Morgunblaðið - 22.12.1991, Síða 16

Morgunblaðið - 22.12.1991, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991 SLAGSMALÍ KRLSTALSSALNUM eftir Urði Gunnarsdóttur LEIKARARNIR mynda eina iðandi kös. Þeir eru að æfa slagsmál í Kristalssal Þjóð- leikhússins innan um voldug- ar Ijósakrónur og skrautlega stóla. Þeim til aðstoðar er kunnuglegt nafn úr heimi skáklistarinnar: Karpov. En þó Karpov þessi kunni ekki mikið meira en manngang- inn, er hann vel heima í öðru er varðar gang og hreyfingar í leikhúsi. Hann fer hratt yf- ir, kennir leikurunum að sparka, slá og skella í gólfið með miklum tilþrifum. í kringum þá sveimar túlkur- inn og þýðir eldsnöggt það sem þeim fer á milli. Þeir horfast einlæglega í augu þegar þeir talast við þó þeir skilji ekki hver annan án að- stoðar túlksins. En Karpov nær greinilega til sinna manna og svipur augnanna segir oft meira en mörg orð. .íkolaj Vasílíjevítsj Karpov ber fjölda titla. Hann er leik- ari og prófessor í sviðshreyfingum og skylmingunj við Ríkisleiklistar- skólann í Moskvu. unnið við uppsetningu yfir 80 sýninga, við 30 kvikmynd- ir og hefur starfað með mörgum þekktustu leikhúsmönnum heima- lands síns. Þá eru ótalin þau lönd sem hann hefur starfað í. Hingað er Karpov kominn í boði Þjóðleikhússins til þess að aðstoða við uppfærslu á jólaleikritinu, Rómeó og Júlíu, auk þess sem hann heldur námskeið fyrir leikar- ana. Ekki er hægt að segja annað en hann komi víða við á meðan á dvölinni stendur, því hann hefur einnig fylgst með æfingum á leik- ritinu „Eg heiti ísbjörg, ég er ljón“, sett upp skylmingaatriði hjá ís- lensku óperunni og þjálfað nem- endur Leiklistarskóla íslands. „Sviðshreyfingar sameina hugs- un og framkvæmd, skilning og hegðun leikarans undir ákveðnum aðstæðum," segir Karpov. „Leik- aranum nægir ekki að skilja verk- efnið sem fyrir hann er lagt, held- ur verður hann að vita hvernig það skal leyst. Leikari sem ekki þekkir verkfæri sitt til hlítar stend- ur auðvitað illa að vígi. Til að geta staðist þær kröfur sem leik- stjórinn gerir, verður leikarinn sem sagt að geta stjórnað þeim hæfi- leikum sem hann býr yfir. Þess vegna eru til iéiklistarskólar. Ef leikhúsið væri ekki svona þyrfti enga skóla, heldur brygðu leik- stjórarnir sér út á götu og kræktu sér í þann sem þeim litist best á og skelltu þeim á ijalirnar. Starf mitt er þannig fólgið í því að gera leikarann færan um að frarríkvæma ákveðna hluti, án þess þó að hann hætti að leika, svo sem að detta, slást, velta niður stiga, hoppa yfir hindranir, nota bók, ö '2 lí •o3 £ .fa X 3 tá . >D 'O 5"! T3 ’S gíi* > ^ Cfi 113 * 03 CJ 3 g * o 'O - - bxi •rp SS © en 'O , _ »; 2 I?t» ~ :£. s bcÆ s ° » 2 Cfl sQ s -P ^ g ra s- S- CÖ. e'3 a po.-2 ||3 •g) ® . 1? a) ~ £ » s ro > J g o -s S §•.&# staf eða vopn, svo eítthváð sé nefnt. I Rómeó og Júlíu þarf' Rómeó til dæmis að stökkva niður af fjögurra metra háum vegg og síðar að beijast eins og ljón upp á líf og dauða. Til að geta þetta verður hann að vera vel á sig korri- inn líkamlega en það eitt hjálpar honum ekki til að túlka sálar- ástand Rómeós. Þær tilfinningar vakna annarsstaðar og þeim verð- ur líka að koma til skila til áhorf- enda. Grundvallaratriði er að þróa ákveðna eigihíéika hjá leikaran- um, eiginleika á borð við hug- rekki, styrk, úthald, viðbragðsflýti og gott jafnyægisskyn. Einnig samvirkni tilfinninguna fyrir formi, rými og tímasetningu auk mýktar pg léttleika. Líkaminn er verkfæri sem hann tjáir tilfjnning- ar sína'r með og bætir þannig við merkingu textans." Það er ekki lítið sem góður leik- ari þarf að hafa á valdi sínu, leik- húsið virðist harður húsbóndi? „Já, leiklistina er ekki hægt að stunda nema með því að helga sig henni algerlega og færa persónulegar fórnir," segir Karpov. „Aðeins þeir, sem ekki geta lifað án leik- hússins eru færir um að starfa þar. Þeir leikarar Þjóðleikhússins, sem ég hef haft kynni af, eru fólk af þessu tagi. Þeir eru ekki hrædd- ir við að reýna eitthvað nýtt og njóta þess sem þeir era að gera, Auðvitað eru ekki gerðar sömu kröfur til yngri og eldri leikara, til dæmis hvað líkamsþrótt varðar, en það eitt að bæði reyndari og óreyndari leikarar skuli mæta til mín í tíma, sýnir að þeir stefna að því að bæta sig. Það er ákaf- lega mikilvægt, því þegar leikari fer að róast og missa áhugann hættir hann að vera spennandi. Ég hef tekið eftir því að óháð þjóðerni og leikhúshefðum eru leikarar um margt eins. Þeir eru Morgunblaðið/Þorkell bernskir og á vissan hátt varnar- lausir. Allir gera þeir sömu vitleys- urnar. Leikarar eru einstakt fólk sem þarf að vinna með eins og börn, elska heitt, leiða yfir götu og kasta síðan út í kalt vatnið til þess að kenna þeim að synda.“ Leikhúsið í heimalandi Karpovs á sér ríka hefð og hann segir stöðu þess furðugóða miðað við stöðu evrópsks leikhúss. „Munurinn á rússnesku leikhúsi og evrópsku er sá að Rússar eiga betri leikara. Ræturnar eru sterkari og svo er undirbúningurinn betri. Evrópskir leikarar fá aftur á móti að prófa svo margt, miklu meira en rússn- eskir starfsbræður þeirra, en hætta er á því að kunnátta þeirra sé þar af leiðandi yfirborðskennd- ari. Munurinn kemur til dæmis skýrt fram í uppbyggingu leiklist- arnámsins. í Rússlandi ber sami kennari ábyrgð á sínum sérstaka og sérvalda hópi allan námstím- ann; í fjögur ár. Þessi kennari, kallaður meistari, skilgreinir stefnu og skipulagningu námsins. Þegar leikararnir útskrifast svo að námi loknu og fara að'sækja um hlutverk, eru þeir ekki endilega spurðir í hvaða skóla þeil' lærðu, heldur hjá hveijum. ‘ Hvað evrópskt, og einnig ís- lenskt leikhús varðar, er tíma- skorturinn áberandi. Hann er dragbítur vestræns leikhúss. Það er ekki það að leikstjórarnir séu vondir,. heldur gefst þeim ekki tími til þess að fara ofan í smáatriðin, en það eru einmití þau sem skipta svo miklu máli. Áhorfandinn vill skynja blæbrigði smáatriðanna, það nægir honum ekki að vita að leikarinn eigi að vera ástfanginn maður, heldur vill hann sjá hvern- ig þessi maður hagar sér þegar hann er ástfanginn, hvernig það kemur fram í öllu hans fasi.“ Karpov er agaður maður. Hann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.