Morgunblaðið - 22.12.1991, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991
11
langa, samfellda röð serbneskra
bæja og sveita í Króatíu og Bos-
níu, en múhameðskir íbúar Bosníu
yrðu eins og milli steins og sleggju.
Friðarumleitanir
Til þess að viðhalda óbreyttu
ástandi tryggði forseti Bosníu-
Herzegóvínu, múhameðstrúar-
maðurinn Aija Izetbegovic, stuðn-
ing Króata í lýðveldinu við yfirlýs-
ingu um fullveldi Bosníu í októ-
ber. Serbum var boðin aukin sjálf-
stjórn, en þeir gátu ekki sætt sig
við yfirlýsinguna og töldu að með
henni hefði Bosnía fjarlægzt júgó-
slavneska sambandsríkið, sem lýt-
ur stjórn Serba. Izetbegovic hefur
einnig sagt að ef Króatar og Slóv-
enar fái sjálfstæði muni Bosníu-
menn fara að dæmi þeirra og yfir-
völd í Belgrad hljóta að reyna að
sporna gegn því.
„Stofnun nýrra ríkja í Júgóslav-
íu og víðar í Evrópu mun hafa í
för með sér fleiri breytingar í
Evrópu,“ sagði einn helzti leiðtogi
Bospíu, Bogic Bogicevic, í vik-
unni, „marka upphaf þróunar, sem
erfitt verður að ráða við, seinka.
sameiningu Evrópu og stofna ör-
yggi álfunnar í hættu.“
Aður en EB tók ákvörðun sína
um skilyrta viðurkenningu á Kró-
ötum og Slóvenum játaði forseti
króatíska herráðsins, Anton Tus
hershöfðingi, að hernaðarstaða
Króata mundi batna ef Bosnía
drægist inn í stríðið, því að þá
mundi sambandsherinn neyðast til
að dreifa kröftum sínum. Króatar
hefðu þó ekki áhuga á því að það
gerðist, þar sem mannfall yrði
miklu meira í Bosníu en í Króatíu.
Syðsta lýðveldið, Makedónía,
hefur þegar lýst yfir sjálfstæði og
kvartar yfir því að yfirlýsingunni
hafi verið of lítill gaumur gefinn.
Þar óttast menn einnig harðnandi
átök og að auk þess muni Alban-
ar, Grikkir og Búlgarar reyna að
skara eld að sinni köku, þótt því
sé neitað. í serbneska héraðinu
Kosovo hafa Albanar lengi barizt
fyrir sjálfstjórn, endu eru þeir 90%
íbúanna. Svartfellingar eru hins
vegar traustustu bandamenn
Serba og vilja áframhaldandi aðild
að Júgóslavíu.
Þegar Franjo Tudman Króatíu-
forseti ræddi í vikunni við Carring-
ton lávarð, sáttasemjara EB, sagði
hann að „forvitnilegt yrði að fylgj-
ast með því hvort Makedónía
mundi biðja um viðurkenningu".
Hann sagði að „ekki væri eins ljóst
hvað Bosnía-Herzegóvína mundi
gera og að sjálfsögðu Serbía og
Svartijallaland. Öll þessi mál eru
óútkljáð. Frá okkar sjónarmiði
skiptir mestu máli hvernig binda
megi enda á stríðið." Hann kvaðst
ánægður með viðræðurnar við
Carrington, þar sem þær sýndu
að Haag-ráðstefnan um Júgóslav-
íu viðurkenndi sjálfsákvörðun-
arrétt þjóða.
Ferð Carringtons sýnir að sam-
komulag EB um skilyrta viður-
kenningu á Króatíu og Slóveníu
hefur hleypt nýju lífi í tilraunirnar
til að koma á friði í Króatíu. Carr-
ington sagði að hann sæi ekki að
viðurkenning á Slóveníu mundi
hafa nokkra erfiðleika í för með
sér, því að þar væru engir minni-
hlutahópar, en gaf óljós svör um
Króatíu og þegar hann kom til
Belgrad lá við hann viðurkenndi
ósigur. í Belgrad hafa fulltrúar
SÞ kannað möguleika á að friðar-
gæzlusveitir verði sendar á vett-
vang og utanríkisráðherra Serbíu
hefur rætt við Boutros Ghali,
næsta framkvæmdastjóra SÞ, í
Kaíró.
HVÍTIR HNAKKAPÚÐAR
- MIKID ÚRVAL
X-Jöfðar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
i fttwgiiiittMafrife
Jólagjöfin
handa afa ogömmu
Inniskór í miklu úrvali
Margar gerðir^ margirlitir
Opið sunnudag frá kl. 13-18
Skóverslun Kópavogs
HAMRABORG 3,
SÍMI 41754.
i itnrgmwí tafetfe
| Meira en þú geturímyndað þér!
Bækur sem gefa
Auktu styrk
þinn
Sanaya Roman
Er sjálfstætt framhald
metsölubókarinnar
„Lifðu ígleði“. Hérlærir
lesandinn að virkja
innsæi sitt, næmi og
alla skynjun á einfaldan
og áhrifaríkan hátt.
Stig afstigi eru
kenndar aðferðir til að
auka skynjun og
skilning, lyfta
hugsunum og
tilfinningum á æðra stig
og takast á við
hversdagslega hluti út
frá nýjum gefandi
sjónarhóli.
Vígslan
Elisabeth Haich
Vigslan er ævintýraleg ferð
um undirdjúp sálarinnar.
Hún týsir einstakri andlegri
reynslu, ferðalagi, sem
hefst á einum tíma í
fjarlægrí fortíð en endar á
öðrum. Hér er á ferðinni
einhver magnaðsta saga,
sem fram hefur komið um
andleg og dulspekileg
mál. Höfundurínn fléttar
saman á stórskemmti-
legan hátt lifunum tveimur
og dregur fram mörg
dýpstu sannindi dulspek-
innar með þeim skiiningi,
sem sögupersónan
öðlast á leið sioni.
Mörg líf,
margir
meistarar
Brian L. Weiss
Hvað gerist þegar
geðlæknir heyrir
sjúkling i dáleiðslu
vitna ílif fyrir
árþúsundum? Og
hvað ef þessi
geðlæknir hefur aldrei
lagt trúnað á dulræn
fyrirbæri, hvað þá
endurholdgun og
önnur líf? Hann kemst
ekki hjá þvi að hlusta,
vega og meta... og
sannfærast loks um,
að við lifum ótal
sinnum.
MARGIR AÍEÍSTARAR
Eftir
dauðann
- hvað þá?
George W Meek
Með þessari bók er svipt
burt þeirri hulu sem
aðskilið hefur okkar eigið
jarðsvið og það sem
stundum hefur verið
nefnt himnariki eða
heimurinn fyrir handan.
Hér kemur i fyrsta sinn
fram i bókaformi full
staðfesting á því að
hugur mannsins, dul,
minni og persónuleiki
lifa áfram eftir dauða
efnislíkamans.
Mikael
handbókin
Jose Stevens
Þessi eintæða bók er
skemmtileg lifandi kennsla
komin frá Mikael, vits-
munaveru á öðru
tilverustigi. Hér fást svör
við því hvers vegna
mennimir fæðast aftur og
aftur og hvernig
sálkjarhinn, innsta gerð
mannsins safnar sífelit i
sig meiri þroska. Mikael
handbókin er fyir alla sem
velta tilverunni fyrir sér,
alla sem vilja skilja sjálfa
sig og aðra betur.
Þessar bækur eru í sérflokki bóka,
sem gefnar eru út fyrir þessi jól.
Þær eru fyrir fólk, sem leitar og spyr
spurninga um lífið og tilveruna.
Þær spanna mörg svið
og láta engan ósnortinn.
NÝALDARBÆKUR
LAUGAVEGI 66 • SÍMI 627700 & 627701