Morgunblaðið - 22.12.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.12.1991, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B 293. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS A Atta fyrrum sovétlýðveldi ganga í nýja samveldið; Ágreiningiir um skipan varnarmála óútkljáður Alma-Ala. Reuter. SAMKOMULAG náðist í gær á fundi leiðtoga fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna í Alma-Ata, höfuðborg Kazakhstans, um að átta lýðveldi bættust í iióp þeirra þriggja sem stofnuðu Samveldi sjálfstæðra ríkja 8. desember síðastliðinn. Nafn samveldis- ins verður óbreytt en ekki tókst hins vegar að leysa ágreining um framtíðarskip- an varnarmála. Það voru Rússland, Hvíta Rússland og Úkraína sem stofnuðu samveldið í Minsk fyrir tveimur vikum. Nú bætast í hópinn Moldova, Kazakhstan, Armenía, Az- erbajdzhan, Úzbekistan, Túrkmenistan, Kírgístan og Tadzhíkistan. Georgía sendi áheyrnarfulltrúa á fundinn og tekur ákvörðun síðar um aðild. Undanfarna daga hefur komið í ljós ági’einingur milli leiðtoga Rússa og Úkra- ínumanna um varnarsamstarf í samveldinu og tókst ekki að leysa hann að fullu í gær. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, vill einn her undir einni stjórn og að öll kjarna- vopn verði í Rússlandi undir einni stjórn. Leoníd Kravtsjúk, forseti Úkraínu, hefur hins vegar Iýst því yfir að hann sé yfirmað- ur hersins í Úkraínu og að samveldið eigi ekki að hafa sameiginlegan her. Jafnframt vill hann að þau aðildarríki samveldisins sem nú hafa langdræg kjarnavopn fái neitunarvald um beitingu kjarnavopna af hálfu sérhvers samveldisríkis — „hnapparn- ir“ verði fjórir, eins og hann hefur orðað það. Gert var bráðabirgðasamkomulag um sameiginlega yfírstjórn hersins en loka- ákvörðun um framtíðarskipan varnarmála verður tekin í Minsk 30. desember nk. Fram að þeim tíma verður bara „einn hnappur“, að sögn Seitcazys Matajevs, tals- manns forseta Kazakhstans. „Ég get fuil- vissað ykkur um að Sovétríkin eru ekki lengur til,“ sagði talsmaðurinn á fundi með blaðamönnum. Líklegt er talið að komið verði á fót tveim samstarfsráðum samveldisins nýja. Annað verði skipað þjóðhöfðingjum lýð- veldanna en hitt leiðtogum ríkisstjóma þeirra. Fréttastofan Interfax segir að leið- togarnir hafi sent Míkhaíl Gorbatsjov bréf þar sem segi að Sovétríkin og forsetaemb- ættið séu ekki lengur til og honum þakkað mikið og gagnlegt starf. Sjá baksvið á bls. 4 Litlu jólin Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Litlu jólin hafa verið haldin með glæsibrag í skólum og á barnaheimilum landsins undanfarna daga. Myndin var tekin á Árborg, þegar börnin þar héldu litlu jólin. Sjá fleiri myndir á bls. 22-23. Skrapatólið Rolls-Royce Sérsmíðaður Rolls-Royce eðalvagn af gerðinni Silver Spur, sem kostaði vel yfir tíu milljónir ISK í Bretlandi og hefði vafalaust orðið tvöfalt dýrari hér heima, hefur valdið notanda sínum, David Goldstone, „andlcgu álagi“ þau tvö ár sem fyrirtæki hans hefur átt bílinn. Að sögn Goldstone hefur hann þurft að sætta sig við skrölt og högg, bensíngjöf- in hefur átt til að festast, einnig hefur heyrst undarlegt ýlfur sem ekki hefur fundist nein skýring á þótt bíllinn hafi verið rannsakaður í verksmiðjum Rolls- Royce. Bílstjórahurðin skrölti, fjarstýr- ing til að opna dyrnar virkaði ekki fylli- lega, letinginn svonefndi á þurrkunum tók oft til starfa óumbeðið og linakka- púði var gallaður. Þjófavarnarkerfið hefur einnig bilað tvisvar. Fyrirtæki Goldstone hefur kært verksmiðjurnar fyrir að láta frá sér fara vöru sem ekki hafi verið söluhæf og krefst skaðabóta fyrir „andlegt álag, óþægindi og von- brigði“. Einnig vill það fá bætur vegna þess að endursöluvirðið hafi stórlækkað eftir þessa hrakfallasögu. Fyllið og ekk- ert froðusnakk! Er glasið hálffullt eða hálftómt? Sjálf- sagt liggur munurinn í auga sjáandans en bjórunnendur í Bretlandi hafa lengi barist fyrir því að settar yrðu reglur um leyfilegt há- marksmagn froðu í bjórglasi. Stjórnvöld hafa nú mælt svo fyrir um að á hverju bjórglasi eigi að vera lína skammt fyrir neðan barminn. Er nú skylt að froðan í glasinu nái ekki niður fyrir línuna. Breytingin gæti kost- að kráareigendur í Bretlandi 225 millj- ónir punda á ári (23,4 milljarða ÍSK). Talið er að þessi regla geti Ieitt til verð- hækkunar en nú kostar hálfpottur (0,568 1) af öli u.þ.b. 165 ÍSK í London. SÞ bannar notk- un risarekneta Tillaga um að banna algerlega notkun risarekneta sem nokkrar þjóðir hafa notað á úthöfunum og geta verið tugir kílómetra að Iengd, var samþykkt á AIls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna seint á föstudagskvöld. Netin eru sögð drepa allt kvikt sem í þau kemur. Bannið tek- ur gildi 1. janúar 1993. Svipaðar sam- þykktir hafa áður verið gerðar á þinginu en að þessu sinni hafa þau ríki sem eink- um hafa notað netin; Japan, Suður- Kórea og Tævan, lýst því yfir að þau muni hlíta banninu. IIFPHÁFim mmjKOBA 14 ENDALOK 10 JUGQSLflVÍU Óttazt að átökin breiðist út til annarra lýðvelda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.