíum.
„Ég læt Hollendinginn koma til
Stokkhólms og um leið lýsi ég stað-
háttum þar. Þessar upplýsingar
eru óþarfar fyrir Svía en þeir þurfa
■■
LIF OG FJOR
í BORGARKRINGLUNNI
ALIA FÖSTUDAGA OG LAUGARDAGA
A Blái fuglinn með tískusýningu
í dag kl. 1 7.30
O Lifandi tónlist
□ Vörukynningar
A Getraunaleikur Demantahússins
O Jólasveinar ganga um gólf
□ Fljúgandi blöðrur frá Tómstundahúsinu
A Rósa Ingólfs skreytir uppbúið rúm
frá Bláa fuglinum á laugardag
milli kl. 13 og 15
O Nemar í Myndlista- og handíðaskóla
Islands kynna listmuni sína og
vinna á staðnum
□ Allar jólagjafir á einum stað
_i ir inr
OPIÐ FÖSTUDAG FRÁ 10-19
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ 10-16
Aðalfundur samtaka sveitarstjórna í Vesturlandskjördæmi:
Sameining sveitarfélaga
eflir sveitarstjómarstisfið
Stykkishólmi.
AÐALFUNDUR samtaka sveitarsljórna í Vesturlandskjördæmi var hald-
inn i Stykkishólmi dagana 8. og 9. nóvember sl. Voru þar mættir fulltrú-
ar úr öllum sveitarfélögum Vesturlands, ásamt framkvæmdasljóra,
Guðjóni Ingva Stefánssyni. Formaður samtakanna, Eyjólfur Torfi Geirs-
son, Borgarnesi.
Otal mál lágu fyrir fundinum og
miklar umræður urðu, sérstaklega
um umhverfis- og atvinnumál, byggð-
amál og samgöngumál.
Um sameiningu sveitarfélaga var
gerð samþykkt þar sem segir að sam-
eining sveitarfélaga efli sveitarstjórn-
arstigið og auðveldi verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga. Jafnframt
leggur fundurinn áherslu á að unnið
verði að flutningi verkefna og valds
heim í héruð og að tryggðir verði
tekjustofnar til þeirra framkvæmda.
Markmið sameiningar verði að gera
sveitarfélögin það sterk, að þau hvert
fyrir sig valdi þeim verkefnum sem
þau hafa með höndum og raunhæft
verði að þau taki við auknum verkefn-
um frá ríki.
Þá var ákveðið að skipa 7 manna
nefnd sem hafi það hlutverk að vinna
að úttekt varðandi hagræðingu af
sameiningu sveitarfélaga á Vestur-
landi.
Um umhverfismál kom fram, að
fundurinn treystir því að stjórnvöld
styðji sveitarfélögin í landinu til að
mæta þeim miklu en sjálfsögðu kröf-
Ullarkápur í svörtum
dökkbláum
vínrauöum og
mosagrænum litum
Allar stæröir
Kápusalan
■g-gartúni 22 — Sími 624362
UÍbI ÍJE.I PÓSTKRÖFUR
um, sem til þeirra eru gerðar varð-
andi sorpeyðingu og fráveitur. Ljóst
er að við núverandi aðstæður eru þau
verkefni sem við blasa á þessum vett-
vangi sveitarfélögunum ij'árhagslega
ofviða.
Samþykkt var að skipa 5 manna
nefnd, sem ásamt framkvæmdastjóra
SSV og forráðamönnum íjölbrauta-
skóla Vesturlands, taki upp viðræður
við menntamálaráðuneytið til að ljúka
gerð samnings um rekstur og upp-
byggingu Fjölbrautaskólans. Miðað
sé við að unnt verði að undirrita
samninginn við skólaslit 21. des. nk.
Rekstur framhaldsdeilda við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands er meginfor-
senda fyrir samstarfi sveitarfélaga
um hann. Því leggur fundurinn ríka
áherslu á að tryggja skýrar vinnu-
reglur vegna uppgjörs framhalds-
deildanna, þannig að sveitarfélögin
sem þær reka, þurfí ekki að búa við
óvissu í þeim efnum.
Stórauka þarf þjónustu ríkisút-
varps á Vesturlandi þannig að Vest-
lendingar sitji við- sama borð og aðr-
ir. Fundurinn væntir þess að svæðis-
útvarp í kjördæminu verði að veru-
leika. Þá lýsir fundurinn áhyggjum
sínum varðandi stöðu Reykholts-
skóla.
Ályktað var um eflingu bruna-
varna á svæðinu og athugað verði
um að koma á fót viðbragðsstjómstöð
sem næði til allrar almennrar neyðar-
þjónustu og hugað verði að ástandi
almannavarna á svæðinu.
Á fundinn mætti Eiður Guðnason
ráðherra og flutti erindi um umhverf-
ismál og nauðsyn þess að efla um
þau samvinnu milli allra byggðarlag-
anna. Umhverfismálin væru orðinn
stór þáttur í umhverfisvernd og þyrfti
að sýna þessu verkefni meiri skilning
og áhuga en verið hefði. Átak yrði
að gera um allt land í sorpeyðingar-
málum, enda væru flest sveitarfélög
komin í viðbragðsstöðu.
í ályktun um atvinumál er m.a.
lýsti þeirri skoðun að varlega þurfi
að fara í breytingr á hlutverki Byggð-
astofnunar gagnvart atvinnulífi á
landsbyggðinni.
í lok fundarins fór fram stjórnar-
kjör. Kosningu hlutu: Oddný Val-
geirsdóttir, Akranesi. Sigurbjörg
Ragnarsdóttir, Akranesi, Eyjólfur
Torfi Geirsson, Borgarnesi, Magnús
B. Jónsson, Hvanneyri, Sveinn Elin-
bergsson, Ólafsvík. Ólafur Guð-
mundsson, Grundarfirði, Ólafur
Gunnarsson, Dalasýslu.
- Árni