Morgunblaðið - 28.11.1991, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
55
VELVAKANDI
SVARAR I' SÍMA
891282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Gleraug'u fundin!
Gleraugu fundust utan við ís-
lensku ópenina 26. október sl.
Nánari upplýsingar eru gefnar í
síma 51979.
Áskorun til íslendinga
Kona hringdi og vildi skora á
alla íslendinga að þeir gæfu einn
vinnudag í þyrlusjóð og ríkistjórn-
in gæfi alla bílapeninga sína í eitt
ár í sjóðinn þannig að auðveldlega
væri hægt að kaupa björgunar-
þyrlu og þá frekar tvær en eina.
Minkaskinnshúfa og jakki
Sérsaumuð karlmanns-minka-
skinnshúfa tapaðist á bílastæðinu
við Kringluna 14. nóv. síðdegis.
Fyrir um það bil mánuði tapaðist
svo tvíhnepptur ullarjakki með
vattfóðri. Um er að ræða karl-
mannsjakka, dökkbláan að lit og
merkið Paul Sjark er á bijóst-
vasa. Þeir sem hafa einhverjar
upplýsingar um húfuna eða jakk-
ann eru vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 641509.
Geltandi hundur
íbúi á Ægissíðunni vildi kvarta
yfir manni sem æki eftir Ægissíð-
unni á hveijum degi kl. 12 á há-
degi með hundinn sinn geltandi á
eftir sér. íbúinn vildi benda þess-
um manni á að fara frekar í
göngutúr með hundinn. Hann vildi
einnig grennslast fyrir um það
hvort fyrirhugað væri að setja
hraðahindranir á Ægissíðuna því
það væri ekki vanþörf á því þar
sem fólk keyrði almennt mjög
hratt eftir götunni og þáð væri
bagalegt fyrir barnafólk.
Giftingarhringur
Giftingar- eða trúlofunarhring-
ur fannst fyrir framan Bónus í
Faxafeni 18. nóvember. Ef ein-
hver saknar hringsins getur hann
haft samband við Baldur í síma
686672.
Amerískur lögguleikur
Þorleifur hringdi og vildi ræða
eltingaleik lögreglunnar við ung-
an pilt sem endaði með því að
hann keyrði útaf í Kjós og liggur
nú á bæklunardeild Landspítal-
ans. Hann sagði eltingaleik af
þessu tagi vera til þess eins að
valda slysum og lögreglan gerði
of mikið af því að horfa á amerísk-
ar bíómyndir með löggueltinga-
leikjum. Hann spurði hvort það
væri þess virði að elta einn uppi
sem keyrði of hratt ef það gæti
kostað það að sá hinn sami ylli
sjálfum sér og öðrum skaða eða
þeir sem eltu hann. Þorleifur vildi
beina því til lögreglunnar í
Reykjavík að þessum leikaraskap
yrði að linna.
Þrír kettlingar gefins
Jói vill gefa þijá kettlinga
ásamt fylgihlutum (kattadót og
fleira). Kettlingarnir eru allir mis-
litir. Þeir sem hafa áhuga á kisum
vinsamlegast hringi í síma 17810.
Til hvers er svona stjórnarandstaða?
Mikið er um það rætt þessi miss-
erin, hve ómerkileg og lítils virði
stjórnarandstaðan er á þessu þingi,
sem nú situr. Fólk hefur við orði
stórfurðuleg upphlaup einstakra
þingmanna og heimskulegt raus
þeirra út og suður um einskis verð
mál. Ber flestum sarhan um, að
fremstii- í afkáraskapnum fari þing-
menn Framsóknarflokksins, eink-
um þeir Páll Pétursson og Ólafur
ÞórðarSon. Á róli með þeim strákum
er próf. dr. Ólafur Ragnar Gríms-
son. Alvöruleysið og málefnafá-
tæktin blasir við í endalausum útúr-
snúningum og rangtúlkunum svo
að dómgreind almennings er ofboð-
ið. Öllu verra er þó, að með stjórnar-
andstöðu Framsóknarflokksins
hafa verið teknir upp ósiðir, sem
menn vonuðu að væru horfnir af
þingi fyrir fullt og allt. Persónulegt
skítkast veður uppi í málflutningi
ofangreindra þingmanna. Það er
greinilegt, að framsóknarmenn
valda því ekki að vera í stjórnarand-
stöðu. Öllum varð ljóst hvert stefndi
þegar skrípaleikurinn í kringum
forsætisnefndina og útvarpsráð
byijaði. Menn áttu ekki orð yfir
þann makalausa fíflagang. Fólki
sárnar, að svona fígúrur skuli vera
á háum launum af skattfé almenn-
ings.
Davíð Oddsson hefur bersýnilega
valdið óskaplegri taugaveiklun hjá
Páli Péturssyni og raunar virðist
persóna forsætisráðherrans koma
svo feiknarlegu róti á sálarlíf
margra þingmanna stjórnarand-
stöðunnar, að tilfinningar þeirra
umturna og kaffæra gersamlega
hvern snefil af rökhugsun. Lengi
hafa framsóknarmenn gumað af
„byggðastefnu”, sem þeir kölluðu
svo. Þó hafa þeir aldrei haft neina
stefnu, heldur unnið eftir málshætt-
inum „flýtur meðan að ekki sekk-
ur”, reddað málunum frá degi til
dags. Auðvitað er það ekkert annað
en innantómt framsóknarsnakk og
lýðskrum slagorðið „landið allt í
byggð”. Þetta hefur aldrei nokkum
tíma haft nokkra merkingu, enda
hafa margar sveitir rýrnað verulega
síðustu tvo framsóknaráratugi og
aðrar eru fyrir löngu komnar í eyði.
Eftir því sem byggðir eyðast, falla
eignir þar í verði. Oft verður minna
um atvinnu og afkoma fólks versn-
ar. Lífið á þessum stöðum verður
sumum of einhæft og fábreytt og
þeir vilja flytjast burt, en geta það
ekki án þess að verða öreigar. Góð-
ar húseignir þeirra eru einskis virði.
Davíð Oddsson þorði að tala um
það, sem margir hafa hugsað, en
ekki vogað sér að nefna, að þjóðfé-
lagið ætti að rétta þessu fólki hjálp-
arhönd. Nóg er, að fólk flýi heima-
byggð sína, þó það verði ekki bón-
bjargarmenn líka. Þetta er mannúð
og félagshyggja og á aldeilis ekki
upp á pallborðið hjá Páli Péturssyni
og þeim Ólöfum. Þetta kalla þeir
„hreppaflutninga”. Afdönkuð
íhaldssemi þeira og afturhald þolir
engar breytingar, engar úrbætur.
Verðlausar eignir eru þeir átthaga-
fjötrar, sem þingmenn stjórnarand-
stöðunnar vilja leggja á fólk í stijál-
um byggðum landsins. Davíð Odds-
son þorir að tala hreint út og opin-
skátt. Það kemur flatt upp á fram-
sóknarmenn. Þeir hrökkva í kút við
þá nýju og fersku vinda, sem nú
leika um Alþingi. Taugar þeirra
þola ekki álagið og þá ryðja þeir
úr sér svo ruddalegum og ofsa-
fengnum skömmum um menn og
málefni, að annað eins hefur ekki
heyrst í áratugi. Nýjasta (og líklega
sóðalegasta) dæmið er álmálið. Þar
reyndi Páll Pétursson að gera iðnað-
arráðherra persónulega ábyrgan
fyrir vonbrigðum fólks. Einhveijir
ætluðu að slá sér upp á því máli,
en opinberuðu aðeins enn eitt Fram-
sóknarhneykslið: Páll Pétursson,
próf. dr. Ólafur Ragnar Grímsson
og margir fleiri vissu fyrir ári eða
meir, að ekkert yrði úr samningum
um nýtt álver á næstu árum. Samt
gerðu þeir ekki neitt — ekki nokk-
urn skapaðan hlut — til að mæta
þeim áfölhim, sem þjóðarbúið yrði
fyrir vegna þess. Þeir flutu sofandi
með straumnum að feigðarósi. Flýt-
ur meðan að ekki sekkur. I stjórnar-
aðstöðu voru framsóknarmenn
staðnaðir. En í stjórnarandstöðu
hverfa þeir marga áratugi aftur á
bak.
Gunnlaugur Eiðsson
trtu í skemimineW
Ei svo <*r. þá getum við Hðsinnt þér með
að gera árshátíð og aðra manniagnaði
C7
starisiéiaga þinna að ógleymanlegri
ánægjustund. r,;'/ f/f'Í/sL •. . - B
Nánarí upplýsingur á
Hótel Borg í sntiH 1E 440
CLINIQUE
HÚÐGREINING í DAG, FIMMTUDAG, KL. 13-17.
ungaro
ILMVATNSKYNNING Á MORGUN, FÖSTUDAG, KL. 13-18.
15% AFMÆLISAFSLÁTTUR
AF VÖRUM OG SNYRTINGU TIL 2. DESEMBER.
Sny/ttisto^an ^&étumd
Grænatúni 1, 200 Kópavogi, sími 44025.
PHILIPS
RYKSUGA
Lítil um sig en fjölhæf
meö kraftmikinn
mótor, 1100 Wött.
Hijóðlát og létt í taumi.
<ts>
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
í SanUUKgjLUtt/
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
> ó sajtounguM,
Metsölublad á hverjum degi!