Morgunblaðið - 28.11.1991, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
Haukur Emarsson
frá Miðdal — Minning
Nú er Mosfellsheiðin komin í vetr-
arbúning; blásnir snjóskaflar og
nakin gijótin minna á lok enn einnar
hringferðar lífríkisins á heiðinni.
Mófuglinn er horfinn, lyngið á stöku
þúfnakolli brúnt og punturinn hneig-
ir höfuð. Lífshlaupi lýkur og lífver-
urnar í dvala vakna ekki fyrr en
með hækkandi sól, rétt eins og þær
nýju sem þá vaxa upp.
Þegar lág vetrarsólin var að tipla
lágt yfir fjallhringinn austan og
sunnan heiðarinnar fyrir nokkrum
dögum lauk lífi eins af sonum henn-
ar, manns sem hafði vaxið úr grasi
við heiðarbrúnina, sótt físk í kyrrar
tjarnir, fugl í mó og gengið eða jafn-
vel hlaupið um alla hennar vanga
og lautir. Hann var síðasti eftirlif-
andi bróðirinn úr stórum systkina-
hópi sem kenndur er við bæinn í
heiðarholtinu, Miðdal: Haukur Ein-
arsson prentari, kominn á níræðis-
aldur.
p*8T
ÍiJ
Haukur var einstakt hraustmenni
og ekki aðeins kunnur hlaupari,
kappgöngumaður og sundmaður,
heídur hafði hann einstaklega jarð-
bundna afstöðu til íþrótta. Hann
ræktaði sitt samband við náttúruna,
jafnt dauða sem lifandi, með því að
þjálfa sig, keppa, halda sér í þjálfun
og eyða tómstundunum á víðavangi
og lét þá hlut sinn í engu fyrir óblíð-
um viðtökum lands og veðurs. Hann
kom fólki þá oft á óvart, t.d. með
því að ganga í þunnum samfestingi
einum fata í frosti, hlaupa úti á vet-
urna meðan það þótti óstætt og
synda í ísköldum sjó og vötnum;
allt til að herða huga og líkama.
Karlmannleg lund hans kom líka
fram í stjórnmálum og verkalýðs-
málum. Þar þoldi hann ekkert hálfk-
ák og fyrirleit óréttlæti, gerðist
fölskvalaus málafylgjumaður jafn-
aðarstefnu og alþýðuvalda og var
reiðubúinn til þess að beijast með
Jólapapplr - og
umbubapappír
Stórkostlega fallegt og fjölbreytt úrval í
mörgum breiddum og lengdum á
frábæru verði.
Heildsölubirgðir.
@kz£qi\[ Guttormsson^Fjölval hf.
Ármúla 23, 128 Reykiavfk, sMiar 812788, 688650
afli eigin handa ef svo bar undir og
brotið var á íslenskri verkalýðsstétt.
Hann mildaðist með árunum en þótti
ávallt of lítið gert til þess að færa
vinnufólki þessa lands það sem því
ber.
Ég sótti mikið heim til Hauks og
Friðrikku, konu hans, sem barn og
unglingur. Þar átti ég vin, Rúnar
Hauksson, og þar var alltaf tekið á
móti fólki með alúð og smávegis
kímni. Haukur brýndi stundum fyrir
manni að rétta nú úr bakinu og sinna
líkamsrækt af alvöru og sagði manni
sögur af ýmsu sem hann hafði reynt
og víst að sumt þótti 12 ára strák
svakalegt. Ekki veit ég hvað af du-
litlum ljóma sem stafaði af afrekum
Hauks hafi smitað yfir á fyrirætlan-
ir mínar en víst að ekki löttu orðin
mig til útiveru og átaka við náttúr-
una.
Er Haukur tók að eldast missti
hann seint spengileik líkamans og
hélt áfram að ganga, hjóla og synda
fram yfir áttrætt eins og hann vildi
með því aldrei gefast upp fyrir ell-
inni. Á áttræðisafmælinu sat hann
teinréttur við hlið forseta íslands á
ættarmóti og var hress að vanda.
Sjóndepurð og einvera oft og tíðum
gátu legið þungt á honum stutta
stund í senn en oftast hristi hann
af sér drungann eftir að hafa svarað
spurningum um líðanina og sagði
ef til vill: — Ég hressi mig við með
því að ganga upp í bústað hjá Miðdal.
Nú er Haukur Einarsson horfinn
úr heiðinni og þeim sem kunnu að
meta snögg tilsvör, góðlega hörku
náttúrubamsins og tryggð hans er
brugðið.
Megi minning hans lifa.
Ari Trausti Guðmundsson
Nú er vinur minn Haukur Einars-
son frá Miðdal látinn. Hann var
fímmti í röðinni af níu börnum hjón-
anna Einars Guðmundssonar bónda
í Miðdal og konu hans Valgerðar
Jónsdóttur. Miðdalsbræðurnir voru
miklir veiðimenn og náttúruunnend-
ur. Haukur var þar engin undan-
tekning og átti hann sér sumarbú-
stað á bernskuslóðum sínum við
Miðdal, þar sem hann undi sér löng-
um stundum.
Hann fluttist til Reykjavíkur
tæpra 16 ára ag hóf nám í prentiðn
í Gutenberg 1926. Hann vann lengst
við prentstörf að undanteknu V/2
ári er hann var kyndari til sjós á
stríðsárunum. Hann vann bæði hjá
Gutenberg og Eddu en lengst hjá
Félagsprentsmiðjunni eða frá 1945-
1979 er hann hætti vegna aldurs.
Haukur var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Margrét Hjálmtýs-
dóttir og áttu þau eina dóttur Ás-
gerði, sem lést 1972. Seinni kona
hans var Friðrikka Guðmundsdóttir
og áttu þau 2 börn, Rúnar Hauks-
son, arkitekt og Erlu Hauksdóttur,
hjúkrunarkonu.
Á námsárum sínum fór Haukur
að stunda íþróttir og gekk í KR.
Hann var alla tíð mikill kapps- og
ákafamaður, enda lét hann sér ekki
Spádómarnir rætast i
Skeifunni 11
Sími: 812220
GLUGGATJÖLD OG DUKAR
— Fönn býður uppá sérhæfða hreinsun og
frágang á gluggatjöldum í nýjum og fullkomnum tækjum.
■ Fönn leigir út dúka og servéttur til
hverskonar mannfagnaða.
ið upplýsinga. Við sækjum og sendum
nægja eina íþróttagrein heldur
stundaði þær margar. Hann byrjaði
fljótt að stunda glímu, leikfimi, box,
hlaup, kappgöngu, sund og hjólreið-
ar. Og á hann t.d. enn met í 10 km.
kappgöngu og stakkasundi.
Haukur var margverðlaunaður í
hinum ýmsu íþróttagreinum. Hann
synti Viðeyjarsund 1931 og 1939
og þreytti Hafnafjarðar-, Álafoss-
og Þingvallahlaup.
Árið 1939 synti hann Drangeyjar-
sund og fetaði þar í fótspor Grettis
og synti frá Drangey og hefur eng-
inn synt þá leið á skemmri tíma en
Haukur. Svo hress var Haukur að
loknu sundi, að hann gekk óstuddur
til laugar og afþakkaði alla aðstoð
um hjálp. Drangeyjarsund Hauks
var mikið afrek en það var einnig
ferþrautin, sem hann sigraði 6 sinn-
um í. Sú keppnisgrein var lögð niður
að læknisráði, þar sem hún þótti of
hættuleg vegna snöggra hitabreyt-
inga í sjó. Ferþrautin var í því fólg-
in að fyrst var hlaupið frá Vatnsþró
í Hafnarstræti 1.000 m, þá hjólað
1.000 m vestur í Selsvör. Síðan rón-
ir 1.000 m í Örfirisey og að lokum
syntir 1.000 m í sjó. Tekinn var tími
í öllum þessum greinum, sem reynd-
ist bestur vera hjá Hauki 35 mín.
og 12 sek.
Haukur stundaði alla tíð mikla
líkamsrækt. Þegar hann var til sjós
þvoði hann sér úr köldum sjó úti á
dekki oggerði Múllersæfingar. Hann
hætti ekki íþróttaiðkunum, þó hann
hætti að stunda keppnisíþróttir, því
hann fór reglulega í sund og gerði
Múllersæfingar úti undir beru lofti
í Sundhöllinni. Hann hjólaði mikið
um bæinn og á áttræðisaldri hjólaði
hann oft upp í sumarbústaðínn sinn
við Miðdal.
Nú er þessi mikli íþróttamaður
og nátttúruunnandi látinn. Síðasta
árið var hann orðinn mjög kvalinn
af svima og höfðuverk en nú eru
þjáningar þessa heiðursmanns á
enda. Blessuð sé minning hans.
Brynja Guttormsdóttir
í dag verður jarðsettur Haukur
Einarsson, prentari frá Miðdal. Hann
andaðist 17. nóvember sl. Haukur
var fæddur 19. febrúar 1909 í Mið-
dal í Mosfellssveit. Foreldrar hans
voru hjónin Valgerður Jónsdóttir og
Einar Guðmundsson í Miðdal. Hauk-
ur lærði prentiðn í prentsmiðjunni
Gutenberg og stundaði iðn sína til
sjötugs. Haukur var traustur og
stéttvís prentari. Eldri menn minn-
ast enn hins glæsta fánabera Hins
íslenska prentarafélags á hátíðisdegi
verkalýðsins 1. maí, en það var ekk-
ert undrunarefni þó Haukur bæri
af sem fánaberi, hann var hraust-
menni með afbrigðum og var mjög
vel þekktur sem íþróttamaður áður
fyrr. Hann gekk í Knaltspyrnufélag
Reykjavíkur og keppti í ýmsum
0HITACHI
Rafmagnsvörur
Slípirokkar G-18SE
180 mm, 2.100 w
verð kr. 18.272.00
TILBOÐ kr. 14.948.00
ísboltar
Festingameistarar
Strandgata 75,
220 Hafnarfjörður.
sími 91-652965
Sendum í póstkröfu.