Morgunblaðið - 28.11.1991, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
49
fjölmargar, þar var alltaf opið hús,
hvort sem um lengri eða styttri tíma
var að ræða.
Á þessum árum var ég það sem
við Vestfirðingar köllum „púki” en
þá horfir lífið allt öðruvísi við en
þegar maður verður eldri. Þá var
Dísa bara systir hennar mömmu,
kona sem maður hitti oft en þekkti
í raun ekkert. Sem betur fer varð
breyting á og sem betur fer fékk
ég að kynnast Dísu frænku, persón-
unni sjálfri.
Ég mun- því minnast hennar sem
viðsýnnar og skemmtilegrar konu,
konu sem gaman var að spjalla við,
konu sem við öll eigum eftir að
sakna. Konu sem síðastliðna mán-
uði sýndi ótrúlegan styrk í sínum
veikindum og barðist til hinstu
stundar við sjúkdóm sinn þó að hún
að lokum yrði að láta undan.
Baráttan stóð fram á hinstu
stund og til marks um það þá komu
Dísa og Kristmundur í afmælisboð
hingað á Hjallabrautina þann 17.
nóvember einungis fimm dögum
áður en Dísa dó.
Þessa sunnudags á eftir að minn-
ast lengi.
Ég á eftir að sakna Dísu á Lind-
arflötinni, sakna jólaboðsins á jóla-
dag, tilraunarinnar til ættarmóts.
Svona eftir á að hyggja er það skrít-
ið að það var einmitt Dísa sem síð-
astliðinn vetur reyndi hvað mest
að stuðla að því að ijölskyldan hitt-
ist nú loks öll.
Henni verður nú eflaust að ósk
sinni, en því miður verður hún sjálf
ekki viðstödd, allavega ekki á þann
hátf sem við vildum að hún væri.
Þó að nú ríki vetur hjá öllum sem
Dísu þekktu og þá sérstaklega nán-
ustu fjölskyldu vorar þó um síðir.
Öll sár gróa að einhverju leyti þó
það taki sum lengri tíma en önnur.
Ég mun sakna Dísu frænku, ég
mun hugsa til hennar og gera mitt
til þess að ókomnir ættingjar fái
að kynnast henni af frásögnum.
Þannig mun Dísa frænka lifa áfram
í hugum okkar allra.
Svanhildur Egilsdóttir
Hún elsku amma mín er dáinn!
Ljós hennar er slokknað. Lífsbarátt-
unni lokið. En eftir lifa minningarn-
ar í hugum okkar allra sem þekkt-
Gullfallegur saiur
til leigu
í Fossvoginum
hentugur íyrir erfidrykkjur.
• SEM-hópurinn.
Sími 67 74 70
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifferisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
V
um hana. Minningarnar sem eru svo
dýrmætar og eiga eftir að ylja okk-
ur um hjartarætur um ókomna
framtíð. Ég átti þeim forréttindum
að fagna að vera elsta barnabarn
hennar og afa og var ég oft tíður
gestur á heimili þeirra á Lindarflöt-
inni. Ógleymanlegar eru ferðirnar
vestur á sumrin. Þegar öll fjölskyld-
an ferðaðist vestur í Hvamminn til
að eyða þar góðum stundum sam-
an. Þar voru æskustöðvar hennar
og afa og átti hún amma þar marga
góða að. Oft gat það verið hundleið-
inlegt að fara með henni í heim-
sóknir fyrir vestan því að hún þekktf
svo rosalega marga (og gat það
verið erfitt fyrir útrásargjarna
krakka að sitja kyrrir á sama stað
lengi á meðan á endurfundunum
hennar ömmu stóð.)
Aðalíjörið var að fara ein með
ömmu, afa, og Guðmundi frænda
vestur, þá var margt brallað og
ætli strákurinn hafi nokkurn tím-
ann komið eins vel fram í mér og
í sveitinni fyrir vestan með ömmu,
afa og frændum mínum tveimur,
en við erum öll þijú á svipuðu reki
og höfum ég og Júlli frændi hálf-
partinn alist upp með annan fótinn
hjá Dísu ömmu og Krilla afa á Lind-
arflötinni, að ógleymdum Guðmundi
syni þeirra, en við höfum alla tíð
verið eins og bestu systkini. En nú
þurfuín við að sjá á eftir henni
ömmu okkar Iangt fyrir aldur fram
ferðast yfir móðuna miklu. Hún
Dísa amma var kjarnakona og var
hún kletturinn og jafnframt styrk-
asta stoðin í ijölskyldunni okkar.
Hinsta og eina ósk hennar var að
fá að eyða síðustu jólunum í faðmi
ijölskyldunnar sinnar sem að henni
þótti svo vænt um. En heimurinn
er hverfull. Þessi jól verða jól friðar
og endurfunda hjá henni en ekki
jól kvalarinnar. Hún mun eyða jól-
unum með mömmu sinni og pabba
sem að hún hefur ekkí séð svo lengi.
En við munum minnast hennar á
jólunum hér.
Elsku afi og Guðmundur, sorg
okkar allra er mikil en hún er lík-
lega mest hjá ykkur. Megi ljósið
hennar Dísu ömmu kvikna í ann-
arri vídd, henni og öðrum til
ánægju. Með þessum orðum kveð
ég ástkæra ömmu mína og nöfnu,
Þórdísi Pálsdóttur.
Þórdís Harpa Lárusdóttir
Fyrir nokkrum dögum kvaddi ég
Dísu móðursystur mína í hinsta
sinn. Mig langar til að minnast
hennar með nokkrum orðum. Dísa
var fædd á Þingeyri við Dýraijörð
21. júní 1933. Foreldrar hennar
voru Páll Jónsson frá Hnífsdal (f.
12. desember 1903, d. 25. nóvemb-
er 1943) og Jóhanna Daðey Gísla-
dóttir frá ísafirði (f. 17. janúar
1908, d. 3. júlí 1981). Dísa er yngst
fjögurra systkina en þau eru Guð-
munda Þóranna, f. 1927, Sigurður,
f. 1930, og Páíl Hreinn, f. 1932.
Faðir hennar var skipstjóri og út-
gerðarmaður. Það var mikil sorg
sem dundi yfir fjölskylduna þegar
tveir bátar hans, Hilmir og Fjölnir,
fórust með skömmu millibili á
stríðsárunum. Dísa missti þá föður
sinn og móðurbróður, aðeins tíu ára
gömul. Móðir hennar, sem þá var
ung að árum, tók að sér hlutverk
fyrirvinnu ásamt því að sinna stóru
heimili. Þegar Dísa síðan giftist og
stofnaði eigin fjölskyldu bjó móðir
hennar hjá henni um árabil. Dísa
giftist Kristmundi Finnbogasyni, f.
1930, skipstjóra og útgerðarmanni,
frá Hvammi í Dýrafirði. Þau eign-
uðust finnn börn og þau eru: Jó-
hanna Daðey, f. 1952, Pálmar, f.
1955, Ágústa, f. 1957, Hafdís Bára,
f. 1963 og Guðmundur, f. 1972.
Barnaþörnin eru tíu talsins.
Árið 1972 fluttist fjölskyldan til
Garðabæjar þar sem þau eignuðust
fallegt heimili. Þegar börnin fóru
að tínast að heiman og stofna eigin
íjölskyldu var jafnan gestkvæmt á
Lindarflötinni. Barnabörnin voru
þar tíðir gestir og sóttust eftir sam-
vistum við ömmu sína og afa.
Dísa var Vestfirðingur alla tíð
þótt hún aðlagaðist lífinu vel fyrir
sunnan. Hún átti sterkar rætur fyr-
ir vestan og ræktaði af alúð tengsl
sín við vini og ættmenni þar. Dísa
var sterkur persónuleiki og mikil
félagsvera. Hún naut þess að vera
í samvistum við fjölskyldu sína og
vini. Áhugi hennar á mönnum og
málefnum var mikill og lét hún sig
varða velferð annarra. Hún helgaði
sig því verðuga verkefni að und-
irbúa börn sín fyrir lífsbaráttuna
og fórst það vel úr hendi. Hún stóð
við hlið Kristmundar og studdi hann
í sínu ævistarfi. Á margan hátt var
hún kjölfesta fjölskyldunnar og er
nú stórt skarð þar sem hún áður
var.
Síðustu mánuði hefur Dísa barist
hetjulegri baráttu við krabbamein.
Lífslöngun hennar var mikil og
æðruleysi þegar hún sá fram á að
hún yrði að kveðja þá er voru henni
kærir.
Milli móður minnar og Dísu hefur
alltaf verið náið samband. Þær
veittu hvor annarri stuðning í gegn-
um lífið. Móðir mín hefur nú misst
mikið. Við Jóhann vottum þeim sem
nú eiga um sárt að binda dýpstu
samúð. Megi Guð veita Kristmundi
og fjölskyldu styrk i sorg þeirra.
Þórhildur G. Egilsdóttir
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir, amma og langamma,
ÞÓREY HANNESDÓTTIR,
Suðurgötu 90,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 29. nóvember
kl. 11.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Sjúkrahús Akra-
ness eða Hjartavernd.
Árni Breiðfjörð Gíslason,
Sæunn Árnadóttir, Sigmundur Ingimundarsson,
Gfsli B. Árnason, Jórunn Sigtryggsdóttir,
Eðvarð L. Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BERGÞÓR K. M. ALBERTSSON
bifreiðastjóri,
Norðurvangi 31,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn
29. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd eða Krabba-
meinsfélagið.
María Jakobsdóttir,
Jóhann G. Bergþórsson, Arnbjörg G. Björgvinsdóttir,
Kristján G. Bergþórsson, Sóley Örnólfsdóttir,
Bergþóra M. Bergþórsdóttir, Björn Sveinsson,
Steindóra Bergþórsdóttir, Sæmundur Stefánsson
og barnabörn.
t
Ástvinur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HANNESRAFNJÓNSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. nóvember
kl. 15.00.
Ólafia S. Helgadóttir,
Anna Helga Hannesdóttir,
Ásdís Eva Hannesdóttir, Jónas Kristinsson,
Ingimundur H. Hannesson, Þórlaug B. Stefánsdóttir,
Jón Hafsteinn Hannesson, Birna Björnsdóttir,
Eva Björk Hannesdóttir,
Ólöf Röfn, Rakel Linda, Jónas Óli og Hera Björk.
t
Föðurbróðir okkar,
ÓLAFUR ÁSMUNDSSON
frá Hálsi í Fnjóskadal,
verður kvaddur í Fossvogskapellu föstudaginn 29. nóvember
kl. 15.00.
Hildur Einarsdóttir,
Anna Margrét Einarsdóttir,
Ásmundur Einarsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför
BÁRU SIGURJÓNSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki Hrafnistu.
Guðbjörg Haraldsdóttir og börn,
Eggert ísaksson, Sesselja Erlendsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR,
Krabbastíg 1a,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á lyfjadeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Jón Jóhannsson,
Aðalbjörg Jónsdóttir, Guðmundur Þ. Jónsson,
Kristín Guðmundsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir,
Tómas Guðmundsson
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, er sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
BJÖRNS MAGNÚSSONAR,
Suðurgötu 18,
Keflavík.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Einarsdóttir,
Lúðvík G. Björnsson, Þórdís Garðarsdóttir,
Einar G. Björnsson, Júiíanna M. Nilssen,
Maria K. Björnsdóttir, Jens Elísson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför
SÓLVEIGAR LÚÐVÍKSDÓTTUR,
Smiðshúsi,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á lyfjadeild
St. Jósepsspítala, Hafnarfirði, fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Erla Sigurjónsdóttir,
Solveig Manfreðsdóttir,
Vilhjálmur Már Manfreðsson,
Gunnhildur Manfreðsdóttir,
Sigurjón Már Manfreðsson,
Valdis Fríða Manfreðsdóttir,
Rakel Ólafsdóttir,
Sigurjón Örn Ólafsson,
Erla Jóhannsdóttir,
Danival Guðjón Stefánsson,
Manfreð Vilhjálmsson.
Jóhanna M. Diðriksdóttir,
Rúnar Hjartar,
Svandís T ryggvadóttir,
Stefán Gunnlaugsson,
Lokað
Lokað fyrir hádegi á morgun, föstudag, vegna
jarðarfarar LÁRUSAR G. JONSSONAR.
Guðlaugur A. Magnússon,
skartgripaverslun.
J