Morgunblaðið - 22.12.1991, Page 2

Morgunblaðið - 22.12.1991, Page 2
2 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991 Beíndi höggum að höfð- inu og ætlaði að slá mig út - segir Sverrir Valdimarsson útibússtjóri ÁTVR, sem ráðist var á í Hafnarfirði „HANN hafði hleypt loftinu úr öðru framdekkinu og ætlaði greinilega að láta mig bogra yfir því og ráðast svo á mig ineð kylfunni. Hann beindi höggunum að höfðinu og fyrsta höggið átti að slá mig út, en mér tókst að verjast þyngstu höggunum en sleppti þó aldrei takinu af peningapokanum," sagði Sverrir Valdimai'sson, útibússtjóri ATVR í Lækjargötu í Hafnarfirði, í samtali við Morgunblaðið i gær. Sverrir varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu sl. föstudagskvöld, að maður'vopnaður kylfu réðst á hann á baklóð útsölunnar og reyndi að ræna hann poka með yfir tíu milljónum króna. Ræninginn var ófundinn í gær, að sögn lögreglunnar. Morgunblaðið/Þorkell Sverrir Valdimarsson á baklóð ATVR í Hafnarfirði, þar sem ráð- ist var á hann í fyrrakvöld. Bíll Sverris er í baksýn. „Atburðarásin var mjög hröð. Ég var á leið í banka með pening- ana og félagi minn var rétt farinn út úr dyrunum og sennilega verið kominn fyrir hornið á húsinu þeg- ar ég kom út. Kylfumaðurinn spratt upp fyrir framan bílinn minn þegar ég gekk að honum. Hann hafði falið sig fyrir framan bílinn og var með kylfu á lofti. Það er ekki rétt að það hafi verið járnkylfa - harin hefur sennilega verið með sandfyllta, vafða slöngu. Þá byrjuðu höggin og lætin og mér tókst að .veijast þeim dálítið fyrst. Ég héít alltaf á pen- ingunum. Ég notaði öll mín ráð til þess að verjast. Hann gekk bara beint í skrokk á mér og ætlaði að lemja mig niður í jörð- ina. Ég fékk mörg högg á höfuð- ið - hann ætlaði að rota mig. Höggin beindust eingöngu að höfðinu, fyrsta höggið átti að slá mig út. Ég var með aðra höndina bundna allan tímann við pokann sem geymdi peningatöskurnar og varðist með hinni hendinni. Vi’ð duttum báðir niður á planið og þá fór ég að geta komið höggum og spörkum á hann. Hann var farinn að mæðast dálítið í öllum hamaganginum. Svo spratt hann upp og hljóp í burtu, út um hliðið og meðfram veggnum á framhlið hússins. Þaðan hljóp hann upp á Hringbraut, bíllinn hans var við rörasteypuna sem er þar -- það sá kona sem sá hann flýja,“ sagði Sverrir. „Þetta var stór maður, 1,80 til 1,90 metrar á hæð, og mér leist ekkert á hann þegar hann spratt upp fyrir framan bílinn. Hann virtist vera kröftugur en hann hefur sennilega beðið þarna eftir mér lengi og verið orðinn kaldur - ekki haft alveg fulla orku. Hann var með ljósa pijónahettu - lamb- húshettu með götum aðeins fyrir augun, svörtum hnésíðum frakka og á íþróttaskóm. Annars gerðist þetta svo hratt að maður gerir sér ekki grein fyrir þessu og var bara í því að veijast höggunum,“ sagði Sverrir. Hann sagði útilokað að maður- inn hafi þekkt til innandyra, hann hafi bara fylgst með þeim að störfum og kynnt sér vel hvernig flutningur á peningunum fór fram. „Það kemur ekki annað til - hann veit hver ég er, því hann beið eftir mér. Hann gat alveg eins ráðist á félaga minn því hann var með poka líka.“ Hann sagði að þetta væri skelfi- leg reynsla og hann væri enn að jafna sig. „Þetta var svo óhuggu- legt þegar hann spratt upp með reidda kylfuna og svona klæddur. Maður verður bara viti sínu fjær og tekur á öllu sem maður á og yfirspennist og verður aumur í skrokknum eftir því. Hann kom líka mörgum höggum á handleggi mína. Ég er ekki mikið marinn en eymslin eru dálítil. Ég fékk líka skeinu á bæði gagnaugun. Þetta fór betur en á horfðist. Ég hélt alltaf pokanum, en missti hann jú þegar hann stóð á fætur og hljóp í burtu. Það runnu töskur úr honum. Ég sópaði þeim í pok- ann aftur og fór inn í bílinn og læsti honum. Þá ók ég í hvelli út fyrir hornið og náði sambandi við fólk sem var í verslunarerindum í Rafha, sem var opið. Hann hafði hleypt úr dekkinu að framan eða það hafði sprungið. Mér fannst það þó einkennilegt með nýtt snjó- dekk. Hann hefur ætlast til að ég færi að bogra eitthvað þarna.“ Sverrir sagðist hafa verið með mikla peninga í pokanum þó svo að ræninginn hefði ekki getað notað þá alla - altént ekki ávísan- ir stimplaðar af útsölunni. „Það er hægt að tala um tuginn,“ sagði Sverrir, þegar hann var spurður um hve margar milljónir voru í pokanum. Sverrir hefur unnið hjá ÁTVR í tæp 27 ár, lengst af í útsölunni á Laugarásvegi eða 23 ár og einn- ig í útsölunni í Kringlunni. Hann hefur búið í Hafnarfirði í 30 ár. * Ovíst hven- ær þingstörf- um lýkur EKKI hafði tekist að ná sam- komulagi á milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga á Alþingi um afgreiðslu þingmála þegar þingfundir hófust eftir hádegi í gær og óvíst var hvenær þing- störfum lyki. Við upphaf þingfundar eftir há- degi í gær lá ekki fyrir formleg afstaða stjórnarandstöðuflokkanna til tilboðs sem stjórnarliðar gerðu þeim snemma í gærmorgun. Tilboð- ið fól í sér að sveitarfélögin myndu greiða 500 milljónir í ríkissjóð en nánari útfærsla á því gjaldi var ekki tilgreind og jöfnunargjald skyldi áfram lagt á fram í septemb- er. Geir H. Haarde, formaður þing- flokks Sjálfstæðismanna, sagðist í samtali við Morgunblaðið vonast til þess að úr málum greiddist fljótlega og taldi að enn væri vonarglæta að Ijúka þingi með samkomulagi. „Ella er okkur stjórnarliðum ekkert að vanbúnaði að vera hér á milli jóla og nýárs frekar en öðru vinn- andi fólki sem stundar sín störf þessa daga,“ sagði Geir. Sjá þingfréttir á bls. 30-31. Morgunblaðið/Jón Stefánsson Sjö á slysadeild Sjö manns voru fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur tveggja bíla á gatnamótum Nóatúns og Skip- holts laust fyrir klukkan eitt aðfaranótt laugardags. Tækjabíll slökkviliðsins kom á vettvang. Bílarnir voru óökuhæfir eftir áreksturinn og voru fluttir á brott með kranabílum. Fimm farþegar og ökumenn beggja bílanna voru fluttir slasaðir á Borgarspítalann og voru tveir karlmenn og ein stúlka enn á spítalanum í gær. Þær upplýsingar fengust á Borgarspítala að mennirnir væru alvarlega slasaðir en ekki í lífshættu. Stúlkan var minna slösuð. Engin umferðarljós eru á þessum hættulegu gatnamótum en til stendur að koma þeim upp á næstunni. Framkvæmdasjóður: 52% hlutabréfa í Islenskum markaði til sölu Framkvæmdasjóður hefur aug- lýst 52% hlut sinn í Islenskum markaði í Leifsstöð til sölu. Lengi hefur staðið til að selja hlutabréf- in en ástæðan fyrir því að gérigi’ð var í málið nú er að sögn Bene- dikts Antonssonar, skrifstofu- stjóra sú, að nokkrir íslenskir framleiðendur hafa gert tilboð í hlutabréf sjóðsins. Nafnverð bréf- ánna er 15 milljóriir og áætlað söluverð rúmar 90 milljónir. Benedikt sagði að Framkvæmda- sjóður hefði eignast hlutabréfin í kjölfar sameiningar Álafoss hf. og Gefjunar á Akureyri en aldrei hefði staðið til að þau yrðu til lángframa í eigu sjóðsins. Hann sagði að bréfin væru aqglýst nú vegna þess að kom- ið hefði tilboð frá nokkrum íslensk- um framleiðendum, en þar sem sjóðurinn væri opinber þyrfti að aug- lýsa bréfin til sölu þannig að aðrir ættu kost á að kaupa þau. EFNI A ► 1-48 Endalok Júgóslavíu ►Ekki er séð fyrir endann á átök- unum í Jógóslavíu og er óttast að átökin kunni að breiðast til ann- arra lýðvelda./ 10 í upphafi skal endinn skoða ►Kynferðisglæpamenn fá oftast væga refsingu miðað við aðra af- brotamenn. Hvað veldur? /14 Slagsmál í Kristals- salnum ►íslenskt leikhús hefur fengið góðan gest þar sem er Nikolaj Karpov Vasilíjevitsj ./16 Vopnin tala ► Steingrímur Sigurgeirsson blað- amður skrifar um ástandið í Suður-Afríku./ 18 Bráðum koma blessuð jólin ►Litið inn á Litlu-jólin í leikskól- um og grunnskólum./22 Að storka sjálfum sér og heiminum ► Brot úr bókinni Lífsháskinn, endurminningum Jónasar Jónas- sonar./26 B ► 1-36 ► 1-32 Jólin á Jólakortunum ► Hver er fagurfræði j ólakorta? Hvernig lítur hinn dæmigerði jóla- kortabunki út? Hvaða myndir eru á jólakortunum sem fólk sendir hvort öðru? Eru jóiakortin jólaleg? í þessari grein er leitað svara við þessum spurningum./ 1 og 14-15 IMýtt líf í nýju landi ► Spjallað við víetnamska fjöl- skyldu sem kom til íslands í sumar erleið./2 Mannlegi þátturinn ► Bi-yan Adams heillaði íslenska æsku með blátt áfram fram- komu./4 Ég saknaði hans mikið ► Helga Steinþórsdóttir, ein af hetjum hversdagslífsins, sótt heim /8 Hugleiðingar í ein- semdinni ► í lok þessa árs eru liðin fimm ár frá andláti Gísla á Uppsölum. Hérgluggum við í hugleiðingar hans um lífið og tilveruna frá fyrri árum./lO Kvikmyndahúsin um jólin ►Arnaldur Indriðason fjallar um jólamyndir kvikmyndahúsanna ./12 Fjöruleikur ►Einstæð myndasaga frá Eyjum. FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Fjölmiðlar 18b Dagbók 8 Kvikmyndir 20b Hugvekja 9 Dægurtónlist 21 b Leiðari 24 Myndasögur 24b Helgispjall 24 Brids 24b Reykjavikurbréf 24 Stjörnuspá 24b Minningar 39 Skák 24b Fólk í fréttum 42 Bíó/dans 26b Útvarp/sjónvarp 44 A förnum vegi 28b Gárur 47 Velvakandi 28b Mannlífsstr. 6b Samsafnið 30b INNLENDAR FRÉTTIR: 2—6—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.