Morgunblaðið - 28.11.1991, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NOVEMBER 1991
37
VARABU MG A SVARTSYHI!
Við vonum að þessi dálkur ýti við þér.
Við skiljum vissulega alvöru málsins.
Við vitum alveg jafnt og þú, að stöðu-
vötn, vatnsföll og hafið eru menguð
með efnaúrgangi og áburði.
Við vitum að loftið sem við öndum að
okkur er oft ekki beinlínis hreint og að
margar dýrategundir eru í útrýmingar-
hættu.
Samt erum við bjartsýn.
Við vitum af eigin reynslu að það er
hægt að framkvæma ýmislegt, að leysa
vandamál og að það er auðveldara eftir
því sem fleiri vinna að sama markmiði.
Við verjum 582 milljQnum
til umliverfismála.
Eins og allir vita takmarkast umhverfið
ekki við landamæri milli ríkja.
þess vegna eru umhverfismál sett á
oddinn í norrænni samvinnu.
í ár hefur Norræna ráðherranefndin
t.d. varið 582 milljónum ísl. kr. í raun-
hæfar aðgerðir í umhverfismálum.
Og næsta ár verjum við jafnmiklu fé til
þeirra.
þegar um er að ræða umhverfismál á
alþjóðavettvangi, t.d. innan Sameinuðu
þjóðanna eða í Evrópuráðinu, tala
Norðurlöndin ætíð með einum rómi.
Rödd þeirra verður æ sterkari og
sífellt fleiri hlýða á hana.
Hertar reglur í
umliverfismálum á
Nortfurlönclum.
Reglur um umhverfisvernd verða sífellt
strangari á Norðurlöndum.
Kröfur um hreinsun á úrgangsefnum
sem veitt er í loft og vatn, grófflokkun á
sorpi, aukna endurvinnslu o.s.frv. verða
sífellt háværari.
Bæjarfélögin eru búin að koma sér
upp endurbættum hreinsikerfum og í
iðnaði þykir það afleitt að spilla
umhverfinu.
þessi árangur hefur náðst með
löggjöf. Mikill hluti hans er þó einnig
að þakka sjálfboðavinnu.
Hvaða álirif hefur
umhverfið á loftslag?
þetta er ein af fjölmörgum spurningum
sem vonast er til að verði svarað í þeim
viðamiklu og skipulegu umhverfisrann-
sóknum sem eiga að hefjast eftir rúmt ár.
Um fimm ára skeið hyggst Norræna
ráðherranefndin leggja af mörkum 1165
milljónir króna til rannsóknaáætlunar-
innar og féð rennur fyrst og fremst til
rannsóknaverkefna á Norðurlöndum.
Gróðurhúsaáhrifin svonefndu eru
alþekkt vandamál, en þeim veldur
koltvísýringur sem bilarnir okkar sleppa
út í andrúmsloftið. Annað vandamál
eru áhrif losunar ýmissa efna í umhverfi
okkar á ósonlagið.
Sameigjinlegar rannsóhnir
veita oft f jölhreyttari
tæhifæri.
Við getum áorkað meira með frjálsu
þekkingarstreymi milli Norðurlanda.
Með því að beina fjármagni í sameig-
inleg rannsóknaverkefni er hægt að
stunda fjölbreyttari og betri rannsóknir.
Gott dæmi um þetta eru þær stofnanir
og rannsóknaverkefni sem Norræna
ráðherranefndin styrkir fjárhagslega.
Til dæmis má nefna Norrænu eld-
fjallastöðina í Reykjavík eða Norræna
genabankann í Alnarp skammt frá
Lundi, þar sem m.a. er unnið að því að
varðveita fræ af gömlum nytjajurtum
sem annars væru í útrýmingarhættu.
Auk þess er nýlega búið að setja á stofn
Norrænu vísindastofnunina, NorFA.
Stofnunin stuðlar annars vegar að
bættri menntun í rannsóknastörfum og
hins vegar að auknum samskiptum milli
Norðurlanda.
Króna í austri gefur
meira af sér en hróna á
Norðurlöndum.
þetta eru alþekkt sannindi.
Fyrir hverja þá krónu sem varið er til
umhverfisbóta í austri næst miklu betri
árangur en þótt krónan sé notuð á
Norðurlöndum.
Ef við viljum fá hreint haf, eigum við
að beina fjármagni þangað sem méstum
efnaúrgangi er veitt í sjóinn og mengun-
in er mest.
þess vegna er Norræna ráðherranefnd-
in búin að setja á stofn NEFCO, sem
þegar hefur sannað gildi sitt.
NEFCO gerir norrænum fyrirtækjum
og viðskiptaaðilum þeirra í Austur- og
Miðevrópu kleift að hefja sameiginlegt
átak í samvinnu við NEFCO, sem leggur
til áhættufé.
þau lönd sem þetta samstarf nær til
eru m.a. Sovétríkin, Eistland, Lettland,
Litháen og Pólland.
_ Átakið beinist að því að hreinsa vatn,
hreinsa úrgangsefni sem veitt er út í
andrúmsloftið og ýmsum verkefnum
sem tengjast umhverfisvernd.
Það er ljóstýra í myrhrinu.
Ein hörmungaskýrslan rekur aðra, en
þrátt fyrir allt er þó hægt að finna
sólargeisla.
Með stuðningi Norrænu ráðherra-
nefndarinnar hafa vísindamenn rann-
sakað sjóinn umhverfis Færeyjar og
fundið þar eitt hreinasta hafsvæði í
heimi.
Straumar i hafinu umhverfis Færeyjar
verja það mengun úr Norðursjó og
Atlantshafi og vísindamennirnir fundu
alveg óspillt dýralíf.
Já, þeir fundu meira að segja sjávardýr
sem enginn vissi að væru til.
Nú getur sjórinn umhverfis Færeyjar
verið viðmiðun fyrir þá sem stunda
rannsóknir i köldu úthafinu.
Mar^t fl eira er td
lrásagnar.
þetta eru einungis fáein dæmi um
norrænt samstarf í umhverfismálum.
Norræna ráðherranefndin hefur að
sjálfsögðu áorkað fleira á öðrum
mikilvægum sviðum.
Um það má lesa i tímaritinu "Gráns-
lost” sem við erum fús að senda þér.
|----------------------------------------------------------------------------
Já, ég vil enclilega fá að vita meira. Sendið mér "Granslost” upplvsingarit
| Norrænu ráðJierranefndarinnar.
^ Nafn:_____________________________________________________________________
I Heimilisfahg:_____________________________________________________________
Póstáritun: .
I
L
Sendu seðilinn til Nordisk Ministerrad.
Informationsafdelingen, Store Strandstræde 18. DK-1255 Kobenhavn K, Danmark.'
Burftargjald er 26 kr.
Norræna ráðherranefndi
m
Norræna ráðherranefndin er samvinnustofnun ríkisstjórna Norðurlandanna fimrn og sjálfstjórnarsvæöanna Færeyja. Grænlands og Álandseyja. í ár veröur hún 20 ára.
Samstarfiö nær til flestra sviða þjóðfélagsins, að utanríkis- og varnarmálum undanskildum. Ákvarðanir nefndarinnar eru bindandi fvrir öll ríkin.